Morgunblaðið - 19.09.1959, Síða 15
Laugardagur 19. sepí. 1959
MORCVNBT/4Ð1Ð
15
Krúsjeff ber fram tillögur
um alheims-afvopnun
Mikiö
við
námuslys
Clasgow
Talaði í rúma klukkustund á alls-
herjarþingi S.þ.
NEW YORK, 18. sept.
— NTB-Reuter. —
NIKITA Krúsjeff ávarpaði í
dag allsherjarþing SÞ. í þess-
ari ræðu ræddi hann mest um
afvopnunarmálin og kom
fram með nýjar tillögur í
jeffs Þeir fengu það svar, að eng-
in svör væri hægt að gefa. For-
setinn hefði hvílt sig í dag á l>ú-
garði sínum í Gettysburg, en
hann myndi vandlega íhuga ræðu
hins rússneska forsætisráðherra.
Christian Herter utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna sagði blaða-
mönnum hins vegar í dag lítið
nýtt sjá í tillögum Krúsjeffs. Til-
lögur hans nú væru hinar sömu
og Maxim Litvinov utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna hefði lagt
fram í Þjóðabandalaginu fyrir
stríð. Hins vegar yrðu þessar til-
lögur að sjálfsögðu ræddar í af-
vopnunamefrídinni, þegar hún
kæmi saman til nýrra funda í
Genf.
þeim. Hann har fram í fáum
dráttum nýja áætlun um al-
þjóðlega afvopnun. í henni
felst það, að allar þjóðir af-
vopnist svo að styrjaldir
verði útilokaðar eftir fjögur
ár. —
Krúsjeff Iagði til, að öll
kjarnorkuvopn yrðu eyðilögð
og komið yrði í veg fyrir
framleiðslu þeirra í framtíð-
inni. Hann kveðst fallast á al-
þjóðlegt eftirlit til að koma í
veg fyrir að bannið verði rof-
ið. —
Þá lagði hann til, að allar
útlendar herstöðvar hvar sem
er í heiminum yrðu lagðar
niður.
Hermenn til friðsamlegra starfa
Krúsjeff sagðist stefna að því
endanlega með tillögum sínum,
að afnumdir skyldu herir, loft-
flotar og herskipaflotar allra
þjóða heims og að hermálaráðu-
neyti og herforingjaráð skyldtl
leyst upp og milljónir manna,
sem nú ganga í einkennisbúning-
um skyldu ganga til friðsam-
legra starfa. Kjamorkan skyldi
eingöngu notuð í friðsamlega
þágu og eldflaugar eingöngu sem
flutningatæki og til þess, að gera
mannkyninu kleift að fara til
landkönnunar á öðrum hnöttum.
I ræðu sinni sagði hinn rúss-
neski forsætisráðherra, að mann-
kynið hefði enn ekki gleymt síð-
ustu heimsstyrjöld. Því væri það
ósk þess og krafa, að ekki kæmi
til enn einnar og enn alvarlegri
styrjaldar.
ísinn bræddur
Líklegt að Serkir hafni
tillögum de Caulles
París 18. sept. (Reuter).
FORUSTUMENN í serknesku út-
lagastjórninni eru nú staddir í
Túnis, þar sem þeir ræða m.a.
um síðustu tillögur de Gaulles
Frakklandsforseta í Alsirmálun-
um. Það er haft fyrir satt, að
Habib Búrgíba forseti Túnis
hvetji foringja Serkja til að svara
tillögum de Gaulles á þann hátt,
að dyrnar standi opnar fyrir við-
ræðum og samningum um frið
og sjálfstæði Alsírs. Þrátt fyrir
þetta er talið líklegasl, að Serkir
hafni tillögum de Gaulles með
öllu.
Eins og kunnugt er lagði de
Gaulle til í ræðu sinni, að efnt
yrði tii þjóðaratkvæðagreiðslu í
Alsír um frámtíð landsins og
skyldu menn geta valið milli
Keflavík - Hafnar-
fjörður í knatt-
spyrnu
BÆ JAKEPPNI í knattspyrnu.
fer fram í dag milli Keflavíkur
og Hafnarfjarðar. Er þetta í
fyrsta skipti, sem slík keppni er
háð um verðlaunagrip, sem sér-
leyfisstöð Keflavíkur hefur gef-
ið. Vinnst hann til eignar í þrjú
skipti í röð eða fimm sinnurr.
alls.
Leikurinn í dag verður á gras-
vellinum í Njarðvíkum og hefst
kl. 4 e. h.
þriggja kosta. í fyrsta lagi fullt
sjálfstæði, í öðru lagi meðferð
innanríkismála í samstarfi með
Frökkum og í þriðja lagi að Alsír
verði hluti af Frakklandi. Vildi
de Gaulle fyrst að friði yrði kom-
ið á í landinu og þjóðaratkvæða-
greiðsla haldin, þegar friður hefði
ríkt í landinu í fjögur ár.
I dag birtist í egypzka blaðinu
Al Gomhouria forustugrein um
þessi mál. Þar segir, að það sé
mikilvægur áfangi,' að Frakk-
landsforseti viðurkennir sjálf-
ákvörðunarrétt Serkja. Hinsveg-
ar telur blaðið ekki hægt að fall-
ast á fjögra ára frestinn. fbúar
Alsír eigi að ráða málum sínum
strax og það sé ekki hægt fyrir
serknesku uppreisnarmennina að
leggja niður vopn gegn einum
loforðum Frakka, sem þeir hafi
verið vanir að svíkja^ á undan-
förnum árum.
Öfgamenn meðál evrópskra
landnema í Alsír hafa látið í það
skína, að de Gaulle hafi með
þessum síðustu tillögum gengið
feti of langt. Nú sé ekki annað
fyrir landnemana að gera, en að
gera nýja byltingu eins og þá sem
gerð var 13. maí 1958 og reka de
Gaulle af höndum sér. Frétta-
menn sem staddir eru í Algeirs-
borg kveðast þó ekki hafa orðið
varir neinna óróleika þar.
í dag var haldinn fundur um
utanríkismál í Evrópuráðinu í
Strassborg, sem 15 Evrópuþjóðir
eiga sæti í. Tóku fulltrúar Frakka
þar til máls og skoruðu á sammálf
unga sína að styðja þessar nýj-
ustu tillögur de Gaulles og sýna
það í verki.
Einnig lýsti hann yfir ánægja
sinni yfir því, að Eisenhower
Bandaríkjaforseti skyldi hafa
boðið honum til Bandaríkjanna.
Kvaðst Krúsjeff trúa því, að með
þessari heimsókn hans væri brot-
ið £ blað í veraldarsögunni. fsinn
væri nú bráðnaður. Hins vegar
þyrfti enn að bæta úr mörgu.
Margar þjóðir ættu enn ekki full-
trúa á þingi hinna Sameinuðu
þjóða, en þeim myndi fjölga því
að nýlenduskipulagið væri að
hrynja.
Krúsjeff ræddi ýmis önnur mál
efni. Hann sagði það fráleitt, að
kínverska kommúnistastjórnin
skyldi ekki eiga aðild að S. Þ.
Nauðsynlegt væri að fjarlægja
fulltrúa Sjang Kai-sheks úr fund
arsölum þeirra alveg með sama
hætti og nauðsynlegt væri að
grafa gömul lík.
Þá vék hann að samþykktinni
í öryggisráðinu um daginn varð-
andi skipun rannsóknarnefndar
í Laos-málinu og sagði í því sam
bandi, að það væri mjög var-
hugavert að afhenda neitunar-
valdið í S. Þ. Slíkt gæti leitt til
þess, að samtökin hryndu til
grunna.
Ræða Krúsjeffs stóð í 1 klst. og
12 mínútur. Að henni lokinni
kvað við mikið lófaklapp í fund-
arsalnum.
Tillögurnar ekki nýjar
Fréttamenn sneru sér í kvöld
til skrifstofu Hvíta hússins í Was
hington og leituðu eftir áliti Eis-
enhowers forseta á ræðu Krús-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 40., 42. og 43. tbl. Lögbirtingablaðsins
1959, á húseigninni Norðurhlíð við Sundlaugaveg, hér í
bænum, eign Ásthildar Jósefsdóttur, fer fram eftir kröfu
bæjargjaldkerans í Reykjavík, tollstjórans í Reykjavík
og Iðnlánasjóðs á eiginni sjálfri þriðjudaginn 22. septem-
ber 1959, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Hafnfirðingar
Oss vantar duglagan
afgreiðslumann
frá næstu mánaðarmótum
að telja.
Upplýsingar á skrifstofu
blaðsins í Reykjavík.
GLASGOW, 18. sept. (NTB) —®
Allt útlit var fyrir það í kvöld,
að 46 námumenn, sem lokuðust
inni í kolanámu 12 km fyrir utan
Glasgow, hefðu látið lífið. Stórir
björgunarflokkar vinna þó enn
að björgunarstörfum, en menn-
irnir lokuðust inni í 500 metra
dýpi. Sprenging varð á þessu
dýpi í morgun. Fóru björgunar-
flokkar þá þegar af stað og
björguðu sex mönnum en fundu
eitt lík. Eldur kom upp í nám-
unni, en í kvöld hafði tekizt að
slökkva hann á þesum stað. Hins
vegar virðist hann hafa breiðst
út til annarra námuganga. Björg-
unarstörf hafa verið mjög erfið
m. a. vegna þess, að timbur í
námugöngum og veggjum hefur
brunnið og veldur það jarðhruni.
Stjórnendur námunnar telja að
eldurinn hafi komið upp í loft-
ræstikerfinu og hafi sprengingin
orðið þegar neistar kveiktu í gas-
lofti. Námumennirnir, sem lok-
uðust inni höfðu enn ekki byrjað
starf, en voru á leiðinni niður
í jörðina, þegar reykjarmökkur
huldi þá.
LONDON, 17. sept — Tass-frétta-
stofan skýrir frá því, að tveir 24
lesta sovéskir snjóskriðbílar séu
lagðir af stað frá Mirny flugvell-
inum á heimsskautalandinu £ 4
vikna ferð nær 1500 km vega-
lengd til Vostok.
— ★ —
— Samanaburður
Framh. af bls. 6.
Ef á að ræða opinberlega
skatta og útsvör einstakra
manna, verður auðvitað að
birta framtöl þeirra. Vill Al-
freð Gíslason að lögum sé
breytt og öll framtöl gerð op-
inber? Þá myndi þar koma í
ljós, að um leið og ég greiði
rúmlega 50 þús. kr. í tekjui-
skatt, þá er Alfreð Gíslason
læknir svo atvinnulítill og
tekjurír, að hann getur ekki
borið nema 10 þús. kr. í tekju-
skatt.
Guðmundur J. Guðmundsson
tók aftur til máls og ítrekaði sína
megnustu vantrú á störfum nið-
ur j öf nunarnef ndar.
Guðmundur Vigfússon kvað
breytinga þörf á skattheimtunni.
Þá kvaðst hann samþykkur fyrri
hluta í tillögu borgarstjóra, eða
að bæjarfélagið fengi nýja tekju
stofna, en kvað það hins vegar
sína skoðun, að samvinnufélögin
ættu að njóta skattfrelsis, því ann
ars væri þeim gert ókleift að
starfa.
Geir Hallgrímsson kvað þessa
síðustu yfirlýsingu Guðmundar
Vigfússonar athyglisverða, en
kvað það mundi koma vel í Ijós,
hvort verzlunarformið þjónaði
neytendum betur ef samvinnufé-
lögum væri einnig gert að greiða
skatta á borð við önnur rekstrar-
form.
Hjartans þakkir færi ég öllum, sem glöddu mig á 70
ára afmæli mínu 10. sept. s.l., með heimsóknum, gjöfum
og skeytum og gjörðu mér afmælisdaginn ógleymanlegan.
Sérstaklega þakka ég Kvenfélagi Hraungerðishrepps.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Sigurðardóttir,
frá Hrygg Hraungerðishreppi.
Eiginmaður minn
GUÐNI JÓNSSON
andaðist að heimili okkar á Höfn í Hornafirði þriðjudag-
inn 15. þ.m.
Ólöf Þórðardóttir.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir
BRYNJÓLFUR ÓLAFSSON
Hverfisgötu 41, Hafnarfirði.
andaðist þann 18. þessa mánaðar.
Guðrún Árnadóttir,
börn, fóstursonur, tengdaböm.
Faðir minn
HELGI JÓNASSON
frá Brennu,
andaðist á Landakotsspítala að morgni þess 18. sept.
Atli Helgason.
Móðir okkar
KRISTRUN I. BENEDIKTSDÓTTIR
lézt að morgni 18. þessa mánaðar.
Unnur Ámadóttir, Ásta Bjömsson,
Katrín Stephenson, Benedikt E. Árnason,
• Ragnar T. Árnason.
Hjartans þakkir til skyldra og óskyldra fyrir alla
hjálp í veikindum og við útför mannsins míns og
föður okkar
GUÐNA PÁLSSONAR
Margrét Halldórsdóttir, Anna Guðnadóttir,
Guðfinna Guðnadóttir, Theódóra Guðnadóttir.