Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 23
Miðvik'udagur 2. des. 1959 MORGVTSBLAÐ1Ð 23 Ættbálkaóeirðírnar í Ruanda 30 ára afmœlissýning á leirmunum Bikar- keppni b knattspyrnu tekin upp hér KSÍ skipaði fyrir nokkru nefnd til þess að athuga möguleika á því að koma upp bikarkeppni í knattspyrnu hér á landi líkt og tíðkast í flestum Evrópulöndum. Hefur nelndin lokið störfum og álit hennar birtist í skýrslu KSÍ er lá fyrir aðalfundi sambandsins um síðustu helgi. Álitið er þannig. „Nefndin hefur rætt mikið svo- kallaða bikarkeppni (Cup) og komist að þeirri niðurstöðu, að fræðilega sé hægt að koma slíkri keppni á. Er þá gert ráð fyrir að þau félög, sem ekki keppna í I. deild, keppi fyrst til að fá úr því skorið. hvaða félög fái að taka þátt í loka umferðunum ásamt I. deildar liðunum. Sé undirbún- ingskeppninni lokið fyrir 1. sept.. en loka umferðir fari fram um helgar í september og taki 8 lið þátt í þeim. Leggur nefndin til, að liðum, sem eiga sæti í I. deild verði heimilt að senda 1. flokk sinn í fyrri hluta keppninnar. Hér á eftir er lýst hugsanleg- um leiðum til að koma bikar- keppninni á og haft í huga að öll byrjun er erfið og ef til vill eigi mögulegt að stíga skrefið til fulls fyrr en síðar. Leggur nefnd- in því til að athugaðir verði þess- ir tveir möguleikar. 1. Einföld eða tvöföld umferð í undirb. keppninni. Takmarkað- ur fjöldi. 2. Undirbúningskeppnin nái til féiaga á öllu landinu. Nefndin leggur áherzlu á að bikarkeppnin nái ekki síður til þeirra félaga sem leika í II. deild og ekki hafa næg verkefni en til I. deildar. Nefndin leggur til að stjórn Knattspyrnusambands íslands verði falið að athuga væntanlega þátttöku í bikarkeppni og koma henni í framkvæmd". Lovísa Markúsdóttir Afmæliskveðja: Áttræðistindinn klífur kná kát með lundu hlýja. Verður ófús ellin grá undan þér að flýja. Þú hefur ætíð sæl og sátt sveiflað þér með gleði. í himintæra höfuðátt haldið þínu geði. Gott er að eiga létta lund lífs í hraða straumnum. Geta flogið stutta stund stæit á móti flaumnum. Áttræð frænka, stefja stig átefnb ég óskum mínum. Vizkan ætíð vefji þig. vinarörmum sínum. Bjarni ívarsson. og onnur a nyjum verkum Cuðm. frá Miðdal UM helgina opnaði Guðmundur Einarsson frá Miðdal tvær sýn- ingar, aðra í vinnustofu sinni á Skólavörðustíg 43 og hina í List- vinahúsinu á Skólavörðuholti. í Listvinahúsinu er afmælis- sýning, en 30 ár eru liðin síðan Guðmundur hóf leirmunagerð. Á þessum tíma hefur hann mótað 90 gripi til fjöldaframleiðslu og hefur Hvítfálkinn selzt mest og farið víðast um heim. Hann var gerður 1930 fyrir ungmennasam- bandið og fyrst gefinn ung- mennafélagsfrömuðum. Kristján konungur X. keypti t. d. nokkrar styttur af honum þessi þrjú skipti sem hann kom hér, ætl- aðar til gjafa. Einnig hefur hrafn inn og rjúpurnar notið mikilla vinsælda. Guðmundur hefur sjálfur gert módel að leirmununum, en um framleiðsluna og brennsluna sér núna Einar sonur hans. Áður sá Sveinn Einarsson bróðir hans um reksturinn. Á verkstæðinu hafa mest unnið 11 manns. Á sínum tíma sótti Guðmundur í 5 ár um leyfi til að byggja nýtt 1 Ekki tókst að jafna deilurnar BLACKPOOL, 30. nóvember. — Þingi brezka verkamanna- flokksins er lokið. Megintil- gangurinn var að grafast fyrir um ástæðurnar fyrir óförun- um í síðustu kosningum og ná samkomulagi um framtíðar- stefnna, en þinginu lauk án þess að nokkuð samkomulag næðist og virðist ljóst að tog- streitan milli hægri og vinstri aflanna í flokknum verður ekki jöfnuð fyrirhafnarlaust. Þjóðnýtingarstefnan varð helzta umræðuefnið. Gaitskell afneitaði henni ekki með öllu og sagbi. að þjóðnýting væri nytsöm á mörgum sviðum. Þótti afstaða hans fremur loð- in enda hlaut ræða hans frem- ur daufar imdirtektir. Bevan flutti lokaræðuna og kvað þar við annan tón. Vildi hann í f engu slaka til í þjóðnýtingar- stefnunni. Óvissan um fram- tíðarstefnu flokksins er þvi engu minni nú en fyrir þing- ið. verkstæði, en fékk ávalt neitun, en gafst þá upp og sagði upp fólkinu. Nú er þar aðeins fram- leitt lítið magn af handunnum munum. í leirmununum er ís- lenzkt efni ,og búinn til glerung ur í vélum á staðnum. Aðeins nokkur litarefni, sem ekki eru 1% af hráefninu, eru fengin frá útlöndum. í salnum á Skólavörðustíg 43 er sýning á 60 olíumálverkum, vatnslitamálverkum og högg- myndum, sem Guðmundur frá Miðdal hefur gert sl. tvö ár, og eru þær allar til sölu. Fyrir fjórum árum byrjaði Guðmundur tilraunir með að vinna í jaspis og eru nokkrar höggmyndanna úr þeim steini, en hann finnst hér á landi við Djúp. Guðmundur vinnur þann- ig að hann malar steininn smátt, blandar hann marmarasementi, bætir jafnvel tinnuögnum í og vinnur hann síðan með sérstök- um vélum, því að hann er of harður til að stál vinni á hon- um. Jaspissteinninn í myndun- um á sýningunni er brúnn, en nú hefur Guðmundur fengið dökkgrænan jaspisstein frá Djúpi og er að byrja að vinna með honum. Einnig eru á sýn- ingunni höggmyndir úr hvítu kvarzi frá Miðdal, og er það stundum blandað líparíti frá Torfajökli. Leirmunasýningin í Listvina- húsinu verður opin fram að jólum ,en sú á Skólavörðustígn- um hálfan mánuð . Kymiing á verkum jólmnnesar úr Kötlum MÁL og menning gekkst fyrir kynningu á verkum Jóhannesar úr Kötlum, kl. 2,30 e. h. á sunnu- daginn. Kynnir var Jón Múii Árnason, en þeir sem fram komu voru Guðmundur Böðvarsson skáld sem flutti erindi um Jó- hannes og list hans, Baldvin Hall- dórsson og Þorsteinn Ö. Step- hensen sem lásu ljóð eftir Jó- hannes, Þórarinn Guðnason las kafla úr skáldsögunni „Frelsis- álfan.“, Kristinn Hallsson sem söng fimm lög við ljóð eftir Jó- hannes með undirleik Fritz Weiss happels, Bryndís Pétursdóttir og Lárus Pálsson sem lásu upp úr ljóðum skáldsins. Loks kom Jó- hannes sjálfur fram og mælti nokkur þakkarorð áður en hann lauk kynningunni með tveim ljóðum eftir sig, öðru óprentuðu. róstusamt mjög í afríska kon- ungsríkinu Ruanda, en Belgir fara þar með gæzluvernd af hálfu Sameinuðu þjóðanna. — Hafa einkum átzt þarna við tveir ættbálkar, watutsimenn, sem löngum hafa verið „herr- ar“ landsins, og fyrrverandi þjónar þeirra og þrælar af Bahutus-kynflokknum. Hafa hundruð manna látið lífið í ættbálkaóeirðum þessum. Belgum hefir nú tekizt að stilla til friðar og mestu, a. m. k. í bráð. Sendu þeir lið á vettvang frá Belgíska Kongó, og er vitað, að hermennirnir hafa tekið yfir 500 af hinum stríðandi aðilum til fangá. — Á myndinni sjást Kongóher- menn (í jeppa) gæta nokkurra fanga í Kigali í Ruanda. Gjöf til Blindra- vinafélagsins í GÆR 1. desember var Blindra- vinafélaginu færð 10.000 kr. gjöf í Minningarsjóð Friðriks Brekk- an af aðilum, sem ekki vilja láta nafns síns getið. Sjóðurinn var stofnaður í fyrra þennan sama dag með 10.000 kr. gjöf. Vill Blindravinafélagið færa gefend- um alúðarþakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf og stuðning þeirra sem hér eiga hlut að máli við gott málefni. Dagskrá um frels* r isbaráttn Islend- inga ÓLAFSVÍK, 1. desember. — Full- veldisins var minnst hér í Ólafs- vík sl. laugardag. Kvenfélag Ólafsvíkur gekkst fyrir sam- komu. Hún hófst með því að Bragi Sigurðsson, sveitarstjóri, flutti ávarp. Þá söng tvöfaldur karlakvartett undir stjórn Sig- urðar Scheving og þótti söngur- inn takast skínandi vel. Loks fluttu konur samfellda dagskrá um frelsisbaráttu íslendinga, frá því hún hófst og til vorra daga. Flytjendur voru húsmæðurnar Sigrún Sigurðardóttir, Ingveldur Knaran og Herdís Hervinsdóttir. Var þessu skemmtiariði mjög vel tekið. Síðan skemmtu menn sér við dans til kl. 2 um nóttina. —B.Ó. Nýtt póst- og síina- hús á Ólaf svík ÓLAFSVÍK, 1. des. — Tíð hefur verið hér ágæt í haust, og eru allir vegir færir. Fróðárheiði hefur aldrei teppzt. — Afli hef- ur verið sæmilegur hjá bátunum, og er róið alla daga nema sunnu- daga. Ætlar þetta að verða með beztu haustvertíðum, sem hér koma. Atvinna er mikil í frysti- húsinu. Hér er verið að byggja nýtt póst- og símahús, sem tekið verð- ur í notkun upp úr áramótum. Er símaflokkur hér nú og er að leggja símalínur í 20—30 ný hús. —B.Ó. Nýjársnóttin verð- ur sýnd á Akranesi AKRANESI, 28. nóv. — Leik- félag Akraness er fyrir nokkru síðan byrjað að æfa Nýjársnótt- ina eftir Indriða Einarsson. Leik stjóri er ungfrú Hildur Kalman, en hún er dótturdóttir skáldsins. Margir eru þegar farnir að hlakka til að sjá þetta þjóðlega og vinsæla leikrit á leiksviði hér. Nýjársnóttin hefur aldrei verið sýnd hér fyrr. Formaður Leikfélags Akraness er Alfreð Einarsson. Schannong’s minnisvarðar 0ster Farimagsgade 42, Kþbenhavn 0. Kinangrunar- | allominium = nýkomið | Sími 15300 Ægisgötu 4 Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐFINNA ÞÓRÐARDÖTTIR lézt að heimili sínu Löndum, Vestmannaeyjum, méuau- uaginn 30. nóv. Börn, tengdabörn og barnabörn Útför eiginkonu minnar og móður okkar, HALLDÓRU ARNLJÖTSDÓTTUR Skólavörðustíg 13 fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudag. 3. des. kl. 2 e.h. Davíð Kristjánsson og börn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.