Morgunblaðið - 03.11.1959, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.11.1959, Qupperneq 2
2 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. nóv. 1959 Tólf óku meira oa minna drukknir ÓHUGNANLEG er talan í bók- um götulögreglunnar eftir þessa síðustu helgi, þar sem skráðar eru kærur á hendur bílstjórum fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Frá því klukkan 7 á föstudags- kvöld og þar til árdegis á mánu- dagsmorgun, hafa lögreglumenn kært alls 12 bílstjóra. Voru sum ir þeirra áberandi ölvaðir, en aðr ir minna. Ekki hafði nema einn þessara manna lent í árekstri og valdið tjóni. Undanfarið hefur varla sá dag- Ur liðið, að lögreglan hafi ekki Leitað að stórslös- uðum hesti AKRANESI, 2. okt. — Fólksbíll var í gærkvöldi á suðurleið vest- an af landi og var kominn á veg- inn rétt niður úr hallanum hjá Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd. Gekk á snjóéljum og var skyggni vont. 20 hross voru í hóp á veginum. Ók bíllinn á eitt hross ið, sem hljóp út í buskann, sært og stórmeitt og gátu menn ekki handsamað það þá um kvöldið. Voru menn sendir árla í morgun að leita þess. Hrossið fundu leit- armenn í morgun, steindautt utan við veginn. Bíllinn stórskemmdist. Járn stóð fram úr bílnum, sem haft var til skrauts og rakst það í skepnuna. Það má bílstjórinn eiga að hann lét bændur strax vita um slysið. Bíllinn var dreg- inn hingað á Akranes og er hér til viðgerðar. — Oddur. tekið úr umferð fleiri eða færri bílstjóra, ölvaða undir stýri bíla sinna. Er hér um að ræða mikið alvörumál. Verður mönnum yfir- leitt svarafátt um leiðir til þess að bægja þessari hættu frá. Ekki eru bílstjórar þessir minna hættu legir sjálfum sér en þeir eru öðr- um. Margir hafa látið í ljósi það álit, að blöðunum bæri að birta nafn ökumannanna, a.m.k. núm- er bílanna sem teknir eru. Um þetta atriði spurði Mbl. í gær yfirmann rannsóknarlögregl unnar, Svein Sæmundsson. Hann svaraði eitthvað á þessa leið: Ekgi dreg ég úr ykkur að gera það, og átti við númerabirtingu. Af þessum mönnum stendur bemn voði. „Pollinnw forðaði sly S1 AKRANESI, 2. nóv. — Milli kl. 5 og 6 síðdegis í gær var lögreglu- bíllinn hér að aka fram hafnar- garðinn. — Ekkert skip var við garðinn, enda var allmikið sunn- an-brim. — í bílnum voru tveir lögreglumenn og tvö börn. Er bíllinn var kominn nokkuð fram á hafnargarðinn tók sig upp ólag, fór yfir garðinn og kast aði bílnum á „festipolla" — og þar stöðvaðist hann. — Pollinn gekk inn í hlið bilsins, sem skemmdist talsvert við árekstur- inn — en hefði pollans ekki not- ið við, eru allar líkur til þess, að billinn hefði steypzt fram af garðinum og horfið í sjóinn. — Oddur. Þetta eru byggingar fiskverksmiðju Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna vestur í Nanticoké í Bandaríkjunum. — Aðalhús og verksmiðjubygging, þá birgðaskemma og Ioks frystigeymsla. Hlífðarhringjunum smokkað upp á felguna. Nýir hjólbarðar vekja ithygl UM þessar mundir er ný gerð hjólbarða að koma á heimsmark aðinn. Hér er um að ræða barða, sem hafa laust slitlag, ef svo mætti segja. Ætlazt er til þess, að bíleigendur skipi um slitlag á börðunum eftir þörfum. Með- fylgjandi myndir skýra bezt í hverju þetta er fólgið. Á hjól- barðanum eru þrjár raufar — og í þessar raufar falla gúmmí- hringarnir, eða slithringirnir. Þrenns konar hringar verða á boðstólum: Fyrir akstur í snjó og aur, á ísi eða hálku — og svo fyrir akstur að sumarlagi. — Hringarnir eru þv£ mismunandi grófir — og þeir_ sem eru fyrir vetraraksturinn, eru svipaðir hinum þekktu snjóhjólbörðum að útliti. Þessi nýjung er ítölsk. Pirelli- verksmiðjurnar hafa um fjögurra ára skeið gert tilraunir með þessa uppfinningu — og hafa nú aflað sér einkaleyfis á framleiðslunni. Verksmiðjurnar hafa þó selt framleiðslurétt öðrum verk- Loftleiðir vilja fleiri íslenzka flugmenn — fækka norskum smiðjum víða um heim svo að búast má við að innan skamms verði þessir nýju barðar á boð- stólum beggja vegna hafsins. Framleiðandinn telur sig hafa fengið góða reynzlu af notkun barðanna, en þeir fyrstu eru komnir hingað til lands og verða reyndir á nokkrum Volkswagen- bílum á næstunni svo að fljótlega ætti að fást reynzla á þessum börðum hérlendis. Það á ekki að vera nema and- artaksverk að skipta um hringa á börðunum — og á hver bíleig- andi að geta gert það sjálfur. Ekki á heldur að vera nein hætta®. á þvi að hringarnir togni og renni lausir á barðanum, þegar heml- að er_ því í þeim eru stálþráðs- vafningar. Fjöldaframleiðsla er enn á byrjunarstigi — og sem stendur munu ekki verða til slíkir barðar á aðra en Evrópubíla, en fram- leiðsla fyrir bandarískan mark- að mun í þann veg að hefjast Alvarleg upphlaup í Belgísku Konwó Stanleyville, Belg.-Kongó, MIKLAR óeirðir hafa staðið hér í borg síðan í gærkvöldi, og hafa átzt við innfæddir menn og her- menn úr belgíska nýlenduhern- um. Hafa a.m.k. 24 menn látið lífið í óeirðum þessum og yfir 100 særzt. Einnig hafa orðið átö'k nokkur í Mangobo, sem er hér í grenndinni. Þegar lögregla og hermenn komu á vettvang til að dreifa upp hlaupsmönnum, sem höfðu hóp- azt saman við fangelsi borgarinn- ar, mætti þeim grjóthríð, spjót og örvar. Særðust þá þegar nokkrir. — Uppþotin hófust eftir fund í félagsskap manna úr þjóðernis- hreyfingu Kongó, sem belgísku yfirvöldin hafa bannað. — Þegar ekki tóhst að dreifa mannfjöld- anum með öðru móti, skutu ný- lenduhermennirnir á fólkið, og féllu þá nokkrir og særðust, sem fyrr segir. Belgísku yfirvöldin gáfu út til- kynnlngu síðdegis í dag, þar sem segir, að þau hafi yfirbugað upp- þotsmenn, og sé nú allt nokkum veginn með kyrrum kjörum. Margir óttast aftur á móti, að ó- eirðir brjótist út aftur með nótt- inni. Góðar sölur togara TVEIR togarar seldu í Þýzka- landi í gærmorgun, Bjarni ridd- ari frá Hafnarfirði 140 lestir á 90 þús. mörk og Þorsteinn þorska bítur frá Stykkishólmi 69 lestir fyrir 57.200 mörk. Hvort tveggja eru þetta góðar sölur. Felgan og hlífðarhring- irnir þrír ÖNNUR Cloudmaster-vélin, sem Loftleiðir kaupa af Pan American, kemur til landsins 18. eða 19. desember að því er Alfreð Elíasson, framkvæmdastjóri Loftleiða, skýrði blaðamönnum frá á sunnudaginn. Þessi vél verður afhent Loftleiðum 9. desember, eins og Mbl. hefur áður greint frá Hin vélin verður afhent félaginu 1. marz, en Cloudmaster vélarnar koma ekki inn í áætlun félagsins fyrr en síðar í vetur. — Braathen hinn norski hefur sem kunnugt er annazt allt við- hald og viðgerðir á Skymaster- flugvélum Loftleiða á undanförn- um árum, jafnframt því sem Braathen hefur leigt félaginu eina eða tvær Skymastervélar eftir þörfum. — En Braathen hefur aldrei átt sjálfur né ann- azt viðhald Cloudmastervéla. Þegar sýnt var, að Loftleiðir mundu kaupa þessar tvær vél- ar, hóf Braathen að búa sig und- ir að geta líka annazt viðhaldið fyrir félagið. Hefur hann nú m. a. sent nokkra flugvélavirkja til Bandaríkjanna til þess að kynna sér þessar flugvélar. Jafnframt kaupsamningnum, sem Pan American gerði við Loftleiðir, bauð bandaríska fé- lagið að gerðir yrðu samningar um að viðhald Loftleiðavélanna færi framvegis fram á verkstæð- um Pan American í New York. En tilboð Braathens var hag- kvæmast og þess vegna var það tekið, sagði Alfreð. Sagði hann að sem stæði væri óhugsandi fyrir Loftleiðir að hugsa til þess að koma upp eig- m verkstæðum. Stofnkostnaður- inn og nægt starfslið væri alls ekki fyrir hendi á íslandi. Á meðan félagið hefði tvær gerðir flugvéla í förum, yrði aldrei komizt af með minna en á ann- að hundrað starfsmenn á sliku verkstæði. Einhvem næstu daga verður fyrsta Loftleiðaáhöfnin send til Bandaríkjanna til þess að fá þjálfun í meðferð Cloudmaster- vélanna. Á flugvélum sínum hef- ur félagið 11 áhafnir íslenzkar og munu flestar þeirra eða allar verða þjálfaðar á nýju vélarnar, enda þótt Skymastervélarnar tvær verði áfram í notkun hja félaginu. Samkvæmt leigusamningum á vélum Braathens hafa Loftleiðir verið skuldbundnar til þess að hafa 6 áhafnir norskar í þjón- ustu félagsins. „En við stækkun flugflota Loftleiða kemur félag- ið ekki til með að þurfa að leigja flugvélar Braathens jafn mikið — og sennilega fækkar norsku áhöfnunum niður í tvær“, sagði Alfreð. „Við þurfum því á fleiri flugmönnum að halda, reyndum flugmönnum, en þeir eru hins vegar ekki á hverju strái“, sagði Alfreð að lokum. Fyrsta sýning Filmíu FILMÍA byrjaði vetrarstarfið á laugard. og sýndi þá frönsku myndina „Ballkortið“. Forseti ís- lands og fórsetafrúin heiðruðu þessa fyrstu sýningu á vetrinum með nærveru sinni. Á undan sýningu talaði Jón Júlíusson, formaður félagsins, um verksvið Filmíu, sem hann sagði m. a. annars vera að sýna ungu fólki góðar eldri myndir, sem það á annars ekki kost á að sjá. Kvikmyndir bíða ekki eins og bækurnar í bókahillunum. 1 því sambandi ræddi hann nauð- syn þess að hér verði komið á stofn kvikmyndasafni,, eins og tíðkast víða annars staðar. Aðsókn er nú svo mikil að Filmíu að fullt er orðið á bæði laugardags- og sunnudagssýning- ar, og var húsið þéttskipað — Sjúkraflugvélin Framh. af bls. 1. héldu síðan beina leið til Syðra- Straumfjarðar. Var flugið frá Kanada til Grænlands 5 klst. og 30 mín. Frá Syðra Straumfirði héldu þeir beina leið til Akureyr ar og lentu hér í gærkvöldi kl. 10 eftir 6 klst. 25 mín. flug. Alls hafði flugið tekið þá 23 klst. 55 mín. frá Bradleyfield. Hin nýja björgunarflugvél er búin öllum fullkomnustu blind- flugtækjum og sagði Tryggvi Helgason að hún hefði reynzt mjög vel á þessari flugleið, enda hefði mátt vænta þess, þar sem hér væri um að ræða einhverja traustustu flugvél af þessari stærð, sem völ væri á. Flugvélarinnar hefur verið getið hér í blaðinu áður, svo og flughæfni hennar, og vænta Norð lendingar þess að hún megi verða hin ágætasta til sjúkraflugs, enda brýn þörf slíkrar vélar á Norð- urlandi. — vig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.