Morgunblaðið - 03.11.1959, Síða 23
Þriðjudagur 3. nóv. 1959
MORGUVUtLAÐlÐ
23
„Svendborg“ í grænlenzkri höfn.
Hið týnda Crœn-
landsfar fannst
Haíði verið ,,týnt44 í heila viku
Leit.
Til öryggis fór útgerðarfélag-
ið þess á leit á laugardaginn við
slysavamafélagið í Danmörku, að
hafin yrði leit að skipinu. Slysa-
varnafélagið sendi boð um út-
varpið í Þórshöfn til allra skipa
og strandstöðva á Norður-Atlants
hafi um að hafa vakandi auga
með því, hvort sæist til ferða
skipsins. Jafnframt var þess farið
á leit við flugbjörgunarsveitir í
Skotlandi og íslandi, að leit yrði
gerð að skipinu. Frá Skotlandi
var tilkynnt að leit úr lofti yrði
hafin í dögun á sunnudagsmorg-
un, ef ekki hefði heyrzt til skips-
ins.
Fríverzlunarsamningur
sjö ríkja í desember
STOKKHÓLMI, 2. nóv. — NTB.
— Norska stjórnin getur ekki
tekið afstöðu til tillögunnar, sem
fram hefur komið um fiskveiði-
vandamálið, fyrr en hún hefur
rætt hana við utanríkismála-
r.efndina og fulltrúa framleið-
enda. Þetta er haft eftir góðum
heimildum í Stokkhólmi. Þetta
hefur það í för með sér, að ekki
kemur í ljós fyrr en á ráðherra-
fundinum um miðjan rióvember,
hvort náðst hefur samkomulag
milli Norðmanna og Breta lun
ákvæði varðandi þetta máL
Af hálfu Norðmanna hefur það
verið sagt, að umræðurnar um
fiskveiðivandamálið gangi vel,
en norsku fulltrúarnir á fundi
sérfræðinganna í Stokkhólmi
vilja alls ekki láta neitt frekara
uppi um gang málsins. Af þess-
um sökum er ekki hægt að fá
vitneskju um, hvort sá orðróm-
ur er réttur, að Bretar hafi í
stórum dráttum fallizt á að fisk-
flök og rækjur verði fríverzlun-
arvörur. Og ekki er heldur hægt
að fá úr því skorið, hvort rétt
sé að Bretar hafi krafizt þess,
að settur verði sá varnagli í
samninginn, að vandamálið
verði tekið til endurskoðunar, ef
Sænsk „mnrás“
í Noreg stöðvuð
Osló, 2. nóv. —
SÆNSK „innrás" í Noreg var
stöðvuð í dag. Um helgina höfðu
um 250 ungir menn frá Sviþjóð,
allir iiman við tvítugt, safnazt
saman í um 50 gömlum amerísk
um bílum við norsku landamær-
in, og var ætlunin að taka Osló
með „áhlaupi“ og finna kven-
fólk og bardagaseggi. En fyrir
ötult samstarf sænsku og norsku
íögreglunnar komust ekki nema
örfáir unglinganna á ’eiðarenda.
Þeir fengu hlýjar viðtökur —
hjá lögreglunni.
Dagbœkur Alanbrookes
vekja athygli og deilur
Kaupmannahöfn 2. nóv. Danska
vélskipið „Svendborg“, sem sakn
að var eftir að ekki hafði heyrzt
til þess í viku, fannst í fyrrinótt
fyrir sunnan Noreg. Skipið var
á leið frá Angmagssalik til Kaup-
mannahafnar, og hafði ekkert
heyrzt frá því í sjö sólarhringa
á laugardaginn. Á sunnudag var
ætlunin að hefja leit að skipinu
bæði frá Skotlandi og Keflavík,
en í dögun var leitinni aflýst,
þegar danska flutningaskipið
„Eowan" hafði náð útvarpssam-
bandi við „Svendborg", sem hafði
fimm manna áhöfn. Var skipið
þá statt fyrir sunnan Lindenes í
Suður-Noregi.
Bilun?
Álitið er að „Svendborg" hafi
legið í vari í nokkra daga í hinu
mikla óveðri og ekki getað sent
tilkynningu um stöðu sína vegna
bilunar í senditækjum.
,.Svendborg“ er tréskip, byggt
árið 1951, og hefur mjög einföld
senditæki, þannig að það nær að
eins sambandi við skip eða strand
stöðvar, sem eru í tiltölulega lít-
illi fjarlægð.
ic Skeytið.
Laugardaginn 24. október sendi
^Svendborg" skeyti um stöðu
sína 150 kílómetrum fyrir sunn-
an Keflavík, og daginn eftir hafði
Grænlandsfarið „Kaskelot“ síma
samband við skipið, sem þá var
komið suður fyrir Vestmanna-
eyjar.
„Svendborg" skýrði þá frá því,
að útvarpssenditækin væru í
ólagi, en að öðru leyti var allt
í lagi um borð.
STOKKHÓLMI, 2. nóv. NTB. —
Afstaða norsku stjórnarinnar í
viðræðunum um fríverzlunar-
svæði annars vegar og tolla-
bandalag Norðurlanda hins veg-
ar er ekki á nokkurn hátt óskýr,
sagði þingleiðtogi Hægri flokks-
ins norska, John Lyng, þegar alls
herjarumræðum Norðurlanda-
ráðsins lauk £ dag. Hann sagði að
stjórnarandstaðan í Noregi hefði
enga gagnrýni fram að færa á
hendur norsku stjórninni í þessu
málL
Annars kom fátt athyglisvert
fram í umræðunum í dag, segir
LONDON, 2. nóv. Reuter. — f
leiðara brezka blaðsins „Daily
Express", sem * er hægrisinnað,
segir Beaverbrook lávarður, sem
var ráðherra flugvélaframleiðsl-
unnar á stríðsárunum, um hinar
umdeildu dagbækur Alanbrookes
Loft féll niður
SfflDEGIS í gær féll niður loft
í húsi, sem er í byggingu við
Hvassaleyti, og með því þrír
menn og hjólbörur, sem þeir
voru að vinna með. Sluppu tveir
alveg ómeiddir og meiðsli Jóns
Erlendssonar, Seljaveg 3A, sem
fluttur var á Slysavarðstofuna,
reyndust mjög lítil. Má það telj
ast mesta mildi að þarr.a varð
ekki stórslys.
fréttaritari NTB. Þó má benda á,
að nú hafa Danir og Svíar tekið
við því hlutverki Norðmanna í
ráðinu að deila um stefnuna í
samvinnu Norðurlanda. Á sama
tíma og norsku fulltrúarnir virð-
ast allir vera á einu máli, halda
sænsku og dönsku fulltrúarnir
uppi deilum sínum um, hvort það
hafi verið skynsamlegt eða ekki
að leggja hugmyndina um tolla-
bandalag Norðurlanda á hilluna.
f dag hófu fimm fastanefndir
ráðsins störf sín, og á morgun er
búizt við, að nefndirnar skili áliti
um flest málin, sem lögð hafa ver
ið fyrir þær.
marskálks, sem eru nýútkomnar:
„Ég hafði enga hugmynd um að
þessi maður væri stríðshetja fyrr
en ég las útdrætti úr bók hans“.
Leiðarinn var nefndur „Hetjan'*
og birtist í stæstu útgáfu blaðs-
ins.
Alanbrooke marskálkur, sem
var formaður brezka herforingja
ráðsins í heimsstyjöldinni, segir
m.a. í dagbókum sínum, að Eis-
enhower núverandi Bandaríkja-
forseti hafi leikið golf í stað þess
að stjóma hernaðaraðgerðum í
Evrópu. um eitt skeið árið 1944.
. Útkoma dagbókanna hefur vak
ið athygli og valdið deilum báð-
um megin Atlantshafsins um
störf Eisenhowers á stríðsárun-
um.
— Sjónvarp
Framh. af bls. 1.
heyrslan fór fram. Salurinn var
yfirfullur af áheyrendum, bæði
blaðamönnum og öðrum forvitn-
um borgurum. Sér til afsökunar
sagði van Doren, að hann hefði
frá byrjun ætlað sér að taka bátt
í heiðarlegri samkeppni í spurn-
ingaþættinum, en stjórnandi þátt
arins, Fredman, hefði ekki verið
ánægður með frammistöðu hans
og boðið honum miklar fjárfúlg-
ur, ef hann féllist á að taka þátt
í spurningaþætti, sem væri fals-
aður. „Frá byrjun var þetta allt
saman saklaust, en smám saman
varð ég þjóðhetja og á endanum
var ég fastur í gildrunni og átti
enga leið til undankomu", sagði
van Doren. Hann kvaðst að lok-
um vilja gefa hvað sem væri, ef
hann fengi að lifa síðustu þrjú
ár á nýjan leik.
einhverjar verulegar breytingar
verði á fiskveiðum.
Umræðurnar um uppkastið að
fríverzlunarsamningi, sem sjö
ríki taka þátt í, halda áfram á
morgun, en síðan verður þeim
hætt. Sérfræðingarnir munu hins
Ræða heimsókii
Krúsjeffs
KAUPMANNAHÖFN, 2. nóv.
Einkaskeyti til Mbl. — „Kriste-
ligt Dagblad“ skýrir frá því í
dag, að sænska stjórnin hafi
fengið skýrslu þess efnis, að Krú-
sjeff forsætisráðherra Sovétríkj-
anna hafi mikinn hug á að heirn
sækja Norðurlönd.
Leiðtogi sænska Þjóðarflokks-
ins, Bertil Ohlin, sem var í Banda
ríkjunum þegar Krúsjeff kom í
heimsókn þangað, kvaðst vera
þeirrar skoðunar eftir Banda-
ríkjaförina, að Krúsjeff ætti ekki
að koma til Norðurlanda. „Ég
var á móti heimsókn Krúsjeffs,
áður en ég var viðstaddur heim-
sókn hans til Bandaríkjanna",
sagði Ohlin“, og ég er ekki síður
mótfallinn henni eftir að ég varð
vitni að Bandaríkjaheimsókn
hans".
Tage Erlander forsætisráð-
herra Svia sagði í kvöld, að ekki
væri fótur fyrir fregnum þess efn
is, að sænksu stjórninni hefði bor
izt skýrsla um áhuga Krúsjeffs á
heimsókn til Norðurlanda. Hann
sagði, að fréttin væri úr lausu
lofti gripin, og því væri ekki
hægt að ræða hana, enda hefði
aldrei komið til orða að ræða
málið í Norðurlandaráðinu.
vegar hittast aftur, áður en ráð»
herrafundurinn hefst, til að
ganga úr skugga um, hvort þeir
geti leyst fleiri af þeim vanda-
málum, sem enn eru óleyst. Gert
er ráð fyrir, að samningurinn
verði undirritaður um miðjan
desember.
— Knattspyrnan
Framh. af bls. 22.
(Tottenham); Bobby Evans (Cel
tic); Bert McCann (Motherwell);
Graham Leggatt (Fulham); John
White (Tottenham); Ian St. John
(Motherwell); Dennis Law (Hud
dersfield); Bertie Auld ( Celtic).
Markhæstu leikmenn í 1. deild,
fyrir þessa helgi, voru þessir:
Violett (Manch. U.) 14 mörk,
Smith (Tottenh.) 13 mörk.
Deeley (Wolverh.) 12 mörk.
Greaves (Chelsea) 12 mörk.
McAdams (Manch. C.) 12 mörk.
Murray (Wolverh.) 11 mörk.
Dobing (Blackburn) 10 mörk.
í 2. deild voru þessir leikmenn
markahæstir;
Clough (Middlesborough) 11 m.
Johnston (Leyton O.) 12 mörk.
Carter (Plymouth) 10 mörk.
Curry (Brighton) 10 mörk.
McParland (Aston Villa) 10 m.
Phillips (Iqswich) 10 mörk.
Að 15 umferðum loknum er
staðan þessi:
1. deild (efstu og neSstu liðin)
Tottenham 15 8 6 1 36:17 82
Wolverhampton 15 9 Z 4 45:29 20
West Ham. 15 7 5 3 27:19 19
Blackburn 15 8 3 4 28:21 19
Preston 15 8 3 4 33:27 19
Fulham 15 9 1 5 33:35 19
Leeds 15 3 5 7 21:33 11
Leicester 15 3 5 7 24:40 11
Birmingham 15 3 4 8 20:28 10
Luton 15 2 4 9 12:28 8
2. deild (efstu og neðstu liðin)
Aston Villa 16 10 5 1 28:13 25
Cardiff 15 9 5 1 31:19 23
Botherham 15 7 6 1 30:21 20
Bristol City 14 4 1 9 20:30 9
Portsmouth 15 2 4 9 17:31 9
Hull 15 2 3 10 12:39 7
Innilegar þakkir til allra nær og fjær, sem glöddu mig
á fimmtugsafmæli mínu, 24. október sJ. með heim-
sóknum, góðum gjöfum, blómum og skeytum og gerðu
mér daginn ógleymanlegan. Lifið heil.
Tryggvi Tryggvason, Hjarðarhaga 24.
Fósturmóðir mín,
GUÐFTNNA JÓNSDÓTTIR
lézt að heimili sínu, Frakkastíg 20, laugardaginn 3L
október.
Sigríður Maguúsdóttir
Útför móður minnar,
FRÚ SIGRÚNAR 1. BJARNASON
sem andaðist í sjúkrahúsi í Danmörku 11. október,
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. nóvember
og hefst kl. 14.
í stað blóma, skal vinsamlegast bent á barnaspítala-
sjóð Hringsins.
Fyrir hönd aðstandenda
Karítas Andersen.
Hjartans þakkir til allra nær og fjær sem sýndu okkur
vináttu og samúð við andlát og jarðarför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
EYJÓLFS STEFANSSONAR
frá Dröngum
Salbjörg Eyjólfsdóttir og ættingjar
Hjartanlega þökkum við öllum er sýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengda-
móður og ömmu
PÁLÍNAR ÞÓRUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Hafnarfirði.
Jóliannes Jóelsson,
IEIín Jóelsdóttir, Ingimar Jónsson,
Guðríður Rósantsdóttir, Guðjón Vilhjálmsson,
Margrét Einarsdóttir, Ólafur Björnsson,
og barnabörn.
Norðmenn einhuga
í Norðurlandaráðinu