Morgunblaðið - 30.09.1959, Page 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 30. sept. 1959
10440 börn og unglingarí
skólum bœjarins
Skólastarfib hafið af fullum krafti
U Mþessi mánaðamót taka barna-
og unglingaskólarnir til starfa.
í gær boðaði fræðsluráð og
fræðslustjóri Reyikjavíkurbæjar
blaðamenn á fund með forystu-
mönnum barna- og unglingaskóla
bæjarins.
Helgi Hermann Eiríksson, for-
maður fræðsluráðs bauð^fundar-
menn velkomna og sagði frá til-
gangi þessa fundar sem nú væri
orðinn fastur árlegur viðburður
í upphafi hvers skólaárs. Á fundi
þessum væri blöðunum gefnar
upplýsingar um skólastarfið sem
x hönd færi og forystumenn skóla
gætu borið sáman bækur sínar.
Auk fræðsluráðs og fræðslustjóra
sitja fund þennan skólastjórar
bæjarins og yfirkennarar svo og
stjórnir stéttarfélaga barnakenn-
ara og gagnfræðakenhara.
Skólahaldið í vetur.
Jónas B. Jónsson fræðslustjóri
tók síðan til máls og skýrði frá
ýmsu sem fyrir lægi í starfi skól-
anna í bænum í vetur svo og
nemendafjölda og skíptingar í
skólahverfi.
Barnaskólar
Samkvæmt spjaldskrá fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur eru 8726
börn hér í bæ á barnafræðslu-
aldri. Af þeim munu væntanlega
sækja Barnaskóla Reykjavíkur í
vetur um 8050 börn eða 92,3%,
og verða í 296 deildum, þ.e. 27,2
að meðaltali í deild.
S.l. vetur sóttu Barnaskóla
Reykjavíkur 7867 börn og voru í
292 deildum. Auk þess eru um
500 börn í einkaskólum.
Starfandi fastir kennarar voru
sl. skólaár 225, þar með taldir
skólastjórar, en eru nú 228. Auk
þeirra starfa allmargir stunda-
kennarar.
Gagnfræðaskólar
í skyldunámi á gagnfræðastigi
í 1. og 2. bekk verða um 2390
nemendur í 84 deildum.
Sl. vetur voru nemendur á
skyldustigi 2262 í 81 bekkjar-
deild.
í III. og IV. bekk gagnfræða-
stigs (frjálst nám) verða í vetur
um 1310 nemendur og skiptast
þeir þannig:
í landsprófsdeildum 330 (370)
í verknámsdeildum 516 (440)
í alm'. gagnfræðanámi 464
(470) Kvennaskólinn meðtalinn.
Aukningin hefir fyrst og fremst
orðið í verknámsdeildum en hús
næðisskortur er fyrir kennslu þar
Samtals verða því í skólum á
gagnfræðastigi 3700 nemendur í
134 deildum (128 deidir í fyrra).
Starfandi fastir kennarar við
gagnfræðaskólana voru sl. skóla-
ár 126, en verða 132 í vetur auk
allmargra stundakennara.
Aukning 340 nemendur
Aukningin í skólunum hefir
því orðið á þessu ári alls 340 nem
endur og er hún minni en oft áð-
ur á undanförnum árum.
Nú taka til starfa tveir nýir
skólar hér í bæ, Vogaskóli, en
þar hófst kennsla raunar í des.
sl. og Hlíðaskóli, en þar mun
kennsla geta hafizt um miðjan
október.
Þá bauð fræðslustjóri vel-
komna þrjá nýja skólastjóra,
AFMÆXI.
75 ára er í dag frú Margrét
Guðmundsdóttir Hafnarstr. 20.
Herbergi
óskast til leigu í 4 mán., sem
næst Sjómannaskólanum. Fyr
irframgreiðsla. Upplýsingar
síma 23984. *
Helga Þorláksson skólastjóra við
Vogaskólann Guðrúnu Helgadótt
ir, sem tekur við skólastjórn
Kvennaskólans og Inga Kristins-
son skólastjóra Melaskólans.
Kvað hann skólamenn jafnframt
hugsa með hlýhug til þeirra er
frá störfum hyrfu.
Skólabyggingar.
Fræðslustjóri gat framkvæmda
við skólabyggingar í bænum og
kvað þær hafa gengið treglega á
yfirstandandi ári og væri þar
mest um að kenna skorti á iðn-
aðarmönnum, margar fleiri á-
stæður kæmu einnig til. Rakti
hann síðan þær framkvæmdir
sem orðið hefðu. Þá gat hann
nokkurra atriða, er snerta ýmis
nauðsynjamál og kennslu varðar.
Væri þar fyrst að nefna auka-
kennslu fyrir lestreg börn. Nokkr
ir kennarar hefðu fyrir tveim-
ur árum kynnt sér slíka starf-
semi í Svíþjóð og nú væri
kennsla hafin í nokkrum skólum
bæjarins. Væri hér um að ræða
mjög þarft starf.
Námskeið fyrir kennara.
Þá hefði verið efnt til nám-
skeiða fyrir þá kennara er fyrst-
ir taka á móti 7 ára börnum í
skólur um. Einnig hefði verið
haldið námskeið í meðferð
skuggamyndavéla og myndræmu
kennslu. Hefði fær sérfræðingur
annazt það. Skólar bæjarins ættu
nú 16 fullkomnar kvikmyndavél-
ar og 24 skuggamyndavélar. Unn-
ið væri og að aukningu og endur-
bótum á myndræmusöfnum. Þá
væri enn unnið að rannsóknum
á notkun skólaþroskaprófs að
sænskri fyrirmynd og héldi
henni áfram.
Talkennsla yrði í vetur minni
fyrir málhölt börn og stafaði það
af kennaraskorti. Hefðu 93 börn
notið slíkrar kennslu í fyrra.
Þá væri unnið að heima-
kennslu fyrir allmörg börn, sem
sakir sjúkleika gætu ekki stund-
að nám í skólunum.
Aukin efnafræðikennsla.
Fræðslustjóri þakkaði gott
samstarf við Jón Emil Guðjóns-
son frámkvæmdastjóra skóla-
Engin
tímatakmörk
Moskva 29. sept. (Reuter).
KRÚSJEFF staðfesti það í
dag, sem Eisenhower upp-
Iýsti á blaðamannafundi í
gær, að þeir þjóðarleiðtog-
arnir hefðu ekki sett viðræð-
um um Berlínarmálin nein á-
kveðin tímatakmörk. Hins-
vegar sagði hann að ekki yrði
hægt að draga það endalaust
á langinn. Skýri Krúsjeff frá
þessu á fundi með frélta-
mönnum Tass-fréttastofunn-
ar.
í kvöld ætlaði Krúsjeff að
Ieggja af stað flugleiðis til
Peking en þar ætlar hann að
vera viðstaddur hátíðahöld í
tilefni 10 ára afmælis valda-
töku kommúnista.
Maður slasast
í GÆRDAG féll maður ofan af
vinnupalli við húsið Eskihlíð 12.
Maðurinn heitir Guðmundur
Sigurpálsson, Eskihlíð 16. Mað-
urinn mun hafa fengið aðsvif
uppi á vinnupalli á fjórðu hæð
Hann hafði ekki fallið beint til
jarðar úr svo mikilli hæð, eitt-
hvað snert neðri palla. Hafði
maðurinn miklar þrautir í baki
eftir fallið og eins hafði hann
hlotið þó nokkurn áverka á höfði.
Var hann fluttur í Landspítalann.
vörubúðarinnar. Væri nú unnið
að kaupum á þýzkum eðlisfræði-
tækjum til aukinnar kennslu í
þeirri grein. Að síðustu minntist
Jónas B. Jónsson á sparifjár-
söfnun skólabarna og kvað reyk-
vísk börn hafa safnað tæpum
tveim milljónum króna.
Fræðslustjóri kvaðst vænta á-
framhaldandi og vaxandi góðs
samstarfs við blöðin. Þá óskaði
hann skólamönnum góðs farnað.
ar á komandi skólaári.
Samkomur Sjálf-
stæðismanr^
1 N-Þing.
RAUFARHÖFN
Sjálfstæðisfélag Rauf .rhafnar
efnir til samkomu í samkomuhús
inu á Itaufarhöfn laugardaginn
3. okt. n.k. kl. 9 síðdegis.
Ávörp flyt'ja þeir Björn Þór-
arinson, bóndi, Kílakoti og al-
þingismennirnir Jónas Rafnar og
Magnús Jónsson. Skemmtiatriði
annast Björgvin Júníusson og
sýnd verður kvikmynd með ís-
lenzku tali. Þriggja manna hljóm
sveit frá Akureyri leikur fyrir
dansi að loknum dagskráratrið
um.
ÞÓRSHÖFN
Sunnudaginn 4. okt. efna Sjálf-
stæðismenn á Þórshöfn til sam-
komu í félagsheimilinu. Hefst
hún kl. 9 síðdegis.
Dagskráratriði verða hin sömu
og á Raufarhöfn.
Enn rænulaus
SIGURÐUR Helgason frá Sól-
heimum í Blönduhlíð, seni
slasaðist illa miðvikudaginn
23. þessa mánaðar, er hestur,
sem hann reið, flæktist í vír
og hnaut — liggur enn rænu-
laus á Landakotsspítalanum,
og er líðan hans sízt betri, að
því er Morgunblaðinu var tjáð
í gær
Sækir um lóð
fyrir niðursuðu-
verksmiðju
Á FUNDI hafnarstjórnar er hald-
inn var fyrir nokkru var lögð
fram lóðaumsókn undir lóð til
þess að reisa niðursuðuverk-
smiðju. Var umsókn þessi frá
Jakobi Sigurðssyni fiskifræðingi.
Fer hann þess á leit við hafnar-
stjórn að hann fái lóð yzt á
Grandagarði fyrir niðursuðuverk
smiðju.
1799 lík fundin
og 1950 saknað
TOKÍÓ, 29. sept. (Reuter)
Tala þeirra sem fórust í
fellibylnum „Vera“ er kom
in upp í 1799, en enn eru
1950 manns taldir týndir.
Lögregla og herlið leitar
enn í húsarústum og uppi-
stöðulónum, sem mynduð-
ust við flóðin, sem fylgdu
fellibylnum. í einni smá-
borg fundust 600 lík.
Vandræðaástand er eink-
um í Nagoya-Héraði og er
talið að 180 þúsund manns
séu hjálparþurfi þar. Fjöldi
flugvéla frá Bandaríkjun-
um og Ástralíu kemur nú
til Tokíó með lyf og hjálp-
argögn.
Drengurinn hérna á mynd-
inni sem heitir Tómas, var að
leika sér niðri í fjöru í gærdag,
eins og þeir gera svo oft strák-
arnir í Skerjafirðinum, en þegar
hann var þar á gangi heyrði
hann allt í einu ámátlegt væl og
þegar hann gætti betur aðheyrði
hann að það kom undan járn-
plötu sem lá þarna á mjllisteina.
Hann tók plötuna upp en undir
henni lá lítill nýfæddur ketling
ur með plastpoka reyrðan um
höfuðið og var hann kominn að
köfnun. Hefur hér verið framið
enn eitt ódæðisverkið á mál-
leysingja, og vekja verknaðir
sem þessi, gerðir af manna hönd
um megnan viðbjóð allra heil-
brigðra manna. Tómas litli
leysti kisa úr prísundinni og fór
með hann heim til sín og gaf
honum volgan mjólkursopa, því
kisi var mjög kaldur og hrjáður
og svo hjó Tómas um hann í
pappakassa.
Prestum í Reykjavík
verður fjölgað um þrjá
EFTIR því sem Mbl. hefur fregn
að er það nú að komast á dag-
skrá, að fjölgað verði prestum
eða prestaköllum hér í Reykja-
vík, þannig að bætt verður við
þrem prestum. Síðast var fjölgað
prestum hér í höfuðborginni árið
1952. Svo mjög hefur íbúum bæj-
arins fjölgað síðan, að aðkallandi
er talið að það dragist ekki úr
hömlu fram að fjölga þeim nú.
Það eru aðallega þrjú presta-
Hátíða-
höld
í Peking
PEKING, 29. sept. (Reuter) —
Hátíðahöld eru hafin í tilefni
þess að 10 ár eru liðin síð-
an kínverskir kommúnistar
sigruðu þjóðernissinna. t dag
var haldin samkoma í nýrri
riststórri þinghöll í borginni
við „Torg hins himneska frið-
ar“. Áhorfendur voru 10 þús-
und talsins. Margar skraut-
sýningar voru haldnar og for-
seti landsins Liu Shao-chi
flutti ræðu, þar sem hann
þakkaði Mao Tse-tung sérstak
lega forustu hans. Þá fluttu
kommúnistaforingjar úr 59
löndum heims ávörp. Þeirra á
meðal var Mihail Suslov fram
kvæmdastjóri rússneska
kommúnistaflokksins, sem
sagði að Kínverjar mættu
treysta á aðstoð Rússa.
Það vakti nokkra undrun,
að tveir af varaforsætisráð-
herrum Kína, þeir Peng Teh-
huai marskálkur og Chen Yun
voru ekki viðstaddir hátíða-
höldin. Vekur þetta grun um
að þeir hafi verið „hreinsað-
ir“. Peng Teh-huai var til
skamms tíma yfirmaður kín-
verska hersins, en lét af því
embætti fyrir 12 dögum. Chen
Yun hefur verið helzti efna-
hagsmálasérfræðingur stjórn
arinnar og má vera, að honum
sé nú kennt um hin alvarlegu
mistök, sem orðið hafa í efna-
hags- og framleiðslumálum
landsins.
köll, sem fólksfjölgunin nær til,
en þau eru Nessókn, Langholts-
prestakall og Bústaðasókn.
Svo er gert ráð fyrir að hér
í bænum skuli jafnan vera einn
prestur á hverja fimm þúsund
íbúa. Það er vitað að í fyrrnefnd-
um sóknum hefur fólksfjölgunin
orðið svo mikil. á undanförnum
árum og fjölgar enn stöðugt, að
langt er komið yfir þessa tölu
sóknarbarna þeirra presta er
þjóna í prestaköllum þessum.
Ekki er Mbl. kunnugt um á
hvern hátt fjölgun presta er fyr-
irhugúð. Það kemur til kasta
ráðamanna í þessum. efnum, að
gera annað tveggja, að fjölga
prestum í fyrrnefndum söfnuð-
um, þannig að þeir verði tveir er
þjóni eða að skipta núverandi
söfnuðum í fleiri sóknir. Varð-
andi Bústaðasókn er þess að
geta, að sóknarpresturinn þar
þjónar jafnframt Kópavogskaup-
stað. —
Kjölur að nýjum
Fossi lagður
o
Á MORGUN, 1. okt., verður
lagður kjclur að nýjum „Fossi“
Eimskipafélags Islands. Verður
þetta skip systurskip Selfoss og
það byggt í hinni miklu skipa-
smíðastöð Álaborgar. Gert er
ráð fyrir að smíði skipsins verði
1 að fullu lokið og það afhent Eim-
'skipafélagsins fyrir jól 1960.