Morgunblaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.11.1959, Blaðsíða 22
22 MoncniynTAfíiQ Föstudagur 27. nðv. 1959 Aðalstjórn Vals ásamt stjórnum deildanna priggja. Blómlegt starf Vals bæði félags og afrekslega Félaginu skipt i 3 deildir AÐALFUNDUR Vals hófst 4. nóv. sl. og var að þessu sinni í þrem áföngum og lauk ekki fyrr en 22. s.m. Fundarstjóri var Ein- ar Björnsson en fundarritari Jón Þór Jóhannsson. Auk hinna hefðbundnu aðal- íundarstarfa lá fyrir fundinum frumvarp að nýjum lögum fyrir félagið, sem gerði ráð fyrir gjör- breytingum á starfsháttum þess, með því að tekin yrði upp deilda skipting. Skýrsla stjórnarinnar og laga frumvarpið lágu fyrir fundinum fjölritað. Sveinn Zoega, formað- ur félagsins fylgdi skýrslunni úr hlaði með stuttri framsöguræðu. Skýrslan skiftist í tvö megin- kafla. Störf stjórnarinnar og störf nefnda og ráða. Fyrri kafl- inn m.a. í starfsskiftingu, nefnd arskipanir, ýms störf og viðskipt in við útlönd. Síðari kaflinn um störf knattspyrnunefndar, um þátttöku félagsins í mótum, en félagið tók þátt í öllum knatt- spyrnumótum keppnistímabils- ins. Meistaraflokkur varð annar í röðinni, I. fl. sigraði í Miðsum- arsmótinu. Um starfsemi Ungl- ingaráðsins og þátttöku yngri flokkanna, en Valur sendi niu lið til keppm í unglingamótun- um og sigruðu þar þrjú lið fé- lagsins. Bæði eldri og yngri flokk ar fóru í allmörg ferðalög á ár- inu. Fundir voru haldnir bæði með hinum yngri og eldri flokk- um. Þá er nákvæm tafla yfir gengi flokkanna í hinum ýmsu mótum. f yfirliti um þátttöku í handknattleiksmótum á árinu sýnir, að mikill gróska er í þess- ari íþróttagrein innan Vals og að félagið tók þátt í öllum hand- knattleiksmótum starfsársins, að undanskildu íslandsmeistara- móti karla utanhúss, þá fóru handknattleiksflokkar. bæði kon ur og karlar, til Færeyja í júlí- mánuði og kepptu víðsvegar um Eyjarnar. Skíðaskálinn var rek- inn með svipuðu sniði og sl. ár og var mikið sóttur. Fulltrúaráð- ið starfaði vel á árinu og hélt 5 fundi. Fræðslu- og skemmtistarf semi gekk vel. Allmörg skemmti- kvöld voru haldin auk árshátíð- ar. Skáklíf var fjörugt. Skák- meistari Vals 1959 varð Gunnar Gunnarsson. Þá var bridge iðkað sem áður og spilað vikulega. Valsblaðið kom út eins og ákveð ið hafði verið. íþróttahúsið var starfrækt með svipuðu sniði og áður, en það tók til starfa í nóv- ember 1958. Er húsið fullsetið, bæði af félagsmönnum og með- limum annara íþróttafélaga og æfingar þar öll kvöld vikunnar. Félagsheimilið var einnig starf rækt til fundarhalda og skemmt- ana. Á félagssvæðinu var mikið unnið að undirbúningsstörfum til ræktunar og fegrunar. Á árinu gekkst stjórnin fyrir fjáröflun- um til ýmiskonar félagslegra framkvæmda, bæði með hluta- veltu og happdrætti. Á árinu lézt Jón Guðmundsson verzlunarstjóri, en hann var 3. formáður Vals. Var hans minnst í Valsblaðinu. Jón var á sínum tíma mikið starfandi bæði sem formaður og kappliðsmaður. Mikið var rætt innan stjórnar innar og fulltrúaráðsins um skipu lag félagsins og leiddu þær um- ræður til þeirra lagabreytinga, sem lagðar voru fram og gera ráð fyrir deildarskiptingu. Á auðæfi LONDON: — Englendingur nokk ur, 70 ára að aldri, vann sl. laug- ardag stærstu upphæð, sem nokk urn tíma hefir verið unnin í knattspyrnugetraun. Er hann framhaldsaðalfundi, sem haldinn var 15. þ.m. var frumvarpið bor- ið upp. Frumvarpið var sam- þykkt óbreytt eins og það kom frá nefnd þeirri er það samdi. Voru síðan haldnir stofnfundir deildanna og stjórnir þeirra kosnar. Formaður knattspyrnu- deildar er Ægir Ferdínandsson. Form. handknattleiksdeildar Jón Kristjánsson og form. skíðadeild- ar Guðm. Ingimundarson. Þriðji og síðasti áfangi aðal- fundarins var svo haldinn 22. þ. m. þar var skýrt frá skipan deildanna og stjórnarkosningu þeirra og kosin aðalstjórn félags ins. Sveinn Zoega var einróma endurkjörinn formaður, en aðrir í stjórninni eru þeir, Baldur Steingrímsson, Valgeir Ársæls- son, Friðjón Friðjónsson og Ein- ar Björnsson. Gunnar Vagnsson, sem átt héfir sæti í stjórninni um sjö ára skeið og þar af fimm áf sem formaður, baðst eindregið undan því að vera í kjöri að þessu sinni. Að kosningu lokinni flutti for maður stutt ávarp. Hann lauk á- varpi sínu með hvatningarorð- u mtil félaganna þar sem hann hét á þá að duga Val sem bezt á sviði íþrótta- og félagsmála. Að ávarpi formanns loknu, hylltu fundarmenn Val með fer- földu húrrahrópi og fundarstjóri sagði síðan aðalfundinum slitið. fyrrverandi prentari að iðn, og lifir nú kyrrlátu lífi — á litlum eftirlaunum — í Scarborough. Nam upphæðin, sem honum hlotnaðist 265,511 pund. Annar prentari vann einnig á sama tíma í sams konar getraun 102,511 pund, en hann starfar sem setjari við Daly Express, og var einmitt að setja úrslitin í ensku keppninni sl. laugardag. þegar hann vann þessa geysiháu upphæð. Það ber víst enginn á móti því hér eftir, að prentarar séu heppnir menn. Skíðokappi beið bona í stiga ÞRÁNDHEIMI, 26. nóv. Reut-1 er: — Einn kunnasti skíða- kappi Norðmanna og sá sem einna mestar vonir voru bundnar við á Vetrarólympíu- leikunum, Anders Woldseth, lét lífið í Þrándheimi í dag, þegar hann féll niður stiga. Kappinn var 25 ára gamall. Xhorleif Schjelderup, þjálf- ari norsku skíðamannanna, sem fara á Vetrarolympíuleik- ana, sagðí að dauði Woldseths væri óbætanlegt tjón fyrir norska skíðaíþrótt. Flokkaglíma Reykjavíkur Reykjavíkur-flokkaglíman fer fram þriðjudaginn 8. desember í íþróttahúsi Í.B.R. að Háloga- landi. Keppt verður í þrem þyngdar- flokkum, auk drengja og ung- lingaflokks. Þátttökutilkynningar beris til Gunnlaugs J. Briem, sími 11500, fyrir 4. desember. Glímufélagið Ármann sér um glímuna. Öpið alia daga GUFUBAÐSXOFAN Kvisthaga 29. — Sími 18976. EGGERX CLAESSEN og GÚSXAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmenn. Þórshamri við Templarasund. FERÐABÖK Þorvaiiiar Thoroddsens I-IV Þriðja bindið er komið út Kynnist landinu og kaupið Ferðabók Þorvaldar Thoroddsens Hafncrstræti 9 OtllIÍÖU550H&Gxil.^ Símar 11936-10103 THE ENGLISH BOOKSHOP Prentarar vinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.