Morgunblaðið - 30.09.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.09.1959, Blaðsíða 6
6 MOJt^rrvnr 4ðið Miðvik'udagur 30. sept. 1959 Johan Falkhergef I DAG undum skáldið Johan Falkberget, átt- ræðisafmæli. Hann'er einn helzti talsmaður alþýðunnar í norræn- um bókmenntum, og hafa skáld- sögur hans um námumennina í Röros og héruðunum þar í kring skipað honum á bekk með stór- skáldum Noregs. Mestar þeirra og þekktastar eru „Christianus Sextus“, sem kom út í þrem bindum á árunum 1927—35, og „Nattens bröd“, sem komið hef- ur út í þremur bindum síðan 1940. Fjórða og síðasta bindið kemur út á afmæli skáldsins. Johan Falkberget er ósvikið „fjallaskáld", enda alinn upp í fjallahéraði nálægt landamærurn Svíþjóðar. Faðir hans var námu- verkamaður af norskum bænda- ættum, en móðir hans var komin af sænskum námumönnum, sem fluttust til Noregs á 17. öld. Hann fór sjálfur að vinna í námunum átta ára gamall og hélt þvi áfram til 27 ára aldurs árið 1906. Hafði hann þá þegar gefið út nokkrar sögur, sem ekki vöktu sérlega at- hygli. En með skáldsögunni „Svarte fjelde“ (1907) settist hann á skáldabekk. í þessari og næstu bókum vann hann ný lönd fyrir norskar bókmenntir með lýsingum sínum á kjöriun námu- verkamanna. Falkberget er raunsær í lýsing- um sínum á lífi erfiðismannanna, en hann lyftir þeim jafnframt upp yfir gráma og leiðindi rúm- helginnar: þær gneista af fersku lífi og óvæntum ævintýrum. Námumennirnir eru sundurleit hjörð, full af uppreisnarhug og fjandskap við hina staðföstu og jarðelsku bændur í nágrenninu, en þeir eiga þó hver og einn sín arfgengu verðmæti og sína við- kvæmu sál. Undirstraumurinn í bókum Falkbergets er bróður- kærleikur sem á dýpri rætur en stéttahatrið. Verkamennirnir í sögum hans hafa yfir sér blæ hetjunnar, því þeir eru ekki múlbundnir við duftið, heldur eiga sér drauma sem stækka líf þeirra og gefa því víðtækari merkingu. Lífstrú höfundarins og skynjun á hinum stærri rökum lífsins kemur fram í sögupersónunum og hefur skáld skapinn í æðra veldi. Þetta á ekki hvað sízt við um hinar sögulegu skáldsögur, sem Falkberget hóf að gefa út árið 1913. Fyrsta sagan í þeim flokki var „Eli Sjurs dotter", sem fjallar um hið mikla norræna stríð 1700—1720. Falk- berget varð snemma fyrir djúp- um áhrifum af sögusögnum um hina voveiflegu atburði í sam- bandi við fall Karls XII, þegar Armfeldt hörfaði með her sinn úr Þrændalögum og rúmlega 3000 sænskir hermenn frusu í hel í janúar 1719 við Essand-vatnið. Hann hafði á unga aldri lifað það að námumenn urðu úti í fjöllun- um, og hann þekkti af eigin raun ótta fjallabúanna við hungur og kulda. 1 fyrstu bókum hans hafa lýsingarnar á þessum miklu mannraunum rómantískan blæ, en þegar frá líður kemur meira jafnvægi milli raunsæisins og hinnar rómantísku hrifningar, og er skáldsagan „Den fjerde natte- vakt“ (1923) fyrsta stóra dæmið um það. Falkberget dvaldist á árunum 1907—1922 í Osló, en hvarf þá heim til föðurtúna og tók við jörðinni hjá Rugelsjöen, sem faðir hans hafði átt. Árin í höfuð borginni höfðu verið lærdómsrík og þroskandi. Þegar heim kom tók hann að búa sig undir verkið, sem átti eftir að skipa honum í flokk beztu norskra höfunda og gera byggðarlag hans frægt í bókmenntunum. Hann las norr- æna sögu af kappi, kynnti sér á einn af öndvegishöf-1 í sænskri sögu, gerði rannsóknir Norðurlanda, norska | á staðháttum og málfari í heima- byggð sinni, las skjöl og skýrslur námufélagsins og fór yfir nafna- skrár þess í margar aldir. Þannig fékk hann yfirsýn yfir efnið, enda varð „Christianus Sextus“ stórbrotið og margslungið verk. Sagan gerist skömmu eftir norræna ófriðinn og fjallar um lífið og stritið í námunni Christianus Sextus. Persónurnar eru fjölmargar og sundurleitar, vellærðir málmvinnslumenn frá mörgum löndum, ófyrirleitnir ævintýramenn, dularfullir gull- gerðarmenn, duglegir verkamenn og sænskir smiðir með sálina fulla af járni og kopar. Armfeldt- harmleikurinn myndar rammann um verkið. Á þessum viðsjár- verðu tímum leggja 13 verka- menn frá Jámtlandi á Kjölinn til að komast til námunnar Christ- ianus Sextus í fjalHnu hjá Röros. Við sjáum greinilega ætt- rækni skáldsins og samúð hans með Svíum { lýsingunni á sjö daga þrautagöngu þessara 13 manna yfir öræfi landamæra- héraðanna. Þessu mikla sögu- lega skáldverki Falkbergets var strax jafnað við tvö önnur stór- verk norskra bókmennta, „Krist- in Lavransdatter" eftir Sigrid Undset og „Juvikfolket" eftir Olav Duun. Skáldverkið „Nattens bröd“ fjallar um fyrra tímabil í sögu Noregs, seinni hluta 17. aldar. Er þar lýst upphafi námugraftar í Röros-héraði og fyrstu kynnum bændanna af fjármagni. Höfuð- persónan er fátæk málmkeyrslu kona, An-Magritt. Fólkið í þröng- um heimi hennar er þrælbundið ævilöngu striti í námunum, það þrælar, bölvar og slæst, og marg- ir gera henni skráveifur. En hún á hreinleik og óbuganlegt fram- tak, sem sigrar alla niðurlæg- ingu og harðneskju. Hún er ná- skyld Sölku Völku, — Ditte Menn eskebarn og Mutter Courage, og verður þannig tákn um ódrepandi seiglu og staðfestu hinna kúguðu og vanræktu hvar sem er í heim- inum. Við hlið þessarar ógleymanlegu konu hittum við" Hedström frá Falun, dularfullan sænskan öld- ung, sem virðist hafa lifað marga mannsaldra. Hann ríður gömlum horuðum hesti hvar sem hann fer, og stundum fer hann geyst. Þessi dularfulli öldungur er i rauninni táknið um hið harða og óræða réttlæti, sem hvarvetna kemur við sögu. En hann er í öðr- um skilningi dulbúinn persónu- gervingur skáldsins sjálfs: hann á hugarflug og vísdóm skapara síns, kristna lífsskoðun hans, dulúð hans og þekkingu á sögn- um fjallahéraðanna. Fjórða bindi þessa mikla sagna bálks, sem kemur út á afmæli skáldsins, ber hið táknræna nafn „Kjærlighets veier“. Johan Falkberget hefur auk margra skáldsagna skrifað fjöld- ann allan af greinum, ort ljóð og samið æviminningar, þannig að lífsverk hans er orðið mikið að vöxtum. Kunnust bóka hans á íslandi er sennilega gamansagan „Bör Börson“, sem Helgi Hjörvar þýddi og las í útvarp fyrir nokkrum árum. s-a-m. JOHAN FALKBERGET Ályktanir Verzlunarráðs Efnahagsmál Aðalfruidur Verzlunarráðs ís- lands 1959 vill vekja athygli a því, að ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið í efnahagsmál- um þjóðarinnar að undanförnu muni ekki nægja til þess að skapa efnahagslegt jafnvægi og at- vinnuöryggi í landinu. Fundurinn telur eftirfarandi ráðstafanir nauðsynlegar til þess að ná því marki: 1. Fjárfesting og bankaútlán verði við það miðuð, að komizt verði hjá verðbólgu. Telur fund- urinn nauðsynlegt, að bankalög- gjöfin verði endurskoðuð og hef- ur gert um það sérstaka sam- þykkt. 2. Útgjöldum ríkissjóðs verði haldið innan þeirra takmarka, að hann verði greiðsluhallalaus. 3. Uppbótakerfið verði afnum- ið, þannig að þær atvinnugreinar, sem erlends gjaldeyris afla, fái jafna aðstöðu og misræmið hverfi milli innlends og erlends verð- lags. Atvinnurekendur beri þá sjálfir áhættu og ábyrgð í rekstri fyrirtækja sinna. 4. Dregið verði úr niðurgreiðsl- um á innlendum vörum og í þess stað auknar fjölskyldubætur og gera hliðstæðar umbætur í fé- lagsmálum. 5. Stefnt verði að því, að við- skiptum og atvinnurekstri verði búið sem bezt svigrúm til at- hafna og sanakeppni, sem koma mun þjóðinni í hag með aukinni fremleiðslu og bættum lífskjör- um. Bankamál Aðalfundur V. í. 1959 telur nauðsynlegt, að sett verði ný löggjöf um íslenzka banka, er marki skýrt verkefni og verk- svið seðlabankans annarsvegar og viðskiptabanka hinsvegar. Tryggt verði, að seðlabankinn verði sem sjálfstæðastur og ó- háður stjórnmálaátökum. Hlutverk seðlabankans verði að vernda verðgildi íslenzku krónunnar, stuðla að jafnvægi á lánsfjármarkaðinum, frjálsum gjaldeyrisviðskiptum við útlönd og nægilegri atvinnu í landinu. • í verkahring seðlabankans falli eingöngu viðskipti við peninga- stofnanir og ríkissjóð. Hann ann- ist seðlaútgáfu, yfirstjórn og eft- irlit gjaldeyrismála, skráningu á gengi erlends gjaldeyris og ákveði forvexti á endurkeyptum víxlum og reglur um handbært fé viðskiptabankanna. Verkefni viðskiptabankanna verði fyrst og fremst að sjá at- vinnuHfinu fyrir rekstursfé og annast gjaldeyrisverzlun við úr skrifar dagleqq lífinu Velvakanda hefur borizt eftir- farandi bréf frá bifreiðaeftirliis- K Um glitaugu á bifreiðum ÆRI Velvakandi! í daglega lífinu 25. sept. sl. birtir þú bréf frá bílstjóra, er kom austan úr sveitum.í bréfi bílstjóra er talað um ljósaútbún- að og glitaugu á vörubifreiðum. Bifreiðastjóri virðist ekki vera kunnugur þeim reglum, er giida um glitaugu (kattaraugu) á bif- reiðum og segir að bifreiðaeftir- litið banni ljós á stýrishúsum, hornum stýrishúsa eins og hann orðar það í béfinu. — Það er ekki rétt hjá bílstjóra, bifreiða- eftirlitið bannar ekki breiddar- ljós á yfirbyggingu bifreiða. Bifreiðaeftirlitið fylgir ná- kvæmlega þeim reglum, sem um þennan öryggisbúnað gilda. Þær bifreiðar, sem eru breiðari en 235 sm. eiga að hafa breiddarljós t. sérstaklega karólínska tímabilið id. á þaki stýrishúss, þær sem eru undir þessari breidd eiga ekki að hafa breiddarljós. Bifreiða- eftirlitið hefur lagt ríka áherziu á, að allar vörubifreiðar, hvort sem þær eru yfirbyggðar eða með venjulegum vörupali, hali rauð glitaugu á pallhornum að aftan, en bent bifreiðastjórum á, að ekki mætti hafa rauð glitaugu að framan, heldur aðeins hvít eða gul. Hirða ekki nóg um ljósin. ÞÁ er gott að minnast á annað. Of mikið ber á því, að bií- reiðastjórar hirði ekki nægilega vel um: Afturljós, stefnuljós, eða glitaugun á bifreiðum sínum, þ. e. hreinsa of sjaldan óhreinindi af þessum öryggistækjum bifreið anna. Þá er einnig of mikið kæru- leysi hjá ökumönnum, þegar þeir aka með annað framljósið í ólagl. Bifreiðastjórar vita það, að ef ljósaútbúnaður á bifreiðinni er ekki í lagi, er óheimilt að aka henni á ljósatíma. Þá er og rétt að minnast á stefnuljósin og notkun þeirra. — Allt of margir ökumenn eiu kærulausir með stefnuljósin, gleyma þeim á í lengri tíma eftir að þeir hafa tekið beygjuna og sézt hefur að bifreið, sem búið var að leggja á bifreiðastæði var með „blikkandi" stefnuljósum þar til eigandinn kom, eftir lang- an tíma. Hér er verkefni fyrir lögregt- una að sekta alla er misnota stefnuljósin. Bifreiðaeftirlitsmaður. Þau hafa ekki hækkað. Nærfataframleiðandi hér í bænum kom að máli við Velvakanda í gær í tilefni bréfs Ingibjargar frá Akureyri. Kvað hann engin föt hafa hækk- að í verði a. m. k. ekki síðan um áramót, enda hefði verðlags- skrifstofan að sjálfsögðu ná- kvæmt eftirlit með verðhækk- unum. fyrirtæki og einstaklinga, en lán til fjárfestingar verði byggð á fjáröflun til lengri tíma, svo sem með sölu skuldabréfa. Tryggt verði, að viðskiptabankar, hvort sem um er að ræða ríkisbanka, eða einkabanka, starfi á við- skiptlegum grundvelli óháð stjórnmálasjónarmiðum. Heimilt verði að stofna viðskiptabanka að ákveðnum skilyrðum fullnægð um, og skulu allir bankar hlíta sömu reglum um aðhald og eftir- lit af hálfu seðlabankans. Kaupþing Aðalfundur V. í. 1959 telur nauðsynlegt, að stofnað verði með lögum verðbréfakaupþing, þar sem frjáls viðskipti með vaxtabréf og hlutabréf fari fram á uppboði. Fundurinn álítur, að á þann hátt muni skapast möguleikar á aukinni lánsfjármyndun til langs tíma og meiri eignaraðild al- mennings í atvinnufyrirtækjum þjóðarinnar. Verðlagsmál Aðalfundur V. í. 1959 ítrekar kröfur sínar um frjálsa verð- I myndun, þannig að heilbrigð sam keppni ráði vöruverði og þjón- ustu við almenning. Meðan verðlagsákvæði gilda, krefst fundurinn þess, að fullt tillit sé tekið til raunverulegs kostnaðar við innkaup og dreif- ingu vara í landinu. Utanríkisviðskipti Aðalfundur V. I. 1959 varar við þeirri hættu, sem verzlun landsmanna stafar af því að binda utanríkisviðskiptin um of við vö.ruskiptalöndin. Fundurinn álítur, að stefna beri markvisst að því, að mark- aðir sem fyrir hendi eru í frjáls- gjaldeyrislöndunum, séu nýttir betur en verið hefur og nýrra markaða leitað í þeim löndum, enda hefur reynslan sýnt ,að vör- ur frá þeim fullnægja betur þörf- um neytenda. Tilhögun gjaldeyrisúthlutunar Aðalfundur V. f. 1959 lítur svo á að eðlilegast sé, að verkefni þau, sem Innflutningsskrifstofan hefur með höndum varðandi ráð- stöfun á gjaldeyri, verði flutt yf- ir í gjaldeyrisbankana og að stefnt sé að því, að Innflutnings- skrifstofan verði lögð niður. SKATTAMÁLANEFND Skattamál. Aðalfundur V.f. 1959 vill leggja Framii. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.