Morgunblaðið - 02.12.1959, Síða 22

Morgunblaðið - 02.12.1959, Síða 22
22 MOJtCTlNfíf, 4Ð1Ð Miðvik'udagur 2. des. 1959 Lið KFR sem vann „titilinn bikarinn Fyrsti stórsigur KFR i körfuknattleik Jöfn keppni i öllum yngri flokkunum SÍÐUSTU leikir meistaramóts Reykjavíkur í körfuknattleik fóru fram í íþróttahúsinu að Hálogaiandi sl. mánudags- kvöld. Ármann og KR kepptu til úrslita í kvennaflokki og sigraði Ármann með yfirburð- um. ÍR og KFR léku í 2. fl. karla og vann ÍR yfirburða- sigur. Áður hafði KFR sigrað í meistarafiokki karla með glæsibrag og ÍR í 4. fl., en það er í fyrsta sinn, sem keppt er í þeim flokki á Reykjavíkur- móti. jc Meistaraflokkur í meistaraflokki karla sigraði nú KFR, en meistaraflokkur þessa litla félags hefur oft ver- ið nærri sigri bæði á Reyisja- víkur og íslandsmótum, en aldrei tekizt að hreppa sigurlaun fyrr en nú. Lið KFR er skemmtilegt og vel leikandi, en beztu menn þess eru Einar Matthíasson, Ingi Þorsteinsson og Ólafur Thorla- cius. Einar er fjölhæfur, fljótur og hefur gott auga fyrir sam- leik. Er þar á ferðinni einn okk- maðurinn og „primus motor“ þess. Ólafur er snjall í langskot- um og hefur ágæta knattmeð- ferð. Aðrir liðsmenn KFR eru einnig snjallir bæði í vörn og sókn, sérstaklega Gunnar Sig- urðsson. ÍR-liðið átti frekar lé- legan leik gegn KFR, en gegn ÍS sýndi íiðið að það getur meira og ef ÍR-ingar æfa vel fram að íslandsmóti, geta þeir orðið skeinuhættir. íslandsmeistarar stúdenta eru greinilega ekki í ingar með töluverðum yfirburð- um, þeir áttu í mestum eríiðleik- um með B-lið Ármanns, sem A- lið sama félags tapaði fyrir. Þessi 2. flokkur ÍR hefur á að skipa jöfnum og skemmtilegum leik- mönnum, sem örugglega munu halda nafni félagsins hátt á lofti í körfuknattleik í framtíðmni. — Beztu menn liðsins eru Þorsteinn Hallgrímsson, Guðmundur Aðal- steinsson, Guðm. Þorsteinsson og Einar Bollason. Lið KFR er nokk- uð misjafnt, en í því eru þó ein- staklingar, sem geta náð langt. — Ármann sendi tvö vel fiambæri- leg lið í 2. flokki og B-liðið er sízt lakara en A-liðið, enda sigr- aði það með yfirburðum í leik þeirra liða. KR-liðið hefur minnsta reynslu, en æfing skapar meistarann og ef liðið heldur saman, getur það náð langt. Þriðji flokkur Keppnin í 3. flokki var mjög jöfn og að lokum urðu þrjú lið jöfn og efst, KR, ÍR og Ármann og verða þau að keppa aftur til úrslita, því að hlutföll stiga ráða ekki úrslitum. í öllum þessum liðum eru efnilegir unglingar. Fjórði flokkur Nú var í fyrsta sinn keppt í 4. flokki á Reykjavíkurmóti og kepptu 4 lið, A og B-lið ÍR og KR. A-lið ÍR sigraði með nokkr- um yfirburðum og leikir í þess- um flokki, sem háður var í æf- ingatímum félaganna voru hinir skemmtilegustu. Ingi Þorsteinsson fyrirliði KFR tekur við sigurlaununum. Ingi hefur um árabil verið einn bezti frjálsíþróttamaður lands- ins og nú á síðustu ánum í röð beztu körfuknattleiksmanna. Kvennaflokkarnir íslenzka kvenfólkið stendur karlmönnunum langt að baki í körfuknattleik, enda hafa þær ekki æft íþróttina eins lengi. Eng- ínn vafi er samt á því, að stúlk- urnar geta náð langt í framtíð- inni. Ármannsstúlkurnar sýndu oft góða tækni í úrslitaleiknum gegn KR, sennilega er leikur þeirra það bezta, sem íslenzkt kvennalið hefir sýnt í körfuknatt- leik. Handknattleiksmótið KR nægir jafntefli við Fram til sigurs Óvænfur yfirburðasigur KR yfir IR Lið Armanns sem vann með yfirburðum í kvennaflokki ar efnilegasti körfuknattleiksmað ur. Ingi er mesti keppnismaður liðsins, harðskeyttur og fylginn sér, sennilega bezt þjálfaoi leik- þjálfun, en áttu þó góðan síðari hálfleik gegn KFR. Annar flokkur karla 2. flokki karla sigruðu IR- f FYRRAKVÖLD var að Háloga- landi næst síðasta leikkvöld meistaraflokks karla í Reykja víkurmeistaramótinu í hand- knattleik. Aðalleikur kvöldsins var á milli KR og ÍR og nánast annar aðal úrslitaleikur mótsins. KR vann auðveldan sigur og næg- ir nú jafntefli við Fram á úr- siitakvöldinu tii sigurs í mótinu En vinni Fram þá sigrar Fram í mótinu. KR — ÍR 20:10 Leikur KR og ÍR varð fullu húsi áhorfenda til mikilla von- brigða. Fyrstu 3—4 mínúturnar var um jafnan leik að ræða hraða lyMSÍlÍESiliBEIlliiÍlÍlÍliæiiWlHI Myndskreylingar í bókinni eru eftii listakonuna Toni Patten •••••• PílagrímstÖr og ferðaþœttir eftir ÞorbjÖrgu Árnadóttur Þorbjörg hefir ferðast víða og segir skemmtilega frá því, sem fyrir augun ber. Fyrri hluti bókarinnar segir frá því, sem öðru fremur hefir vakið athygli og hreyft við tilfinningum höfundar í ferða- lögum erlendis, en í seinni hluta bókar. innar lýsir höfundur gönguferðum sínum hérlendis, aðallega í Þingeyjarsýslu, Tólf sérprentaðar myndasíður prýða bókina auk teikninga við hvern kafla. Bókin er 172 bls. — Verð kr. 130.00 Bókaforlag Odds Björnssonar • • • • • V • ••••' (T. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR filffll; ■nnfliiiHiBiani og skothörku. Skiptust liðin á um forystuna unz jafnt stóð 4:4. En þá var eins og ÍR liðið bugað- ist. Það fann ekki leiðina að marki KR. Línumennirnir stóðu staðir og gáfu aldrei færi á sér. Vörn ÍR var á hinn bóginn óþétt og varnarmenn staðir og hindr- uðu KR-ingana sjaldan eða aldrei í því að hlaupa um á línunni eins og þá lysti. Sóknarmenn KR voru hreyfanlegir á línu ÍR- marksins og með hraða og á köfl- um skemmtilegum leik þó án alls glæsibrags náði KR algeru valdi á leiknum. í hálfleik stóð 11:4 en eftir heldur jafnari síðari hálf- leik lyktaði með með 20:10. Á reikning markvarðar ÍR verða sum markanna að skrifast því honum voru mjög mislagðar hendur til varnar í þessum leik. Mörk KR skoruðu Reynir 9, Heinz 5, Karl 4, Pétur Stefáns- son 2. Mörk ÍR skoruðu Gunnlaugur 5, Pétur 3, Hermann 2. Þá Aðrir leikir léku Fram og Ármann. Fram náði snemma tökum á leikn um sem af beggja hálfu var þung lamalega leikinn. í hálfleik stóð 7:4 en leik lyktaði með 17:6 fyrir Fram. Loks léku Þróttur og Valur. — Var það lengst af i fyrri hálfleik mjög jafn leikur og stóð rétt fyrir hálfleikslok 9:8 fyrir Val. En Valur náði síðar algerum tök- um á leiknum og sigraði 24:13. Fyrr um kvöldið fóru fram leikir yngri flokka og voru úrslit þeirra birt á siðunni í gær. Á la’ugardaginn fóru fram leik- ir yngri flokka og fyrsta fiokks. Úrslit urðu: 2. fl. kvenna: Valur — KR 11:0. 2. fl. karla Víkingur — Ár- mann 9:9. 3. fl. karla: Valur — ÍR 5:5 — Ármann — Víkingur 2:11. 2. fl. karla: Ármann — ÍR 8:9. 1. fl. karla: KR — Valur 10:9 — ÍR — Fram 7:6 — Víkingur —• Þróttur (B fl.) 4:7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.