Morgunblaðið - 03.12.1959, Side 9
Fimmtudagur 3. des. 1959
M n n r T’ \ i? r 4 n r f)
9
Rœða Jónasar Haraíz verður met-
in eftir rökum málstaðar hans
\ Harðar umræður á Alþingi i gær !
s um aðalræðuna I. des. [
> í
ÁÐUR en gengið var til dag-
skrár í Sameinuðu þingi í gær,
kvaddi 3. þm. Reykvíkinga, Ein-
ar Olgeirsson, sér hljóðs. —-
Kvaðst hann vilja bera fram fyr-
irspurn til ríkisstjórriarinnar
vegna ræðu þeirrar, er Jónas
Haralz, ráðuneytisstjóri, hefði
flutt í útvarp 1. desember. Vildi
hann fá svör við því, hvort ráðu-
neytisstjórinn hefði flutt ræðu
sína í samráði við ríkisstjórnina
eða án samráðs við hana. Ef hann
hefði flutt ræðuna án samráðs
við ríkisstjórnina, væri um að
ræða embættisafglöp, sem illt
væri að þola, því þá hefði hann
annað hvort verið að tala um
hluti, sem hann ætti að þegja
um, eða verið að tala út í blá-
inn. Væti það mjög óviðkunnan-
legt, er ráðuneytisstjóri talaði
þannig á opinberum vettvangi
um þau mál, sem heyrðu undir
ráðuneyti þeirra, en sök sér hefði
verið, ef ráðuneytisstjórinn hefði
talað um mál-
fræði við há-
skóla eða eitt-
hvað slíkt. Ef
Jónas Haralz
hefði hins vegar
flutt ræðu sína í
samráði við rík-
isstjórnina, væri
það furðulegur
háttur í tilkynn-
ingum til þjóðarinnar að láta
einn ráðuneytisstjórann boða
þar þær ráðstafanir, er ríkis-
stjórnin hyggðist gera.
Vísindagrundvöllur enginn
Einar Olgeirsson kvaðst vilja
mega álíta, að ekki væru nema
tveir möguleikar til. Þriðji
möguleikinn væri e. t. v. hugs-
anlegur, sem sé sá, að Jónas Har-
alz hefði verið látinn flytja
þarna prógrammræðu, sem ein-
hver vísindamaður. Væri svo,
hefði þetta verið mjög slæm ráð-
stofun, því vísindalegan grund-
völl hefði ekki verið að finna í
ræðu Jónasar. Hann hefði lagt
til, að rifið yrði niður allt sem
sjálfstæði Islands byggðist á.
Varaði ræðumaður við að taka
alvarlega ráð beirra sérfræðinga,
er aldrei hefðu séð annað en að
þjóðin væri að steypast fram af
einhverju ímynduðu hengiflugi.
Að hleypa slíkum mönnum að
íslenzkum þjóðarbúskap væri
sama og ef skottulæknir væri
látinn skera upp sjúkling með
ryðguðum hníf, er hlypi svo frá
öllu saman áður en uppskurð-
inum væri lokið. Yrði þá fljótt
úti sú velmegun, er Gylfi Þ.
Gíslason viðskiptamálaráðherra
hefði verið að hæia sér af við
Mikojan á dögunum.
Einar Olgeirsson sagðist að
lokum vilja vara ríkisstjórnina
við því að taka það sem hag-
fræðingar segðu sem vísindi flutt
af lærðum mönnum. Það væri
hægt að greiða læknum fyrir
þeirra sérþekkingu, en á sama
hátt væri ekki hægt að treysta
hagfræðingum.
Ríkisstjórn ræður því ekki
hver talar 1. des.
Bjarni Benediktsson dóms-
málaráðherra varð fyrir svörum
af hálfu ríkisstjórnarinnar og
mælti m. a. á þessa leið:
Ummæli hv. 3. þingmanns
Reykjavíkur Einars Olgeirssonar
gætu að vísu gefið tilefni til al-
mennra umræðna, en eins og mér
skildist á honum sjálfum þá er
nú þegar allmik-
ið orðið af þeim
síðustu daga á
Alþ. og skal ég
því ekki fara út í
þá sálma, heldur
stuðla að því af
minni háífu, að
afgreiðsla mala
geti gengið greið
lega hér í þing-
inu og svara einfaldlega og sem
athugasemdaminnst þeim fsp.,
se mhv. þm. ber fram.
Eins og hv. þm. og raunar al-
þjóð veit, þá hefur það aldrei
tíðkazt, að ríkisstj. fslands, hver
sem hún er, réði því, hver talaði
1. desember af hálfu stúdenta.
Það hefur stundum átt sér stað,
að það hefur verið maður úr
ríkisstjórninni, en pá hefur það
ætíð verið Stúdentaráð Háskóla
íslands — eða eftir atvikum, eins
og mér skilst nú, almennur stúd-
entafundur — sem hefur ákveðið,
hver skyldi tala. Á þessu er eng-
in breyting að þessu sinni frá'
því sem verið hefur. Ég hygg
meira að segja — ég hef lesið það
í því blaði, sem hv. 3. þm. Reyk-
vikinga tekur væntanlega trúar-
legra en flest önnur blöð, Þjóð-
viljanum, -— að gangur þessa
máls hafi verið sá, að fyrst hafi
Stúdentaráð Háskólans beðið
Jónas Haralz um að tala og tala
um efnahagsmálin. Síðan hafi
einhverjum í hópi stúdenta ekki
líkað, hvorki mannvalið né efnið,
sem ræða átti um, og þess vegna
hafi málinu verið skotið til al-
menns stúdentafundar. Á honum
var með mjög verulegum at-
kvæðamun samþykkt að halda
fast við ákvörðun stúdentaráðs.
Það er því ljóst, að það er sami
aðili, eins og vant er, nú meira
að segja með samþykki.almenns
stúdentafundar, sem hefur farið
þess á leit við Jónas Haralz, að
tala á þessum tíma hinn 1. des-
ember og tala um efnahagsvanda-
málið.
Það þarf ekki að taka fram, að
þetta var ekki gert að tilhlutan
ríkisstjórnarinnar, sem ekki var
búið að mynda, þegar þessi á-
kvörðun var tekin né var ræðan
frekar en aðrar slíkar ræður born
ar undir ríkisstjórnina.
Valinn sem vísinda- og
fróöleiksmaður
Um ástæðuna fyrir því, að stúd
entar völdu Jónas Haralz til að
tala, get ég ekki sagt. Það væri
nýtt, ef stúdentar eru svo hollir
við embættismenn ,að þeir velji
menn einungis vegna þess tillits,
að þeir séu ráðuneytisstjórar.
Enn þá nýrra væri, að stúdentar
séu svo stjórnhollir, að þeir velji
fyrir ræðumann talsmann stjórn-
ar, sem ekki er búið að mynda.
Svo að ég hygg, að hv. þm. hafi
komizt næst sannleikanum, þegar
hann nefndi þriðja möguleika
þess í hvaða eiginleika hinn ágæti
ræðumaður hefði talað.
Að hann hafi verið beðinn að
tala sem vísindamaður, sérstakur
fróðleiksmaður um þessi efni.
Nú má vel vera, að hv. þm.
telji, að hinum ungu mönnum
hafi missýnzt í þessu vali, en ef
svo er, þá eru þeir ekki einir
um þá missýningu eða misskiln-
ing, vegna þess að Jónas Haralz
hefur ekki aðeins lokið ágætum
prófum, notið mikils trúnaðar hjá
tilteknum, pólitískum flokki hér
á landi áður fyrri einmitt sakir
afburða hagfræðiþekkingar, unn-
ið hjá alþjóðastofnun úti í heimi
og notið þar meira trausts heldur
en flestir aðrir, er óhætt að segja,
heldur var hann einnig kallaður
hingað til landsins af hinni há-
sælu, nú látnu vinstri stjórn til
þess að vera sérstakur ráðunaut-
ur hennar í efnahagsmálum. Og
þó að okkur Sjálfstæðismönnum
hafi ekki komið saman við vinstri
stjórnina sálugu um margt, þá
höfum við frá upphafi talið, að
þarna hafi verið mjög vel valið.
Þessi maður hefir — ekki aðeins
úti í löndum heldur einnig af
hálfu allra aðila á íslandi, sem
af hans starfsferli hafa haft skipti
—- hlotið alveg óvenjulega viður-
kenningu. Þess vegna er síst óeðli
legt, að hinir ungu menn hafi
beðið hann um að tala sem sér-
staklega færan og fróðan mann
um efnahagsmálin hinn 1. des-
ember.
Það gerir hann svo auðvitað á
sína ábyrgð og það þarf ekki að
taka það fram, sem hv. þm. veit,
að hét á landi gildir málfrelsi.
Hvers og eins er svo að meta,
hvað hann gerir með skoðanir
þessa manns eins og annarra
manna, Það er ekki stjórnarvald-
anna eða Alþ. að segja til um það.
Þessi maður talaði í alþjóðará-
heyrn og það verður alþjóð, sem
að lokum leggur dóm á það, hvers
meta beri þær skoðanir, sem
þarna voru fram settar.
I
I’
Annað að stúdera við háskóla
Einar Olgeirsson talaði aftur.
Kvað hann ánægjulegt að heyra,
að ríkisstjórnin hefði ekki enn
sem komið væri, gengið inn á
skoðanir Jónasar Haralz og sæi
ástæðu til að taka fram, að hann
talaði ekki á hennar ábyrgð. Þá
kvað hann það rétt með farið, að
Jónas Haralz hefði hlotið frama
erlendis, en það væri sitthvað að
stúdera við háskóla og ætla að
fara að gera tilraunir með það
á heilli þjóð, hvort menn hefðu
lært og skilið, þar sem þeir hefðu
verið að nema. Benjamín Eiríks-
son hefði gert þetta árið 1949, en
rikisstjórnir hefðu ekki kallað
hann til ráða síðan. Þá taldi ræðu
maður, að V-stjórnin hefði ekki
hlotið mikla blessun af þeim ráð-
um, er Jónas Haralz hefði gefið
henni.
Benjamin kallaöur enn
Bjarni Benediktsson, dómsmála
ráðherra tók aftur til máls og
mælti m. a. á þessa leið: Það er
aðeins til þess að taka fram eina
eða tvær staðreyndir til viðbótar
en ekki í því skyni að hefja al-
mennar deilur. Fyrst varðandi
Benjamín Eiríksson, þá er það
mikill misskilningur hjá Einari
Olgeirssyni, að það sé sérstök
óvirðingarstaða að vera banka-
stjóri. Ég held að það hafi aldrei
þótt hér á landi. Svo að það er
því nú síður en svo að Benjamín
hafi verið gerður að eins konar
próventukarli með því að vera
settur fyrir þá stofnun, sem hann
var látinn taka við.
Þar að auki er rétt, að það
komi ljóst fram, að eftir því sem
ég veit, þá er Benjamín stöðugt
kallaður til við lausn hinna
vandasömustu mála. Bæði á þeim
stutta tíma sem ég hefi nú verið
í stjórn hefi ég heyrt vitnað til
hans ráðleggingar og ég vissi að
hann var í sendiförum og í ráð-
um fyrir V-sjórnina einn af ráðu-
nautum þeirrar stjórnar sem ég
sat í fyrir árið 1956.
Það er líka algjörlega rangt, að
till. dr. Benjamíns hafi orðið til
þess að seinka þróun hér á
landi um sjö ár, eins og 3. þm.
Reykv. sagði, um leið og hann
talar um hinar miklu framfarir,
sem orðið hafi hér á síðustu 20
árum. Þar liggja þvert á móti fyr
ir ótvíræð og óhnekkjanleg gögn
um það, að framleiðsluaukning
var hlutfallslega meiri á árunum
’52 ’55, meðan ráðleggingar dr.
Benjamíns fengu að njóta sín til
fulls, heldur en eftir að áhrif
verkfallanna miklu frá ’55 komu
til, sem vinstri stjórnin síðan
eyddi megin kröftum sinum til
að ráða við og henni tókst aldrei
til hlítar.
Þetta sést ef skýrslur eru skoð-
aðar. Þetta var rakið nú í kosn-
ingarbaráttunni. Það kom fram
nokkur leiðrétting og bent var á
það að sennilega mundi fram-
leiðsluaukning hafa verið eitt-
hvað meiri nú síðustu árin
heldur en talið hafi verið 1
þessum bráðabirgðaskýrslum, en
það var þó ljóst að á þeim
tímum sem segja mátti að
ráðleggingar dr. Benjamíns væru
í fullu gildi, þá var framleiðslu-
aukningin hlutfallslega meiri
heldur en hún hefur orðið seinna.
þessu ei nauðsynlegt aðmennátti
sig á og fullyrðingar 3. þm. Reyk-
víkinga eru þess vegna gjörsam-
lega rangar, hvíla á algjörum mis
skilning.
Þá þótti Jónas Haralz snjall
hagfræðingur
Ég met nú 3. þm. Reykv. mikils,
tel hann fróðan mann, þó að ég
sé honum ósammála í stjórnmál-
um. Hins vegar get ég nú ekki
talið hann sem æðsta úrskurðar-
vald í hagfræði eða hverjir séu
fremstu hagfræðingar íslands.
Ég veit ekki til þess, að hann
hafi, umfram okkur hina, nokkra
sérstaka hæfileika til þess að
dæma um það. En látum það
vera. En ef hann vill gera sjálfan
sig að hæsta-rétti í þeim efnum
þá verður hann að vera eitthvað
samkvæmari sjálfum sér í full-
yrðingunum og dómunum, heldur
en hann hefur verið. Ég man
ekki hvort það var heldur 1946
eða 1950 sem þessi ágæti þing-
maður hélt því mjög að okkur
borgurunum í Reykjavík, að við
ættum að velja Jónrs Haralz sem
bæjarfulltr., þá gjörsamlega
óreyndan mann, en vegna hans
afburða hagfræðiþekkingar þá
átti að taka hann ungan, nýkom-
inn frá skólaborðinu, af því að
hann hefði aflað sér betri hag-
fræðiþekkingar heldur en flestir
aðrir. Þetta var boðskapur Einars
Olgeirssonar þá gagnvart okkur
Reykvíkingum. Margir létu orð
hins merka manns hafa áhrif á
sig og maðurinn var kosinn í
bæjarstjórn. Síðan starfaði hann
nokkurn tíma þar, starfaði síðan
að margvíslegum málefnum hér
á landi og hefur síðan unnið hjá
alþjóðastofnunum. Það þarf eng-
inn að halda því fram, að sú
reynsla, sem Jónas Haralz hefur
fengið af margvíslegum störfum
innan lands og utan, eftir að hann
var búinn að taka þau ágætu
próf, sem 3. þ.m. Reykv. taldi
nóg til þess að hann yrði kosinn
bæjarfulltrúi Reykjavíkur þá
kornungur, eigi að gera hann
með öllu ófæran. Nú eigum við
ekkert mark að taka á honum,
en við áttum að trúa á hvert orð,
sem hann sagði þegar hann kom
alveg nýsleginn frá prófborðinu.
Mannvænlegur þroski
Það hafa einmitt fáir menn, sem
ég hefi séð, ef svo mætti segja,
þroskast mannvænlegar heldur
en Jónas Haralz og sannað það í
verki að það er allt annað að
gleypa ómeltar einhverjar kenn-
ingar eða læra af lífinu, eins og
þessi ágæti maður bersýnilega hef
Framli. á bls. 19.
Blaðamaður
Morgunblaðið vantar blaðamann nú
þegar. Þarf að hafa a. m. k. stúdents-
menntun. Umsóknir sendist ritstjórn
blaðsins fyrir næstu helgi.
Skipstjóra
vantar á 73 lesta bát á komandi
vertíð. Uppl. hjá:
Landsambandi ísl. útvegsmanna.
Til sölu
27 manna langferðabifreið
í góðu standi með dieselvéi. — Upplýsingar hjá
Jónasi Kjerúlf í síma 15099.
Danskur stofuskápur
og sófaborð (dökk póleruð birki) til sölu með
tækifærisverði. — Upplýsingar í síma 12388.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í Morgunblaðinu á 3 hestum og 40
kindum á Dallandi í Mosfellssveit og fram átti að
fara í dag afturkallast hér með.
Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu.