Morgunblaðið - 27.11.1959, Síða 13

Morgunblaðið - 27.11.1959, Síða 13
Föstudagur 27. nóv. 1959 MORGUNBLAÐIÐ 13 FRIVER2IUNAR- SVÆÐIÐ FisUveiW Siqlmga ‘RaírMqÉF^ <Y\ TrjaYidu. NOREGUR (§) Æt j^burW BRETLANDsk,pa*T35 "V^fnaJat- ‘,vorur OjSemont OANMORK Erlendir viðburðir vikuyfirlit EFTA stofnað „90 milljónir íbúa í sjö ríkjum hafa sameinazt“. Þannig hljóðuðu fyrirsagnir í Norðurlandablöðunum um síð- ustu helgi. Auðvitað er of mikið að segja, að íbúar sjö-ríkjanna hafi „sam- einazt“. Engu að síður var stofn- un Fríverzlunarsvæðis Evrópu eða EFTA, eins og það er skamm- stafað, sögulegur atburður. Á föstudaginn staðfestu ráðherra sjö-ríkjanna með undirskrift sinni í Stokkhólmi þá endanlegu ákvörðun að tengja ríki sín í eina viðskiptalega heild. Lokaundirskriftir urðu að bíða þess, að samningurinn yrði þýdd- ur á tungur allra þjóðanna, en fara fram um mánaðamótin. Og þjóðþing landanna sjö eiga að staðfesta samninginn fyrir marz- lok. I Fríverzlunarsvæðinu eru þessi ríki og íbúatala þeirra sem hér segir: Noregur Danmörk ... 4,5 — Svíþjóð Bretland Sviss ... 5,2 — Austurríki ... ... 7,0 — Portúgal ... 9,0 — 88,2 millj. Þótt Grænland og Færeyjar til- heyri Danmörku hafa þau verið undanskilin þátttöku, en líklegt er að þau, eða að minnsta kosti Færeyjar gangi í EFTA. Finnland með 4,3 millj. íbúa hefur ekki séð sér fært að gerast beinn aðili að EFTA, en leitar fyr ir sér um óbeina aðild. Er þess vænzt að ákvörðun verði tekin í því máli fyrir miðjan desember. Aðrir líklegir þátttakendur í Fríverzlunarsvæðinu eru Kanada með 17,3 millj. íbúa, írland með 2,8 millj. íbúa og Gibraltar og Malta. Því er lýst yfir í stofn- skránni að Fríverziunarsvæðið sé opið öllum, þó ekki virðist að sinni líkur fyrir að neinar fleiri þjóðir gangi 1 það, neina ef vera skyldu íslendingar. Til samanburðar skal þess get- ið að í hinum svonefnda Evrópu- markaði eru þessi lönd: V-Þýzkaland .... 51,4 millj. Frakkland .. ítalia Holland ,.., Belgía Luxemborg .... 0,3 — 166,7 millj. Þar að auki virðist nú sýnt að Grikkland með 8,1 millj. íbúa og Tyrkland með 25,5 millj. gangi í Evrópumarkaðinn. Af þessu má sjá, að samanlögð fbúatala Fríverzlunarsvæðisins er aðeins liðlegur helmingur af íbúa tölu Evrópumarkaðsins. En þjóð- artekjur EFTA-landanna eru hlut fallslega meiri eða % af þjóðar- tekjum Evrópumarkaðslandanna og utanríkisverzlun þeirra um % af verzlun þeirra síðarnefndu. Afnám tolla á 10 árum Nú má engin ætla að stofnun Fríverzlunarsvæðisins þýði neina snögga byltingu. Skynugir hag- fræðingar reyna þvert á móti að forðast mikið umrót. Samningur- inn felur það í sér að innflutn- ingstollar innbyrðis milli þessara sjö landa eiga að falla niður á næstu 10 árum á nær því öllum vörutegundum nema matvælum. Fyrsta tollalækkunin verður 1. júní 1960, þegar tollarnir eiga að lækka um 20%. Næsta tollalækk- im verður svo 1. janúar 1962 um 10% og síðan 10% tollalækkanir ýmist með 18 mánaða eða eins árs fresti unz allir tollar skulu af lagðir þann 1. janúar 1970. Það er athyglisvert að tolla- lækkanirnar eru að öllu sniðnar eftir tollalækkunum innan Evr- ópumarkaðarins og tímaákvarðan ir allar þær sömu, að því undan- skyldu, að fyrsta tollalækkun Evrópumarkaðarins varð 1. janú- ar sl. og til að jafna þau met nemur fyrsta tollalækkun EFTA á miðju næsta ári 20%. Fríverzl- unarsvæðið vill ekki dragast aft- ur úr nágrannalöndum sínum. Það er því kjarni hinna tveggja viðskiptabandalaga Evrópu, að lækka tollana. Bein afleiðing af því virðist almenn lækkun vöru- verðs. En ríkin, sem hafa haft tekjur af tollunum verða að inn- heimta þær með einhverju öðru móti, t.d. söluskatti sem leggst jafnt á innlenda og erlenda vöru, eða með beinum sköttum. Tollalækkunin hefur því ekki rakleitt þá þýðingu að lækka vöruverð. En það er ætlunin að hún hafi það eftir óbeinum leið- um. Braut f jöldaframleiðslu Fyrir nokkrum áratugum hófu Bandaríkjamenn verulega stór- iðju í landi sínu með fjöldafram- leiðslu, sem aldrei hafði þekkzt áður. Mesta athygli vakti þetta í bílaiðnaðinum, þó þess hafi gætt víðar í framleiðslunni. Bílarnir voru í fyrstu mjög dýr tæki, sem engir nema mestu auðmenn gátu eignazt. Með f jöldaframleiðslunni var framleiðslukostnaðurinn skor inn svo niður, að jafnvel hinir lægstlaunuðu gátu eignazt sinn eiginn bíl. Það er enginn vafi á því, að Bandaríkin höfðu forystu í fjölda framleiðslu vegna þess, að inn- anlendsmarkaður þeirra var mjög stór, eða á þessu tímabili frá 120 milljón íbúar upp 1 180 millj. sem hann er í dag. Það er ein- faldlega þess vegna, sem lífskjör manna í Bandaríkjunum eru nú betri en í nokkru öðru landi. Stóriðja og fjöldaframleiðsla hófst líka í Evrópu, en bæði seinna og í smærri stíl en í Ame- ríku. Evrópa hefur verið bútuð niður með verndartollum og sér- stökum aðstæðum í hverju landi, þar sem mest hefur borið á vinnu aflsfrekum og dýrum smáiðnaði. Með stofnun stærri viðskipta- heilda, eða stærri „markaða“ eins og það er kallað, stefna Evrópuþjóðir fyrst og fremst til hagkvæmari framleiðsluhátta og það er enginn vafi á því að slíkt leiðir á endanum til bættra lífs- kjara fyrir heildina. Er einnig athyglisvert, að Rúss ar hafa verið að framkvæma þetta sama þegjandi og hljóða- laust í allri Austur-Evrópu. ★ Ef fylgja ætti algeru hag- kvæmnissjónarmiði í framleiðsl- unni, ætti að afnema alla tolla og sameina efnahagskerfi landanna, jafna laun og skatta og heimila tilfærslu fjármagns. Með öðrum orðum mynda eina ríkisheild. Þannig væri bezt séð fyrir því, að hver framleiðsluvara yrði að- eins framleidd þar sem aðstæður allar eru hagstæðastar. Ríkin sex, sem mynduðu Evr- -ópumarkaðinn gengu mjög langt í þessa átt, enda er það opinbert leyndarmál, að þau stefna í áttina til ríkjabandalags. En svo voru önnur ríki í Evr- ópu, sem treystu sér ekki til að ganga svo langt. Þau reyndu með Bretland í broddi fylkingar að ná vissum tengslum við Evrópumark aðinn. En sérgæði Breta komu í veg fyrir þetta. Þeir vildu haga því svo til, að þeir fengju sömu samkeppnis aðstöðu á meginland- inu eins og Frakkland og Þýzka- land, en mættu hins vegar hafa miklum mun betri framleiðsluað- stöðu með tengslum sínum við Samveldislöndin. Að því var ekki hægt að ganga og slitnaði upp úr samkomulagsumleitunum. Nú hafa sjö þeirra ríkja, sem urðu utan við Evrópumarkaðinn myndað F^verzlunarsvæðið. Harka Breta Bretland er án alls samjafn- aðar langsamlega sterkasti aðil- inn í Fríverzlunarsvæðinu. Það hefur yfir 50 milljónir íbúa með- an ekkert hinna ríkjanna hefur yfir 9 milljónir. Þar af leiðandi hefur það nú þegar stærstan stofn að öflugri fjöldaframleiðslu og mest fjármagn. Bak við standa hin miklu og auðugu Samveldis- lönd og nýlendur. Það er helzt þetta ofurefli Breta, sem er í- skyggilegt fyrir smáríkin í EFTA og eru þau því mjög fýsandi þess, að samkomulag náist um tengsli við Evrópumarkaðinn. Það skýtur því nokkuð skökku við, að Bretar hafa verið allrm þjóðanna harðskeyttastir í sama- ingum og reynt að tryggja ým»- ar smáatvinnugreinar hjá sér, sem hagkvæmissjónarmið mæl* þó með að öðrum þjóðum verðt fremur falið að leggja stund á. Bretar snerust öndverðir gegn Norðurlandabandalagi, innan Frl verzlunarsvæðisins, sem þó hefði ekki orðið nærri eins voldugt og þeir. Neitun þeirra kostaði úti- lokun Finnlands. Einnig kom þetta fram í flesk- samningunum við Dani. Jafn- skjótt og þeir voru gerðir juku Bretar styrki til síns landbún- aðar, svo að hann yrði ekki verr settur en áður í samkeppninni. Enn var sama að segja um fisk- verzlunina, sem þeir deildu lengi um við Norðmenn. Þó varð framkoma Breta Þ* fyrst með öllu ósæmileg, þegar þeir reyndu stöðugt að blanda landhelgismálunum saman við fiskverzlunarmálin. Það er stefna Fríverzlunarland anna allra, að viðhalda þjóðlegu sjálfstæði sínu og hlýtur land- helgin eins mikil og alþjóðalög heimila að verða hluti þess sjálf- stæðis. En Bretar kröfðust þess, að sjávarútvegi þeirra yrði tryggð jöfn aðstaða á við sjávarútveg Norðmanna með eftirgjöf Norð- manna í landhelgismálinu. En ég hugsa, að flestum fslendingum finnist, að Bretar hefðu eins get- að krafizt aðgangs að norskum skógum til þess að tryggja sam- keppnisaðstöðu pappírsiðnaðar síns. Fríverzlunarsamningur og land helgismál hafa einnig fléttast san), an í samningum Breta við Dani. Það er að vísu ekki hægt bein- línis að saka Dani um hrossakaup á landhelgi Færeyja og f’.esk- samningum við Breta. En Danir munu þó hafa gert sér ijóst, að þeir hefðu enga flesksamninga fengið við Breta og stofnun Fri- verzlunarsvæðisins hefði verið ó- vís, ef þeir hefðu lýst yfir í sum- ar óskoraðri 12-mílna landhelgi við Færeyjar. Meðan Norðurlandaþjóðirnar opna lönd sín fyrir brezkum iðn- varningi, féllust Bretar loks á það eftir langt þref að heimila toilalækkanir á freðfiski frá Norð urlöndum, þó ekki yfir 24 þús. tonn á ári. Er þessi kvóti rúmur eins og nú á stendur, því að freð- fiskútflutningur þessarar landa til Bretlands er nú 6500 tonn. Brezki fiskmarkaðurinn er þó miklu stærri. Bretar höfðu ekki fram kröfu sína um að Norðmenn og Danir festu landhelgi sína við 6 míl- ur, En allt til loka héldu þeir fast við þann fyrirvara, að ef breyt- ingar yrðu á landhelginni, þá áskildu þeir sér rétt til að endur- skoða og fella niður tollalækkan- ir á freðfiski frá Norðurlöndum. Mér virðist að þetta eigi að vera eins konar beita eða hótun til Norðmanna, því að þeir myndu telja það missi, að tapa þessum nýja og ágæta markaði sem þeim er heitið. Hins vegar hefur mér skilizt að Norðmenn séu ekki hræddir við þennan fyrirvara, vegna þess að ef 12-mílna landhelgi verður viðurkennd á Genfar-ráðstefn- unni, fást þeir ekki til að trúa því að Bretar geti verið þekktir fyrir að reyna með þvingunum að brjóta á bak aftur alþjóða- lög. Hinn kínverski sannleikur Kínverjar skiluðu Indverjum í síðustu viku 9 líkum og 10 föng- um, sem þeir höfðu tekið í við- ureign við indverska landamæra- verði í fjallahéraðinu Ladak. Fregnir af heimkomu fanganna eru enn fáorðar og óljósar, því að ' samgöngur á þessu svæði eru mjög erfiðar. Þó vekur það ekki litla athygli, að það er ljóst, a8 Kínverjar hafa reynt með pynd- ingum að fá fangana til að undip. Framh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.