Morgunblaðið - 02.12.1959, Page 12

Morgunblaðið - 02.12.1959, Page 12
12 MORGVISBLAÐIÐ Miðvik'udagur 2. des. 1959 Útg.: H.f. Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Asknftargald kr 35,00 á mánuði innamands. I lausasölu kr. 2.00 eintakið. FOSTBRÆÐRALAG KOMMUNISTA OG FRAMSÓKNAR að vakti mikla athygli á Alþingi um daginn, að kommúnistar og Fram- sóknarmenn höfðu nána sam- vinnu um nefndarkosningar, án þess þó að geta haft verulegt gagn af slíku bandalagi. Síðar hefur það komið fram á þingi, að mjög náin samvinna er á milli þessara tveggja flokka stjórnarandstöðunnar. — Báðir hafa þeir snúiz.t hatramlega gegn þeirri tillögu forsætisráðherra að fresta þingfuridum í nokkrar vikur meðan unnið er að undir- búningi aðalmála þingsins. Auk þess að hinni nýju ríkisstjórn myndi við það skapast vinnufrið- ur til að undirbúa nauðsynlegar aðgerðir í efnahagsmálunum, hlyti af þeirri þingfrestun, sem forsætisráðherra flutti tillögu um, að leiða nokkurn sparnað við þinghaldið. En þetta mega hvorki Framsóknarmenn né kommúnistar heyra nefnt. Þeir vilja að sagan frá upplausnar- tímabili vinstri stjórnarinnar endurtaki sig, að þingið sitji að- gerðarlítið viku eftir viku og mánuð eftir mánuð. Skynsamleg tillaga Hin nýja ríkisstjórn tók við völdum um leið og Alþingi var sett. Það liggur í augum uppi, að hún hefur engan tima haft til þess að undirbúa tillögur sínar í efnahagsmálum, þannig að hún gæti lagt þær fyrir Alþingi í upphafi þess. Það var einnig auðsætt, að ómögulegt var að af- greiða fjárlög nema í samhengi við efnahagstillögurnar. Tillaga Ólafs Thors um þingfrestun í tvo mánuði var því bæði skynsamleg og eðli- leg. En svo virðist sem kommúnistum og Framsóknar mönnum ætli að takast með málþófi á Alþingi að koma í veg fyrir að þingi verði frest- að fyrr en um miðjan desem- ber eða þar um bil. ÓhufTianleg staðreynd Það er vissulega óhugnanleg staðreynd, að Framsóknarflokk- urinn, sem fyrst og fremst þyk- ist vera flokkur bændanna í landinu, skuli nú kominn í svo náið bandalag við kommúnista, að hnífur gengur vart á milli þessara flokka. Sennilega er eng- in stétt á íslandi jafn eindregin í andstöðu sinni og andúð á kommúnistum og einmitt bænda- stéttin. Hún gerir sér mjög vel Ijóst ábyrgðarleysi og skemmdar- verkahneigð kommúnista. Hvorki bændur né aðrir fara heldur í grafgötur um það um þessar mundir, að kommúnistar bíða færis til þess að skapa enn aukið öngþveiti í efnahagsmálum landsmanna. Ófögur mynd Þessum flokki hefur Fram- sóknarflokkurinn fyrir nokkrum vikum boðið samvinnu um myndun ríkisstjórnar. Með þess- um flokki hefur hann gengið til kosninga á Alþingi. Þetta er vissulega ófögur mynd af flokki, sem segist vera lýðræðissinnaður borg- aralegur flokkur. En þannig er hin sanna og rétta mynd af Framsóknarflokknum í dag. Er ekki sízt ástæða til þess fyrir bændur iandsins að endurskoða afstöðu sína til slíks óhappaflokks. RÆÐA SERGENTS UTAN UR HEIMI Aukin smjörneyzla — minnkandi birgðir CJmjörverðið, framleiðsla þess, birgðir og fyrning- ar hafa verið til umræðu á þingi FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnun Samein- uðu þjóðanna) í Rómaborg. Það, sem einkum kom um- ræðum þessum af stað var skýrsla, sem skrifstofa FAO hafði samið og lá fyrir þing- inu. Fulltrúar drógu mjög í efa, að niðurstöður skýrslunn- ar væru réttar, en því var m. a. haldið fram í skýrslu FAO, að hækkað smjörverð og minnkandi birgðir væru stundarfyrirbrigði, þar sem allt útlit væri fyrir, að smjör- neyzla og verð myndi lækka á ný og áður en langt liði. Þessar niðurstöður töldu sumir fulltrúar þingsins „all- svartsýnar“, en aðrir töldu þær ekki fjarri sanni. verið árið áður. Skýrslugcrðar- menn FAO telja, að smjörverðið hafi nú senn náð hámarki, því að fólk fari að nota smjörlíki í stað smjörs, ef verðhækkunin haldi áfram. • Meiri neyzla — minni fram- leiðsla. FAO telur, að verðhækkun á smjöri í heiminum stafi bæði af meiri smjörneyzlu og minnkandi framleiðslu. Fyrstu sex mánuði ársins 1959 reyndist smjörframleiðslan í heiminum 13.500 smálestum minni en á sama tíma árið áður. í Norður-Ameríku minnkaði smjörframleiðslan um 18.100 smá lestir á þessu sama tímabili. Þrátt fyrir 14.500 smálesta aukningu smjörframleiðslu í Vestur-Þýzka- landi fyrstu sex mánuði þessa árs reyndist heildartalan fyrir Bretland og Vestur-Evrópulönd- in 10.000 smálestum minni en á sama tíma í fyrra. í Kyrrahafs- löndum (aðalega í Nýja-Sjálandi og Ástralíu), í Argentínu og Suð- ur-Afríku, reyndist smjörfram- leiðslan samtals 14.500 smálest- um meiri en árið áður. Bang- Jensen- fjölskyldan HIÐ sviplega fráfall Danans Povls Bang-Jensens, sem fannst skotinn til bana í skemmtigarði einum í New York sl. fimmtudag, hefir mjög verið rætt í blöðum víða um heim. Skömmu eftir að lík hans fannst komst sá orð- rómur á kreik, að hann hefði að líkindum verið myrtur, enda þótt alit benti til þess, að hann hefði svipt sig lífi — og hefir ákvörðun New York lögreglunnar um að hefja ná- kvæma rannsókn allra atvika i sambandi við lát hans senni- lega valdið mestu um, að kvittur þessi kom upp. — Nú hefir lögreglan hins vegar neitað því ,að nokkrar líkur bendi til þess, að Daninn hafi verið myrur. Á þessari mynd sést fjöl- skylda Bang-Jensens saman komin á heimili sínu í Lake Success. Ilann situr sjálfur með yngsta barn þeirra hjóna, Nínu, og við hlið hans situr eiginkonan, Helen, þá eru elztu systkinin, Per og Kar- en — og fyrir framan krjúpa þau Lars og Lise. Fyrirlestur René Sergent, aðalforstjóra Efnahags- samvinnustofnunar Ev- rópu, sem hann flutti í háskól- anum sl. sunnudag, hefur vakið mikla athygli. Ber þar margt til. Sergent er þaulreyndur og víð- kunnur efnahagsmálasérfræðing- ur, sem gegnt hefur hinum ábyrgðarmestu stöðum. Er ís- lendingum vissulega mikill feng- ur að heimsókn hans og áhuga hans á því að kynnast vandamál- um okkar litlu þjóðar. 1 Þarf ekki að leiða til lífskj ararýrnunar Erindi Sergent í háskólanum var hið fróðlegasta Og athyglis- verðasta. Enda þótt menn kunni nokkuð að greina á um ýmis um- mæli hans, verður sú staðreynd ekki sniðgengin að hann talaði af óvenjulegu raunsæi og hrein- skilni um þau vandamál, sem hann krufði til mergjar í ræðu sinni. Mjög fróðlegt var einnig að kynnast áliti hans á framtíðar- söluhorfum íslenzks fiskjar í V- Evrópu. Undir lok ræðu sinnar talaði ræðumaður um vöxt verðbólg- unnar hér á landi undanfarin ár og komst þá m a. að orði a þessa leið: „fslendingar munu almennt sammála um það, að stöðva þurfi verðbólguþróunina. Og sem sjálfstæð þjóð getið þið ekki haldið áfram að taka er- lend lán í jafn ríkum mæli og gert hefur verið. Það er mikill misskilningur, sem sumir álíta, að ekki sé hægt að sigr- ast á verðbólgu nema með því að rýra kjör flestra þjóðfélags borgaranna.“ Mikilsverð yfirlýsing í niðurlagi ræðu sinnar, þegar Sergent ræddi um líklegustu úr- ræði til þess að sigrast ó efna- hagsvandamálum íslendinga, lagði hann áherzlu á það, að nauðsynlegt væri fyrir íslend- inga að hverfa til aukins frjáls- ræðis í viðskiptamálum. Nú væri aðalatriðið að gera öflugar ráðstafanir til þess að vinna gegn verðbólgunni, og kvað hann Efnahagssamvinnu stofnun Evrópu vera reiðu- búna til þess að veita þá að- stoð, sem hún mætti,' í því mikilvæga viðreisnarstarfi. — Munu fslendingar vissulega fagna þeirri mikilsverðu yfir- lýsingu hans. ® Síhækkandi smjörverð í skýrslu FAO segir m. a., að fyrstu sex mánuði þessa árs hafi smjörneyzlan í heiminum verið meiri en framleiðslan og hafi þetta orsakað síhækkandi verð á smjöri og minnkandi smjörbirgð- ir í heiminum. í júnímánuði 1959 var heimsmarkaðsverð smjörs 90% hærra en það hafði Andar köldu gegn Menon ÞAÐ hefir verið æði stormasamt um Krishna Menon, varnarmála- ráðherra Indlands, nú að und- anfömu — í sambandi við landa- mæradeilur Kína og Indlands. — Margir telja hann hættulega hlið- hollan kommúnistum, og hefir þess verið krafizt bæði utan þings og innan, að hann láti af ráðherraembætti. Auk þess eru andstæðingar hans hræddir um, að hann hyggist komast til valda, þegar Nehru forsætisráðherra dregur sig í hlé — en það þykir uggvænlegt. Á myndinni sjást Nehru (t. v.) og Menon í alvarlegum samræð- um. — ® Ástæðumar tvær FAO telur þessar vera tvær aðalástæður fyrir minnkandi smjörframleiðslu í heiminum: 1.) Minnkandi mjólkurframleiðsla sökum þurrlca, einkum í Vestur- Evrópu og 2) tilhneigingu bænda til að framleiða osta, sem gefa meira í aðra hönd en smjör- ið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.