Morgunblaðið - 09.12.1959, Side 15

Morgunblaðið - 09.12.1959, Side 15
Miðvikudaerur 9. ðes. 1959 MÖRCTJWPT.AÐIQ 15 Þjóðsagnabók Asgríms ÞJÓÐSAGNAMYNDIR og ís- lenzkar þjóðsögur. — Einar Ólafur Sveinsson ritaði inn- gang og sá um útgáfuna. — Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Reykjavík 1959. ISLENZKAR bókmenntir voru löngum fáskrúðugar af mynd- skreytingum. I seinni tíð hefur það þó færzt í vöxt að myndlist- in seti sinn svip á bækurnar. Þjóðsögur og ævintýri hafa orðið annarra þjóða listamönn- um efni í margs konar listaverk, og komið hafa út myndskreyttar þjóðsagnabækur. En í því efni höfum við orðið útundan, því að fáir listamenn okkar hafa notað sér af þeim auði til list- rænnar myndsköpunar, að und- anteknum Ásgrími Jónssyni, sem hafði allt frá fyrstu námsárun- um í Kaupmannahöfn, málað og teiknað mikinn fjölda slíkra mynda, eins og glögglega sást á síðustu yfirlitssýningunni á verk- um hans. Þar gaf að líta bæði stór og smá olíumálverk, penna- og blýantsteikningar og vatns- litamyndir úr heimi þjóðsagna og ævintýra. Og nú hefur verið valið úr þjóðsagnasafni Ásgríms til prentunar 50 myndir, þar af 10 prentaðar í litum, ásamt 30 þjóðsögum úr safni Jóns Árna- sonar. Óhætt er að segja, að allur frá- gangur Þjóðsagnabókar Ásgríms er með afbrigðum góður, og verður ekki annað séð, en að hin- ar vandasömu litprentanir séu furðu líkar fyrirmyndunum. En myndamót öll eru gerð í Prent- mótum h.f. Bókin er sett og prentuð í Odda h.f. og Sveina- bókabandið h.f. annast bók- bandið. Ásgrímur Jónsson hefur af mikilli nærfærni og elju lifað sig inn í furðuheima þjóðsagn- anna. — Aðalverkefni hans á langri ævi voru landslagsmyndir í öllum þeim breytileik láðs og lagar, og þeirra unaðsemda ljóss og skugga bjartra sumardaga, og sýna þjóðsagnamyndir hans, að hann gat trauðla hugsað sér verur og viðburði nema í ís- lenzku landslagi. 1 teikningunum má greinilega sjá veðra- og ljós- brigðin, sem einkenna svo mjög landslagsmyndir Ásgríms. í hinu afbarða greinargóða yfirliti prófessors Einars Ól. Sveinssonar, sem hann ritar um þjóðsögurnar og Ásgrím segir hann meðal annars: ....Það er alkunna að Ás- grímur málaði fyrr á árum oft með mildum litum; er þá yfir mörgum gömlu myndunum hans eins konar þróttur og ró, alvara og kyrrð. Þessu gætir lika í göml- um þjóðsagnamyndum, bæði mál- verkum og teikningum; í mál- verkunum dekkir hann þá oft litina til að fá drauga- og huldu- blæ á myndirnar. Síðar fer hann að mála með sterkari litum, þrótt urinn verður auðsærri og mynd- irnar magnaðri og margoft gædd- ar meiri hreyfingu, unz síðustu myndirnar braga í glóandi lita- dýrð, stundum með miklum ókyrrleika og flugi. Sama þró- unarferil má rekja í málverkum úr þjóðsögum. í endurminning- um sínum segir Ásgrímur ,að hann hafi snemma, eða á öðr- um tug aldarinnar, tekið að mála þjóðsagnamyndir sterkum litum; þetta færist mjög í aukana síð- ar, og listamanninum eykst ör- yggi í að tjá það sem honum býr í brjósti. Hliðstæð þróun á sér stað í teikningunum“.----„Ás- grímur tók aftur og aftur sömu efnin til meðferðar, og sýnir það, hve hugstæðar þjóðsögurn- ar voru honum. Skemmtilegt er að bera saman þjóðsagnamyndir, sem hann hefur gert á ýmsum tímum. Þar gætir stöðugrar til- breytni í aðferð og tækni. Jafn- vel í myndun frá síðari áratug- um, þar sem sama sagan, stund- um sama atvikið, er tekið til meðferðar, sér Ásgrímur efnið frá nýjum og nýjum hliðum. Gaman er að athuga „Nátt- tröllið“ þar sem listamaðurinn gerir í upphafi mynd, sem er undirstaða allra hinna, og allar lúta að svipuðu skeiði sögunnar, rétt um það bil, þegar dagur er að koma á loft. Elzta gerðin er olíumálverk frá 1905. Niðurskip- un er ákaflega skýr. Vinstra meg- in neðan til situr stúlkan á rekkju Það er Gissur í Botnunu sinni, hægrá megin að ofan er tröllið á glugganum, og bak við það er dökkblágrár himinn með nokkurri glætu. Gluggakistan er umgerð um tröllið, en fjöl yfir rúminu og stoð um stúlkuna, og er þetta skýrt. Á svipaðan hátt er andlit tröllsins mikið til skýrt, og slær á óljósan grábleikan lit. Yfir allri myndinni er mikil ógn“. Og enn segir prófessor Einar Ól. Sveinsson: „....Auðsætt er að Ásgrímur hefur sótzt eftir hinum veiga- miklu og hrikalegu efnum. Mjög mikið hefur han fengizt við æv- intýri ,og er þetta þar allra auð- sæjast. Þar er innan um grúi efna, sem draga mætti listamenn til ljóðrænnar meðferðar; sjálf- sagt kveður meira að hinum stórbrotnu og magnþrungnu efn- um, og til þeirra leitar Ásgrím- ur. Nefna má, hve oft hann gerir myndir af tröllum, geysistórum, villtum og afskræmilegum, og hjá þeim sjást mennirnir svo undurlitlir og varnarlausir móti þessu ofurefli. Einkum vil ég benda á hvítu konuna, sem aft- ur og aftur stendur andspænis trylltum óvættinum. Næst ævintýramyndunum að fjölda er sá flokkur, þar sem Ásgrímur tekur til meðferðar tröllasögur þær, sem gerast á ís- landi. Þær eru auðvitað alveg nátengdar íslenzku landslagi.... í tröllasögunum rekumst við aft- Framh. á bls. 22. 2 LESBÓK BARNANNA Njálsbrenna og hefnd Kára 75. Hallur af Síðu off Kolur, lonur hans, og þeir sex sam- an riðu nú í IfoU. Þorgeir var úti og svo Kári •C menn þeirra, því að þeir fceundu ferð Halls. En er þeir riðu í túnið, gekk Þorgeir fi móti honum og tók hann af baki, og minntust þeir Kári háðir vil hann »c leiddu hann fi stofu inn og settu hann á pall í hásæti og spurðu hann margra tíðinda. Var hann þar um nóttiiuu • 76. Um morguni nn eftir vakti Hallur til máls við Þor- geir ura sættina. Þorgeir svarar: „Kunnugt má þér það vera# að ég vildi engum sættum taka vll brennumenn". „Allt var það annað^, seshr Hallur, „þér voruð þá víg- reiðir. Hafið þér nú og mikið að gert um manndráp síðan*". Kári mælti þá: „Þess vil ég biðja þig, Þorgeir, að þú sætt- ist, þvi að þinn hlutur mi ekki verða betri en góður“. 77. „Uit þjkir mér að ssett- ast og skiljast við þig, nema þú takir slíka sætt, sem ég tek“, segir Þorgeir. „Eigi vil eg það‘% segir Kári að sættast, en þó kalla ég nú að við höfum hefnt brenn- eg vera óhefnt, og ætla eg mér það einum, slíkt sem eg fæ að gert“. En Þorgeir vildi eigi fyrr sættast en Kári sagði á ósótt sína, ef hann sættist eigi. með hinni mestu sæmd og létti eigi fyrr en hann koin til Svánafells. Hallur sagði Flosa allt frá erindum sánum og svo það, að Þorgeir vildi eigi fyrr s*tt- ast, en Kári sagði á ósátt síua, ef hann sættist eigi. 3. árg. ★ Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson ^ 9. des. 1959 Tunglflaugín í jólafríinu hefur þú ágætan tíma til að útbúa tunglflaug. Bolur flaugarinnar er gerður úr þunnu kartoni. Hliðarnar A og B eru límdar saman, þó þannig, að stélstýrin fjögur eru ekki límd, heldur beygð út til hliðanna. Rauf er klippt upp í aftari end- ann. Tvinnakefli er notað I skotpallinn. Tvö göt erw boruð í brúnirnar eins og It U.tl.r rei« uá í br.ut

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.