Morgunblaðið - 10.10.1959, Page 10
10
MORCVHTtT. 4TUÐ
Laue'ardagur 10. okt. 1959
JHroðPUttlilaMfr
tftg.: H.t. Arvakur ReykjavOL
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá Vi("tr
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Ask;iftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
EFTIR KRÖFU MORGUNBLAÐSINS?
IMbl. í gær var gerð sú
krafa til ríkisstjórnar-
innar, að þeir Hannes
Pálsson og Sigurður Sigmunds-
son yrðu leystir frá störfum í
húsnæðismálastjórn. Eins og
vænta mátti var ríkisstjórn Al-
þýðuflokksins ekki sein á sér nú
fremur en endranær til að fram-
kvæma fyrirmæli húsbændanna“.
Þannig hóf Tíminn í gær frá-
sögn sína af frávikningu gapux-
anna tveggja úr húsnæðismála-
stjórn. Það er rétt hjá Tímanum,
að Morgunblaðið hafði borið
fram kröfu um þær ráðstafanir,
sem ríkisstjórnin hefur nú fram-
kvæmt. Strax á miðvikudaginn,
7. október, var þessi krafa sett
fram hér í blaðinu:
„Erfitt er að sjá, hvors hlutur
er lakari. Hitt getur engum dul-
izt, að óþolandi er að láta þessa
menn deginum lengur fara með
stjórn húsnæðismálanna.
Ærið er erfitt fyrir þúsundir
manna að standa nú uppi hjálp-
arlausir eftir að hafa treyst gylli-
loforðum V-stjórnarinnar, þó að
þeir þurfi ekki að sækja mál sín
undir gapuxa, sem kunna þau
úrræði ein að saka hvorn annan
um þjófnað og njósnir, svo að
fátt eitt sé talið. Óneitanlega er
eðlilegra að lögreglan hafi tal af
þeim piltum, heldur en að þeir
séu áfram látnir sitja yfir hlut
þúsunda manna, sem neyðzt hafa
til þess að leita til þeirra í góðri
trú“.
Krafan var enn ítrekuð daginn
eftir, bæði í frásögn Morgun-
blaðsins af gremju manna á Sel-
fossi yfir framferði myrkfælna
mannsins þar og í forystugrein
blaðsins:
„Óþolandi er að ríkisstjómin
láti þessar aðgerðir lengur af-
skiptalausar. Hún verður í senn
að hefjast handa um fjáröflun til
nýrra lána, svo að algerum vand-
ræðum verði firrt, og setja
stjóm þessara mála í hendur
manna, sem ekki eru augljósir
og yfirlýstir sakamenn“.
★
Sama dag og þetta var sagt í
Morgunblaðinu setti félagsmála-
ráðherra þá Hannes og Sigurð
frá stórfum og kærði þá fyrir
sakadómara. Morgunblaðið hafði
eitt allra blaða borið fram þessa
kröfu. Auðvitað fer því þó fjarri,
að stjómin hafi verið að hlýða
„fyrirtnælum" Morgunblaðsins,
þegar hún tók ákvörðun sína.
Morgunblaðið hefur ekkert hús-
bóndavald yfir núverandi ríkis-
stjórn.
Hitt er sennilegt, að Morgun-
blaðið hafi átt þátt í að mynda
hið sterka almenningsálit, sem
knúði ríkisstjórnina til ákvarð-
ana sinna.
Af einhverjum ástæðum minnt-
ist Alþýðublaðið aldrei á þetta
hneyksli fyrr en í gær. Þá viður-
kennir það, að almenningsálitið
hafi ráðið úrslitum:
„Sigurður Sigmundsson og
Hannes Pálsson hafa borið hvorn
annan svo þungum sökum, að
ríkisvaldið hlaut að láta mál
þeirra til sín taka. Málið er ekki
einkamál þeirra. Það hætti að
vera einkamál þeirra um leið og
þeir ljóstruðu upp sannleikanum
— eða því sem þeir kalla sann-
leikann. Og það er þjóðarvilji,
það er vilji allra heiðarlegra
manna, hvar í flokki sem þeir
standa, að sannleikurinn verði
leiddur í ljós“.
★
Morgunblaðið telur sér heiður
af að hafa eitt blaða gerzt tals-
maður almenningsálitsins í þessu
máli. Hitt er meira en hæpið að
halda, að framferði þeirra Hann-
esar og Sigurðar hafi verið
„einkamál þeirra“, þangað til að
þeir „ljóstruðu upp sannleikan-
um“. Heilbrigð réttargæzla bygg-
ist á allt öðru en, að afbrot séu
einkamál afbrotamanna á meðan
þeir ljóstra þeim ekki sjálfir
upp. Þá yrði seint gerður reki að
flestum málum.
Því miður eru fæstir sakamenn
jafn greiðasamir við lögregluna
og Hannes og Sigurður, að fara
í blöðin til að ljóstra upp afbrot-
um sínum.
Af skrifum þeirra Hannesar og
Sigurðar nú sést, að þeir hafa
ætíð verið ófærir til að gegna
störfum sínum. Enginn skyldi
t. d. ætla, að njósnirnar á Sel-
fossi hafi verið einstakt fyrir-
bæri. Myrkfælni maðurinn þar
er einungis þeim mun skárri en
flestir aðrir umboðsmenn Hann-
esar, að hroll setti að honum yfir
verkum þeim, sem fyrir hann
voru lögð.
En auðvitað hefur Hannes
haft sams konar erindreka hvar-
vetna þar sem Framsókn mátti
við koma. Enda er Ijóst af Tím-
anum, að hann telur þetta fram-
ferði Hannesar síður en svo að-
finningarvert. Þama hafa ein-
ungis venjulegir starfshættir
Framsóknar opinberazt.
ÞEIR SIGRUÐU ÞRATT FYRIR SUEZ
Kosningunum í Bretlandi
lauk með miklum sigri
íhaldsflokksins. Eins og
á stóð verður að telja þann sigur
óvenjulegt þrekvirki. Það hefur
aldrei fyrr borið við, að flokkur,
sem verið hefur við völd í Bret-
landi, hafi sigrað við þrjár kosn-
ingar í röð. Úrslitin nú eru því
merkilegri sem Macmillan tók
við þungum arfi, þegar hann
myndaði stjórn sína. Hann tók
við af Sir Anthony Eden, eftir
að hann hafði bognað undan
Súez. Sennilega hefur Bretland
aldrei farið meiri sneypuför í
allri sinni sögu en þá. Það var
sannarlega með ólíkindum að
mennirnir, sem báru ábyrgð á
þeirri herför, gætu unnið næstu
kosningar. Svo hefur þó nú farið.
Brezkir kjósendur vilja ekki
meiri þjóðnýtingu. Þess vegna
var Verkamannaflokkurinn sjálf-
ur nú mun linari í þjóðnýtingar-
kröfum sínum en nokkru sinni
fyrr. Sú linka hefur ekki enzt
honum til sigurs. Og það er ekki
þjóðnýtingin ein, sem fólkið hef-
ur fengið nóg af. Hættan á ann-
arri ríkislhlutun og auknum
höftum hefur sett í menn þann
beyg, að þeir hafa þrátt fyrir
Súez kosið íhaldsflokkinn á ný.
C hurchi 11
— í 234 þáttum
SIR WINSTON CHURCHILL —
ÓTT ekki hafi enn verið op-
inberlega tilkynnt um
það, hefur kvisazt, að á næst-
unni verði byrjað að gera
mikinn flokk kvikmynda um
líf og starf Sir Winstons
Churchills, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, sem
síðan er ætlunin að sjónvarpa
— fyrst í Bretlandi og Banda-
ríkjunum, en síðar víðs vegar
um heiminn, eða þar, sem
sjónvarpsstöðvar óska eftir
því.
— ★ —
♦ Búizt er við, að Churchill til-
kynni sjálfur áður en langt líð-
ur, að samningar hafi tekizt milli
sín og brezkra og bandarískra
aðila, er að þessu standa, en hér
er um að ræða stærsta sýninga-
flokk, sem skipulagður hefir ver-
ið f sögu sjónvarpsins. Ætlunin
mun vera, að útsendingar geti
hafizt samtímis beggja megin
hafsins á næsta hausti.
Sex ár
♦ Sýningar munu standa yfir
hvorki meira né minna en sex
ár. Efninu er skipt í 234 þætti,
Truman Eden
— Þeir og margir aðrir frægir
menn koma við sögu.
koma, og ýmsum valda- og áhrífa
mönnum aldarinnar. Fer því ekki
hjá því, að þar geta menn raun-
verulega séð stóra drætti úr sögu
fyrra helmings tuttugustu aldar-
innar. — Meðal þeirra mörgu,
frægu manna, er sjást munu í
fyrstu þáttunum, eru t. d. fyrr-
verandi konungur Englands, her-
toginn af Windsor, Montgomery
marskálkur, Harry S. Truman,
fyrrum forseti Bandaríkjanna,
Sir Anthony Eden, fyrrv. forsæt-
isráðherra Bretlands og Trygve
Lie, fyrrum framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna.
Blaðafulltrúi Eisenhowers
♦ Helzti hvatamaður þessa
mikla „fyrirtækis“ og aðalfram-
leiðandi kvikmyndanna er Banda
ríkjamaðurinn Jack Le Vien, en
hann var blaðafulltrúi Eisen-
howers í styrjöldinni. Síðan hef-
ir hann einkum fengizt við fram
leiðslu frétta- og fræðslukvik-
mynda og einnig starfað við sjón
varp. — Le Vien hefir undan-
saga hans lifir á sjónvarpstjaldinu.
Skoðun hans mun lifa
♦ Eins og nærri má geta, mun
Churchill fá of fjár fyrir rétt-
inn til þess að nota verk hans,
sem uppistöðu £ sjónvarpsþætt-
ína — en honum kvað þó þykja
meira um vert, að þannig kom-
ast skoðanir hans á framfæri á
enn áhrifaríkari hátt en áður —
í bókunum. Hann vill gjarna fá
leikarana Sir Laurence Olivier,
Sir Alec Guinnes og Orson
Welles til þess að fara með text-
ann úr bókum sínum í sjónvarp-
ið — og standa nú yfir samning.
ar við þá um að taka það að sér.
— ★ —
♦ Jack Le Vien segir, að þegar
útsendingum verði lokið í Bret-
landi og Bandaríkjunum, verði
sjónvarpsstöðvum um heim allan
gefinn kostur á að fá kvikmynd-
irnar til afnota og verði þá text-
inn þýddur á svo mörg mál, sem
óskað er.
— Við viljum gefa sögunni lít
á sjónvarpstjaldinu, segir hann,
sögunni eins og Churchill hefir
skrifað hana — og skapað.
og verða sendir út 39 þættir ár-
lega. — Eins og fyrr segir skal
hér fjallað um ævi Churchill
fyrst og fremst, og er byggt á
hinum frægu endurminningum
hans og öðrum bókum, en inn í
verður fléttað fréttamyndum af
helztu atburðum, sem við sögu
farna mánuði tíðum átt viðræður
við Churchill — og sagt er, að
gamli maðurinn hafi fyrir nokkru
gefið samþykki sitt til þess, að
framkvæmdir væru hafnar. Að-
eins eigi eftir að ganga form-
lega frá samningum.
Þora ekki að horfast
í auqu við sjálfa siq
PICASSO gamli þykir hafa munn
inn fyrir neðan nefið, sem kallað
er — og eru mörg hnyttileg til-
svör eftir honum höfð. — Þegar
hann fyrir nokkru var staddur í
Nice, hitti hann nokkra unga
menn í kaffihúsi og ræddi við þá
um alla heima og geima. — Tal-
ið barst meðal annars að lista-
stefnum nútímans og sér í lagi
málaralistinni. Og einn hinna
ungu manna spurði Picasso:
— Heyrið mig — hafið þér ekki
tekið eftir því, að það verður
æ sjaldgæfara meðal nútímamál-
ara, að þeir geri sjálfsmyndir?
— Jú, það er ekki hægt ann-
að en taka eftir því, anzaði Pi-
casso.
— En hvernig haldið þér, að
standi á þessu? spurði þá ungi
maðurinn.
— Tja, ngði málarinn og lyft.i
brúnum. Ætli það komi ekki
bara af því, að þeir treysti sér
ekki til að horfast í augu við
sjálfa sig, blessaðir.
Picasso
Sekfaðir
fyrir að
valda
hávaða
LÖGREGLUNNI í Álaborg íL
Danmörku bárust í sumar/
margar kvartanir vegna þess,/
að unglingar fóru um götur;
borgarinnar á skellinöðrum ■
oft hópum saman — og ol'.ui
miklum hávaða.
Lögreglan tók sig því til í/
seþtember og hóf herferð gegn/
hávaðaseggjunum — þ. e. a. s.
unglingar voru skyldaðir dlj
y að koma með „nöðrurnar" sín-
/'ar til eftirlits. — Lögreglan/
' rannsakaði 848 skellinöðrur í/
mánuðinum. 87 af þeim reynd/
ist meira og minna áfátt — og/
langalgengasti gallinn var sá,i
að hljóðdunkurinn var ýmis' x
skemmdur eða jafnvel ger-(
ónýtur.
Fyrir þetta voru unglingain/
ir sektaðir — og var lágmarks-
sektin ákveðin 80 krónur.
Aðeins tæplega 200 komu1)
sjálfviljugir með skellinöðrurC
sínar til lögreglunnar — 650 (
varð hún að stöðva á götum^
úti.