Morgunblaðið - 27.11.1959, Page 3

Morgunblaðið - 27.11.1959, Page 3
Fðstudagur 27. n'ðv 1959 MORClllSTU.AÐlÐ 3 Miðbæjar- skólanum BARNAUPPELDI og barna- fræðsla eru þýðingarmikill þáttur í skyldum hvers þjóð- félags, enda varðar miklu að sú kynslóð, sem á að erfa land ið sé vel búin undir þær marg víslegu skyldur, er _ henni verða lagðar á herðar. f þessu sambandi hefur oft og mikið verið rætt um hlutverk heim- ilanna og skólanna í uppeldis- málunum og hver nauðsyn sé á góðu samstarfi þar í millum. Miðbæjarskólinn í Reykja- vík hefur hafizt handa um at- hyglisverða nýjung á þessu sviði. Hefur kennsla í skólan- um verið felld niður í einn dag á ári, en foreldrar eða aðr- ir forráðamenn barnaiina boð- ið í skólann þann dag til að ræða við kennara barna sinna, er hafa verið til viðtals hver í sinni kennslustofu og haft þar við hendina skólavinnu nemenda og skrá yfir skóla- sókn o. fl. Þessi nýbreytni hefur verið gerð einu sinni á ári og var gerð í þriðja skipti í gær. — — Tíðindamaður Mbl. og ljós- myndari brugðu sér upp í Mið- bæjarskóla um 3-leytið í gær- dag til að kynnast af eigin raun þessum þætti uppeldis- málanna. I>að leyndi sér ekki að for- eldrar höfðu tekið vel undir þá ósk að mæta í skólanum, því nokkur þröng var á skóla- göngunum og að sjálfsögðu voru mæður þar í miklum meirihluta, enda ekki ólíklegt á þessum tíma dags. Við hitt- um skólastjórann, Pálma Jó- Svavar Guðmundsson, kennari í níu ára bekk, ræðir hér við mæður nokkurra nemenda sinna: Eg reyni að kenna þeim að teikna í þremur víddum, sagði Svavar um leið og við gengum út úr kennslustofunni eftir að myndin var tekin. sefsson, að máli og spurðum hann nánar um þessa tilhögun og hvernig hún hefði gefizt. Kvað hann þetta hafa gefizt vel og í fyrra og hitteð fyrra hefðu mætt til viðtals foreldr- ar 70—80% nemendanna. — Pálmi sagði okkur að foreldr- unum væri sent bréf og þau beðin að mæta á ákveðnum tíma, hvert foreldri til viðtals við kennara síns barns, talaði sami kennari að jafnaði við fimm foreldra á hálftíma, venjulegast aðeins við einn aðila í einu. Ef foreldrarnir hefðu eitthvað út á kensluna að setja, bæru þeir fram sínar kvartanir og hið sama gerðu kennaramir, ef þeim fyndist eitthvað athugavert við nem- andann. Ef allt væri hins vegar í lagi, fengju foreldr- arnir þarna beztu fréttir sem þeir gaetu fengið. Skólastjórinn sýndi okkur (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) nú inn í nokkrar kennslustof- ur, þar sem kennarar voru að ræða við foreldra ýmist undir fjögur augu eða við fleiri í hóp. Umræður féllu því mið- ur oftast niður, er fréttamenn- irnir komu inn, en þó heyrðum við eitt sinn sagt: — Sjáðu til, þetta gerðu flestir í bekknum rétt. Hann les ekki nógu vel. f>að er ekk- ert annað að stróknum. Pálmi Jósefsson, skólast; Miðbæjarskólan1. Fjárlög ekki af- greidd fyrir áramót Frv. um bráðabirgðafjárgreiðslu ur rikissiooi Al- um úr í GÆR var lagt fram á þingi frumvarp til laga | bráðabirgðafjárgreiðslur ríkissjóði á árinu 1960. Frum- varpið er á þessa leið: „Til febrúarloka 1960 er rikis- stjórninni heimilt að greiða úr ríkissjóði til bráðabirgða í sam- ræmi við ákvæði fjárlaga 1959 öll venjuleg rekstrargjöld ríkis- ins og önnur gjöld, er talizt geta til venjulegra fastra greáðsilna þess, þótt ákveðin séu og heim- iluð til eins árs í senn. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1960“. í tHefni dagsins héngu myndir eftir 10, 11 og 12 ára börn á öllum göngum skólans. Ljósmyndar- -ok mynd af þessu málverki eftir einn 12 ára dreng. í athugasemdum við frumvarp- ið segir á þessa leið: „Augljóst er að eigi verður hægt að afgreiða fjárlög fyrir ár- ið 1960 fyrir næstu áramót, er því nauðsynlegt að veita ríkis- stjórninni heimild þá, sém felst í frv. þessu“. Frumvarpið var tekið á dag- skrá í Ed. í gær og gerði fjármála ráðherra Gunnar Thoroddsen grein fyrir því. f upphafi máls síns vitnaði hann í yfirlýsingu forsætisráðherra, er hann gaf við upphaf stjórnarsamstarfsins þar sem segir á þessa leið: „Að undanförnu hafa sérfræð- ingar unnið að ítarlegri rann- sókn á efnahagsmálum þjóðar- innar. Skjótlega eftir að þeirri rarmsókn er lokið, mun ríkis- stjórnin leggja fyrir Alþingi til- lögur um lögfestingu þeirra úr- ræða, er hún telur þörf á“. Kvað fjármálaráðherra ljóst, að þessar athuganir tækju nokk- urn tima, en fjárlög væru þeim svo nátengd, að þar yrði ekki á milli skilið. Hefði því verið á- kveðið að fara sömu leið og svo oft áður, er ekki hefði verið hægt að afgreiða fjárlög fyrir áramót. Er fjármálaráðherra hafði lok- ið máli sínu, var frav. vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar með samhljóða atkvæðum. Tveir togoror seldu í gær Togarinn Egill Skallagrímsson seldi í Cuxhaven í gærmorgun 139 lestir fyrir 112,600 mörk. Togarinn Jón Þorláksson seldi einnig í gærmorgun í Bremer- haven 127,8 lestir fyrir 92,500 mörk. STAKSTEII\1AR Ræða Jóhanns Hafsteins á NATO-fundinum Jóhann Hafstein alþingismað- ur, formaður íslenzku sendi- nefndarinnar á þingmannafundi NATO í Washington, hélt vel og skörulega á hinum íslenzka mál- stað í landhelgismálinu í ræðu sinni á fundinum. — Um þá ákvörðun íslendinga að sækja ekki Atlantshafsráðstefnuna á 10 ára afmæli NATO í London sL sumar, komst Jóhann Hafstein að orði á þessa leið: „Islandi fannst ekki viðeigandi að sækja þessa ráðstefnu í sum- ar, sem haldin var í London, höfuðborg Bretaveldis, meðan brezk herokip miðuðu bystum sínum á hin litlu íslenzku varff- skip í íslenzkri landhelgi, sem er að sjálfsögðu andstætt sátt- mála Atlantshafsbandalagsins og góðri sambúff bjóða í milli“. Allir íslendingar taka vissu- lega undir þessi ummæli Jóhanus Hafsteins. Kommarnir hugga sig Kommúnistum finnst nú frem- ur illa komið fyrir sér og Jna ráði sínu illa. Reynir kommún- istablaðið í gær að hugga sig og flokk sinn með því, að Fram- sóknarflokkurinn hafi hvað eftir annað boðið kommúnistum stjórn arsamvinnu í nýrri stjórn. Er það auðvitað rétt og alþjóð kunn ugt, að Framsóknarmenn hafa hvað eftir annað lýst þvi yfir, að þeir teldu vinstri stjórn sína og kommúnista beztu stjórn, sem þjóðin gæti fengið, þrátt fyrir þá reynslu, sem fslendingar öðluff- ust af slíkri stjórn á árunum 1956—1958. En heldur slær út í fyrir komm unum í Þjóðviljanum í gær, þeg- ar þeir halda því fram, að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi boðið flokki þeirra samvinnu um ríkis- stjórn í desember 1958. Um þetta kemst Þjóðviljinn að orði á þessa ieið: „Sjálfstæðisflokkurinn bauð Alþýðubandalaginu samstjórn í desember 1958 upp á þá kosti, að framkvæmd yrði 6% launa- lækkun og kjördæmabreytingin yrði lögfest. Alþýubandalagiff hafnaði því boði, vegna þess að það taldi og telur að kjaraskerð- ing hjá verkafólki sé ranglát og algerlega þarflaus ráðstöfun“. Það er auðvitað óþarfi að taka það fram, að kommúnistablaðið fer hér með algert fleipur. Sjálf- stæðismenn buðu kommúnistum ekki upp á neina samvinnu um ríkistjórn í desember 1958, eftir að vinstri stjórnin rofnaffi. Hins vegar er það á allra vitorði, aff kommúnistar voru sjálfir mjög áhugasamir um að slík samvinna tækist. Böðlar Ungverjalands Oft hafa kommúnistar um heim allan orðið að viðundri fyrir aff verja hvers konar hryðjuverk og ofbeldisaðgerðir Sovétstjórn- arinnar rússnesku. En sjaldan eða aldrei hafa þeir lagzt eins lágt, eins og þegar þeir tóku upp vörn fyrir rússneska blóðbaðið í Ungverjalandi fyrir þremur ár- um. Ungverskt fólk hafði risið upp gegn hinum rússnesku kúg- urum sínum, sem rænt höfðu þaff frelsi og sjálfstæði. í örfáa daga leit út fyrir, að hin frelsisunnrndi ungverska þjóð hefði unnið sigur á böðlum sinum. En þá sendu Rússar óvígan her, búinn hvers konar nýtízku morðtækjum inn í Ungverjaland tii þess að vinna bug á uppreisninni. Þessu ódæðisverki Rússa hafa kommúnistar um all..n heim, einnig hér á íslandi, sungið lof. Það ætti að vera íslenzku þjóð- inni greinileg visbending um hiff sanna eðli hins dulbúna komm- únistaflokks hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.