Morgunblaðið - 10.10.1959, Page 18
18
MORCTJNBLAÐ1Ð
Laugardagur 10. okt'. 1959
Haustmötimi að ljúka:
KR og Valur berjast
um sigur í mótinu
Rætt er rnn bikarkeppni í stað hins
daufa Haustmóts
Drengirnir gleymdu sér alveg — sumir göptu af áhuga og hrifningu yfir knattspyrnukvikmynd-
inni, sem sýndi góðan árangur „gulldrengjanna“: (Ljósm.: Heimir Stígsson).
Fundur Unglinganefndar KSÍ i Keflavik
Drengirnir voru frá sér numd
ir og fylltust knatt-
spyrnuáhuga
Fjórða flokki Keflvikinga afhentur
bikar fyrirsigur i Islandsmóti
Í>AÐ var reglulega ánægjulegt að
líta inn í Ungó í Keflavík sl.
fimmtudagskvöld. Þar var mætt
ungnlinganefnd Knattspyrnusam
bands íslands til að ræða við
unga keflvíska knattspyrnumenn.
Og hinir ungu Keflvíkingar létu
ekki hávaðarok og rigningu aftra
sér frá því að mæta, 80 drengir
á aldrinum 9 til 16 ára röðuðu
sér á bekkina og áhugi og eftir-
vænting ljómaði af hverju and-
liti.
Frímann Helgason kynnti gest
ina, sem komnir voru í heim-
sóknina, en það voru Karl Guð-
mundsson landsþjálfari, Sigur-
geir Guðmannsson landsþjálfari
ÍBR og svo síðast en ekki sízt
3 gulldrengir úr Reykjavík, eða
þeir Örn Steinsen og Gunnar
Felixson úr KR og Skúli Jóhann-
esson úr Víking, en hann er að
eins 17 ára að aldri.
Frimann ræddi við hina ungu
knattspyrnumenn um afreks-
merkjaæfingar KSÍ og þá miklu
þýðingu, sem þær hefðu. Knatti-
leikni og knattmeðferð væru und
irstöður góðrar knattspyrnu, en
aefingarnar undir afreksmerkm
væru einmitt miðaðar við að ná
slíkum árangri. Það kostaði
bæði þolinmæði og mikla þraut-
seigju að ná þeim árangri sem
þarf til að leysa knattspyrnu-
þrautimar, en þá væri líka þeim
áfanga náð, sem alla drengi
dreymir um, að verða hlutgengur
keppandi í liði félags síns, og
komast jafnvel.í landslið, eins og
gulldrengirnir Örn Steinsen og
Þórólfur Beck, sem komust i
landsliðið aðeins 19 ára gamlir.
En fyrst og fremst þarf að æfa
og aftur æfa.
Drengjunum var síðan sýnd
kvikmynd af sænskum piltum,
sem voru að leysa knattþrautirn-
ar og Karl Guðmundsson út-
skýrði hverja æfingu um leið og
hún var sýnd.
Þessu næst ræddi Sigurgeir
við gulldrengin- og var fylgzt
með þeim viðræðum af áhuga.
Öllum bar þeim saman um það,
að góður árangur í knattspymu
næðist aðeins með stöðugum æf-
ingum og leggja bæri mesta
áherzlu á þær æfingar, sem mað-
ur ætti erfiðast með að leysa af
hendi. Enginn yrði góður knatt-
spyrnumaður nema hann æfði af
alvöru og hlýddi leiðbeiningum
þjálfara síns.
Að lokum var sýnd dönsk knatt
spymumynd, sem tekin var í
sumarbúðum við Vejle árið 1957,
en þá dvöldu þar 100 knattspyrnu
dregnir frá Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku og íslandi og stunduðu
æfingar um viku tíma, undir
handleiðslu danska landsliðsþjálf
arans, Ame Sörensen. Fulltrúar
íslands á þessu námskeiði voru
II. flokkur KR og var einn Kefl-
víkingur, Þórhallur Stígsson, (
þeirra hópi.
Kvikmynd þessi sýndi þjálfun-
aðferðir og æfingar, sem pilt-
arnir voru látnir gera og það
vakti mikla ánægju hjá hinum
ungu áhorfendum, þegar þeir sáu
að Öm Steinsen og Þórólfur Beck
höfðu verið valdir úr þessum 100
stráka hópi til að sýna allar erf-
iðustu æfingarnar. Roy Rogers
hefði ekki hlotið meiri aðdáun
en okkar ungu landsliðsmenn
í Keflavík þetta kvöld.
Áður en fnudi var slitið, kall-
aði Karl Guðmundsson, Magnús
Teitsson fyrirliða IV. flokks ÍBK
upp á leiksviðið og afhenti hon-
um fyrir hönd KSÍ, bikar þanr.,
sem Keflvíkingar hlutu fyrir að
vinna íslandsmótið í IV. flokki.
Karl óskaði hinum ungu knatt-
spyrnumönnum til hamingju með
sigurinn og hvatti þá til að halda
áfram á sömu braut, en allir við-
staddir risu úr sætum sínum og
hrópuðu ferfalt húrra fyrir hin-
um ungu íslandsmeisturum svo
að undirtók í gamla Ungó.
Fjórði flokkur Keflvíkinga
sigraði í öllum sínum leikjum og
má þakka þann árangur fyrst og
fremst hinum unga þjálfara liðs-
ins Hólmbert Friðjónssyni.Hólm-
bert, sem er aðeins 17 ára að aldri
lék í sumar með liði Keflavíkur
í I. deild og auk þess var hann
valinn í unglingaliðið, sem lék
gegn landsliðinu frá 1949 á Laug
ardalsvellinum í sumar. Keflvík-
ingar binda vonir við að þessi
ungi, prúði knattspyrnumaður
eigi mikla framtíð fyrir sér.
Unglinganefnd KSÍ á þakkir
skilið fyrir það framtak og dugn
að, sem hún hefur sýnt við að
boða fagnaðarerindi sannrar
knattsprynu meðal hinna yngstu
áhugamanna þessarar göfugu
íþróttar, en félögunum hættir svo
oft við að gleyma að yngstu flokk
arnir eru þeirra dýrmætasta eign
og sá varasjóður sem á eftir að
fleyta þeim yfir örðugasta hjalla
framtíðarinnar.
B. P.
Körfuknottleikor
MEISTARAMÓT Reykjavíkur í
körfuknattleik hefst á þriðju-
daginn 10. nóv. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að hafa borizt Körfu-
knattleiksráði Reykjavíkur Hóla-
torgi 2 fyrir 25. október.
HAUSTMÓTI meistarafl. knatt-
spyrnufélaganna í Reykjavik er
nú senn að Ijúka og þar með
keppnistímabili knattspyrnu-
mannanna. Eftir eru aðeins tveir
leikir — einn leikdagur og fara
þeir leikir fram n.k. sunnudag.
En báðir leikirnir sem efcir eru
hafa mikla þýðingu í mótinu. KR
og Valur mætast og er það um
hreinan úrslitaleik í móiinu að
ræða og sama dag mætast Þrótt-
ur og Víkingur og verður þar
um að ræða baráttuna um að
verða ekki í neðsta sætinu.
Haustmótið hefur um 'árabil
hiotið litlar og lélegar undirtekt-
ir knattspyrnuunnenda. Er það
að vonum og stafar þá fyrst og
fremst af því að knattspyrnu-
mennirnir sjálfir hafa engan á-
huga á mótinu. Þeir mæta flest-
ir hverjir ekki lengur á æfingar
— heldur koma aðeins til leikj-
anna og er þá árangur eftir því.
Mótið hefur því ekki náð þeim
tilgangi sem upphaflega var hafð
ur í huga, að lengja æfinga- og
keppnistímabil knattspyrnumann
anna.
Því er það að margir vilja nú
breyta skipulaginu, fella Haust-
mótið niður, en taka upp þess i
stað bikarkeppni. Hefur sú uppá-
stunga komið fram og er nú til
umræðu hjá æðstu stjórn knatt-
spyrnumálanna. Vónandi finnur
hún einhverja lausn á þessu —
lausn sem skapar meiri spenn-
ing en Haustmótið og verður fleir
um til ánægju.
En þessar umræður standa yfir
og ennþá er ekkert ákveðið af
þeim að frétta, en margar leiðir
munu vera til umræðu um fyrir-
komulag bikarkeppni. Um niður-
stöður heyrist væntanlega innan
skamms.
Ef KR sigrar í leiknum við
Val á sunnudaginn — og þar með
mótið vinna þeir bikarinn sem um
er keppt til eignar. Er þá gott
tækifæri til að skipta um fyrir-
komulag með haustmótin.
Staðan í mótinu er nú þannig:
L U J T M St
KR........ 3 3 0 0 7:1 6
Valur....... 3 3 0 0 7:2 6
Fram....... 4 2 0 2 11:5 4
Þróttur .... 3 0 0 3 2:6 0
Víkingur .. 3 0 0 3 2:15 0
Húsið var komið út úr
tryggingu eins og á stóð
í HÆSTARÉTTI er genginn
dómur í máli, sem maður nokk-
ur höfðaði gegn Húsatryggingu
Reykjavíkurbæjar. Hafði hann
keypt hús, flutt það inn í Blesu-
gróf, en áður en húsið var kom-
ið þar á grunn, kviknaði í því.
Húseigandinn, Hreiðar Jónsson,
klæðskerameistari, gerði kröfur
á hendur Húsatryggingum. Hafði
hann tryggt húsið fyrir 48,100
kr. og krafðist hann að trygg-
ingafyrirtækið greiddi fullt and-
virði hússins.
Forsaga þessa máls er í stuttu
máli á þá leið, að Hreiðar Jóns-
son hóf byggingaframkvæmdir
við hlið þessa húss árið 1955.
í ágústmánuði næsta ár fluttist
hann í þetta nýbyggða hús. Lét
hann þá taka gamla húsið af
grunninum og flytja það um 100
m. frá nýja húsinu og þar stóð
húsið fram til 9. des. sama ár,
að eldur kviknaði í því og brann
það til kaldra kola. Þetta var
35 frem. hús, járnklætt úr timbri.
Dyr hússins voru ólæstar og
grunur lék á að um íkveikju
væri að ræða.
1 undirrétti urðu úrslit máls-
ins þau að Hústryggingar bæjar-
ins voru sýknaðar af kröfum
Hreiðars Jónssonar. Þetta dóms-
orð staðfesti Hæstiréttur, svo og
forsendur, en þar segir á þessa
leið:
„Ljóst er, að við flutning húss-
ins og frágang þess að. honum
loknum, varð mikil breyting á
verðmæti þess og varðveizlu og
þeirri hættu, sem tryggingar.
samningurinn náði til. Allar að-
stæður voru svo mjög breyttar
að stefnandi mátti ekki gera ráð
fyrir að stefndi myndi sætta sig
við að tryggingarsamningurinn
héldi gildi óbreyttur, án þess að
til kæmi bein yfirlýsing um það,
en eins og fyrr greinir tilkynnti
stefnandi honum ekkert um ráð-
stafanir þessar. Verður því áð
fallast á það með stefnda, að
húsið hafi ekki lengur verið í
tryggingu eftir þessar aðgerðir
og ber því að taka sýknukröfu
hans til greina, en eftir atvik-
um er rétt að málskostnaður
falli niður.“
Karl Guðmundsson, þjálfarl
unum bikarinn fyrir sigur á
KSf, afhenti Keflavíkurdrengj-
fslandsmótinu á sl. sumri.
Frumvarp um
dauðarefsingu
á Ceylon
COLOMBO, Ceylon, 7. okt. (Reut
er). — Ríkisstjórnin tilkynnti í
dag, að hún mundi á næsta fundi
þingsins bera fram frumvarp um,
að dauðarefsing verði lögleidd á
Ceylon á ný, en hún var numin
úr lögum árið 1956. Stjórnin tók
ákvörðun sína um þetta skömmu
eftir að Bandaranaike, fyrrver-
andi forsætisráðherra, var ráðinn
af dögum 25. sept. sl.
Tíu dögum áður en það gerðist
hafði því verið lýst yfir af sér-
stakri stjórnarnefnd, að ekkert,
sem gerzt hafi í landinu frá því
að dauðarefsingin var afnumin,
réttlæti að hún væri tekin upp að
nýju. — Þess má geta, að- morð
eru tiltölulega mjög tíð á Ceylon,
Eftir morð fyrrverandi forsæt-
isráðherra var lýst yfir hættuá-
standi í landinu og skömmu síðar
tekin upp takmörkuð ritskoðun.
Hefir það nokkuð komið niður á
blöðum landsins — og erlendir
fréttamenn kvarta undan því, að
öll fréttastarfsemi í landinu aé
erfið.