Morgunblaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 23
Fðstudagur 27. nóv. 1959
MORGIJNBLAÐIÐ
23
Ætlaði i bankann
ti[ að fá víxiUÉn
en var taugaslappur vegna drykkju
Rannsóknarlögreglan hafði
fljótlega uppi á manni þeim
er ruddist inn í Landsbank-
ann á dögunum. En er hún
fékk málið í hendur, reynd-
ist enginn vita hver maður-
inn væri, né heldur gátu
neinir gefið nokkra tæmandi
Iýsingu á honum. En eftir
þeim sundurlausu upplýsing-
um, sem fyrir lágu, tókst
rannsóknarlögreglumönnum
brátt að hafa uppi á mannin-
um. Var hann síðan tekinn til
yfirheyrslu.
if Taugarnar biluðu
Hann hafði verið drukkinn
upp á hvern dag í eina viku, og
var orðinn ruglaður og slappur
mjög á taugum. Hann gaf þá
skýringu á ruddalegri fram-
komu sinni, að hún aetti rót sína
að rekja til ölæðis, og þess að
hann hefði fengið þá flugu í höf-
uðið, að hann skyldi fara niður
í Landsbanka og slá út víxil, í
stað þess að ganga um og slá
menn um peninga. Hann kvaðst
hafa tekið hnífinn, sem var búr-
hnífur, í húsi einu skömmu áður.
Hann neitaði því eindregið að
hann hefði ætlað að nota hnífinn
við víxilsláttinn í bankanum.
Kvaðst hann mjög harma fram-
komu sína í þessu hörmulega
ástandi. Manninum var sleppt í
gær, er hann virtist vera á bata-
vegi, eftir hina langvinnu
drykkju og óreglu.
Gleriðjan hefur opnað nýja sölubúð að Skólavörðustíg 22A.
Þar verða á boðstólum framleiðsluvörur fyrirtækisins, speglar
af hinum margvíslegustu gerðum og stærðum og auk þess
snyrtivörur og hreinlætisvörur. Eigendur og forstöðumenn
Gleriðjunnar eru Karl Ámason og Hendrik Bernburg. —
Myndin er úr hinni nýju sölubúð við Skólavörðustíg.
Friðun miöa — Framtið lands
Salan nam 500þús.
Á FUNDI með blaðamönnum í
gær skýrði Lúðvig Guðmunds-
son ,skólastjóri, frá því að ágóði
af sölu merkisins Friðun miða —
Framtíð lands næmi rösklega
hálfri milljón króna, en hann var,
eins og kunnugt er, aðalhvata-
maður þess að samtökin voru
stofnuð og jafnframt formaður
framkvæmdanefndar samtak-
anna.
Það var í lok september-mán-
aðar sl. að 22 menn komu sam-
an og mynduðu samtökin, þar af
4 menn frá stjórnmálaflokkun-
um og 2 af forystumönnum Slysa
varnafélags íslands.
Á stofnfundinum urðu þessir
menn á eitt sáttir um að efna til
sölu á merki kosningadagana
25. og 26. október, er skyldi vera
tákn einingar íslenzku þjóðarinn
ar í Landhelgismálinu, og skyldi
allur ágóði af sölu merkisins
renna til Landhelgisgæzlunnar,
til kaupa á þyrilvængju, er stað-
sett yrði á hinu nýja varðskipi
Óðni, sem Landhelgisgæzlan á í
smíðum, ef forráðamönnum henn
ar sýndist fénu bezt til þess var-
ið.
Sala merkjanna fór svo fram
kosningadagana eins og ráð
hafði verið fyrir gert — í hverj-
um hreppi, kauptúni, kaupstað
á landinu og í Reykjavík — með
þeim árangri, sem skýrt hefur
verið frá. Áhugi var víðast hvar
mikill og má geta þess að í sveit-
um landsins varð sala merkjanna
100%. í Reykjavík nam salan um
150 þús. kr., og er það minna en
menn gátu gert ráð fyrir, en sala
annarra merkja fór fram sam-
tímis í bænum, mun það hafa
dregið nokkuð úr sölu landhelg-
ismerkisins.
Kostnaður af sölu merkjanna,
svo sem burðargjald, símgjald,
sölulaun og prentun, nam tæpum
100 þús. kr., sem dregst frá þeirri
upphæð, sem afhent verður við-
komandi ráðuneyti ,er fullnaðar-
uppgjör hafa farið fram, en skil
vantar enn frá nokkrum stöðum
af landinu.
Lúðvig Guðmundsson er nú á
förum tii útlanda, en í fjarveru
hans verður Einar Magnússon,
formaður framkvæmdanefndar
samtakanna. Auk þeirra voru
viðstaddir fundinn gjaldkeri sam
takanna, Kristján H. Benedikts-
son, formaður Menntamálaráðs,
Hallberg Hallmundsson, ritari og
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land
helgisgæzlunnar. Tilboð um kaup
á þyrilvængju hafa þegar borizt
frá Bandaríkjunum, Frakklandi,
Þýzkalandi og Póllandi. Hefur
söfnunin vakið athygli víða er-
lendis.
vi7/ sín fundarlaun,
þótt hún drepi ekki allt
Hóllsfjallabœndur misstu um 100
fjár í hríðinni
HÓLSFJÖLLUM, 26. nóv. Senn
fer að líða að því, að bændur
hér á Hólsfjöllum hætti að leba
fjár þess, sem fennti í stórhríð-
inni 8. og 9. nóv. Leitað hefur
verið hvern dag, sem fært hefur
verið, en vond veður hafa haml-
að leit nokkra daga. í fyrradag
fundust 6 kindur í fönn og voru
3 af þeim lifandi. í gær og dag
fannst ekkert. Það, sem einkum
hefur gert mönnum erfitt fyrir
að finna féð, er hve dreift það
50-60 jbús. frímerki
seljast á fyrsta degi
í FYRRADAG voru gefin út fjög-
ur ný frímerki. tvö með mynd
af laxi og tvö með mynd af æð-
arkollu. Á fyrsta degi munu
venjulega seljást 50—60 þús. frí-
merki af hverri tegund, að því er
Pétur Eggerz Stefánsson, full-
trúi á Póstmálaskrifstofunni tjáði
blaðinu í gær. Munu því hafa
komið inn í fyrradag ca. 400—
500 þús. krónur fyrir hin nýju
frímerki, en verðgildi þeirra er
lágt eða 25 aurar, 90 aurar, 2 kr.
og 5 kr.
í allt hafa komið út 8 frímerki
á þessu ári. Auk fyrrnefndra
merkja komu tvö Jóns Þorkells-
sonar frímerki, að verðgildi 2 og
Tófu og hundur
í eltingnleik
HÚSAVÍK, 26 nóv. — Undan-
farið hafa menn orðið varir
við nokkrar tófuslóðir í Húsa
víkurfjalli, en ekki er vitað
til að um dýrbít sé að ræða.
Fyrir nokkrum dögum flækt
ist tófuhvolpur niður í Húsa-
vikurbæ. Sáu menn hvar hann
hljóp hringinn í kringum
bragga og hundur á eftir hon-
um. Voru þá báðir orðnir all-
dasaðir að sjá. Hugðust menn
því reka hann í Búðará, þar
eð hann mundi tæplega hafa
sig yfir svona uppgefinn. En
það fór á annan veg. Tófu-
hvolpurinn synti yfir, hélt
upp göturnar yfir svokallað
Rauðatorg og síðan upp til
heiða. — Fréttaritari.
3 krónur og tvö flugmerki að
verðgildi kr. 3.50 og 4,05.
Pétur Eggerz Stefánsson kvað
venjulega gefin út 6—8 frímerki
á ári og þætti þeim sem með þessi
mál fara það vera hæfileg tala.
Ef miklar burðagjaldsbreytingar
yrðu, mundi nauðsynlegt að gefa
út miklu fleiri ný merki, en þær
hafa engar orðið á þessu ári,
Stundum hafa orðið frávik frá
þessari tölu, 6—8 frímerkjum á
ári. T. d. munu aðeins hafa kom-
ið út tvö merki árið 1955 og ár-
ið 1956 komu 10 ný frímerki út.
var fyrir hríðina og hve víðá
það hrakti í hríðinni. Svæðið,
sem leitað hefur verið á, mun
vera um 4—500 ferkílmetrar og
augljóst að erfitt er fyrir 10—
12 menn að leita allt það svæði.
Hundar hér eru yfirleitt ónýtir
til að leita í fönn, en þó er til
að þeir krafsi í skafla sem geng-
ið er yfir, eða verið er að leita
í. En yfirleitt hefur það fé, sem
fundist hefur, fundist af tilvilj-
un eða gat hefur verið komið
upp af því vegna hita frá kind-
unum. Ennfremur hefur tófan
grafið á nokkrar kindur, en hún
vill nú reyndar hafa fundarlaun,
þó að hún hafi ekki drepið allt,
sem hún hefur grafið á.
Tjón, það sem menn hafa orð-
ið fyrir af völdum þessa veðurs,
er mjög misjafnt. Sumir hafa
fengið svo til allt sitt fé, aðrir
misst milli 20 og 30 kindur. Alls
munu hafa farizt eða vantar um
100 kindur frá þessum fimha bæj-
um, sem hér eru í Fjallahreppi.
í Möðrudal og Víðidal, sem eru
í Jökuldalshreppi, mun færra fé
hafa farist, enda var veður öllu
vægara þar, einkum var minni
úrkoma. Þó vantar þar um 20—
30 kindur.
—Víkingur.
Tónlcikar Sinfón-
íuhljómsveitar-
innar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN lék I
Þjóðleikhúsinu á þriðjudags-
kvöld við húsfylli og óvenjulega
hlýja hrifningu leikgesta, enda
framniistaða sveitarinnar,
einleikara og stjómanda með aí-
brigðum góð.
Henry Swoboda virðist hafa
alla beztu kosti hljómstjórans,
vandvirkni, öryggi, skapfestu og
hita. Hafa fáir stjórnendur tekið
hljómsveitina fastari tökum, enda
var frammistaðan eftir því.
„Nótt á reginfjöllum“ eftir
Mússorgskí er vandleikið verk og
gerir miklar kröfur til hljóm-
sveitarinnar, ekki sízt blásara og
slagverks. í næsta viðfangsefn-
inu, konsertsinfóníu Haydns, léku
þeir Björn Ólafsson konsert-
meistari, Einar Vigfússon selló-
leikari, Karel Lang óbóleikari og
Hans Ploder fagottleikari ein-
leikskvartettinn og tókst einkar
vel. Var ósvikinn Háydn-blær
yfir þessu fagra og geðfelida
verki.
Síðasta viðfangsefnið var Sjö-
unda sinfónía Beethovens, leikin
af krafti, fjöri og miklum til-
þrifum, svo að á stundum gleymd
ist jafnvel strengjafátæktin. Sér
staklega var fagnarefni að heyra
annan kaflann (allegrettó) leik-
inn mun hraðar en oft er venja,
og er það sjálfsagt í anda meist-
arans.
Sinfóníuhljómsveitinni virðist
stöðugt fara fram, og fer þó nokk-
uð eftir því, hver á tónsprotan-
um heldur, svo sem vonlegt er.
Þess vegna er það mikið fagn-
aðarefni, þegar jafn-ágætan gest
ber að garði og Henry Swoboda.
B. G.
íbúð
Barnlaust kærustupar, sem
bæði vinna úti, óska eftir 2ja
herb. íbúð. Þyrfti ekki að vera
laus fyrr en um áramót. Tilto.
sendist Mbl., fyrir þriðjudags
kvöld, merkt: „8482“.
— Nýslegið
Framh. af bls. 2.
demba. Einkum munu bændur í
Vallarkrók hafa orðið illa £yrir
þeim í sumar.
Það bætir þó nokkuð úr að
mjög góð tíð er enn. í gær var
10 stiga hiti, og getur það sparað
hey. Byrjuðu sumir bændur að
gefa ám í kuldakastinu, en hafa
nú hætt því.aftur.
Enn eru bændur að vonast til
að ná einhverju upp, því það er
hart að geta ekki slegið blettina,
eftir að búið er að eyða miklu í
áburð á þá. Þó af þeim komi nú
slæmt fóður, er það betra en að
vanta alveg hey, þegar jörð fer
undir snjó.
Að lokum sagði Páll á Efra-
Hvoli: — Vegna hraktra heyja
hjá öllum hreppsbúum og vant-
andi heyja hjá mörgum af völd-
um heyþurrkanna, hefur orðið að
fækka mjög líflömbum og mjólk-
urkúm. Þrátt fyrir það verður
þeim bústofni, sem eftir lifir,
ekki framfleytt yfir komandi
vetur án mikils magns af að-
keyptu kjarnfóðri
Hugheilar þakkir til allra er sýndu mér vinsemd á
sextugsafmæli mínu 16. þ.m.
Þorvaldur Þórarinsson, Blönduósi.
JÓNlNA STEFÁNSDÓTTIR
fyrrv. ljósmóðir frá Karlsskála,
lézt á, sjúkrahúsinu í Neskaupsstað 24. þessa mánaðar.
Börn og tengdaböm.
HALLDÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Jafnaskarði,
sem andaðist að Hrafnistu 24. þ.m. verður jarðsett að
Stafholti mánudaginn 30. nóv. kl. f
Aðstandendur.
Elskulegur sonur okkar
DAGFINNUR ÖRN
lézt 20. nóv. útförin fer fram í dag, þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Pálína Hermannsdóttir, Sveinbjöm Dagfinnsson.
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda hluttekningu og vin.
semd við andlát og útför
GUÐNA ,G. SIGUEÐSSONAR
málara.
Systkini og stjúpsonur.