Morgunblaðið - 09.12.1959, Blaðsíða 1
24 sfður
fHmmimttrifofrifr
46. árgangai
275. tbL — Miðvikudagur 9. desember 1959
Prentsmiðja Morgutiblaðsins
Fárviðrið geisar enn:
Fjöldi skipa í háska
og a.m.k. 13 manns
drukknuðu ■ gær
LONDON, 8. des.
— NTB-Reuter —-
FÁRVIÐRIÐ í Norðvestur-
E^-i- -»i og á höfunum hefur
haldið áfram í nótt og dag, en
talið er, að það hafi nú náð
hámarki. — í kvöld var vitað
um allt að 100 skip, sem voru
í meiri eða minni háska — og
a. m. k. 13 sjómenn hafa far-
izt í dag, en óttazt er um
Mesti ein-
stœðingur-
inn
GAUTABORG í desember.
FYRIR viku var Magnús, en
svo heitir lítill snáði, í bíl-
ferð með fósturforeldrum
sinum — þau ætluðu að
heimsækja ömmu drengsins.
Ferðin endaði í sjúkra-
húsi. Læknirinn hefur vissu-
lega lofað að útskrifa
Magnús af sjúkrahúsinu
bráðlega, en spurningin er
— hvert á hann að fara.
Mamma og pabbi bíða
ekki lengur eftir honum. í
gær voru. þau jarðsungin.
Magnús litli stendur eftir
jafneinsamall og fyrir fjór-
um árum, þegar fráskilin
móðir hans gaf hann frá sér
til góðs fólks, sem hann
síðar kallaði mömmu og
pabba.
Það verður erfitt fyrir
Magnús litla Roos að gleyma
sunnudeginum, sem hann
hafði hlakkað til svo lengi.
Magnús er sá eini, sem sá
allt hið hræðilega, sem
skeði þennan morgun. Jón
frændi hafði komið í bílnum
sínum og sótt þau. Eftir að-
eins 5 kílómetra akstur átti
slysið sér stað.
Á móti þeim kom grænn
sportbíll á mikilli ferð. —
Magnús héyrði pabba og
mömmu reka upp óp áður
en allt varð hljótt aftur.
Enginn svaraði þegar ég
kallaði á mömmu og pabba.
Þau lágu grafkyrr bæði, og
í hinum bílnum var allt
hljótt líka.
Magnús stóð einsamall,
klemmdur í baksæti bílsins
hans Jóns frænda, þegar
fólk kom á slysstaðinn. All-
ir hinir 1 báðum bílunum
höfðu beðið bana — allt var
svo hljótt.
Slysið varð 6 manns að
bana. í dag finnst Magnúsi
hann vera heimsins mesti
einstæðingur.
— G. Þór Pálsson.
fleiri. — Mikil snjókoma hef-
ur fylgt storminum á Norður-
löndum og um mikinn hluta
Evrópu frá Atlantshafi austur
til Rússlands. Hafa stormur-
inn og snjókoman víða valdið
miklum samgöngutöfum og
margs konar erfiðleikum, og
víða hefur frézt um tjón á
mannvirkjum af völdum óveð
ursins.
• 13 í hafið
Snemma dags fórst brezka
björgunarskipið Mona nálægt
Dundee í Skotlandi og með því
áhöfnin öll — 8 manns. — Bátur-
inn hafði farið til aðstoðar vita-
skipi, sem orðið hafði fyxir áfalli
við Tay-fjörð — en hann rak í
land fyrir stormi og stórsjóum og
brotnaði. Engri björgun varð við
komið. Lík allra mannanna nema
eins höfðu fundizt í kvöld. — 1
dag fórst einnig pólskur fiskibát-
ur með fimm mönnum í Eystra-
salti, alveg uppi í landsteinum.
Lítið brezkt skip sökk síðdegis
við austurströnd Englands, en
áhöfnin hafði þá þegar yfirgefið
það, og náði hún landi. — Þá
strandaði finnska skipið Anna
við austurströnd Skotlands. —
Bjarglínu var skotið út í skipið
og 16 af áhöfninni dregnir til
lands, en skipstjórinn og fyrsti
stýrimaður eru enn um borð. —
Óvíst þykir, hvort skipinu verð-
Rússar vilja
fleiri ferðamenn
London, 8. des. (Reuter). —
RÚSSNESKA fréttastofan Tass
sagði frá því í dag, að Sovétríkin
hefðu hug á að auka ferðamanna-
strauminn til landsins á næsta
ári. Munu erlendir ferðamenn þá
geta valið um 50 mismnandi leið
ir um landið, þar á meðal til
Mið-Asíu.
Vladimir Ankudinov, forseti
„Intourist", stofnunar þeirrar er
skipuleggur heimsóknir erlendra
ferðamanna, sagði í viðtali við
fréttastofuna, að sl. ár hefðu
komið 530 þúsund ferðamenn til
Sovétríkjanna frá 90 löndum.
Taldi hann, að þessi tala yrði
hærri í ár og enn mundi ferða-
mönnum fjölga á næsta ári. —
„Við teljum, að gagnkvæmar
heimsóknir ferðamanna sé ein
áhrifaríkasta leiðin til að minnka
bilið milli ólíkra þjóða“, sagði
hann.
ur bjargað, en mennirnir tveir
eru ekki taldir í yfirvofandi
hættu. — Stórskipið Queen Eliza-
beth hefur skemmzt talsvert í of-
veðrinu, og nokkrir af farþegun-
Framh. á bls. 23.
„Byssur og smjör
hvorttveggja þurfum við að fram-
/e/ða, sagði Nehru
44
NÝJU-DELHI, 8. des. Reuter: —
Nehrú, forsætisráðherra Indlands
sagði á fundi í efri deild þings-
ins í dag, að landamæradeilan við
Kína væri ekkert stundarfyrir-
brigði — hún yrði að öllum Iík-
indum langvinn.
Því yrðu Indverjar að leggja
áherzlu á þungaiðnaðinn sagði
hann,— þeir yrðu að framleiða
„bæði byssur og smjör". — Hann
sagði, að hér væri mikið og erf-
itt verk fyrir höndum og mætti
segja, að þar ættu við hin fleygu
orð Sir Winstons Churchills frá
Framh. á bls. 23.
Heimurinn verður að
treysta á samninga-
borðið
KARACHI, Pakistan, 8. des.
(Reuter). —Forsetarnir Eisen-
hower og Ayub Khan héldu í
fram viðræðum sínum í dag, en
Allsherjarþingið rœðir
Ungverjalandsmálið
NEW YORK, 8. des________Allsherj-
arþing Sameinuðu þjóðanna hóf
í dag umræður um Ungverja-
landsmálið. — Sir Leslie Munro,
sérlegur fulltrúi S. Þ. í þessu
máli, sagði m. a. er hann kynnti
skýrslu þá er hann hefir lagt
fram um það, að ekki mætti
stinga Ungverjalandsmálinu und
ir stól. — Henry Cabot Lodge,
fulltrúi Bandaríkjanna tók fyrst-
ur til máls og sagði m. a., að
þótt nokkur árangur hefði náðst
Framh. á bls. 23
að þeim loknum var gefin út
sameiginleg yfirlýsing um við-
ræðurnar. — Segir þar, að í sam-
ræðum sinum um heimsmálin
hafi þeir fyrst og fremst fjallað
um afstöðuna og sambandið milli
hins frjálsa heims og kommún-
istaríkjanna. Voru þeir sammála
um, að þörf væri víðtækara sam-
starfs með frjálsum þjóðum, ekki
sízt á sviði efnahagsuppbygging-
ar.
í tilkynningu er sagt, að þeir
hafi rætt vandamál í sambúð
landanna á umræddu svæði og
nauðsyn þess að leysa þau og ver-
ið sammála um mikilvægi banda-
laganna CENTO (áður Bagdað-
bandalagið) og SEATO (Suð-
Framh. á bls. 2.
S farið fram f jöldagreftranir í (
S franska bænum Frejus, þar S
• sem 300—400 manns létu lífið |
(i hinu ægilega flóði á dögun- \
S um. — Myndin er frá þessari i
■ borg sorgarinnar. Ung stúlka)
( reynir að hughreysta konu, >
s sem hnigið hefir örvílnuð S
| fram á kistu mannsins síns. •
( Sól skein í heiði yfir rústir (
S Frejus í gær, og er nú ekki S
| talin bráð hætta á frekari •
$ flóðum þar.
JHargmtÞIaftifr
Miðvikudagur 9. desember
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Ættirnar frá aldamótum erfið-
astar.
— 6: 50 ára afmæli Grindavíkur-
kirkju.
— 8: Leggjum grundvöll að traustn
atvinnulífi. (Ræða Ingólfs
Jónssonar).
— 12: Forystugreinin: Verður dæmd
eftir verkum sínum.
Utan úr heimi.
— 13: Þjóðin vill sterka stjórn.
(Ræða Ólafs Thors forsætis«
ráðherra).
— 14: Bókmenntaþáttur
— 15—16: Barnalesbók.
— 22: íþróttir.