Morgunblaðið - 10.10.1959, Side 11

Morgunblaðið - 10.10.1959, Side 11
Laugardagur 10. okt. 1959 MortnrwnT 4aiÐ 11 Olafur Stefánsson, viðskipt afræðingur Þrdun íslenzkra efnahagsmála í tíð V-stjdrnarinnar AUKIN framleiðsla er eina ðr- úgga leiðin til bættra lífskjara fyrir þjóðina í heild. Fyrsta spur.ningin, sem svara ber, þeg- ar gert er grein fyrir þróun efna- hagsmála á undanförnum árum er því þessi: hefir framleiðsian aukizt og hve mikið? Á með- fylgjandi töflu sést yfirlit yfir þjóðarframleiðslu og skiptingu hennar í neyzlu og fjárfestingu undanfarin sex ár. Til þess að útiloka áhrif verðrýrnunar pen- inganna eru þessar stærðir reikn- aðar á verðlagi ársins 1954. Töl- ur þessar eru fengnar frá Fram- kvæmdabankanum í júlí sl. og ný heildaráætlun um framleiðslu og fjárfestingu 1957 og 1958 hefur ekki verið gerð. framleiðsla þjóðarbúsins átt að stóraukast. Þjóðin hefír því fært þungar fórnir fyrir ráðherradóm Her- manns & Co. Slíka valdabraskara varðar lítt um þjóðarhag. Þeim finnst, að þjóðinni megi blæða, ef þeir sjálfir græða og fá notið þeirrar vaidaaðstöðu, er þá fýsir; en brennt barn forðast eldinn, og á sama hátt munu kjósendur forð ast að efla þá menn til forystu á þjóðarskútunni, sem þannig hugsa og haga sér. Peninga -og bankamál V-stjórnin lofaði endurbótum á bankakerfi landsmanna. Efndirn- ar urðu þær, að 13 nýjum mönn- um var troðið í stöður sem banka Þróun peningamálanna að öðru leyti og ríkisfjármalanna var í svipuðum dúr, t.d. varð greiðsluhalli hjá ríkissjóði árið 1957, en slíkt haíði ekki gerzt í áratug. U tanrik is viðsk ipti Það sem einkenndi utanríkis- viðskipti Íslendinga í valdatíð V- stjórnarinnar var stöðugt vax- andi viðskipti við járntjaldslönd- in. Innflutningur frá Rússlandi og leppríkjum þess jókst úr 22,2% heilúarinnflutnings ^ árið 1955 í 32,0% árið 1958. Á sama tíma minnkaði innflutningur frá Bandaríkjunum úr 22,8% heild- arinnflutningi í 13,8%. Útflutn- ingur til járntjaldslanda jókst úr Þjóðarframleiðsla, neyzla og fjárfesting reiknað á verðlagi ársins 1954. i) 1953 1954 1955 1956 1957 1958 Þjóðarframleiðsla, millj kr 2.938 3.296 3.689 3.874 3.930 4.028 Árleg aukning 18,7% 12,2% 11,9% 5,0% 1,4% 2,5% Neyzla millj. kr 2.272 2.449 2.658 2.839 2.795 2.843 Árleg aukning 12,4% 7,8% 8.5% 6,8% —1,5% 1,7% Fjárfesting, millj .kr 759 877 1.056 1.223 1.329 1.229 Árleg aukning 31,8% 15,5% 20,4% 15,8% 8,7% —7,5% Neyzla í hlutfalli við þjóðarframl... Fjárfesting í hlutfalli við þjóðar 77,3% 74,3% 72,1% 73,3% 71,1% 70,6% framleiðslu Neyzla og fjárfesting í hlutfalli 25,8% 26,6% 28,6% 31,6% 33,8% 30,5% við þjóðarframleiðsiu 103,2% 100,9% 100,7% 104,9% 104,9% 101,1% Ef borin eru saman þrjú árin stjórum og bankaráðsmönnum. 27,8% heildarútflutningsins fyrir valdatöku V-stjórnarinnar og þau þrjú ár, er hún var við völd, en hún kom til valda í júli- mánuði 1956, kemur í ljós að á árunum fyrir valdatöku stjórnar- innar, 1953—1955, fór framleiðsl- an hraðvaxandi, en árið 1956 minnkar aukningin verulega og verður sáralítil 1957 og 1958 eða 1,4% og 2,5%, en sú aukmng er minni en árlegri fólksfjölgun nemur hér á landi. Ef neyzlan er athuguð sérstaklega kemur í ljós, að hún hefir staðið í stað þessi tvö ár séu þau tekin saman í heild þannig, að neyzlan á mann hefir minnkað vegna aukins fólks fjölda. Þótt tölur þessar séu ekki ná- kvæmar, og framleiðsla og neyzla árið 1958 e. t. v. full lágt áætluð, má þó telja víst, að vísbending þeirra um minnkandi framleiðslu og neyzlu á mann á þessu tíma- bili sé rétt og þar með, að líís- kjör þjóðarinnar, sem fóru hrað- batnandi fyrir valdatöku vinstri stjórnarinnar hafi staðið í stað eða hreinlega versnað í valdatíð hennar. Það þýðir ekki fyrir að- standendur V-stjórnarinnar að reyna að afsaka þessa þróun með því, að undirstöðuatvinnuvegir okkar landbúnaður og sjávarút- vegur hafi gengið illa vegna slæmrar veðráttu og lélegra afla- bragða. Að vísu minnkaði fisk- aflinn um 1,7% árið 1957, en hann jókst um 15,7% 1958 og verð mæti hans enn meira vegna hlut- fallslega aukinnar framleiðslu freðfisks og saltsíldar. Árferði var með allra bezta móti þessi tvö ár og kjötframleiðsla slátur- húsa jókst um 8,3% fyrra árið, en um 19,5% síðara árið. Innvegin mjólk í mjólkurbú jókst um 12% fyrra árið, en 4,2% síðara árið. Því fer því fjarri, að náttúru- öflin hafi verið þjóðinni óhag- stæð á þessu tímabili, og hefði stjórnarfarið í landinu verið í sæmilegu horfi, hefði heildar- Lofað hafði verið að gera Seðla- bankann að sjálfstæðri og óháðri stofnun, en honum var haldið sem valdalítilli og ósjálfstæðri stofnun innan ramma Lands- bankans. Um þetta segir Jón Árnason fyrrverandi bankastjóri í ágætri grein um bankamál í síðasta hefti Fjármálatíðinda: „Með þessum nýju lögum er Seðlabankinn gerður mjög háður ríkisstjórninni", og ennfremur segir Jón: „Mér er það með öllu óskiljanlegt hvers vegna ekki var stofnaður sérstakur seðlabanki, Fyrrí hluti 1) Samkvæmt upplýslngum Fram- kvæmdabankans eru tölurnar fyrir ár- in 1953—1956 endanlegar, og talið að tölurnar fyrir 1957 muni lítið breytast, en að tölurnar fyrir árið 1958 eigi að líkindum eftir að hækka eitthvað. I*etta er þó það ,sem næst verður kom- izt á þessu stigi. úr því að Alþingi kollvarpaði eldra skipulagi, en leggur þó bankann að nokkru leyti undir stjórn bankaráðs, sem er í raun og veru aðeins bankaráð eins af viðskiptabönkum ríkisins“. Sem sagt, engar raunhæfar skipulags- breytingar voru gerðar á banka- kerfinu til samræmis við banka- kerfi annarra þjóða. Slíkt var aðeins notað sem yfirskyn í þeirri viðleytni að ná sem mestum völd um yfir bönkum landsins með því að troða sem flestum flokksgæð- ingum í trúnaðarstöður í þeim, ýmist með fjölgun embætta eða með því að hrekja pólitíska and- stæðinga frá störfum sínum. Þrátt fyrir það, þótt lán til íbúðabygginga drægjust stórlega saman og meðallán á lántakanda, er lán fékk á vegum Húsnæðis- málastjórnar, félli úr 55 þús. kr. áður en V-stjórnin kom til valda niður í 36 þús. kr. tókst að auka útlán bankanna um tæpar 700 millj. kr. í tíð V-stjórnarinnar, eða um 30%, en þessi mikla aukn- ing útlánanna hefir áreiðanlega átt sinn þátt í að magna verð- bólguna. Spariinnlán í bönkum jukust hins vegar sáralítið í valda tíð V-stjórnarinnar, eða um 155 millj. kr. (15%), en þau jukust úr 717,6 millj. kr. í 1006,3 millj. kr. eða um rúm 40% á 2% ári fyrir valdatöku hennar, þ. e. frá árs- byrjun 1954 til miðs árs 1956. í 34,9% 1958. Slík þróun er auðvitað mjög óæskileg og blátt áfram hættuleg. Rússar hafa sýnt það í samskipt- um sínum við aðrar þjóðir, t.d. Finna, að þeir skirrast ekki við að beita efnahagslegum þvingun- um til að hafa áhrif á stjórnar- far í ríkjum þeim, er þeir hafa viðskipti við, auk þess eru mörg Austur-Evrópulönd stöðugt að auka fiskveiðar sínar, þannig að vel getur svo farið að þau verði sjálfum sér nóg um fisk. Þar eru Ólafur Stcfánsson því mjög óvissir framtíðarmark- aðir fyrir íslenzkan fisk. í þriðja lagi eru iðnaðarvörur þær, sem fluttar eru inn frá Austur-Evrópu löndunum yfirleitt ekki sambæri legar að gæðum við fullkomnasta iðnvarning Vesturlanda. Ef kom- ið væri á frjálsum innflutningi myndum við selja útflutningsvör- ur okkar og gera innkaup, þar sem viðskipti reyndust hagkvæm ust. Með því væri vissulega ekki verið að útiloka viðskipti við nein einstök lönd, heldur myndi þessi skipun mála einmitt leiða til mjög fjölbreyttra viðskiptahátta. Halli á verzlunarjöfnuði hefir mestur orðið 1956, á fyrsta valda ári V-stjórnarinnar, þá varð hann 436,6 millj. kr. Síðan hefur hann heldur minnkað vegna auk ins sjávarafla og þar með út- flutnings annars vegar og strang ari gjaldeyrisskömmtunar og hærri álaga á innfluttar vörur hins vegar, og varð hann 336,8 millj. kr. árið 1958. Gjaldeyrismál Gengi íslenzku krónunnar hrakaði stórlega í valdatíð V- stjórnainnar. Framkvæmdar voru tvennar opinberar gengis- lækkanir á valdatímanum, sú fyrri skömmu fyrir jól 1956 sú síðari í maí 1958. Ekki hétu þess ar aðgerðir þó gengislækkanir heldur millifærslur, en þær verka þó alveg eins og gengis- lækkun að því leyti, að innflytj- endur borga meira en áður fyrir þann gjaldeyri, sem þeir selja. Með þessari krókaleið var hins vegar hægt að koma upp stofn- un, er Útflutningssjóður nefnist, og koma þar á ríkisjötuna ýms- um embættislausum kommúnist- um við að reikna út bætur handa útgerðarmönnum fyrir seidan fisk. Auðvitað var svo styrkur- inn hafður hæstur til þeirra, er afkastaminnstar veiðar stunduðu. Fyrirkomulag þetta var að nokkru bætt með aðgerðunum I maí 1958, en eftir sem áður hlýt- ur það að verða þjóðinni dýrt, ef það á að haldast til lengdar, vegna minni áhuga sjómanna og útgerðarmanna á að stunda sem hagkvæmastar veiðar, þar sem þeir fá þá bara minna verð fyrir gjaldeyrinn sem þeir afla og í öðru lagi vegna hinnar miklu skriffinnsku, sem fyrirkomulagið krefst með fjölda fullfrískra karlmanna á launum við störf sem auðvelt væri að láta óunnin. Þjóðinni og jafnvel þeim sjálfum væri meiri hagur í því, að þeir fengju sér annað þarfara að gera. Til að vega upp á móti því hvað framleiðsluaukning þjóðarbúsins var lítil í tið V-stjórnarinnar, greip hún til þess óyndisúrræðis að taka erlend lán í miklu stór- felldara mæli en áður hafði þekkzt. Þannig jukust erlendar skuldir úr 329 millj. kr. í árslok 1955 upp í 928 millj. kr. í árslok 1958. Hafa þær þannig nær þre- faldazt á þessu tímabili. Á þrem árunum þar á undan hækkuðu erlendar skuldir aðeins um 130 millj. kr. og voru þó fram kvæmdir á flestum sviðum meiri á því tímabili. Af þessari geysilegu skuldasöfnun leiðir svo það, að afborganir og vextir af erlendum lánum, sem á árinu 1955 námu aðeins 2,6% gjaldeyr- isteknanna, urðu á síðara ári 7,8% þeirra, þannig að greiðslu- byrgðin hefir nákvæmlega þre- faldazt á þessu þriggja ára tíma- bili. (Síðar hluti greinarinnar birt- ist á morgun). Vel sóttir og prýdilegir fundir Sjálfstæöismanna í Reykja- neskjördæmi FR AMB J ÓÐENDUR D-list- ans í Reykajneskjördæmi hafa nú lokið fjórum fyrstu stjórnmálafundum sínum í kjördæminu. Að sjálfsögðu hefur formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, flutt aðalræðuna á þess- um fundum og gefið glöggt yfir- lit yfir stjórnmálaviðhorfið jafnt varðandi fortíðina sem framtíð- ina. Hefur hann m. a. í fáum en skýrum höfuðdráttum gert grein fyrir hinni ítarlegu stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, er birtist hér í blaðinu 2. þ. m. Þá hefur hinn ungi þingmaður Hafnfirðinga, Matthías Á. Mathie sen, skýrt ýmsar hliðar stjórn- málanna og hafa ræður hans bor- ið vott um að hann hefur þegar aflað sér mjög haldgóðrar þekk- ingar á þeim málum. Auk þess hafa sex aðrir fram- bjóðendur listans flutt skeleggar og greinargóðar ræður á þessum fundum og fyrirhugað er að þeir tveir frambjóðanda, sem þá eru ótaldir, flytji ræður á næstu fundum, en D-listinn gengst fyr- ir sex stjórnmálafundum í Reykjaneskjördæmi á næstunni. Það vekur almenna athygli, að allir tíu frambjóðendur listans, jafnt varamenn sem aðalmenn, taka svo virkan þátt í kosninga- baráttunni og er það áreiðanlega einsdæmi. Kjósendur eru mjög ánægðir yfir þessu, bæði vegna þess, að allir tíu frambjóðendurn- ir eru prýðilegir ræðumenn og eins hefur fólkið ánægju af að sjá og kynnast frambjóðendun- um og fagnar því auk þess, að fá jafn alhliða og fjölþætta lýs- ingu á stjórnmálaviðhorfinu og með þessum hætti fæst. Hér er ekki ætlunin að rekja þessar ræður, enda ekki tök á því, en til fróðleiks og gamans skal aðeins frá því sagt, að með- al eldri kjósenda vekur hin nýja stefna Alþýðuflokksins í skatta- málum bæði furðu og gleði. Þeir minnast nefnilega þess, að þegar Ólafur Thors og Haraldur Guð- mundsson kepptu um þingsæti í þessu kjördæmi fyrir 34 árum, þá voru einmitt skattamálin meginþátturinn í deilum þeirra. Ólafur hélt því fram, og studdi sterkum rökum, að þjóðarnauð- syn væri, eins og efnahag ís- lendinga væri háttað, að skatta eyðsluna, en létta af tekjuskatti og útsvari. Haraldur hins vegar hélt fast á, og studdi sínum rök- um, að hinu opinbera bæri að taka meginhluta tekna sinna með tekjuskatti og útsvari, en ekki með neyzlusköttum. Þykir mönnum nú augljóst að Ólafi hafi tekizt að snúa Alþýðu- flokknum í fjáröflunarmálum þó seint sé og þykir mörgum vel fara á því, að Alþýðuflokkurinn taki yfirleitt upp stefnu Sjálf- stæðisflokksins á sem flestum sviðum. Allir hafa þessir fundir Sjálf- stæiðsmanna I Reykjaneskjör- dæmi verið vel sóttir. Umræður hafa staðið þrjár til fjórar klukkustundir og munu flestir áheyrendur hafa talið sig fróðari eftir en áður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.