Morgunblaðið - 30.09.1959, Side 10

Morgunblaðið - 30.09.1959, Side 10
10 MORCVNnr 4fílE Miðvikudagur 30. sept. 1959 Sogsraf- magnið teygir sig um Hreppana ÞAÐ er skemmtilegt að aka um sveitir landsins í góðu veðri á haustin, þegar haustlitirnir fær- ast yfir, og úthaginn sýnist rauð- ur á lit í aftanskininu. í fjarska gnæfa fjöllin yfir flatlendið, hvít ofan í miðjar hlíðar. Austur í Hreppum er fagurt á slíkum haustdögum. Og þannig var í byrjun síðustu viku, þegar blaðamaður Mbl. átti þar leið um. Þessi fagra og vinalega sveit tjaldaði sínum fegursta haust- skrúða. í sumar hafa Rafmagnsveitur ríkisins látið reisa staura, sem bera eiga nýja háspennulínu, er tryggja mun fjölda heimila í Hreppunum öruggt rafmagn. — Það voru miklar annir á bæjun- um þennan sólfagra dag, svo sem jafnan er, þegar komið er fram yfir miðjan septembermánuð til sveita. Hekla blasti við í öllu sínu veldi, en látlausar rigningar byrgðu að öðru leyti alla fjalla- sýn frá bæjum í Hreppunum. Og nú hugsuðu menn til gangnamann anna, sem voru aftur að komast í byggð. Það var talið sennilegt að þeir hefðu fengið slæmt veð- ur, jafnvel að þeir hefðu lent í hríð inni á hálendinu. Við staðnæmdumst á veginum fyrir ofan Hæli í Hreppum. Það- an bárust taktföst hamarshögg í kyrrðinni. Tvö vegleg íbúðarhús eru þar í smíðum, fokheld orðin og vel það. Bændurnir á Hæli, bræðurnir Einar og Steinþór Gestssynir stóðu í janúarmánuði s 1. yfir rústum heimila sinna í gamla bænum eftir bruna, er þar varð eina nóttina. Nýju húsin, sem þeir hafa nú reist, eru mjög vegleg og falla vel inn í landslagið. Þau eru stór nokkuð, enda fjölskyldur þeirra bræðra fjölmennar, upp undir 30 manns samanlagt. Þegar við renndum í hlað á Hæli, voru bræðurnir báðir úti í fjósi yfir kú, sem var að bera. Þeir höfðu áhyggjur af kúnni, sem ekki virtist geta borið kálf- inum nema með aðstoð dýra- læknis. Það var i senn fróðlegt og ánægjulegt að sjá, hversu heim- ilisfólkið á Hæli hefur brugðizt við þeim vanda, sem þvi var á höndum, þegar gamli bærinn brann. Bæjarhúsið var að vísu ekki mjög gamalt, en orðið allt 'f þröngt fyrir hin stóru heimili þeirra bræðra, Einars og Stein- þórs. Lengst af hefur fólkið látið sér nægja að vera í einföldum í Geldingarlioiti. — Einu sinni var vindrafstöð þar. — Mastrið, sem rellan var á, stendur uppi. — skúr, og notaði geymslu í einni stórri fjósbyggingu fyrir eldhús. Sumir á heimilinu hafa sofið uppi á fjósloftinu, en aðrir í skúrnum. Nú er verið að leggja miðstöðvarlögn í húsin og fólkið á Hæli vonast til að geta flutt £ þau áður en langt um líður. Bræðurnir sögðust hafa notið mikillar hjálpsemi nágranna sinna í sveitinni til að koma hús- unum upp. — Til dæmis hjálp- uðu þeir okkur við að slá upp og við steypuvinnuna. Hefur þetta orðið okkur ómetanlegt, sagði Steinþór. Hæli í Hreppum er vafalaust meðal merkustu jarða þar um slóðir. Þar hafa forfeður Hælis- búa búið hver fram af öðrum síð- an á miðri 18. öld. Hæli.er mjög stór jörð og hafa þeir Einar og Steinþór bætt hana, stækkað tún og byggt vegleg útihús, og búa nú góðu búi. Og þegar við rædd- um um Hæli og möguleikana þar, sagði Steinþór okkur, að þeir bræður myndu geta látið börn- um sínum í té nóg landsvæði, því svo stórt er land Hælis, að þar má nú koma fyrir 15 nýbýl- um, af þeirri stærð sem nú tíðk- ast, en það munu verá um 50 ha. land, sem hverju slíku býli er ætlað. Þegar við stóðum á hlað- inu í Hæli sýndu bræðurnir okk- .ur, hvar þeir hafa látið ræsa fram mikið landflæmi, sem þeir eru að nokkru byrjaðir ræktun á, en tekið verður áður en langt um líður. Svo kemur blessað raf- magnið í vetur, sagði Steinþór, og benti okkur á háspennustauraröð ina, sem lá niður og vestur tún- ið, vestur yfir hæðirnar í áttina að Háholti. — Okkur hefur skil- izt af ráðamönnum, að nú vanti aðeins vfrinn í háspennulínuna. Það má teljast mjög bagalegt, þegar staurarnir eru loksins komnir upp. Háspennulínan kom hingað úr Hrunamannahreppi, en þar í hreppnum fá 6 heimili raf- magn. Við báðum Steinþór að segja okkur, til gamans og fróðleiks, hvaða bæir það væru og eins í Gnúpverjahreppi ofanverðum.. Nefndi Steinþór fyrir okkur alla Háspennusamstæða á túninu fyrir neðan nýju bæjarhúsin á Hæli. — Rafmagnið verður að koma áður en skammdegið skellur á. (Ljósmyndir Mbl.: M. Ö. Ant.) þessa bæi. — í Hrunamanna- hreppi eru það: Galtafell, Núp- tún, Hrepphólar og tvö nýbýli þar og Hólakot. 1 Gnúpverja- hreppi fá þessir bæir rafmagn, þegar línan hefur verið að fullu lögð: Ásbrekka, Háholt, þrjú ■heimili í Geldingarholti, tvö heimili hér á Hæli, önnur tvö í Hlíð, Lækj arbrekka, Steinsholt, Austurhlíð, Minni-Mástungur. tvö heimili í Ásum og skólinn þar, Stóri-Núpur og kirkjan á Stóra-Núpi, Minni-Núpur, Ham- arsheiði, Hamarsholt og Víðihlíð. Viðbrigðin verða að sjálfsögðu stórkostleg fyrir fólkið á bæj- unum að fá- nú rafmagnið. — En bændur her í Hreppunum hafa víðast hvar komizt í nokkur kynni við ágæti rafmagnsins. Raf stöðvar eru heima við bæina, ;n rafmagnið frá þeim er í senn ófullnægjandi, og óöruggi, bilan ir sífellt yfirvofandi, sagði S'tein þór bóndi. Það er staðreynd að nægilegt rafmagn er eins aðkall- andi og nauðsynlegt fyrir bænd- ur í nútíma þjóðfélagi hér á landi eins og góðar gæftir og afli hjá útgerðarmanni á Suðurnesjum, svo tekið sé dæmi. Því vænta bændur þess hér í Hreppunum, að rafvæðingaráætlur.in muni standast, því þegar þessir bæir hér í Hreppunum, sem ég taldi upp áðan, hafa fengið rafmagn, mun láta nærri, að um helming- ur heimilanna í öllum hreppnum sé búinn að fá Sogsrafmagn. Á næsta ári mun áfram verða hald ið við lagningu háspennulínu og þá fjölgar enn þeim heimildum, sem rafmagnið fá. Þið ættuð að leggja áherzlu á það, sagði Stein þór, að það er nauðsynlegt að fá háspennuvírinn sem fyrst, ,svo að þessi háspennulína komist sem fyrst í notkun og heimilin fái rafmagn, áður en skammdeg ið heldur innreið sína. Það myndi valda sveitungum okkar miklum vonbrigðum, svo ekki sé meira sagt, verði því ekki komið í kring fyrir þann tíma. En nú kom lítil ljóshærð telpa hlaupandi til pabba síns og sógði honum að kýrin væri borin. — En kálfurinn er dauður, bætti hún við. Ekki var lengur til set- unnar boðið. Úti á hlaði var mikið um að vera. Unga fólkið á Hæli var á þönum um húsin, því á stórum sveitaheimilum er alltaf nóg að starfa. Einn af sonum Einars var að leggja af stað í smalamennsku Tilhlökkunin var mikii, því hann átti að fara á einum bezta gæð- ingi þeirra á Hæli, með nestis- tösku og góðan útbúnað. Og þrátt fyrir tilhlökkunina, þá gaf ungi maðurinn sér tíma til þess að raka sig, gður en hann færi a£ stað. Og á meðan hann gerði það kom móðir hans fyrir góðu nesti í hnakktösku. Allir krakkarnir á Hæli ætluðu að fara á móti safninu þegar það kæmi fram sveitina. Kr. 2.148.00 Kr. 1.973.50 Optima ferðaritvélar og skólaritvélar nýkomnar. Garðar Gísiason hf. Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.