Morgunblaðið - 30.09.1959, Síða 14

Morgunblaðið - 30.09.1959, Síða 14
14 MORCVNBL4Ð1Ð Miðvikudagur 30. sept. 1959 Bifreiðin R-1000 Packard ,38 í góðu lagi til sölu og sýnis að Höfða- túni 14 í dag og næstu daga. Sími 17848. Skrifstofustúlka óskast á opinbera skrifstofu til símavörzlu og vél- ritunar. Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir merktar: „Skrifstofustarf — 9213“ sendist Morgun- blaðinu fyrir n.k. laugard. ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf og öðrum venjulegum upplýsing- um og meðmælum ef fyrir hendi eru. Bókarasfarf er lahst til umsóknar á opinberri skrifstofu. Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir merktar: „Bók- arastarf — 9216“ sendist Morgunbl. fyrir 5. okt. ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf og meðmælum ef fyrir hendi eru. Aðalfundur Átthagafélags Strandamanna verður haldinn í Skáta- heimilinu föstud. 2. október n.k. kl. 8,30 síðd. Að fundi loknum verður dansað til kl. 1. STJÓRNIN. Unglingspiltur sem hefur skellinöðru óskast til sendiferða og fl. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Sólido Vesturgötu 25. Atvinna Stúlka vön afgreiðslu óskast í nýja kjörbúð. Gott kaup. Uppl. í síma 18316. Bílar til sölu Eftirtaldir bílar eru til sölu, Henschel H.S. 100 Diesel, 5 tonna, smíðaár 1955, með framdrifi og splittuðu mismunadrifi. Cepel Diesel 5 tonna smiðaár 1958. Autocar dráttarzíll með dráttarstól. Upplýsingar í síma 24390. Húsnœði hentugt fyrir verzlun og iðnað til leigu neðst við Suðurlandsbraut. Tilboð merkt: „Húsnæði sendist Mbl. „9271“. Stúlka helzt vön verzlunarstörfum, getur fengið atvinnu nú þegar eða 15. okt. við afgreiðslu og skrifstofustörf Vz daginn hjá úrsmið. Tilboð ásamt mynd, og upp- lýsingum um menntun og fyrri störf sendist í póst- hólf 812, merkt: „Verzlunarstörf". Hjörtur Níelsen sexfugur SEXTUGUR er í dag Hjörtur Nielsson, Sörlaskjóli 46. Hann er fæddur í Bjarnareyjum á Breiða- firði 30. dag septembermánaðar árið 1899. Að Hirti standa merk- ar breiðfirzkar ættir. Foreldrar hans voru þau hjónin Niels Breið fjörð og Ingveldur Magnúsdóttir. Skömmu eftir að Hjörtur fæddist, fluttu foreldrar hans í Bíldsey og bjuggu þar. Ekki var Hjörtur nema átta ára, er faðir hans drukknaði frá sjö börnum, öllum á unga aldri. Fluttist þá Hjörtur til föðurbróður síns, Eggerts Gíslasonar í Langey og ólst hann þar upp. Er Hjörtur varð tvítug- ur að aldri, fluttist hann til Reykjavíkur. Stúndaði hann sjó- mennsku fyrst, en réði sig síðar ' að Álafossi til Sigurjóns heitins Péturssonar ög vann hjá honum nokkur ár. Svo vel féll á með þeim Hirti og Sigurjóni heitnum, að þeir urðu góðir vinir og héld- ust þau vináttubönd alla tíð. Hefur Sigurjón vel kunnað að meta reglusemi, dugnað og trú- festu Hjartar, en það voru þeir eiginleikar sem Hjörtur er gædd- ur í allríkum mæli. Einnig er Hjörtur greindur maður, víðles- inn og fróður um marga hluti og má bezt af því marka, hvers af honum hefði verið að vænta, ef ha.nn hefði haft sömu aðstöðu til mennta og frama, er nú gerist hjá æskumönnum þjóðarinnar. Árið 1926 giftist Hjörtur, Guð- iaugu Ngrfadóttur ekkju með tvö börn, glæsilegri konu og vel greindri, hefur Hjörtur þar ver- ið glöggur að vanda. Vorið 1927 fluttu þau að Nesjavöllum í Grafningi og bjuggu þar í þrjú ár, en þá fluttu þau að Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi, hófu bú- skap þar og bjuggu lengst af. Árið 1947 fluttu þau alkomin til Reykjavíkur. Mun þar hafa mest um ráðið að Hjörtur gekk ekki heill til skógar og þoldi orðið illa heyvinnu og hætti að læknisráði búskap. Er hann kom til Reykja- víkur, hóf hann starf í Sænsk- Ísl.-Frystihúsinu og hefir unnið þar stöðugt síðan. Má með sanni segja að æfistarf hans, sem og hjá fleirum hafi mótazt af venju uppvaxtaráranna. Auk tveggja barna Guðlaugar eignaðist Hjörtur og ól upp með henni fimm börn, sem nú eru öll uppkomin. Má með sanni segja, að sjallan fellur eplið iangt frá eikinni, því öll eru börnin hið mesta myndarfólk. Dugleg, reglusöm og sérmenntuð og því vel hæf til þjóðfélagsstarfa. Skipti þar engu um, hvort hans eigin börn eða stjúpbörn var um að ræða. Getur Hjörtur því litið glaður og ánægður yfir farinn veg. Ég sem þessar línur rita, leigði hjá þeim hjónum um tíma og tókst með okkur alldjúp vinátta og kom þar margt til og ekki sízt alúð og trygglyndi þeirra hjóna, sem í hvívetna tóku mér sem einum af fjölskyldunni. Að lok- um vil ég ljúka þessum orðum mínum með hugheilum árnaðar- óskum til þín Hjörtur, á afmælis- daginn og óska ég þér og þinni íjölskyldu, gæfu og gengis um ókomin ár. Lifðu heill! Ó. G. Leikskóli Leikfélags Reykjavíkur LEIKFÉLAG Reykjavíkur mun í vetur starfrækja Leiklistarskóla og tekur hann til starfa um næstu mánaðamót. Gísli Hall. dórsson, leikari, mun veita skól- anum forstöðu. Mun verða lögð áherzla á kennslu í framsögn og leik, en auk þess kennt ýmislegt annað er að leiklist lýtur. Innritun nemenda stendur nú yfir, og annast hana framkvstj, L. R., Guðmundur Pálsson. Inn- ritunin fer fram í Iðnó daglega kl. 2—3, sími 13191. Aígreiðslusfúlka óskast strax í vefnaðarvöruverzlun. Upplýsingar um fyrri störf og aldur léggist inn á afgr. Mbl. merkt: ,-,9475“ fyrir laugárdag. DUGLEG og ÁBYGGILEG sfúlka óskasf til afgreiðslustarfa. Upplýsingar í, verzluninni. Jónsbúð Blönduhlíð 2. Iðnaðarhúsnœði 250—400 ferm. iðnaðarhúsnæði óskast fyrir léttan og þrifalegan iðnað. Tilboð merkt: „Iðnaður —- 9471“ sendist afgr. blaðsins fyrir laugardag. AðsioZarstúlka (Bókari) óskast að Náttúrugripasafni íslands. Góð tungumálakunnátta og leikni í vélritun nauðsynleg Laun samkv. 10. fl. launalaga. Umsóknir sendist safninu fyrir 10. okt. n.k. Skrifstof uhúsnœði Til leigu 1—2 herbergi í nýju húsi við Miðbæinn. Lysthafendur leggi nöfn sín á afgreiðslu blaðsins fyrir kl. 18 í kvöld merkt: „Centralt — 9300“, íbúð óskast Góð 4 herbergi og eldhús. Leiga eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 33078 eftir kl. 4 e.h. Steinhús til sölu 72 ferm. hæð og rishæð, 2ja herb. íbúð og 3ja herb. íbúð við Digranesveg. Bílskúr fylgir. IMýja Fasteignasalan Bankastræti 7. Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546 Barmahlíð Til sölu er hálf húseign við Barmahlíð, I. hæð og kjallari, ásamt bílskúr. Hitaveita. Upplýsingar gefa ÁGtJST FJELDSTED, hrl., Nýja Bíó — Sími 22144. GUÐMUNDUR ÁSMUNDSSON, hrl. Sambandshúsinu — Sími 17080.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.