Morgunblaðið - 28.11.1959, Side 2

Morgunblaðið - 28.11.1959, Side 2
2 MORGVNBT AÐIÐ Laugardagur 28. nóv. 1959 Fyrirspurnir um bráðabirgðalögin Munu afgreidd eins og lög mæla fyrir Frá umræðum á Alfjingi i gær þetta frumvarp, að á sl. vetri hefði verið skipuð nefnd til að rannsaka þetta mál allt, en hún hefði enn ekki skilað áliti. Gísli Guðmundsson, 3. þm. Norðurlands eystra, talaði fyrir frv. um lántökuheimild og ráð- stöfun lánsfjár til hafnarfram- kvæmda, er síðan var vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. Ágúst Þorvaldsson, 2. þm. Suð- urlands, flutti framsöguræðu um frumvarp um jarðræktar- og húsagerðasamþykktir í sveitum, er síðan var vísað til 2. mnr. og landbúnaðarnefndar. Var Bang- NEW YORK og KAUP- MANNAHÖFN, 27. nóv (NTB/ APP) — Lögregluyfirvöid Nev York-borgar hafa gefið fyrirskipun um nákvæma rann sókn allra atriða í sambandi við dauða Danans Povls Bang- Jensens, fyrrverandi starfs- manns Sameinuðu þjóðanna, Povl Bang-Jensen )&>»****&*»Mtí, rannsókn í sambandi við dauða hans. Jensen myrfur? sem fannst skotinn til bana í skemmtigarði í einni af út- borgum New York í gær. f tilkynningu lögreglunnar segir, að raunar bendi allt tii þess, að Bang-Jensen hafi framið sjálfsmorð (skamm- byssa fannst í hendi hans — og einnig fannst á honum kveðjubréf til konu hans), en þó þyki sjálfsagt að rannsaka þetta mál náið. — Er talið, að það standi í sambandi við grun semdir um, að vissir aðilar hafi viljað tryggja, að Bang- Jensen léti ekki af hendi mikil vægar upplýsingar, er hann hafi aflað sér, er hann starfaði fyrir Ungverjalandsnefnd Sam einuðu þjóðanna. Þess má og geta í þessu sam bandi, að Bela Fabian, einn áf foringjum Ungverja þeirra, er flúðu til Bandaríkjanna, hefir látið svo um mælt, að Bang- Jensen hafi fyrir skömmu sagt við einn vina sinna, að ef hann fyndist látinn, mætti ekki Óeirðir í Tókíó Nýjum varnarsamningi við Bandaríkin mótmœlt KLUKKAN 1,30 í gær var settur fundur í neðri deild Alþingis. Fjögur mál voru á dagskrá, en áður en þau yrðu tekin fyrir, kvaddi Eysteinn Jónsson, 1. þm. Austurlands, sér hljóðs utan dagskrár. — Kvað hann í haust hafa verið gefin út bráðabirgðalög um verðlagningu landbúnaðaraf- urða. Samkvæmt stjórnar- skránni bæri að leggja bráða- birgðalög fyrir næsta Alþingi og hefði verið venja að gera slíkt í byrjun þings. Nú kvaðst hann hafa búizt við því á hverjum degi, frá því þing kom saman, að bráða- birgðalögin um landbúnaðar- vöruverðið yrðu lögð fyrir þingið og beindi hann þeirri fyrirspurn til landbúnaðarráð herra, hvort þess væri ekki að vænta? Ingólfur Jónsson land- búnaðarmálaráðherra kvað það ekki rétt hjá 1. þm. Austurlands, að það væri venja eða skylt að Igegja bráðabirgðalög fyrir Al- þingi á fyrstu dögum þess. Hins vegar væri það skylda að leggja slík iög fyrir Alþingi og mundi í JÚNÍMÁNUÐI í fyrrasumar voru mikil brögð að því að neyzlumjólk bæjarbúa var bragð- vond. Var hér um svo alvarlegt mál að ræða, að heilbrigðisnefnd fékk málið fyrir og borgarlæknir skrifaði Mjólkursamsölunni bréf um þetta. Var krafizt að tryggt yrði, að jafnan væri á boðstólum fyrsta flokks mjólk. Nú hefur borizt svar frá Mjólkursamsöl- unni. Var það lagt fram og um það rætt, á fundi heilbrigðisnefnd ar á þriðjudaginn var. Þegar borgarlæknir dr. Jón Hermenn bíða dóms BLAÐAFULLTRÚI upplýsinga- þjónustu Bandaríkjanna hér, skýrði frá því í gær, að nú sætu fjórir varnarliðsmenn í haldi í sambandi við vopnastuld. Höfðu þeir kastað vopnunum í sjóinn, tveim rifflum og einni skamm- byssu, suður við Álftanes. Bentu þeir lögreglunni á staðinn, en kafari var sendur niður og fann hann vopnin á botninum. Menn þessir bíða nú dóms, en herréttur fjallar um mál þeirra og dæmir í því. Dagskrá Albingis DAGSKRÁ efri deildar Alþingis laugardaginn 28. nóv. 1959 kl. 1,30 e.h.: Gjaldaviðauki 1960, frv. Dýr- tíðarráðstafanir vegna atvinnu- veganna. Tollskrá o. fl. Bifreiða skattur. Bráðabirgðafjárgreiðsl- ur. Dagskrá neðri deildar í dag: Skemmtana=k'-ttsviðauki. Áætl- unarráð ríkissins. verða farið að lögum um þetta atriði. Eysteinn Jónsson tók aftur til máls. Kvað hann sérstaklega þýðingarmikið að það drægist ekki að þessi bráðabirgðalöggjöf kæmi til meðferðar á Alþingi, þannig að þingviljinn kæmi í ljós gagnvart þessum lögum. Þar sem fram hefði komið hugmynd, lun að þinginu yrði brátt frestað, kvaðst hann vilja skora á land- búnaðarráðherrann og ríkis- stjórnina að leggja bráðabirgða- lögin um landbúnaðarvöruverðið fyrir Alþingi, áður en því yrði frestað. Þá var gengið til dagskrár og tekin fyrir dagskrármálin fjögur. Gylfi Þ. Gíslason viðskipta- málaráðherra talaði fyrir frum- varpi um skemmtanaskattsvið- auka, er síðan var vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar samhljóða. Dragnótaveiðar í fiskveiði- landhelgi Karl Guðjónsson, 6. þm. Suður- lands, gerði grein fyrir frum- varpi um dragnótaveiðar í fisk- veiðilandhelgi imdir vísindalegu eftirliti, er hann flytur ásamt Sigurði Agústssyni, Ágúst Þor- valdssyni, Guðlaugi Gíslasyni og Lúðvíki Jósefssyni. Er frumvarp þetta samhljóða frumvarpi, er fram kom á síðasta Alþingi, en fékk ekki fullnaðarafgreiðslu. Emil Jónsson sjávarútvegsmála ráðherra gat þess í sambandi við Sigurðsson skrifaði forráðamönn- um Mjólkursamsölunnar í fyrra- sumar, um þetta mál, óskaði hann eftir ýmsum upplýsingum, t. d. varðandi flokkun ógerilsneyddrar mjólkur í Mjólkursamsölunni í Reykjavík, Mjólkursamlagi Borg- firðinga og Mjólkurbúi Flóa- manna. í öðru lagi upplýst m. a. aðstæður mjólkurframleiðenda til kælingar mjólkur, flutning hennar frá framleiðanda til mjólk urbús og loks um verðfellingu og endursendingu mjólkur frá mjólk urbúum. í bréfi Mjólkursamsölunnar, er þess getið að enn hafi ekki borizt svar frá Mjólkursamlagi Borgfirð inga, þrátt fyrir endurtekna beiðni þar að lútandi. Að fengnum þeim upplýsing- um, sem fyrir liggja, þótti það j vera ljóst að kæling mjólkur á : framleiðslustað er víða mjög ó- fullnægjandi og að mjólkin er; ekki nægilega varin sólskini með- an á flutningi stendur. Þá þykir sýnt að 2. flokks mjólk er ekki verðfelld. — Það var því álit nefndarinnar að eigi sé fullnægt ákvæðum reglugerðar um mjólk og mjólkurvörur varð- andi veigamikil atriði í mjólkur- meðferð. í beinu framhaldi af umræðum nefndarinnar um þetta mál, og þær upplýsingar sem liggja fyrir um það, svo og sú staðreynd að neyzlumjólk bæjarbúa hefur síð- astliðin tvö sumur, reýnzt verri en áður, ákvað nefndin að gera í ályktun í málinu. Samþýkkt: nefndin að beina því til Mjólkur- samsölunnar i Reykjavík, að hún hlutist til um, að bætt verði úr nefndum ágöllum hið allra fyrsta. Ennfremur geri hún aðrar þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru til að tryggja bæjarbúum jafn an góða neyzlumjólk. ^ TOKÍÓ, 27. nó)/. (Reuter): — Miklar óeirðir urðu í dag hér í borg og víðar í Japan. Verka- menn og stúdentar söfnuðust saman við þinghúsið í Tokíó til þess að mótmæla ákvörðun stjórn arinnar um að gera nýjan varnar- og öryggissamning við Bandarík- in. — Til harðra átaka kom með lögreglunni og mannsöfnuðinum, og særðust 400—500 manns af báðum flokkum, sumir hættu- lega. — 'k — Það var samband verkalýðsfé- laga, sem stóð fyrir mótmæla- göngunni að þinghúsinu, og tóku rúmlega 5000 manns þátt í henni — en talið er, að samtals hafi um 23.000 manns safnazt þar saman á skömmum tíma. — Samkvæmt upplýsingum verkalýðsfélagasam bandsins særðust 212 þeirra, er þátt tóku í mótmælagöngunni — sumir alvarlega. Talsmaður lög- reglunnar sagði, að 228 lögreglu- menn hefðu særzt í átökunum. Eftir nokkurn tíma tókst lög- reglunni að dreifa mannfjöldan- um, en þá tóku um 1.000 stúdent- ar sér stöðu kringum þinghúsið, en 2.000 lögreglumenn voru þar á verði, og dró ekki til frekari átaka. — í öðrum hlutum lands- BAGDAÐ, írak, 27. nóv. (Reut- er) — Aflétt hefur verið ferða- banni milli fraks og furstadæm- isins Kuwait við Persaflóa, sem sett var á í október síðastliðnum, eftir að tilraun hafði verið gerð til þess að myrða Abdel Karim Kassem, forsætisráðherra íraks, en hann er nú nýkominn úr sjúkrahúsi, gróinn sára sinna. ins voru einnig víða farnar mót- mælagöngur af sama tilefni. Samkvæmt gildandi samningi Bandaríkjanna og Japans, voru allar varnir landsins í höndum Bandaríkjamanna, Japanir fengu aðeins að koma upp fámennum landvarnasveitum. Bandaríkja- menn gátu fækkað eða fjölgað liði sínu í Japan, án þess að leita samþykkis japönsku stjórnarinn- ar. — Samkvæmt frumdrögum hins nýja sáttmála mundi árás á japanskt landsvæði jafngilda árás á Bandaríkin — og árás á bandarískar hersveitir á jap- önsku yfirráðasvæði yrði skoðuð sem árás á Japan. — Ætlunin er, að samningur þessi verði undir- ritaður í Washington í janúar n.k. í DAG hefst í blaðinu ný fram- haldssaga, „Óþreyja hjartans“, eftir austurríska snillinginn Stef- anZweig. Þetta er óvenjuleg og spenn- andi ástarsaga, rituð af þeirri sálrænu skyggni, sem Stefan Zweig var eðlileg og einkennir mörg skáldverk hans. Stefan Zweig er íslendingum kunnur af hinum frábæru æfi- sögum hans um Marie Antonette, Fouch, lögreglustjóra Napóleons, sem hafa verið þýddar á íslenzka tungu, og nú síðast af æfisögu hans „Veröld sem var“, er kom út hjá Menningarsjóði í fyrra. Þá mun mörgum minnistæð saga hans Amok, en hún var flutt í ríkisútvarpinu í hittiðfyrra í leik- ritsformi. Stefan Zweig var af gyðinga- ættum og fæddist í Austurríki ætla, að hann hefði framið sjálfsmorð. — Kona hins látna, Helen, kveðst og ekki trúa því, að maður sinn hafi svipt sig lífinu. Það var einnig upplýst í dag, að BangJensen hefði látizt á miðvikudag, en ekki mánudag, eins og upphaflega var ætlað. Leiddi læknisrannsókn þetta í ljós. Það er því ljóst, að hann hefir verið á lífi tæpum sólar- hring áður en líkið fannst í gærmorgun. — Lögreglan reynir nú að ná sambandi við eitthvert fólk, sem kynni að hafa séð hann á tímabilinu frá mánudagsmorgni, er hann fór að heiman, til miðvikudags- kvölds. Þrátt fyrir þetta segir lög- reglan, að allar líkur bendi til sjálfsmorðs — byssan í hendi líksins, sem kona hans segist vita til, að hann hafi átt, og kveðjubréfið til hennar, þar sem hann biður hana fyrirgefn ingar á því, að hann skuli grípa til slíks örþrifaráðs — | en talið er sannað, að hann * hafi skrifað bréfið eigin hendi' - jg. Hljóðið sem aflgjafi NEW YORK, 27. nóv. — Fram- kvæmdastjóri bandarísks fyrir- tækis sagði í dag, að verkfræðing ar þess hefðu fundið aðferð til þess að nota hljóðið sem orku- gjafa. — Sagði hann, að £ fram- tíðinni mundi unnt að beizla orku hljóðsins og nota hana t.d. til ratmagnsframleiðslu. árið 1881. Fyrsta bók hans var ljóðabók, sem hann gaf út er hann stóð á tvítugu, en síðan rak hvert verkið annað, skáldsögur, ævisögur, smásögur, leikrit og rit gerðir, en af þeim eru ævisögur þær sem hann ritaði um mikil- menni mannkynsins frægastar: Balzac, Dickens, Dostojevski, Tol stoj og fl. Eftir að nazistar tóku yfirráðin í Austurríki 1938 bjó Zweig í Englandi og Suður- Ameríku, en sundurtætt hjarta hans fékk hvergi ró fyrr en hann framdi sjálfsmorð í Persepolis í Brasilíu, ásamt konu sinni árið 1942. Sverrlr Haraldsson hefur þýtt Óþreyju hjartans, en hann er les- endum blaðsins að góðu kunnur fyrir þýðingu sína á framhalds- sögunni Austan Edens, eftir Stein beck. Kœling mjólkurinnar í mjólkurbúunum er víða mjög ófullnœgjandi Ný framhaldssaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.