Morgunblaðið - 09.12.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.12.1959, Blaðsíða 17
Miðvilíudagur 9. des. 1959 MORGUlSTtJ.AÐIÐ 17 Gísli Sæmundsson frá Ögri Fædtliur 16. marz 1889 Dáinn 1. desember 1959 í DAG kveðjum við hinztu kveðju mætan mann, Gísla Sæ- mundsson frá Ögri við ísafjarðar- djúp. Það kom mjög við hina fjölmörgu vini hans, er kunnugt varð, að hann hefði dáið af slysi við starf sitt á Reykjavíkurflug- velli. Haos sæti mun vart skipað verða í hugum þeirra, er kynnt- ust honum og nutu vináttu hans. Gísli fæddist í Hörgshlíð við hinn lognblíða og skógivaxna Mjóafjörð við Djúp. Foreldrar hans voru María Jónsdóttir frá Galtahrygg og Sæmundur Gísla- son, Sæmundssonar prests Þor- steinssonar í Garpsdal. Þegar Gísli var 10 ára, dó faðir hans frá 9 börnum, og hlaut móðir hans að hætta búskap 5 árum síðar. Um fermingaraldur varð Gísli að fara að sjá um sig sjálfur. Það var gæfa hans að ráðast þá í Ögur, hið forna höfuðból, sem á þeim tíma var í fremstu röð ís- lenzkra bændabýla. Þar dvaldi jafnan margt fólk á búinu, en auk þess var mikil útgerð frá Ögurnesi og síðar Ögurvík. Þá lágu samgönguleiðir um Ögur, á sjó til ísafjarðar og á hestum inn um Djúp. Þangað kom marg ur góður gestur, sem gagnlegt var að kynnast. Þar dvöldu og læknar héraðsins um allmörg ár. Það var þroskavænlegur skóli ungum sveini að dvelja á þessum stað. í Ögri ílentist svo Gísli, því að Þuríður húsfreyja vildi ógjarna sjá á bak svo góðum starfsmanni. Hann fór í Hólaskóla og tók síðar við ráðsmannsstörfum á Ögur- búinu. Þeim störfum gengdi hann síðan meðan dætur Þuríðar og Jakobs, Halldóra (d. 1930) og Ragnhildur, ráku þar bú. Árið 1938 kvæntist Gísli eftir- lifandi konu sinni Ragnheiði Ól- afsdóttur frá Þóreyjarnúpi í Húnavatnssýslu, hinni ágætustu konu, sem reyndist honum góður lífsförunautur og bjó honum indælt og aðlaðandi heimili. Þau voru mjög samhent með frábæra gestrisni og höfðingsskap. Þau eignuðust ekki börn, en ólu upp frænku Ragnheiðar, Nínu Björk. Eftir að Gísli fór frá Ögri, bjó hann nokkur ár á Garðsstöðum, næsta bæ við Ögur, en árið 1946 fluttu þau hjónin hingað til Reykjavíkur. Stuttu eftir að Gísli fluttist hingað réðist hann verk- stjóri á Reykjavíkurflugvöll og vann þar til hinztu stundar. Gísli heitinn var prýðilega greindur maður, skýr í hugsun, rökvís og skemmtilegur í ræðu. Það var því að vonum, að hann var mjög eftirsóttur til allra fél- agsstarfa, bæði vestur við Djúp og hér í Reykjavík, þött hann væri í eðli sínu hlédrægur, þá lá hann aldrei á liði sínu, er til hans var leitað í þeim efnum. Mér er þó nær að halda, að betur hafi hann unað sér í ungmenna- félaginu en hreppsnefndinni, þótt jafn prýðilega skipaði hann sæti sitt í báðum. Hann var alla ævi gleðinnar maður og naut sín hvað bezt í æskuglöðum hóp. Aðlaðandi viðmót hans, hlýja og mildi gerði hann vinsælan af öllum. Hann var ófús að ræða neikvætt um menn og málefni. Allar hans til- lögur voru jákvæðar, sættandi og bætandi. Hann hafði ákveðn- ar skoðanir á málefnum, en var óvenjulega nærfærinn og tillits- samur, við annarra álit og naut þess að hlýða á það og rökræða það. Eitt var það, sem setti mjög svip á Gísla Sæmundsson, hans skemmtilega hagmælska. Hún var arfur frá báðum foreldrum hans. Marga góða stökuna gerði hann við ýmis tækifæri, en bezt var hann til þess búinn á hest- baki í góðum vina hópi. Hann sagðist eiga erfiðara með að gera góða vísu í bifreið. Margir munu eiga ljúfar minningar um Gísla í sambandi við ferðalög á hest- um vestur við Djúp. Það er ein af mínum fyrstu bernskuminn- reið í Mjóafjörð. Man ég þó Gísla bezt af öllum. Hann laðaði alltaf börnin að sér, það er einkenni góðra manna. Þegar Gísli var seztur að í KL. 2 e.h. í gær var opnuð n^ bréfhirðing við Langholtsveg 62 í Reykjavík. Veitir hún póstþjón ustu í umdæmi, sem takmarkast af Elliðaárvogi-Suðurlandsbraut norðan megin og Hjallavegi-Laug rásvegi-Brúnavegi-Kleifavegi til til sjávar. Fulltrúi póstmeistara á staðnum er Reynir Ármanns- son. Samtimis verður lögð niður bréfhirðing í Útibúi Landsbank- ans við Langholtsveg. Nýja bréfhirðingin verður opin alla virka daga kl. 9—12 og 14—17. Þar verður veitj viðtaka almennum bréfum, bréfspjöldum og prenti til innlendra og útlendra Reykjavík beitti hann sér mjög fyrir því, að Djúpmenn, búsett- ir hér, héldu hópinn og var einn aðalhvatamaður þess, að þeir stofnuðu Félag Djúpmanna fyrir tæpum 6 árum. Hann var í stjórn þess þar til á aðalfundi, sem haldinn var þrem dögum fyrir dauða hans. Óskaði hann þá mjög eindregið að fá hvíld frá stjórnarstörfum. Það þótti öllum miður að missa hann úr stjórn- inni, en þóttust þá fullvissir þess, að hann myndi eiga eftir að vinna félaginu mikið gagn sem áður. Þótt hann hafi nú horfið úr okkar hóp og skarð hans verði þar vandfyllt, þá vona ég, að hans góði andi ríki í félaginu um alla framtíð. Það var hans óska- barn, og alltaf mætti hann á sam komum þess, stundum vinnubú- inn, og ávallt hrókur alls fagnað- ar. Ánægjulegar voru ferðirnar með honum vestur að Djúpi eins og allar aðrar stundir í návist hans. Sár harmur er kveðinn að öll- um vinum Gísla við hina snöggu burtför hans, en sárastur þó að eiginkonu hans, fósturdóttur og frændfólki. Ég votta þeim inni- lega samhryggð og þakka hon- um allar samverustundirnar. Helgi Þórarinsson. stöðva, skrásettar póstsendingar til erlendra og innlendra stöðva, tekið við sendingum með árituðu verði, póstkröfusendingum og póstávísunum, almennum böggl- um og bögglum með árituðu verði til innlendra stöðva. Þar verður einnig annast um sölu orlofs- merkja og afhending tilheyrandi bóka. Frá bréfhirðingunni verður borinn út póstur innan umdæmis- ins, og móttakendum í hverfinu tilkynnt um allar skrásettar bréfapóstsendingar, verðsending- ar póstkröfusendingar, póstávís- anir og böggla, sem látið verður ganga í gegnum bréfhirðinguna. 1. matsvein vantar á togara. Upplýsingar í síma 18521. Einkaritari Stúlka eða kona sem getur starfað sjálfstætt að enskum bréfaskriftum óskast til starfa hjá stóru einkafyrirtæki hér í bæ. Þær sem hafa áhuga á starf- inu leggi nafn, heimilisfang og síma á afgreiðslu blaðsins merkt: „Einkaritari — 4372“. Góð 3ja til 4ra herb. íbuð óskast til kaups, helzt á hitaveitusvæði. Greiðist í nýlegum fólksbifreiðum og peningum. VÖRU og BIFREIÐASAUAN Snorrabraut 36 — Sími 23865. Leigutilboð í Stúdentagarðanna til gistihúsreksturs næsta sumar skulu komin í hendur Garðsstjórnar fyrir áramót. Stjórn Stúdentagarðanna. Ný bréfhirðing í Laugarneshverfinu Þjóðdansafélag Reykjavíkui hefur dansleik í Skátaheimilinu í kvöld kl. 9. Riba leikur, einnig verða einhver skemmtiatriði. Allir velkomnir. Þjóðdansafélag Reykjavíkur. 2ja 3ja og 4ra herb. íbúðir Höfum tii sölu í Vesturbænum 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir, sem seljast í smíðum eða fullgerðar eftir vali kaupanda. MÁLFLUTNINGS- og fasteignastofa Sigurður Reynir Pétursson, hrl. Agnar Gústafsson, hdl. Björn Pétursson: fasteignaviðskipti Austurstræti 14, H. hæð. Símar 2-28-70 og 1-94-78 Chevrolet 1955 Keyrður aðeins 48 þús. km. til sölu. Bíllinnn hefur alltaf verið í einkaeign. Tiboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Staðgreiðsla—4222“, fyrir hádegi á laugard. Trétex og harðtex H. Benedikfsson hf. — Sími 11228 — Remington rakvelar Rakarastofa Kjartans Ólafssonar Austurstræti 20, hefur nú aftur fengið hinar ágætu, hraðvirku Remington raf- magnsrakvélar „þriggjablaða“. Ódýrari en áður. Prýðileg jólagjöf. Rakarastofan vill ennfremur vinsamlegast minna hina góðu viðskiptavini sína á, að vera í góðum tíma með jólaklippinguna. IMýkomnar Mohair húfur í mörgum litum Ullarvettlingar á börn og fullorðna Skinnhanzkar Einnig mjög faliegir liálsklútar Verzlunin Jerany Skólavörðustíg 13A. Pillsbury’s er merki vandlótra husmæðra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.