Morgunblaðið - 30.09.1959, Side 13

Morgunblaðið - 30.09.1959, Side 13
Miðvikudaerur 30 sept. 1959 MORGVNBLAÐIÐ 13 Valdimar Bj örnsson: Hver er munurinn á demokrötum og republikönum? OKKUR hjónunum finnst það stór viðburður að vera komin heim til íslands einu sinni enn. Dettur mér í hug að minnast þess um leið að mér finnst aðrir stór viðburðir fylgja á nærri ein- kennilegan hátt, komum mínum til íslands. Það var fyrir rúmum 25 árum að ég „eygði fyrst, ísland morg- ungeislum kysst“. Ég kom hingað í tveggja mánaða heimsókn, seint að sumri 1934. Stórviðburðurinn þá var, minnir mig, að Hermana Jónasson varð forsætisráðherra í fyrsta skipti, 38 ára, og Eysteinn Jónsson f jármálaráðherra, 27 ára. Næst skiptið sem ég kom til Islands var í einkennisbúningi sjóliðsforingja, stríðsárin — og spurði Helgi Hjörvar mig oft á förnum vegi: „Hvenær hefur þú komið síðast á sjó, Valdimar minn?“ Og stóri viðburðurinn þá, burt séð frá heimsstyrjöldinni, var að Sveinn Björnsson ríkis- stjóri þurfti að skipa einbættis- manna-stjórn sökum þess að meirihluti náðist ekki meðal flokka er sæti áttu á Alþingi. — Kjördæmabreyting og tvennar kosningar voru aðrir stórviðburð- ir það árið. Loksins kvaddi ég Island — og það með söknuði — nokkru fyrir jól, árið 1946, eftir nærri því fjcgurra ára vist. Þaðan af kom- um við hjónin hingað sumarið 1950 — og á ég íslandi að þakka ekki aðeins ættfeður og mæður, heldur eiginkonu líka. Ekki brást venjan. Stórviðburðurinn þá var einmitt sá að Kóreu-stríðið brauzt út á meðan við vorum hér í Reykjavík. Næst hlotnaðist mér að komast hingað til íslands í er- indum Bandarísku stjórnarinnar vorið 1953 — hvað skeður þá? Jósef Stalín deyr í Moskvu! Síðast var ég hér heima í janú- ar 1955. Ekki man ég eftir stór- viðburði á heimsmæiikvarða þá, en þó — kaldast var hér á íslandi einmitt um það leyti, svo að varla hafði annað eins þekkzt síðan frostaveturinn mikla 1918! Og nú hvað, í þessari heimsókn- Krush- chev hinn rússneski er bara kom- inn í heimsókn til Bandaríkj- anna! Og einu sinni enn er kjör- dæmabreyting og tvennar kosn- ingar á íslandi. Sumir góðkunningjar í Vestur- heimi voru að forvitnast um fyr- irlestrarför mína til íslands — og er ég sannarlega þakklátur Stúd- entafélagi Reykjavíkur fyrir höfðinglegt boð, og stjórnendum Loftleiða fyrir ferð okkar hjón- anna hingað og vestur aftur. Ég var að segja Eyjólfi Konráð Jónssyni þegar við byrjuðum að skrifast á, um þetta allt sam- an — og var það í janúar í vet- ur sem leið — að ég væri nú ekk- ert sérlega að kippa mér upp við það að flytja ræðu, og jafnvel þó rabbið fengi að heita fyrirlestur. En ég sagði honum hreinskilnis- lega um leið að ég hefði varla það mikið sjálfstraust að láta mér detta í hug að ég mundi hafa nokkuð það þýðingarmikið að segja að það mundi „borga sig“ að fara alla leið til íslands til þess. En nú hef ég gerbreytt þeirri skoðun. Ég segi blygðunar- laust að ég hef fundið ræðuefni sem er ómaksins vert. Ég ætla bara að byrja með því að segja ykkur hver sé munurinn á Repu- blikana og Demókrata flokkun um hjá okkur í Bandaríkjunum! Það var eins og sumir þessir kunningjar mínir vestra væru nærri til í það að elta mig til ís- lands til að heyra sjálfir lýsin;,u á þeim leyndardómi. Ekki dugði þegar ég sagði þeim að ég mundi ráða úr gátunni á íslenzku — ég á það líklega eftir að skýra frá þessu öllu á ensku, við tækifæri, þegar ég kemst vestur aftur. Bezt er að játa sem fyrst að ég mun eiga erfitt með það að vera alveg hlutlaus í þessum skýring- um. Ég er nefnilega fæddur ís- lendingur að þjóðerni, lúterskur í trúarbrögðum, og Republikani í stjórnmálum! En hér hefur ver- ið sagt að ég sé að flytja fyrir- lestra, og skárra væri það að koma smá-vísindalegum blæ á þetta allt saman. Hægt er oftast að ná þeim tón með því að „cí- téra“ í heimildir, að „leiða fram“ vitni án þess að halla máli. Þar sem tveir þekktir Amerikanar hafa skrifað sína bókina hvor um flokkana, pá finnst mér þetta frekar auðvelt, til að byrja með. Dean Acheson, utanríkisráðherra í tíð Trumans forseta, leiðandi Demókrati, samdi bók árið 1955, „Demókrati skoðar flokkinn sinn“ — „A Democrat Looks at His Party“. Arthur Larson, norsk ur nágranni frá Suður-Dakota, gat ekki stillt sig lengi. Bók hans, „Republikani skoðar flokkinn sinn“ — „A Republican Looks ..t His Party“ — kom út tæpu ári seinna, 1956. Var Larson aðstoðar ráðherra í vinnumálaráðuneytinu snemma í stjórnartíð Eisenhow- ers, síðar yfirmaður uppiýsingar þjónustu Bandaríkjanna, og nú prófessor við háskóla í Suður- ríkjum. Sumum flokksmönnum í Amer íku mundi strax finnast það eitt- hvað gallað að styðjast eingöngu við skoðanir þessara tveggja í tilraun þeirri sem ég byrja nú á. Þeir mundu segja að báðir þess- ir rithöfundar séu frekar langt til vinstri í flokkum sínum — að hvorugur rati hinn fræga, gullna meðal-veg í skoðunum, þótt and- stæðir séu. En bezt er nú að vitna í þessa menn — að láta hvorn tala fyrir sig, og koma svo síðar meir með aðeins nokkrar athugasemdir. Ég læt það vera samkvæmt stafrof- inu, bæði með höfunda og flokka og kem þá fyrst með ýmsar hug- myndir Dean Achesons um Demó ki tlokkinn. Hann segir að „eizii flokkurinn sé um leið yngsti flokkurinn", og á hann í síðari liðnum víst við hugmynda- flug og hraustleika. Hann vill halda því fram að Demókrata- flokkur Bandaríkjanna sé elzti flokkur í heimi, þó hann játi að íhaldsflokkur Englands komi dl greina hvað aldur snertir. Acheson segir að Thomas Jeffer- son hafi skrifað George Washing- ton bréf í maí, 1792, þar sem hann notar fyrst flokksnafnið, „Democratic-Republican party“, og að sá flokkur hafi verið þátt- takandi í kosningum fyrst, árið 1794. Hann segir að „óviðkunnan- lega nafnbótin sem hafi fyrst ver- ið með í eftirdragi“ hafi lagzt niður _'.:ið 1828, og að þaðan af hafi flokkurinn heitið bara De- mókrataflokkurinn. Aheson leggur áherzlu á þá skoðun að flokksbræður sínir séu leiðitamir — það virðist í rauninni vera það, úr því að hann segir að „Demókratar fylgi sterk um, þróttmiklum leiðtogum sem h'afa getið sér frama í innbyrðis ólgu flokksins sjálfs“. Hann nefnir slíka leiðtoga — Jeffer- son, Jackson, Wilson og Franklin Roosevelt .Á hinn bóginn segir hann að leiðandi menn Republix- anaflokksins hafi ekki sett var- andi merki á flokkinn sjálfan. — Hann nefnir aðeins Abraham Lincoln og Theodore Roosevelt, og bendir á að flokkur þeirra hafi horfið frá stefnu þessara leiðtoga strax og þeirra naut ekki lengur við. Republikanar vilja ekki láta vald og ábyrgð fylgjast að, en skilja þau atriði algerlega að, seg ir Acheson, og heldur hann áfram: „í því skyni að komast hjá þeirri hættu að framkvæmd- arvaldið safni að sér of miklum áhrifum, vill flokkurinn láta framkvæmdarvaldið lúta þing- veldinu, og hverfur þá skær, sam einuð rödd þjóðarinnar f hávaða tvístraðra radda heima fyrir. Republikanaflokkurinn kýs held ur þing með miklu valdi og minni ábyrgð, og forseta með minni völd og meiri ábyrgð. — Slíkt fyrirkomulag er hreint ekki svo afleitt fyrir þá sem glíma við stjórnmál, hernaðár- mál, og hagfræðileg og félagsleg vandamál, vegna þess að þá get- ur þingið veitt styrki, aukið laun, gefið undanþágur og hlunnindi, á meðan þeir sem eiga sök á því öllu hverfa út í veður og vind. Með þeim hætti er erfitt fyrir kjósendur að heimfæra sökina, þótt skaðinn sem þeir verða fyr- ir sjálfir sé augljós öllum“. Demókrataflokkurinr. hefur byggzt frá byrjun á breiðum grundvelli, segir Acheson. Hann hefur orðið flokkur hinna mörgu, og er þar af leiðandi margþættur, mismunandi sjónarmið og stefn- ur. Mismunandi hagsmunamál innan flokksins eru, segir Ache- son, aðal skýringin á seiglu og styrkleika hans. Republikanaflokkurinn og fyr irrennarar hans hafa verið mál- ★ ★ ★ ★ Fyrirlestur þennann um stjórnmál i Bandaríkjun- um fbutti Valdimar Björns- son á fundi í Stúdentafé- lagi Reykjavíkur, miðviku- daginn 24. september sl. — Síðari hlutinn birtist hér í blaðinu síðar. ★ ★ ★ ★ gögn þeirra fjársterku, fésýslu- manna og stóreignamanna yfir- leitt, segir Demókrataleiðtoginn ennfremur. Svona var það þegar auðurinn var aðallega i landeign um, og svona er það enn, þegar iðnrekendur, framleiðendur og verzlunarmenn hafa bætzt við. Acheson viðurkennir það að verzlunar- og viðskiptaheimurinn eigi heimtingu á pólitísku mál- gagni, telur það réttmætt að ann ar af tveimur stórflokkum túlki það sjónarmið. Baráttan verður þá, segir hann, milli flokks sem ber hagsmuni fjöldans fyrir brjósti og flokks sérhagsmuna hinna fáu. Ekki er hann hrifinn af hæfileikum „buisness-manna" í pólitík — að maður noti nú hreina amerísku. Bæði í stjórnar rekstri og í stjórnmálaerjum er það samþykktin sem mest ríður á ekki hlýðnin. Acheson telur upp einstaklinga úr nærri því öll um starfsgreinum þjóðfélagsins og álítur þá sjálfsagða meðlimi Demókrataflokksins, og til stað- festingar á aðal-hugmyndinni um að hér sé „flokkur hinna mörgu“, þá bendir hann á það að Demókrataflokkurinn njóti fjdgis alls staðar á landlnu. Hér á hann sjálfsagt við afleiðingar borgarastyrjaldarinnar, og þá staðreynd að Demókratar eru lið- sterkir í Suður-ríkjunum en Republikanar ekki. Acheson bendir á það að jafn- vel „New Deal“ stefna Franklin Valdimar Björnsson Roosevelts heitins hefur unnið varanlegan sigur, að Republikan ar hafa ekki breytt henni veru- lega, að lagasamþykktir frá þeim árum hafa virkilega bjargað „capitalismanum", að ótti um vaxandi vald „sósialismans" hafi reynzt tilhæfulaus. Margt annað skemmtilegt og fróðlegt er að finna.í bók Ache- sons. Hann ræðir utanríkismálin í löngum kafla og heldur því fram að Demókratar hafi stjórn- að þeim málum með meira ímyndunarafli og meira frjáls- ræði framkvæmdarvaldsins. — Republikar.ar, á hinn bóginn, seg ir hann, draga úr einurð með því að telja þingvaldið þýðingar- meira en framkvæmdarvaldið. Ekki verða skoðunafrelsi og McCarthy aldan út undan í dóm- um hans heldur. En ekki má ég reyna frekar að vitna í heila bók, þó hún sé innan við 200 síður að stærð. Ég verð að koma Republik önum að — Arthur Larson oé bók hans, „A Republican Looks at His Party“. Sókn fremur en vörn einkennir málsmeðferð beggja rithöfunda. Arthur Larson byrjar mál sitt með því að fullyrða að Demókrat a staglist á úreltum kenningum frá „New Deal“ stefnu Roosevelts og „Fair Deal“ stefnu Trumans. Hann heldur því fram að Demó- kratar vilji ekki viðurkenna að ástandið sé allt öðruvísi núna en var þegar þær stefnur mynduð- ust. Hann notar 2 ártöl á sláandi hátt — 1896 sem tákn afturhalds ins í fosetatíð Grover Clevelands og William McKinleys — hinn ' fyrrnefndi, Demókrati, og hinn síðarnefndi, Republikani; og svo 1936, sem tákn umbótastefnu Franklin Roosevelts. Ég reyni að þýða hér það, sem hann segir um þessi tvö tímabil: „Hugarfarið sem einkenndi 1896 — og fylgjendur þess voru til í báðum flokkum — hélt því fram að gefa bæri atvinnurekend um og fésýslumönnum lausan tauminn; að þegar verkalýður- inn sameinaðist til þess að bæta kjör sín þá væri það annað hvort samsæri eða uppþot; að sam- bandsstjórn landsins ætti að tak- marka starfssvið sitt og láta sér næga að bera út póstinn, fram- fylgja tolllögum, og heyja svo styrjaldir við og við; að eymd einstaklinga sem ætti ekki rætur sínar að rekja til hernaðar eða stjórnarþjónustu kæmi sambands stjórninni alls ekki við. „Hugarfarið sem einkenndi 1936 og bundið var við umbóta- stefnu Roosevelts, hélt því fram að eitthvað væri grusamlegt við einstaklingsreksturinn, og þá helzt við óljósa veru sem héti „Wall Street"; að aðalhlutverk sambandsstjórnar landsins í efna hagsmálum hlyti að vera það eitt, að fyrirbyggja eða bæta úr fjárhagskreppu, og að dreifa með jöfnuði afurðum þeirrar fram- leiðslu er þá ætti sér stað; að verkalýðurinn væri vanmáttug- ur og þarfnaðist aðstoðar stjórn- arinnar til þess að atvinnurekend , ur hefðu ekki yrirhöndina; að sambandsstjórn landsins gæti skapað, ætti og mundi skapa nýtt efnahagskerfi; að allar þessar framkvæmdir krefðust þess að víðtæk völd sameinuðust í hönd- um sambandsstjórnarinnar með meginhluta þess valds í höndum framkvæmdarvaldsins; og að lok um, að ekki væri hægt að reiða sig á að einstaklingsframtakið eða fylkin, sér í lagi, gætu hrund ið fram nauðsynlegum bótum í vinnukjörum, efnahagslegri þró- un eða öryggi einstaklinga". Arthur Larson heldur því fram að Demókratar séu vantr áaðir á framtíð landsins. Þeir séu svart- sýnir á framleiðslumöguleika „capitalismans“. Þeir haldi að verðbólga fylgi óhjákvæmilega útþenslu, rói reyndar undir því, og grípi svo til neyðar-úrræða þegar lyfin magna lasleikann — noti verðlagseftirlit, kjaraskerð- ingu og skömmtun á varningi til þess að reyna að kveða niður þau öfl sem þeir hafa sjálfir fram- kallað. Þeir nálgist það að gefa Kommúnistum litla fingurinn, með því að hálf-kyngja þeirri skoðun að togstreita milli stétta hljóti að eiga sér stað. Republikanar hafa aðrar skoð- anir, og Larson er óspar í upp- talningunni. Hann segir til dæm- is: Republikanar eru andvigir því að úrskurðarvald færist saman i höndum sambandsstjórnar lands- ins, og telja það þjóðarmein sem eigi að forðast eftir getu. Þeir .vilja efla og styrkja stjórnir fylkja og sveita og, að öllu jöfnu, vilja þeir fela þeim stjórnum þau störf sem liggja þeim næst og þau geta bezt innt af hendi. Þeir eru mótfallnir þeirri skoðun að framkvæmdarvaldið eigi að ráða mestu, og vilja halda jafnvægi milli valdasviða framkvæmdar-, dóms- og löggjafarvalds. Þeii skoða einstaklingsframtakið sem bætandi afl, er hafi á réttu að standa, og þarfnist eftirlits aðeins að því marki sem bezt tryggir hag almennings. Þeir telja núver andi efnahagskerfi landsins heil- brigt og hafa enga löngun ið skapa eitthvað nýtt í stað þess. Má ég koma með innskot nú, er ég lýk að mestu leyti lestrin- um úr verkum þessara ritfæru flokksleiðtoga? Hvorgugur flokk- urinn í Ameríku fylgir „laissez faire“ kenningunni gömlu. — Agreiningurinn er milli Demó- krata og Republikana um hvé langt beri að fara í eftirliti og hömlum, í leyfum og bönnum, í því að skipta eða skerða. En um eitt atriði er alls ekki deilt — rándýrahátturinn sem á stundum einkenndi „capitalisma" fyrri alda er liðinn undir lok fyrir löngu. Hann á enga verjendur. Stjórnarvaldið á ekki að vera að- al driffjöður efnahagsfram- kvæmda, en það á að setja og setur nákvæmar reglur sem hafa farsæld almennings að markmiði. Ég man eftir ræðu sem pólitísk ur andstæðingur minn — en frek ar góður vinur um leið — flutti í Minnesota fyrir fáeinu.i árum. Það var á fundi ekki ólíkum þess um, við kennaraskóla í suðaust- ur horni Víkisins. Námsmenn komu þar nman úr háskólum og menntaskólum víðsvegar að. — Stjórnmálin voru til umræðif. Ég var talsmaður Republikana. Andmælandi minn hafði verið embættismaður úr Democratic- Farmer-Labor flokknum hjá okk ur í Minnesota — Lieutenant Governor Karl Rölvaag. Sá flokk ur mætti heita nokkurs konar sambræðsla Krata og Framsókn- armanna, okkar á meðal. Það var nefnilega hjá okkur í nokkur ár Farmer-Labor-party flokkur bænda og verkalýðs, sem sam einaðist Demokrötum 1944. — Fleiri ræður voru fluttar, en á lokafundinum var kennari í stjórnvísindum látinn koma með Framh. á bls. 17. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.