Morgunblaðið - 18.11.1959, Blaðsíða 18
18
MORCVNBLAÐIB
Miðvikudagur 18. nov. 1959
Enke vann yfirburðasigur en
sigur Ágústu var kærkomnastur
M i ko / a n
œvi hans og störf
Gott sundmót Ármanns í gærkvoldi
í* A Ð var jafnari, hörkumeiri og skemmtilegri keppni í
Sundhöllinni heldur en þar hefur verið um langt skeið.
Austurþýzka sundfólkið setti sinn svip á mótið, en „eignað-
ist“ það ekki alveg. Það sáu fyrst og fremst Ágústa Þor-
steinsdóttir og Pétur Kristjánsson um, svo og Guðmundur
Gíslason, Hrafnhildur, Hafnarfjarðarstúlkurnar og piltarnir
frá Akureyri.
spenningur.
Það var líf í þessari keppni, harka og
Mestan yfirburðasigur vann
Evrópumethafinn í 200 m bringu-
sundi, Konrud Enke. Sund hans
skar sig mjög frá sundaðferðum
okkar beztu manna. í sundi hans
er hver hreyfing hnitmiðuð að
því marki að valda sem minnstri
mótspyrnu og auk þess er met-
hafinn mjög sterkbyggður og
kraftmikill. Hann synti á 2:41,3
mín. —
En keppnislaust var 200 m.
bringusundið ekki. Aldrei hef-
ur 200 m kappsund verið svo
hnífjafnt og nú milli þriggja
Islendinga. Sigurður Sigurðs-
son frá Akranesi „marði“ ann-
að sætið á 2:50.0. Einar Krist-
jánsson dró mjög á Sigurð og
náði 2:50,1. Og í barningnum
milli þeirra tveggja tóku fáir
eftir Herði Finnssyni, Kefla-
vík, sem skauzt eins og kólfur
eftir vatnsfletinum og náði
2:50.2 mín.
Ágústa sigrar
1 bringusundi karla var tvi-
sýnan mest og yfirburðirnir
mestir en flestum verður minn-
isstæðast glæsilegur sigur Ágústu
Þorsteinsdóttur í 200 m skrið-
sundi kvenna. Næstum jafnar
fylgdust þær að Ágústa og Giesela
Deildaskipting
iá Val
hj
INNAN knattspyrnufélagsins
Vals hefir verið unnið að skipu-
lagsbreytingu á störfum félags-
ins. Samþykkt hefir verið að
taka upp deildaskiptingu og
kemur hún til framkvæmda nú
þegar.
Aðalfundir deildanna, sem
verða þrjár til að byrja með,
þ. e. handknattleiksdeild, knatt-
spyrnudeild og skíðadeild, fara
fram næstu kvöld í félagsheim-
ilinu, og verður fyrsti fundur-
inn í kvöld, miðvikudag, í hand-
knattleiksdeildinni. En annað
kvöld, fimmtudag, kemur knatt-
spyrnudeildin saman og loks á
föstudagskvöldið, skíðadeildin. Á
fundum þessum verður hinum
nýju deildum kosin stjórn og þær
skipulagðar og ýms mál er þær
varða sérstaklega, rædd. Fund-
irnir verða eins og fyrr segir í
félagsheimilinu að Hlíðarenda og
hefjast öll kvöldin kl. 8,30.
F r jálsíþróttanám-
skeið fyrir pilta
GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN
gengst fyrir námskeiði í frjálsum
íþróttum fyrir pilta 13—16 ára
og aðra byrjendur. Námskeiðið
hefst miðvikudagskvöldið 18.
nóv. kl. 7 e.h. og verður fram-
vegis á miðvikudögum og
föstudögum kl. 7—8 í Langholts-
skólanum. Áherzla verður lögð
á þjálfun undirstöðuatriða allra
greina frjálsra iþrótta og verður
þjálfari félagsins Þorkell St.
Ellertsson.
Weiss fyrstu 75 metrana. En
svo tók Ágústa forystuna og jók
hana á 4., 5. og 6. leið. Síðustu
50 metrana tók svo Weiss aftur
að vinna á, en kraftar Ágústu
reynduat ásamt forskotinu nægir
til sigurs og glæsilegs mets. —
Þetta var gott og skemmtilegt
sund og mikið hrópað í Sund-
höllinni.
Á Guðmundur og Wiegand.
100 m skriðsund karla var og
góð keppni. Guðmundur Gísla-
son hafði forystuna fyrstu 60—
70 metrana en á síðustu leiðinni
tryggði Wiegand sér sigur, á að
eins skemmri tíma en met Guð-
mundar er, en Guðmundur náði
nú sínum bezta tíma.
Þeir fylgdust síðan lengi að
Guðmundur og Viegand. Viegand
bættist í baksundskeppnina
ásamt þeim Guðmundi og Ditze.
Ditze sigraði eftir harða keppni
við Wiegand, en Guðmundur í
þriðja sæti frá upphafi til loka.
1 flugsundinu kom svo Wiegand
enn inn í keppnina (óskráður)
og vann Guðmund enn. En Pétur
Kristjánsson hressti upp á mótið
með öruggum íslenzkum sigri. —
Ditze varð fjórði
hr Aðrar greinar.
100 m bringsundskeppni
kvenna var afar tvísýn. Sigrún
Sigurðardóttir frá Hafnarfirði
tók þar forystu og hélt henni nær
allt sundið, en íslandsmethafinn
Hrafnhildur Guðmundsdóttir tók
drjúgan endasprett og sigraði
á sjónarmun en ekki tímanum
á undan ’Sigrúnu.
Boðsundið sigraði ÍR-sveitin
með nokkrum yfirburðum og hjo
nálægt eigin meti.
Unglingasundin vöktu mikla
athygli einkum vegna hins mjög
góða árangurs Akureyringanna.
Þar komu fram efni sem áreið-
anlega eiga eftir að láta að sér
kveða. Má þar einkum nefna
Björn Þórisson, frábærlega efni-
legan skriðsundsmann, sem nú
sigraði með yfirburðum á 27,8
sekúndum — aðeins sekúndu frá
hinu undraverða meti Guðm.
Gíslasonar.
100 m skriðsund karla
Frank Wiegand Aí> ......... 58.1 sek.
Guðmundur Gíslason IR ..... 58,5 sek.
Erlingur Georgsson SH .....1.06.3 sek.
100 m bringusund drengja
Júlíus Björnsson Akureyri ... 1.23,8
Sæmundur Sigurðsson IR ...... 1.27,2
Sig. Ingólfsson A .......... 1.27,3
100 m bringusund kvenna
Hrafnhildur Guðmundsdóttir IR 1.28,3
Sigrún Sigurðardóttir SH .... 1.28,3
Helga Haraldsdóttir Akureyri .... 1.33,5
200 m skriðsund kvenna
Agústa Þorsteinsdóttir (met) .... 2.28.6
Giesela Weiss AÞ ............ 2.29.0
100 m baksund karla
Ditze Austur-Þýzkal.......... 1.07.0
Wiegand Austur-Þýzkal........ 1.07.4
Guðmundur Gíslason ....'..... 1.11.2
50 m skriðsund drengja
Björn Þórisson Akureyri ....... 27,8
Sigmar Björnsson KR ........... 29,2
Þorsteinn Ingólfsson IR ....... 29,3
50 m skriðsund telpna
Hrafnhildur Guðmundsdóttir IR 33,2
Erla Hólmsteinsdóttir Akureyri .... 34,4
Hrafnhildur Sigurbjörnsd. H..... 36,1
50 m flugsund karla
Pétur Kristjánsson ........... 30,4
Wiegand Austur-Þýzkal.......... 31,0
Guðmundur Gíslason ............ 31,1
Ditze Austur-Þýzkal............ 31,4
4x50 m skriðsund
Sveit I.R.................... 1.50,2
Sveit Armanns ............... 1.54,6
Sveit KR .................... 1.58,7
Sveit Hafnarfjarðar ......... 2.00,7
Sveit Akureyrar ............. 2.02,3
uPP- Mikojan er sonur tré
vaxtar- smiðs og segir, „að
árin hann sé kominn af
armeniskum kaup-
mönnum í marga ættliði“. —
Samkvæmt hinni fegruðu,
opinberu ævisögu hans, hef
ur hann stundað nám á
armenisku nám
skeiði í Tiflis
(þar sem Stalín
lærði til prests
á rússneskum Ortho-
dox-skóla). — Hann
sýndi dirfsku
forystumaður ungra
rauðliða í kommún-
istauppreisninni 1917,
særðist í götubar-
daga, k o m s t með
naumindum u n d a n
lífláti, er hann var
handtekinn af and-
kommúnískum lið-
sveitum. Mikojan reyndist
síðan sérfræðingur í að
komast hjá lífláti, en það
var mjög nauðsynlegt fyr-
ir mann, sem hugðist halda
lífi og háu embætti í aldar-
fjórðung undir hinum sjúk-
legu grunsemdum Stalíns.
Opin- Þar sem Mikojan hafði
ber erft hina armenisku
störf verzlunargáfu, gerði
Stalín hann að yfir-
manni verzlunarmála árið
1930. Hann var ekki aðeins
settur yfir utanríkisverzlun
Sovétríkjanna, heldur einnig
vörudreifingu innanlands. Eft-
ir síðari heimsstyrjöldina
lagði hann grundvöllinn að
efnahagskerfi Sovétríkjanna
með sérstöku tilliti til þess að
rýja hernumdu löndin í Aust-
ur-Evrópu. Er barizt var um
völdin eftir dauða Stalíns, tók
Mikojan sér stöðu við hlið
Nikita Krúsjeffs, er aðrir
gamlir baráttumenn úr flokki
Stalíns gengu til móts við
hann. Er Krúsjeff sigraði varð
þessi slungni Armeníumaður
næstæðsti maður.
Hugðar- Mikojan er snjall
efni og ræðumaður (en tal-
fjöl- ar litla ensku), hef-
skylda ur gaman af að
dansa, matreiða arm
Virðulegar mörgæsir í
I baksýn sézt skipið
„kjól og hvítt“ tóku á móti Ieiðangursmönnum
„Endurance“ sem flutti Fuchs til þess staðar er
að suðurpólnum.
í Suðurskautslandinu.
hann lagði frá í átt
eniska rétti og fara í útreiða-|
túra. Hann er elskulegri, eða^
á minnsta kosti auðveldaraf
með að koma sér í mjúkinnj
hjá fólki — en flestir forystu-J
menn Sovétríkjanna. Þar sem|
hann hefur haft yfirstjórn ut-
anríkisverzlunarinnar á hönd- í
um í þrjá áratugi og oftsinmsj
ferðast erlendis, veit hannl
meira um Vesturlönd en flest-|
ir félagar hans. Gagnstætt öðr-1
um gerir hann sér allgóða hug l
mynd um Bandaríkin, hefur (
gamall sendiherra á Vestur-
löndum sagt um Mikojan. Mi-j
kojan á fjögur börn og fjölda ]
mörg barnabörn. Bróðir hans, I
Artem, hefur teiknað eina af ]
fremstu flugvélum ráðstjórn- j
arríkjanna (MI í MIG stend-1
ur fyrir Mikojan).
Danskur liand-
knattleiksmafíu7
lætur lífið
eftir leik
„Hjarn og heiðmyrkur44
för Fuchs og Hillarys á
landinu komin út
KOMIN er í bókabúðir stórfalleg
og merkileg bók. Er það bókin
„Hjarn og heiðmyrkur" — og er
eftir tvo af frægustu landkönn-
uðum nútímans Sir Vivian Fuchs
og Sir Edmund Hillary. Bókin
greinir frá för þeirra þvert
yfir íshettu Suðurskautsins —
stærsta ókannaða svæði á jörð-
inni.
Bókin er gefin út af Skuggsjá
og er ákaflega vel til hennar
vandað. Allar myndir bókarinnar
eru teknar af leiðangursmönnum
sjálfum og voru prentaðar í Nor-
egi, svo og kápublað sem einnig
er sérstætt að gerð og vand-
virkni.
Hjarn og heiðmyrkur lýsir
þriggja ára sögu heimskautaleið-
angursins brezka 1955 og er í ísl.
útgáfunni þýdd eftir handriti
— sagan um
suSurskauts-
brezku frumútgáfunnar. Guð-
mundur Arnlaugsson annaðist
þýðinguna.
í formála bókarinnar segir Sir
Vivian Fuchs að hún sé að mestu
leyti byggð á skýrslum leiðang-
ursmanna dag frá degi og því eigi
þeir allir hlut að bókinni. Bókina
tileinka höfundar Elisabetu
drottningu. Bókin er 270 síður en
auk þess eru fjölmargar mynda-
síður með afburðamyndum úr
þessari svaðilför — einni mestu
ævintýraför nútímans.
KAUPMANNAHÖFN. - A :u, nu-
daginn fannst hinn þekkti i.aud-
knattleiksm. Helmuth Löppke,
meðvitundarlaus í búningsher-
bergi í Otto Monsted-Hallen hér
í borg. Var hann þegar fluttur
til sjúkrahúss, en lézt á leiðinni,
og varð banamein hans hjarta-
slag.
Er talið að Löppke hafi ofreynt
sig í kappleik, sem háður var í
íþróttahöllinni skömmu áður en
hann hélt til búningsherbergisins.
Átti hann nokkru síðar að taka
þátt í öðrum leik, en óskaði eft-
ir að hvíla sig nokkuð áður en
hann kæmi inn á leiksvæðið. En í
hálfleik gerði hann vart við sig og
• bað enn um að fá frest til að
taka þátt í leiknum. Lét Löppke
svo ekki sjá sig meir, en þegar
félagar hans komu inn í búnings-
herbergið að leik loknum, var
hann meðvitundarlaus, eins og
fyrr segir.
Helmuth Löppke, sem var 36
ára, var einn f»emsti handknatt-
leiksmaður Dana og lék þrisvar
í landsliðinu.