Morgunblaðið - 03.11.1959, Qupperneq 15
Þriðjudagur 3. nóv. 1959
MORCTn\fíT,AÐIÐ
15
ÍSLENZKU hvalveiðibát-
arnir liggja nú í Reykja-
víkurhiifn, þar sem þeir
bíða þess að komast í slipp
til eftirlits og viðgerðar, eft
ir eltingaleikinn við hval-
ina. Þeir eru ekki beinlínis
glaðlegir í yfirbragði, enda
gekk hvalveiðivertíðin ekki
sem bezt að þessu sinni,
vegna óhagstæðs veðurs. —
Veiddust aðeins 307 hvalir
í sumar á móti 508 í fyrra.
Eftir viðgerðina verður bát-
unum lagt í Hvalfirði, þar
sem þeir munu bíða 13.
hvalveiðivertíðarinnar —
reynist það vonandi happa-
tala. —
Grundfirðingar fá tvo
nýja báta
Byggt af kappi
á Akranesi
AKRANESI, 31. okt. — Hús-
byggingar hafa verið með meira
móti hér á Akranesi í vor og
sumar. Tvö stórhýsi eru í smið-
um, myndarleg ný símstöð ofar-
lega í miðjum bæ, sem á að verða
sjálfvirk með tíð og tíma, og
gagnfræðaskóli. Eru nú kennslu-
stofurnar fjórar svo langt komn-
ar, að hægt verður að taka þær
til afnota í desember.
Tuttugu til þrjátíu hús eru i
smíðum í nýja hverfinu við
Brekkubraut og göturnar þar, og
nokkur ný hús um miðbik bæj-
arins. Svo er og verið að byggja
ofan á 2—3 hús og langt komið.
Byggingavinnan hefur verið
»ótt af slíku kappi, að iðnaðar-
mennirnir hafa ekki séð út úr
því sem þeir hafa að gera.
— Oddur.
Ovenju miklar bygg-
ingaframkvœmdir
GRUNDARFIRÐI, 30. okt: —
Síðastliðið sumar hefur verið
unnið að stækkun hafskipa-
bryggjunnar hér í Grundarfirði,
og hefur hún bæði verið lengd
og breikkuð. Nemur lengingin
um 20 metrum og er til ómetan-
legs gagns og hagræðis fyrir
byggðarlagið, bæði hvað snertir
flutninga til og frá Grundar-
firði, svo og alla aðstöðu fyrir
bátana hér heima. Þessu verki
er nýlokið. og geta nú öll skip
lagzt að bryggjunni. Verkstjóri
við þessar framkvæmdir var Guð
mundur Hjartarson úr Hafnar-
firði.
Á næstu vetrarvertíð eru vænt
anlegir hingað 2 nýir bátar, ann-
ar 70 lestir, byggður á Norðfirði,
og eru eigendur hans Hraðfrysti
hús Grundarfjarðar og fl. Hinn
báturinn er 110 lesta stálskip,
smíðað £ Noregi, fyrir Guðmund
Runólfsson, skipstjóra og fl.
Vélbáturinn Sigurfari er í gagn
gerðri viðgerð í Stykkishólmi, en
vélbáturinn Páll Þorleifsson verð
ur sennilega seldur í burt réðan.
Óvenju mikið er um bygging-
arframkvæmdir hér og eru það
einkum ungir menn, sem eru að
reisa sér íbúðarhús. Ekki færri
en 10 íbúðarhús eru nú í smíðum
en auk þess er bygging hafin á
barnaskóla, bifreiðaverkstæði,
rafmagnsverkstæði, og spenni-
stöð hefur verið byggð hér á veg-
um Rafmagnsveitna ríkisins. Þá
hefur Kaupfélag Stykkishólms í
smíðum nýtt verzlunarhús.
Slátrun er hér nýlega lokið og
var alls slátrað allt að 300 fjár
hjá 2 fyrirtækjum, Kaupfél. og
Verzlunarfélagi Grundarfjarðar.
Dilkar voru með rýrara móti, og
kenna menn það slæmri sumar-
veðráttu, en hér hefur rignt í
hálfan þriðja mánuð.
Ennþá er unnið að vegagerð,
og næsta stórátakið í þeim efn-
um er bygging brúar á svonefnd
Mjóusund, og verða þær fram-
kvæmdir væntanlega hafnar
næsta vor.
Búið er að ryðja veg í gegn-
um Bergserkjahraun og að fyrir-
huguðu brúarstæði. —
— Fréttaritari
TIL eru i ævafornum indversk-
um ritum lýsing á hirðingu tanna
og munns. Þar er skýrt frá not-
kun tannbursta, sem menn gerðu
sér úr viðartágum með því að
tyggja enda þeirra þar til trefj-
arnar losnuðu sundur og mynd-
uðu þannig eins konar bursta. Við
burstun var notað duft eða krem
til að auðvelda hreinsun. Þessi
rit eru frá 4000—3000 f. Kr.
Ekki eru samt liðnir nema fáir
áratugir frá því að vestrænar
þjóðir hófu að leggja áherzlu á
hirðingu munns og tanna. Og nú
er svo komið að mörgum þykir
hirðing munnsins ekki síður mik-
ilvæg en almennt hreinlæti. Þó
ber svo við að í einum af skólum
höfuðstaðarins, sem valinn var af
handahófi áttu aðeins 4 af hverj-
um tíu börnum í 7 ára bekk tahn-
bursta og aðeins einn af tíu burst
aði tennur sínar reglulega. Því
eru líkur til þess að enn vanti
nokkuð á að þessa sjáfsagða
hreinlætis sé gætt sem skyldi hér
hjá okkur.
Hafi Indverjar hinir fornu fund
ið hjá sér þörf til þess að halda
tönnum sínum hreinum þá er
okkur, sem nú lifum nauðsyn á
því, vegna hinnar miklu neyzlu
á sykri og fínmöluðu korni, sem
að langmestu leyti veldur tann-
skemmdum.
Sjúkdómar í tönnum og tann-
holdi munu nú hrjá að rninnsta
kosti 99 af hundraði manna á
tvítugsaldri og fara vaxandi. Við
gerðir og viðhald tanna er orðinn
stór útgjaldaliður hjá flestum,
sem vilja halda þeim; aðrir van-
rækja tennur sínar, lýtast við það
í andliti og stofna heilsu sinni í
hættu.
Með réttri hirðingu tanna má
að verulegu leyti draga úr tann-
skemmdum, tannsteinsmyndunog
tannholdssjúkdómum. Það er þvi
ekki úr vegi að lýsa í fáum orð-
um þessari sjálfsögðu hreinlætis-
ráðstöfun.
Tennur skal bursta eins fljótt
og unnt er að máltíð lokinni. Ein
tegund af bakteríum í munm
breytir sykri og mjölefnum í sýru
á nokkrum mínútum, en sýran
leysir upp gleraunginn, sem er
yzta varnarlag tannarinnar. Þvi
fyrr sem slíkar fæðuleifar eru
hreinsaðar burt, því minni líkur
eru til að tannskemmdir hljótist
af.
Við burstun ber að gæta þesa
að hár' burstans nái inn milli
tannanna í skorur og ójöfnur á
öllum flötum þeirra og fjarlægi
leifar, sem þar kunna að leynast.
Ein aðferð er sú að leggja burst-
ann þannig að tönnum þeim, sen*
hreinsa skal, að hár hans beinist
að rótum þeirra og leggist ská-
hallt að tannholdinu, en dragist
síðan niður eftir því og eftir yfir-
borði tannanna í átt að bitfleti
þeirra. Þannig eru tennur efri
góms burstaðar niður, en neðri
tennur upp á við; bitfleti skal
bursta fram og aftur.
Þess skal gætt við burstun
jaxla að utan að munurinn sé
hálflokaður, þá slaknar á kinn-
um og auðvelt er að beita burst-
anum rétt; hætt er við að ekki
fáist svigrúm fyrir burstann ef
munnurinn er galopinn og varir
og kinnar þandar.
Tannbursti á að vera nægilega
lítíll til þess að auðvelt sé að
koma honum að öllum flötum
tanna að utan og innan. Burst-
unarflötur hans skal vera beinn
og hárin stinn. Bezt er að eiga
tvo bursta, nota þá til skiptis,
hreinsa þá og láta þorna vel milli
notkunar.
í góðu tannkremi er sápa, er
auðveldar hreinsun tanna. Enn-
fremur eru í því bragðbætandi
efni. Varast ber að legga of mik-
inn trúnað á ýktar tannkrems-
auglýsingar. Verði fundið upp
tannkrem með sannanlegum eig-
inleikum til varnar tannskemmd-
um, mun tannlæknirinn segja
sjúklingum sínum frá því. En eigi
má gleyma því að burstunin sjálf
er aðalatriði við hirðingu tanna,
en val tannkrems síður mikil-
vægt.
Gagnlegt er að hafa þessar
reglur í huga:
að bursta strax að máltíð lok-
inni, og umfram alit að sofa með
hreinar tennur,
að bursta hverja færu, sem
burstinn tekur yfir minnst tíu
sinnum,
að draga hár burstans eftir yfir
borði tannar í átt frá tannholdi
til bitflatar.
tanna
tndverski herinn tekur
við landamœravörzlu
NÝJU DELHl, 31. okt.
—• (Reuter) —
INDVERSKA hernum hefur
verið falin öll varzla kín-
versk-indversku landamær-
anna á Ladakh-svæðinu í
Kashmir, en þar varð um
daginn alvarlegasti árekstur-
inn, sem orðið hefur á landa-
mærunum til þessa.
Hafa nú indverskar hersveit-
ir, vel vopnum búnar, verið send
ar til þess að taka við vörzl-
unni á þessu svæði af landamæra
lögreglunni, að því er opinberar
heimildir hermdu hér í dag. Mun
varðstöðvum verða fjölgað á
hinu umdeilda svæði. — Ákvörð-
un um þetta hefir veríð tekin
með tilliti til hinna alvarlegu at-
burða, er gerðust á Ladakh-
svæðinu fyrir 10 dögum, en þá
felldu Kínverjar níu indverska
landamæraverði og tóku tíu til
fanga. Atburðurinn átti sér stað
60—70 km innan indversku landa
mæranna, að þvj er stjórnvöld
þar í landi segja. Kínverjar
halda því hins vegar fram, að
9—10 þús. ferkílómetra svæði í
Ladakh sé kínverskt landsvæði
— og hafa m. a. lagt þar veg.
Indverska stjórnin mun hafa
gengið frá svari til Pekingstjórn-
arinnar við mótmælum hennar
út af árekstrinum í Ladakh, og
er búizt við að orðsendingin
yerði send til Peking eftir helg-
ina. Mun þess krafizt, að Kínverj
ar dragi til baka lið sitt, sem nú
er í Ladakh-svæðinu.
Lóð undir Lista-
safn ríkisins
BÆJARYFIRVÖLDUNUM hefur
borizt lóðarumsókn frá mennta-
málaráðuneytinu. Barst þessi
umsókn bæjarráði á fundi þess á
föstudaginn. Sækir ráðuneytiS
um lóð fyrir væntanlegt lista-
safn ríkisins. Bæjarráð vísaði
erindi ráðuneytisins til samvinnu
I nefndarinnar um skipulagsmál.