Morgunblaðið - 03.11.1959, Qupperneq 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. nóv. 1959
þörf á að auka fjölbreytni í
kirkjulegu starfi, koma á meiri
Kirkjan verður t.d. að kynna,
verkaskiptingu milli presta.
sér nýjungar í þjóðfélagsfræð-
Óftast eigin
mynd
Nokkur
fjölgun
ÞAÐ hefur verið sýnt fram á
nauðsyn þess að fjölga prestum
1 Reykjavík og Hafnarfirði.
Prestar hafa skipað þýðingar-
mikinn sess í sögu íslenzku þjóð
arinnar, en óneitanlega virðast
áhrif þeirra fara þverrandi.
Presturinn er ekki eins ómiss-
andi liður í þjóðfélagi nútímans
eins og hann var áður fyrr.
Embættisverk hans einkennast
fremur af þjóðfélagslegri hefð,
en af því, að þau séu í lifandi
samhengi við trú manna. Sér-
menntað fólk, ráðgjafar í þjóðfé-
orð um
presta
lagsvandamálum, sálgæzlu, barna
vernd o. fl. gera presta og meir
óþarfa í augum þorra manna.
Vissulega eru margir prestar
mjög vinsælir, en þær vinsældir
stafa oft fremur af persónuleg-
um töfrum hvers einstaks, en
beinlínis af því starfi, sem þeir
vinna. Kirkjunni er nauðsynlegt
að gera sér grein fyrir þessu.
Islenzkir prestar hafa eðlilega
mótazt af sveitaþjóðfélagi og
hafa fyrst og fremst verið sveita-
prestar, þeir hafa haft tækifæri
til að kynnast flestum sóknar-
börnum sínum og skilja aðstæð-
ur þeirra. Aukin borgarmenning
síðari tíma hefur skapað ýms
vandamál ekki sizt fyrir hina ís-
lenzku kirkju og verður hún að
taka á þeim vandamálum með
mikilli aivoru til þess að geta
staðið í stöðu sinni. Hún verður
að einhverju leyti leyti að breyta
starfsaðferðum sínum. Það er
ekki hægt að hafa sveitasöfnuði
í borgum. Enginn einn prestur
getur fylgzt með 5000 sóknar-
börnum á sama hátt og sveita-
presturinn með sínum sóknar-
börnum.
Vissulega hafa prestar og leik
menn unnið árangursríkt starf
hér í Reykjavík ekki sízt í æsku-
lýðsmálum og mikil nauðsyn er
á því, að slíkt starf haldi áfram
og aukist. En svið kirkjunnar
nær yfir fleira en æskulýðsstarf
og þótt allir prestar séu sam-
mála um gildi þess, hafa sumir
þó meiri áhuga og hæfileika á
einhverri annarri hlið kirkju-
starfsins. Kirkjulegt æskulýðs-
starf virðist einnig fremur háð
áhuga og hæfileikum einstakra
manna, en beinlínis sé um skipu-
lagt starf kirkjunnar að ræða.
Þar virðist einnig sú hætta vofa
yfir, að yfir því dofni við komu
nýs prests, sem hefði meiri hæfi
leika á öðrum sviðum.
Það eitt er ekki nóg að fjölga
sóknarprestum, en að sjálfsögðu
verður kirkjan að halda fram
rétti sínum um hámarkstölu
hvers safnaðar. Það er ekki síður
um. sálgæzlu, barna og unglinga
vernd o. þ. 1. til þess að hún geti
betur látið heyra rödd sína á
þeim sviðum. Einnig er það mjög
æskilegt, að kirkjan fylgist betur
með nýjungum í guðfræðirann-
sóknum. Til þess að þetta sé
framkvæmanlegt. verður kirkjan
að gefa starfsmönnum sínum
kost á að sérhæfa sig að ein-
hverju leyti.
Með því að koma á einskonar
aðstoðarprestsembættum, sem
kirkjustjórnin gæti sett presta í
án undangenginna kosninga, en
í samráði við viðkomandi sókn-
arpresta og stafnaðarstjórnir
mætti í fyrsta lagi auka verka-
skiptinguna, þar sem aðstoðar-
presturinn væri ráðinn til ákveð-
ins starfa, það mundi í öðru lagi
tiyggja meira samhengi innan
hinna ýmsu greina safnaðarlífs-
ins, en meiri hætta er á sam-
hengisleisi, þegar kosið er. Og í
þriðja lagi mundi það gefa prest
um kost á að njóta starfskrafta
sinna á því sviði sem áhugi og
hæfileikar þeirra helzt lægju.
Kirkjunni í fjölbýlinu er nauð-
synlegt að halda við hinum
kirkjulega arfi, sem einkenndi og
einkennir kirkjulíf til sveita, en
verður jafnframt að aðlaga sig
eftir aðstæðum borgarbúa.
Jón Sveinbjörnsson.
FYRIR nokkru var haldin sýning
í bogasal þjóðminjasafnsins, sem
vert var að gefa gaum. Þar segja
gullhreistraðir drekar og mjúk-
hentar líknargyðjur sögu fornr-
ar hámenningar, sem nú líður
að iökum. Þar má Sjá margt
fágætra listmuna með þem sér-
stæða svip_ sem aðeins getur
runnið upp af rótum aldinnar
hefðar. Víða er handbragð svo
fágætt, að fremur væri ætlandi
dvergum en mönnum. Og þó eru
litirnir enn meira undrunarefni,
minna á litskrúð huliðsheima,
sem jarðneskri sjón er að jafnaði
meinað að sjá.
Muni þá. sem þarna eru, kom
frú Oddný Sen með frá Kína,
þegar hún flutti búferlum hingað
til lands árið 1937. Safnaði hún
þeim á árunum 1922—’37 ásamt
manni sínum K. T. Sen, sem var
prófessor við háskólann í Amoy.
Er þetta í þriðja sinn að list-
munirnir glöddu augu almenn-
ings hér á landi. Þeir, sem sáu
og nutu í hin skiptin hugðu gott
til endurnýjaðra kynna, þvj að
seint verður góð sýning ofskoðuð.
Þarna var saman komið svo
margt merkisgripa af ýmsu tagi,
að of langt yrði að telja. Sjón er
sögu ríkari. Jón Sen, sonur
Oddnýjar, kom sýningarmunun-
um fyrir af listrænum næmleik
svo sem við var að búast, og
naut hún sín nú betur en nokkru
sinni fyrr. Þegar inn var komið
blasti við augum veggábreiða,
sem hvarvetna þætti hin mesta
gersemi. Hún er skreytt gull-
saumuðum drekum, sem gjóta
grænum glyrnum á sýningar-
gesti, þegar þeir ganga í salinn.
Ábreiðan er með silkikögri al-
settu örsmáum speglum kringl-
óttum. Það er trú manna austur 1
Kína, að speglar þessir varni
iilum öndum inngöngu, þv£ að
meinvættir óttast eigin mynd
meira en flest annað. Urðu marg-
ir til að bregða sér um stund frá
skarkala vestrænna véla til un-
aðsheima austræn'nar listmenn-
ingar. Á frú Oddný miklar þakk-
ir skildar fyrir þessa einstæðu
sýningu.
Úlfur Ragnarsson
Hjón með eitt barn óska eftir 2ja—3ja herbergja
íbúð á leigu
nú þegar eða hið bráðasta. Vinna bæði úti. Uppl.
í síma 22747 alla daga og 19460 frá kl. 9—17.
Opel Caravan '55
Fæst eingöngu með jöfnum mánaðarlegum greiðsl-
um ef samið er strax.
Bifreiðin er á nýjum dekkjum með útvarpi og mið-
stöð.
Bifreiðasalan
N jálsgötu 40 — Sími 11420
handhox
tint-n*set
Gí ciðið, það litar og leggur hárið
Fyrir dökkhærðar eða Ijóshærðar — allan háralit,
bæði skollitað og grátt.
Unglinga
vantar fil blaðburllar
i eftirialin hverfi:
Fálkagötu
Camp-ðínox
Skjólbraut (Kópavogi)
t>ér getið lagt háriö og lífgað
það með lit líka. Með Bandbox
Tint-n-set, gjörið þér hvor-
tveggja i einu. Ekki skol, ekki
fastur litur, þessl nýi krem-
vökvi gerir lagninguna
endingargóða og hárið gljáandi
með fallegum lit. Hvemig
sem hinn eðlilegi háralitur er,
þá gjörir Bandbox Tint-n-set
hárið aðlaðandl og gljáandi.
Greiðið aðeins Tint-n-set I
gegnum hárið. Engin blanda,
ekkert skol. (Þvæst úr strax,
ef þér óskið að skipta um blæ).
Dásamlegt, Tink-n-set! Fáið
yður túbu 1 dag áður en þér
þvoið yður næst.
Fallegri
bylgjur, og jaínframt litur
Sex fallegir litir:
Russet Brown, Chestnnt Glow, Auburn Gold,
Golden Blonde, Silver Blue, Smokey Grey.
Og munið alltaf eftir að nota BANDBOX SHAMPOO!
fslenkur leiðarvisir fylgir hverjum pakka.
Sími 22480.
Lítið einbýlishús
Til sölu er lítið einbýlishús (jámklætt) við Njáls-
götu á eignarlóð. — Húsið er 3 herbergi, eldhús,
bað, geymsluloft. — Mjög snyrtilegt hús
Sanngjarnt verð og útborgun.
Málflutningsstofa
INGI INGIMUNDARSON, hdl.
Vonarstræti 4 n. hæð
Sími 24753
Verksmiðjuhús
Nýtt verksmiðjuhús í fyrsta flokks ástandi ásamt
stórri lóð er il sölu.
Upplýsingar gefur:
SIGURGEIR SIGURJÖNSSON,
hæstaréttarlögmaður
Aðalstræti 8 — Sími 1-10-43.
lijúkrunarfélag
*
Islands
heldur 40 ára afmælisfagnað í Sjálfstæðishúsinu
þann 21. nóv. n.k. Hófið hefst með borðhaldi kl. 19,30
Aðgöngumiða þarf að panta í símum 34903, 35034
fyrir 15. nóv.
Skemmtinefndin
Veturliði seldi
24 málverk
SL. föstudagskvöld var fjölmenni
við opnun málverkasýningar
Veturliða Gunnarssonar í Lista-
mannaskálanum. Þegar um kvöld
ið hafði hann selt 23 myndir og
sl. laugardag seldi hann fljótt þá
24.
Málverkasýningin verður op-
in um vikutíma og er opin kL
1—11 síðdegis.
1