Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 14

Morgunblaðið - 27.11.1959, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 27. nóv. 1959 Afgreiðslustúlka Óskum eftir stúlku til afgreiðslustarfa til jóla. Ckólastúlka kemur til greina. Uppl. í dag kl. 4—6. Lækjarbúðin Laugarnesvegi 50. Húseign og byggingalóð við aðal umferðagötu í austurbænum er til sölu hús_ eign og byggingalóð. Lóðin er 400 ferm. að stærð á lóðinni er einbýlishús, 4 herb. og eldhús og 60 ferm. iðnaðarpláss ásamt 50 ferm. verzlunarhúsi. Sam- kvæmt skipulagi má byggja á lóðinni iðnaðar- og verzlunarhús. íbúðarhúsið verður ekki fyrir væntan- legum byggingum á, lóðinni. Nánari upplýsingar veitir Fasteignasala ÁKA JAKOBSSONAB Laugavegi 27. (uppl. ekki veittar í síma). Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn- um úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi fyrir 3. ársfjórð- ung 1959 og viðbótargjöldum eldri ára, skemmtanaskatti og miðagjaldi, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, gjöldum af innlendum tollvörutegundum og matvælaeftirlits- gjaldi, skipaskoðunargjöldum, svo og lögskráningar- gjöldum og tryggingariðgjöldum aí lögskráðum sjómönn- um. Borgarfógetinn í Reykjavík, 25. nóv. 1959. Kr. Kristjánsson. Umsóknir um námsstyrki: Tilkynning frá Menntamálaráði íslands. Umsóknir um styrki eða lán af fé þvi, sem væntanlega verður veitt á fjárlögum 1960 til íslenzkra námsmanna erlendis eiga að vera komnar til skrifstofu Menntamála- ráðs að Hverfisgötu 21 eða í pósthólf 1398, Reykjavík, fyrir 1. janúar n.k. Til leiðbeiningar umsækjendum vill Menntcunálaráð taka þetta fram: 1. Námsstyrkir og ruápnslán verða eingöngu veitt íslenzk- um ríkisborgurum til náms erlendis. 2. Styrkir eða lán verða ekki veitt til þess náms, sem auðveldlega má stunda hér á landi. 3. Umsóknir frá þeim, sem lokið hafa kandídatsprófi, verða ekki teknar til greina. 4. Framhaldsstyrkir eða lán verða ekki veitt, nema um- sókn fylgi vottorð frá menntastofnun þeirri, sem um- sækjendur stunda nám við. Vottorðin eiga að vera frá því í nóvember eða desember þ.á. 5. Umsóknir skulu vera á sérstökum eyðublöðum, sem fást í skrifstofu Menntamálaráðs og hjá, sendiráðum íslands erlendis. Prófskírteini og önnur fylgiskjöl með umsóknum þurfa að vera staðfest eftirrit, þar eð þau verða geymd í skjalasafni Menntamálaráðs, en ekki endursend. Athygli skal vakin á því, að Bókabúð Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, hefur til sölu bækling um námsstyrki og námslán, gefinn út af menntamálaráðuneytinu, þar sem m.a. eru birtar reglur þær, sem gilt hafa um úthlutun námsstyrkja, yfirfærslu námsmannagjaldeyris o.fl. Bækl- ingurinn kostar 10 kr. Þórunn Sigurðardóttir — Minning VORIÐ 1906 hóf ung norðlenzk stúlka langferð mikla, sem átti að Ijúka vestur í Ameríku, þar sem systir hennar hafði þá tekið sér búsetu. Hún var vel að heiman búin, ágætlega menntuð, glæsi- leg og gáfuð og bar öll beztu einkenni þeirra Flatartungu- og Vindhælisætta. er að henni stóðu. Það var engin hætta á, að hún Þórunn Sigurðardóttir frá Skeggs stöðum kæmist ekki áfram í Ameríku. En íslandi var það mikið tjón, að svo ágæt kona skyldi hafa ákveðið að hverfa héðan. Þessari langferð lýkur nú í dag, að vísu ekki á bökkum Michigan- vatns, þar sem hin systirin býr, heldur þar í sveit, sem Ljósufjöll standa í norðri og strönd blá í suðri, en þar skráði Þórunn hús- freyja að Gröf með lífi sínu þá sögu, sem lengi mun varðveitast í annálum Snæfellinga. Þegar skipið, sem norðlenzka heimasætan ætlaði að fara með fyrsta áfangann til Ameríku var komið suður fyrir Jökul þá var hún orðin svo þjökuð af sjóveiki, að skipstjórinn lagði lykkju á leið sína og skaut léttbáti sínum inn til Búða, en þaðan fór Þórunn til vinafólks síns, prestshjónanna að Staðarstað, þar sem hún ætlaði að safna kröftum í næsta áfang- ann, vestur yfir hafið .En ferðin varð aldrei lengri. Þórunn ílent- ist á Snæfellsnesi. Það er nú ef til vill orðið svo af Bárði dregið frá því er hann sótti Ingjald þann, er staddur var í nauðum gerninga suður þar, sem skip Þórunnar sveigði af leið sinni, að honum verður varla þakkað hve giftusamlega hér tókst til, en áreiðanlega hefir Snjófellsáss þó brosað hýrlega í kamp, þegar hann sá álagaham Ameríkudraumsins renna af hinni fögru norðlenzku heima- sætu, er hún afréð að láta staðar numið í ríki hans á Snæfellsnesi. Árið 1912 stendur bóndinn að Gröf í Miklaholtshreppi, Halldór Bjarnason, einn uppi með börn sín fjögur, flest innan fermingar- aldurs. Hver var sú kona, sem gengið gæti þeim í móðurstað? Auðvitað Þórunn, sauma- og hannyrðakonan norðlenzka, sem enn hafði ekki gert sína reisu út til Ameríku. Og þannig atvikað- ist það, að Þórunn Sigurðardótt- ir gerðist húsfreyja að Gröf, fóstra fjögurra barna Halldórs, móðir Sigurðar, er fluttist þangað með henni frá Stakkhamri á fimmta ári og Unnar, er hún eign aðist síðar með Halldóri. Þarna í Gröf verður. svo til sagan um Þórunni, eins og við nágrannar hennar og allir aðrir muna, er gistu hana að Gröf. Mörgum, sem einungis sáu hana broshýra og ljúfa gestum sínum, hefir eflaust ekki verið Ijóst 1 hvert stórvirki hún hafði ráðizt. Hún tók sér fyrir hendur að leysa þá þyngstu þraut, sem nokk urri konu er fengin til úrlausn- ar, að ganga í móður stað börn- um annarar konu. Hún veitti við fremur lítil efni fyrstu árin for- stöðu stóru heimili, sem bæði var Erlent fréttayfirlit Framh. al bls. 13. rita rangar yfirlýsingar um at- burðina í Ladak. Fyrirliði hinna indversku landa mæravarða heitir Karam Singh. Hann var m.a. beittur miklu harð ræði til þess að viðurkenna, að indversku landamæraverðirnir ættu sök á árekstrinum við Kín- verja. Vildu Kínverjar fá hann til að viðurkenna, að Indverjarnir hefðu ráðizt inn á kínverskt land og hafið skothríð á kínverska herliðið að fyrra bragði. Hann streittist á móti og varð að þola stanzlausar yfirheyrslur og pynd- ingar. Aðbúð fanganna var mjög slæm og urðu þeir að þola klæð- leysi og hungur. Er þess getið að fyrirliðinn þjáist af kali. Þessi frásögn þarf ekki mikilla umsagna við. Hún skýrir sig sjálfa og þá villimennsku sem viðgengst í þessum heimi. En það má rifja upp, að bandarískir og kóreskir fangar, sem Kínverjar tóku í Kóreu-stríðinu urðu að þola hina herfilegustu meðferð. Oft varð þvingunin svo mikil að fangarnir gáfust upp og undir- rituðu játningar á hinum furðu- legustu brotum. Meðal þess sem bandarískir fangar voru látnir játa á sig var sagan um sýkla- hernað og eitruð skordýr. Það má vera að einhverjir menn í hinu hlutlausa Indlandi hafi trúað furðusögum kínversku kommúnistanna á þeim tíma, ekki sízt þar sem vinátta við Kína hefur verið svo að segja í tízku í Indlandi. Nú finna Indverjar sjálfir smjörþefinn af hinum kínverska sannleika. Flokksþing jafnaðarmanna Nýlega var haldið flokksþing þýzkra Jafnaðarmanna í bænum Godesberg á Rínarbökkum. Sá merkilegi atburður gerðist á þing inu, að grundvallarstefnuskrá flokksins sem staðið hefur ó- breytt síðan 1925, var nú breytt í veigamiklu atriði. Það var sem sé samþykkt að fella niður úr stefnuskránni að markmið flokksins væri þjóðnýt- ing. I stað þess lýsir flokkur- inn því yfir, að hann viðurkenni að einkaframtakið sé réttur grundvöllur efnahagsskipunar. Ályktun um þetta var sam- þykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða eða 324 atkv. gegn 16. Jafnaðarmannaflokkur Þýzka- lands hefur jafnan verið vagga Jafnaðarstefnunnar. Nöfn Þjóð- verjanna Karls Marx, Wilhelm Liebkneckt, August Bebels og Eduard Bernsteins sýna forustu Þjóðverja í Jafnaðarstefnunni. En staðreyndir nútímans hafa afsannað kenningar um ríkiseign og stéttahatur. Auðvitað er langt síðan gamlir fylgismenn stefn- unnar fóru að efast um gildi kenninga sósialismans, en þeir hafa haldið í þær dauðahaldi eins og af gamalli tryggð . Á allra siðustu árum hafa þær skoðanir svo farið að breiðast æ meira út meðal Jafnaðarmanna, að kenningarnar stæðust ekki dóm reynslunnar. Tilraunir til þjóðnýtingar sem gerðar voru í ýmsum löndum gáfu ekki góða raun og svo fór að stefna einka- framtaksins varð ráðandi i víð- reisn Evrópu eftir styrjöldina og leysti vandamálin með svo frá- bærum nætti, að líkt hefur verið við kraftaverk. Með aukinni velmegun fóru verkalýðsstéttirnar og að deyf- ast í stéttahatrinu, sem er undir- staða sósíalismans. Því fylgdi þeim mun meira fylgistap. sem þeir hengdu sig meira á kláf sosíalismans. Síðasta árið hefur verið ör- lagaríkt fyrir Jafnaðarsteínuna. því að nú hefur fyrst byrjað að gæta verulegs fylgistaps þeirra, einkum þó í þingkosningunum í Þýzkalandi í fyrrahaust og í Bret landi í haust. Úrslit þessara kosninga sýndu að sósíalísk stefna á ekki lengur við í nútíma þjóðfélagi. Tveimur dögum eftir þýzka flokksþingið komu hollenskir Jafnaðarmenn saman á flokks- þing og framkvæmdu sömu breyt inguna. Svissneskir Jafnaðar- menn höfðu þegar gert breyting- una. En nú er aðeins eftir spurn- ingin, — hvað er eftir af Jafn- aðarstefnunni þegar sósíalisminn hefur verið þurrkaður út úr henni? Eiga Jafnaðarmannaflokk ar þá nokkurn rétt á sér? við þjóðbraut og gestkvæmt mjög vegna starfa manns henn- ar, sem var póstur, forystumaður sveitunga sinna, oddviti, og síðar hreppstjóri. Hún átti að verða góð og réttlát öllum börnum sín um, syni, dóttur og fósturbörn- um, stoð eiginmanni, veitul en þó ráðdeildarsöm húsmóðir. Allt þetta tekst henni. Hún mun verða míkil og góð húsínóðir í minn- ingúm allra þeirra mörgu, er sóttu Grafarhjónin heim, ljúf móðir öllum börnum sínum og Halldóri góð kona, en síðast og áreiðanlega ekki sízt, mikill vin- ur vinum sínum. Eigum við, ná- grannar hennar fornir, um það marga ljúfa minningu hvert tryggðatröll hún var þeim, er hún vildi einkum blanda við geði. Á yfirborðinu var Þórunn létt- mál og félagslynd, en undir niðri einfari og djúphyggin. Eðlis- greind hennar og góðgirni réðu miklu oftar atkvæði hennar en annað, sem ýmsum hefði þótt nærtækara. Ég vissi aldrei til þess að hún legði öðrum mál- stað lið en þeim, sem hún hafði af öruggri yfirvegan talið rétt- astan, en þá fylgdi hún honum líka eftir af mikilli festu. Halldór Bjarnason dó fýrir rúmum þrem áratugum. Ekkju hans hefði þá verið auðveldast að selja eignarjörðina og flytja til Reykjavíkur, en hún kaus að taka þar upp merkið, sem það hafði fallið. Næstu árin var hún bæði bóndinn og húsfreyjan að Gröf og fór hvort tveggja vel úr hendi. Eftir að dóttir hennar, Unnur, giftist ágætum Snæfell- ingi, Helga Péturssyni frá Borg, tóku þau við búsforráðum, en Þórunn hvarf smám saman til. sæmdar hins háa aldurs og þess ástríkis, sem henni var veitt. Ég veit ekki betur en að ellin hafi verið Þórunni eins mild og bezt mátti verða. Hún naut þess barnaláns, sem lífið hafði gefið henni og þeirrar vináttu, sem hún hafði stofnað til. Hún las hin ar mörgu bækur sínar gleraugna- laust og gráu hárin í höfði henn- ar urðu aldrei mörg. Fyrir tveim árum fékk hún áfall, sem olli því, að þjáningalaus gleymsku- hjúpur breiddi fljótlega blæju yfir flest það, er gerðist á líðandi stund. Vegna þess hefir hún varla munað það, er hún kom hér við fyrir nokkrum vikum á leiðinni að Sólvangi í Hafnar- firði, að fyrir um sjö áratugum kom ung og falleg heimasæta frá Skeggsstöðum hingað til Reykja- víkur, þar sem hún tók að nema hljóðfæraleik og hannyrðir og hin undarlegu örlög, er forðum báru hana að landi í ríki Snæ- fellsássins voru henni gömul saga og gleymd. Þórunn var fædd 20. apríl 1872 og dó á 88. aldursári hinn 17. þ.m. Ferðinni að norðan er lokið. Þórimn Sigurðardóttir fer aldrei til fundar við systur sína á hin- um miklu sléttum Bandaríkj- anna. Hún mun ljúka sinni för hjá þeim vinum, sem hún eignað- ist í ríki Bárðar Snæfellsáss. Og þeir munu í dag standa yfir mold- um hennar að Miklaholti á Snæ- fellsnesi, þar sem Ljósufjöll rísa í norðri en strönd blá við hafs- brún í suðri. Og þar mun minn- ingin um Þórunni Sigurðardóttur lengi lifa. i J. Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.