Morgunblaðið - 28.10.1959, Page 2

Morgunblaðið - 28.10.1959, Page 2
2 MORGVNJJLAÐIÐ Miðvikudagur 28. okt. 1959 Vildi láfa varpa sér út úr handaríska sendi- ráðinu BANDARÍKJAMAÐUR nokkur, Frank Cessata að nafni, setlaði í gær að vekja athygli blaðaheims ins á sér með þvf að láta starfs- menn í Bandaríska sendiráðinu hér varpa sér á dyr. Settist hann að síðdegis í sendiráðinu með vaðsekk, sem í voru sængurföt og náttföt hans — og krafðist þess að fá að dveljast í byggingunni um óákveðinn tíma. Var honum tjáð, að hann mætti vera í sendi- ráðinu eins lengi og það væri opið, eða til kl. sex. Þá taka ör- yggisverðir við gæzlu hússins og vissi Cessata, að honum yrði varp að á dyr_ ef hann þrjóskaðist við að fara. Og kl. 3 e.h. settist hann að í biðstofu sendiráðsins með vaðsekkinn — og þegar klukk- una vantaði eina mínútu í sex sat hann þar enn. MálaVextir voru þeir, að Cess- ata, sem er 47 ára að aldri, hafði verið sagt upp starfi, sem hann gegndi um alllangt skeið á Kefla víkurflugvelli. Taldi hann sig hafa sannað, að ekki hefði um neinar misfellur ve'rið að ræða hjá honum í starfinu — og síðan hefur hann hvað eftir annað sótt um starf þar suður frá, en jafn- an fengið neitun. Það var árið 1956 að Cessata hætti störfum á Keflavíkurflugvelli_ en allar til- raunir hans til þess að fá þar starf aftur hafa hingað til farið út um þúfur. Ætlaði hann að gera lokatilraun og reyna að £á bandarísk blöð í lið með sér. Hann ætlaði að láta varpa sér út úr sendiráði síns eigin lands, eins og hann sagði, og vita hvort það hefði engin áhrif, Cessata vill ekki fara frá ís- landi. Hann er kvæntur íslenzkri konu og eiga þau hjón tvö börn, drengi 7 og 5 ára. Cessata var hér fyrst árin 1941—44, en kom hingað aftur 1952 — og hafði þá með höndum stjórn á ýmsum flutningum fyrir varnarliðið hér. Hinni íslenzku konu kvæntist Cessata ytra, en hann sagði, að hún vildi ekki fara til Banda- ríkjanna aftur — og þess vegna færi hann hvergi. Og konan hefði unnið fyrir heimilinu að undanförnu. Hins vegar vildi hann vinna á Keflavíkurflugvelli og hvergi annars staðar. Yfir- mennirnir suður frá hefðu ekki getað sannað neitt misjafnt á hann og hann ætti rétt á vinnu þar eins og hver annar. En Cessata var aldrei varpað á dyr í sendiráðinu. Sendiráðs- menn töldu hann á að bíða einn dag, því einn starfsmanna sendi- ráðsins væri suður á Keflavíkur- flugvelli. Menn þar syðra vissu því um áform hans — og e.t.v. væri von til þess að eitthvað breyttist á morgun. En Cessata var vantrúaður á það enda þótt hann léti til leiðast, því hann væri búinn að bíða síðan í júlí 1956 eftir að eitthvað gerðist „á morgun“, sagði hann. Og nú sagð- ist hann aðeins ætla að bíða einu sinni — í síðasta sinn. TVENNT af hljómlistarfólk- inu á meðfylgjandi mynd er okkur íslendingum að góðu kunnugt — og skylt. — Lengst til hægri á myndinni er Elísa bet Sigurðsson, dóttir prófes- sors Haraldar Sigurðssonar, píanóleikara, en hún hlaut nýlega heiðursverðlauh danskra tónlistargagnrýnenda Danskt-íslenzkt tríó eins og frá hefir verið skýrt hér í Morgunblaðinu. Til vinstri á myndinni er Erling Blöndal Bengtsson, selloleik- ari_ sem einnig er af íslenzk- um ættum, eins og kunnugt er. Hann hefir oft heimsótt okkur hér og veitt okkur tæki færi til að njóta listar sinnar — síðast nú í sumar, sem leið. — Þriðji maðurinn, í miðið á myndinni, er Anker Blyme, ungur og efnilegur danskur píanóleikari. Þetta unga fólk stofnaði ný lega með sér kamrnermúsík- tríó og hefir æft af kappi síð- ustu vikurnar. — Fimmtu- daginn 22. þ.m. héldu þau sína fyrstu opinberu hljómleika, í Kaupmannahöfn — við ágæt- ar undirtektir. Á efnisskránni voru tríó eftir svo ólíka höf- unda sem Karl-Birger Blom- dahl og Beethoven (op. 11 í B-dúr), og einnig léku þau Elísabet og Blyme sónötu fyr- ir klarínettu og píanó op. 107 eftir Max Reger. Elísabet Sigurðsson stundar nú einkum klarínettuleik, og á það hljóðfæri leikur hún í hinu nýja tríói — eins og sést á myndinni. En hún er einnig mjög fær píanóleikari, eins og við höfum fengið að kynnast hér heima. Skógarskóli settur HÉRAÐSSKÓLINN að Skógum var settur miðvikudaginn 21. okt. Auk kennara og nemenda var skólanefndin viðstödd og nokkrir gestir. Setningarathöfn- in hófst með því að séra Jónas Gíslason í Vík í Mýrdal flutti bæn. Síðan hélt skólastjórinn, Jón R. Hjálmarsson, setningar- ræðuna og drap á ýmsa þætti í starfi skólans. Kennarar við skólann verða þeir sömu og sl. skólaár, nema að Guðrún Hjörleifsdóttir hefur látið af störfum og við kennslu hennar tekið Sigríður Lára Árnadóttir frá Siglufirði. Þá hefur verið tekin upp í skól- anum söngkennsla og annast hana Þórður Tómasson frá Vallnatúni. Ráðskona mötuneyt- is, Lilja Sigurgeirsdóttir, hafði látið af störfum og matselja í hennar stað verið ráðin Jóna Guðlaugsdóttir frá Selfossi. Nemendur í skólanum eru eitt hundrað og eins margir og frek- ast mega verða vegna húsp-" >ís Aðsókn að skólanum var afar mikil og varð því að vísa fjöl- mörgurn frá. Nemendur í 3. bekk komu í skólann 1. okt. og nem- endur í 1. og 2. bekk 15. okt. Af nemendur eru stúlkur 49 og piltar 51. Nemendur eru víðs vegar að, en mikill meiri hluti af Suðurlandsundirlendi og úr Serkjir vilja tafariaust umrœður um vopnahlé skólahéraðinu, sem nær yfir Rangárvallasýslu og Vestur- Skaftafellssýslu eru samtals 68. Nokkrar verklegar fram- kvæmdir hafa staðið yfir við skólann á sumrinu og má þar helzt til nefna sundlaug skól- ans, sem enn er í smíðum. Er hún nú svo vel á veg komin að hún mun að öllu forfallalausu tekin í notkun seint á þessu ári. Verður þar með náð stórmerk- um og langþráðum áfanga í sögu skólans. í lok ræðu sinnar hvatti skóla- stjóri nemendur til dáða og bað þá að nota tímann vel, því að við nám væri hver stund dýr- mæt. Að síðustu kvaddi formaður skólanefndar, Björn Björnsson, sýslumaður, sér hljóðs og árn- aði nemendum og skólanum í heild allra heilla. Við skólasetninguna var mik- ið sungið og athöfnin öll hin hátiðlegasta. — Bakhliðin KAIRO, 27. okt. NTB: — Út- lagastjórn Serkja lýsti því yf- ir í dag, að hún væri reiðubú- in að hefja tafarlaust samn- ingaumræður við frönsku stjórnina um vopnahlé í Aisír. Talsmaður stjórnarinnar sem birti yfirlýsinguna bætti því við að umræðuraar ættu að beinast að tveimur atrið- um. í fyrsta iagi að gera samn ing um vopnahlé strax og sam komulag hefur náðst um póli- tísk og hemaðarleg vopnahlés skilyrði. í öðru Iagi þarf að ná sam- komulagi um aðferðir við að framfylgja tillögum de Gauli- es um sjálfsákvörðunarrétt og þjóðaratkvæðagreiðslu í Alsír og um nauðsyniegar trygging ar fyrir því að þjóðaratkvæða greiðslan verði frjáls og leyni- leg. Serkjastjórn telur, að at- kvæðagreiðslan verði að fara fram undir eftirliti Samein- uðu þjóðanna eða einhverrar hlutlausrar alþjóðanefndar. Serkir krefjast þess einnig að allt franskt herlið verði kvatt brott frá landinu áður en þjóð aratkvæðagreiðsla fer fram. Verzlunin Piuii 30 óra í DAG er verzlunin Pfaff að Skólavörðustíg 1 hér í bæ 30 ára. 28. október 1929 stofnaði Magnús Þorgeirsson verzlunina Pfaff og var verzlunin þá til húsa að Bergstaðastræti 7. Segja má að verzlunin Pfaff sé fyrsta sérverzlun á íslandi með sauma- og prjónavélar. Fyrstu árin, sem verzlunin starfaði seldi hún ein- göngu sauma- og prjónavélar, en vegna takmörkunar innflutnings á þessum vélum, varð verzlunin brátt að taka upp sölu á öðrum vörum jafnframt. 1 janúar 1939 flutti verzlunin í ný húsakynni að Skólavörðu- stíg 1 og hefur verið starfrækt þar síðan. Forráðamenn fyrir- tækisins hafa ávallt lagt mikla áherzlu á það, að þeir sem keyptu sauma- og prjónavélar hjá fyrirtækinu gætu haft sem mest not af vélunum. Verzlunin hefur því haldið uppi reglubund- inni kennslu fyrir Iiúsmæður á sauma- og prjónavélar og er fyr- irtækið brautryðjandi á þessu sviðL Framh. af bls. 1. sóknir sínar á Ijósmyndunum. Þeir segja það sérlega athyglis- lnn vert, að yfirborð tunglsins á bakhliðinni sé mjög frábrugðið þeirri hlið sem að jörðinni snýr. Aðalmunurinn er í því fólginn að það er minna um svonefnd „höf“ á bakhliðinni, en svo eru víðar lægðjr á tunglinu kallað- ar frá því miðaldastjarnfræðing- ar ímynduðu sér að þar væru hafsvæði. Stjörnufræðingurinn Judine skýrir einnig frá því, að næsta skrefið í tunglrannsóknum Rússa verði að senda sjálfvirk mælitæki og ljósmyndavélar til tunglsins til þess að afla upplýs- inga um þennan hnött úr nær- sýn. Rússar hafa nú í fyrsta skipti sagt frá útbúnaði Lúniks 3. — Geimstöðin er sívalningur í lag- inu, nærri tveggja metra langur og rúmlega meter í þvermáli. — Lúnik 3. sveimar enn á braut umhverfis jörð og tungl, en rússneskur stjörnufræðingur spáir því, að hann lendi í apríl n. k. inni í gufuhvolfi jarðar og eyðist þar upp til agna. Síðasta umferð BELGRAD, 27. okt. — Nú er hreint borð hjá skákmönnunum í Belgrad. Biðskákir voru tefldar í dag — og eftir er nú aðeins ein umferð sem litlu getur breytt um röð. Friðrik gaf biðskákir sínar við Fischer (úr 26. umferð) og við Smyslov úr 27. umferð án þess að tefla frekar. Keres vann Gligoric Petrosjan og Benkö skildu jafnir en Tal vann Fischer. Staðan í mótinu fyrir siðustu umferð er þannig: Tal 1914 vinn. Keres 1814 v., Smyslov 15, Petro- sjan 1414, Gligoric 1214, Fischer 1114, Friðrik Ólafsson 9 og Benkö 7. Síðasta umferð verður tefld á fimmtudaginn. Væntanleg Persa- drottning pantar brúðarkjól PARÍS, 26. okt. Reuter. — Það þykir nú engum vafa undirorpið, að hin 21 árs gamla stúlka Farah Diba, sem nýlega kom til Par- ísar sé væntanleg drottning Reza Pahlevi keisara af Persíu. Hún fékk sem sé viðtalstíma við St. Laurent forstöðumann Dior-tízkuhússins og pantaði hjá honum rándýran brúðarkjól. St. Laurent var í sumarfríi uppi í sveit, þegár Farah Diba óskaði eftir viðtali. Hann kom hið bráðasta til borgarinnar, tók á móti stúlkunni og sýndi henni í klæðaskápa tízkuhússins. Eftir að stúlkan pantaði brúðar- kjólinn fór St. Laurent þegar að teikna skissur af kjólum, sem á að taka öllu því fram sem saumað hefur verið af brúðarkjólum fram að þessu. Litskuggamyndir frá Noregi IVAR Orgland, norski sendikenn arinn við Háskóla íslands, sýnir litskuggamyndir frá Noregi í J. kennslustofu háskólans í kvöld 28. okt. kl. 20,30. Myndirnar, sem hann hefur tekið sjálfur, eru að- allega frá Setesdalnum og Þela- mörk, tveimur aðalheimahögum hinna þjóðlegu lista í Noregi. Kynnumst við m. a. hinni fögru byggingarlist Þela og Harðang- ursfiðlunni, sem er gamalt norskt þjóðarhljóðfæri og enn í mikilli notkun. Ivar Orgland útskýrir myndirnar og kynnir tónlistina á segulbandi. Sýningin er ókeypis og er öll- um heimill aðgangur. Delerium búbónis í 45. siun Forstjófamir Einar í Einiberjarunni og Ægir Ó. Ægir ræða Við Jafnvægismálaráðherrann. — Eftir kosningahriðina er kvöldstund vel varið að sjá þennan bráðskemmtilega gaman- leik. Frá v. Brynjólfur Jóhannesson, Gísli Halldórsson ug Karl Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.