Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.12.1959, Blaðsíða 15
( MOncrn\nr,AÐiÐ 15 Miðvikudagur 2. des. 1959 * KVIKMYNDIR + NÝJA BÍÓ: Carneval í New Orleans. I»ETTA er amerísk músík- og ^ gramanmvnd tekin i, litum og: Cinemacope, og: er sagrt að hún hafi hlotið viðurkenningiu sem ein af þrcmur beztu músík- og skemmtimyndum, sem framleidd ar voru í Bandaríkjunum árið 1958. Fjallar myndin um fjögur liðs- foringjaefni frá herskólanum í Virginíu-fylki, sem fá að fara til New Orleans til þess að taka þátt Barsmíð á bók- menntakynningu ÞAÐ geyðist á bókmenntakynn- ingu Máls og menningar í Gamla bíói á sunnudaginn, að Kristinn Hallsson söng með undirleik Weisshappels. Þegar þeir komu fram, reyndist slagharpan vera fyrir neðan sviðið, og fór undir- leikarinn þangað, en söngvarinn stóð á sviðsbrúninni. En þegar söngurinn skyldi hefjast vantaði „pedalana“ á slaghörpuna. Þeir urðu því báðir að draga sig í hlé, en skömmu síðar kom um- sjónarmaður hússins með „ped- alana“ og upphófst nú barsmíð mikið, unz þeir voru komnir á sinn stað. Þegar smíðunum var lokið komu listamennirnir aftur inn, í Carnevalinu þar í borg. Komast þeir félagar þar í ýms ævintýri og komast auðvitað allir í kynni við ungar blómarósir. Þeirra hlutskarpastur er þó Paul New- ell, því að hann hlýtur stærsta vinninginn, hina fornu og frægu kvikmyndastjörnu Michelle Mar- lon. Það var svo sem vitanlegt að svona færi, því að Pat Boone, sem flestar skólastúlkur hér og annarsstaðar, eru alveg bráð- skotnar í, leikur hinn heppna og hamingjusama Paul. í myndinni er mikið dansað og skrautlegir Carneval-vagnar fara um stræti borgarinnar o.fl. o.fl. Ég og mínir líkar hafa ekki sér- staklega gaman af svona mynd, en jafnvíst er það að unga fólkið sem sér hana mun skemmta sér konunglega. STJÖRNUBÍÓ: Út úr myrkri VIÐ hér í höfuðborginni höfum á undanförnum árum haft nokkur kynni af hinni þróttmiklu og glæsilegu leiksviðalist Norð- manna vegna komu norskra leik ara hingað til lands. Af norskri kvikmyndagerð hafa hinsvegar ekki farið hér miklar sögur enda sjaldgæft að hér sjáist norskar kvikmyndir, sem eru mikils virði. — Mynd sú, sem hér er um að ræða, er að mínu viti, undantekn ing í þessu efni, því að hún er í senn efnismikil, vel gerð og prýðilega leikin. — Fjallar mynd in um ung, nýgift hjón, Kari og Per Holm arkitekt. Hjúskapar- vandamálin segja þegar til sín. Konan vinnur á skrifstofu, en hann vinnur heima hjá sér að húsateikningum sínum. Hvort um sig lifir ísinni veröld, sem hitt ekki skilur. Þetta leiðir til óánægju og misklíðar milli hjón- anna, er færist í aukana. Konan, sem vat veikluð fyrir, verður æ óstyrkari á taugum og ágerist það svo að hún verður að lokum sturluð og er komið fyrir á geð- veikrahæli. — Þar hefst hún við um eins árs skeið og fyrst svo sljó að hún þekkir ekki mann sinn og man ekki eftir barni sínu. Smám saman fer þó að rofa til í huga hennar. Batinn er jafn og öruggur og að lokum hverfur hún heim til sín albata. Mynd þessi er mjög áhrifa- mikil og vel leikin sem áður seg- ir. Urda Arneberg, sem leikur frú Holm, fer með þetta geysi- mikla og erfiða hlutverk af frá- bærri list, sterkri innlifun og næmum skilningi. Af öðrum leik- endum, sem gera hlutverkum sín- um hin ágætustu skil má nefna Pál Bucher Skjönberg sem leikur Per Holm og .Ola Isene, sem fer með hlutverk yfirlæknisins í geð- veikrahælinu. Er vissulega óhætt að mæla með þessari ágætu mynd. SsÍÍÍKWÍ Það vekur athygli í heimi iþróttanna að Walt Disney hefur verið fenginn til að sjá um „sviðsetningu" Vetrarolympíu- leikanna í Squaw Valley. Ein af hugmyndum hans er sú að skreyta vallarsvæðin með 30 höggmyndum, sem hver um sig verða 5 metra háar. Hver þeirra á að vera táknmynd af einhverri grein sem í verður keppt. Hér sézt styttan af bandy-leikmanninum, en það er vinsæll ísknattleikur erlendis. — 4 LESBÓK BARNANNA Njálshrenna og hefnd Kára 11. Ketili úr Mörk mælti: „Renna munum vér til hesta vorra, og megum vér ekki við haldast fyrir ofureflismönn- um þessum. Runnu þeir nú tii hesta sinna og hlupu á bak. Þorgeir mælti: „Vilt þú, að Við eltum þá? Og munum við enn geta drepið þá nokkra“. „Sá ríður síðast“, segir Kári, er eg vil eigi drepa, en það er Ketill úr Mörk, því að við eigum systur tvær, en hon- um hefur þó farið bezt í mái- um vorum áður“. 72. Þeir Ketill riðu sem mest máttu þeir, til þess er þeir komu tii Svínafells, og sögðu sínar farir ekki sléttar. Flosi kvað slíks að von, — „og er yður þetta viðvörun“, segir hann, „skuluð þér nú aldrei svo fara síðan“. Flosi var allra manna glað- astur og beztur heima að hitta. Og er svo sagt, að hon- um hafi flestir hlutir höfðing- legast gefnir verið. 73. En um veturinn eftir jól kom Hallur af Síðu austan og Koiur, sonur hans. Flosi varð feginn komu hans, töi- uðu þeir oft um málaferlin. Flosi spurði hann þá ráðs, hvað honum þætti líkast. Hallur svarar: „Það legg ég tii ráðs, að þú sættist við Þorgeir, ef kostur er“. „Ætlar þú þá muni lokið vígunum?“ segir Flosi. „Eigi ætla eg það“, segir Hallur, „en við færri er þá um að eiga, ef Kári er einn. En ef þú sættist eigi við Þor- geir, þá verður það þinn bani“. 74. Var nú sent eftir Sig- fússonum. Báru þeir þetta mái upp fyrir þá, og lauk svo þeirra ræðum af fortölum Halls ,að þeir viidu gjarnan sættast. Grani Gunnarsson mæiti og Gunnar Lambason: „Sjálfrátt er oss, ef Kári er einn eftir, að hann sé eigi óhræddari við oss ,en vér við hann“. „Ekki er svo að mæla“, seg- ir Hallur, „mun yður verða sárkeypt við hann, áður en lýkur með yður. Jörðin AUÐVITAÐ veizt þú, að jörðin er hnöttótt eins og kúla, eða kannske öllu heldur eins og appelsína, dálítið flatari við heims- skautin. Allir segja að jörðin sé hnöttótt. Þér hefur verið kennt það í skólanum, svo að það hlýtur að vera rétt. Þó verður þú að við- urkenna, að innst inni, ertu ekki alveg sannfærð- ur, þegar þú hugsar út í það, að Kínverjarnir ganga með höfuðið niður á við! Hvernig geta þeir hangið á kúlunni? Af hverju detta þeir ekki út í geiminn? Þá flýgur þér kannske í hug, hvort jörð in sé nú eftir allt saman ekki flöt eins og pönnu- kaka, því að í fljótu bragði er einhvern veg- inn auðveldara að hugsa sér hlutina þannig. Spurningin um lögun jarðarinnar hefur verið ofarlega í hugum manna meðal flestra þjóða á öll- um tímum. í ævagamalli indverskri sögu, segir frá nokkrum unglingum, sem gengu upp í musterið til okkar að fræðast af hinum gömlu spekingum. — Segið okkur vitru, ærnverðugu feður, sögðu þeir, — hvernig jörðin er ílögun? — Jörðin er kringlótt eins og diskur, svöruðu vitringarnir, kringlótt og flöt. — En vísu feður, sögðu unglingarnir, hvað held- ur jörðinni þá uppi, hvað styður hana, svo að hún detti ekki? Það getum við ekki skilið. Vitringarnir hugsuðu sig dálítið um og svöruðu síðan: Undir jörðinni standa fjórir geysistórir fílar. Hún hvílir á bakinu á þeim. Þeir styðja hana, svo að hún detti ekki. — Æruverðugu feður, nú skiljum við það, sögðu unglingarnir, að jörðinni er haldið uppi af fjórum fílum og þess vegna dett- ur hún ekki, — en vísu feður, á hverju standa þá fílarnir? Gömlu spekingarnir tóku sér aftur langan um hugsunarfrest áður en þeir svöruðu: — Fyrir neðan fílana fjóra er risa stór skjaldbaka. Á henni standa fílarnir og hún ber þá og jörðina uppi. — Þetta skiljum við líka, vísu feður, sögðu hin ir spurulu unglingar. — Fílarnir, sem halda jörð- inni uppi standa á skjald böku og þess vegna hrapa þeir ekki út í geiminn. En æruverðugu öldungar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.