Morgunblaðið - 09.12.1959, Blaðsíða 22
22
MORCTll\nT,AÐlÐ
Miðvikudagur 9. des. 1956
Danirnir „sprungu"
af þreytu og mæði
— en náðu 1:2 gegn Búlgariu
„Landsliðin" leika
við ^blaðaliðin' í kvöld
DANSKA landsliðið í knatt-
spyrnu er nú komið til Hafn-
ar eftir landsleikjaförina til
Balkanskagans. Eins og áður
hefur verið frá skýrt sigrruðu
Danir Grikki með 3 mörkum
gegn einu. Síðan héldu þeir til
Sofia í Búlgaríu og léku þar
landsleik. Búlgaríumenn sigr-
uðu með 2 mörkum gegn einu.
voru þó taldir bezt þjálfuðu
menn danska liðsins, þeir Flemm
ing Nielsen og Henning Enoksen.
Þó Búlgaríumenn gerðu hveil
upphlaupið af öðru að markí i
Dana, urðu Danir fyrri til að
skora. Það var Henning Enoksen
sem stormaði að markinu og
sendi knöttinn fallega í netið
en með Guðs hjálp tókst þeim
að „halda hreinu“ það sem eftir
var. En fólkið var farið að hrópa
hæðnisorðum að búlgörsku leik-
mönnunum og hrópaði. „Við vilj-
um mörk, ekki sýningu".
Varnarleik Dana er mjög hrós-
að og þá einkum leik Froms í
markinu, leik Hans Chr. Nielsen
miðvarðar og framvarðanna
beggja. Flemming Nielsen og
Bent Hansen. Sóknarleikur var
ekki skipulagður sem slíkur en
„stormáhlaup“ átti að gera og
þau voru gerð samkvæmt áætl-
un, segja dönsku blöðin.
í KVÖLD fara fram að Háloga-
landi leikir „landsliða" í karla-
og kvennaflokki í handknattleik.
Liðin hafa öll verið valin og eftir
líkum að dæma má ætla að lei!k-
irnir verði jafnir og skemmtileg-
ir.
Landáliðsnefnd HSÍ hefur í
karlaflokki valið allmarga Hafn
firðinga, sem verið hafa fastir
menn í landsliðinu undanfarin
ár. Keppa þeir nú í fyrsta sinn
hér í Reykjavík á þessum vetri,
en sagt er að þeir séu í mjög
góðri þjálfun. Landsliðið í karla-
flokki er undir stjórn Hallsteins
Hinrikssonar en Axel Sigurðsson
stjórnar „blaðaliðinu“ utan vall-
ar.
Löngum hefur verið jafn leik-
ur í karlaflokki milli „landsliðs“
og „blaðaliðs" og hinir síðar-
töldu oft unnið. í kvennaflokki
er keppnin venjulega ójafnari,
þar sem breiddin þar er minni,
en það bil hefur minnkað á síð-
ari árum og verður fróðlegt að
sjá hvernig málin standa nú.
— Þjóðsagnabók
Asgrims
„Viff sigruffum“ segja Danir
Búlgaríumenn eiga á að skipa
einu sterkasta knattspyrnuliði
Evrópu í dag. Danir voru því hálf
hræddir fyrir fram við að fá
„burst". En þeim mun meiri
er gleði þeirra eftir leikinn — og
satt bezt að segja svífa þeir í loft-
inu af monti yfir úrslitum leiks-
ins, ef dæma má blaðafrásagnir.
Blaðamennirnir sem voru
margir með í förinni leggja þó
enga dul á að eftir samleik og
tækifærum hefði sigur Bulgara
getað orðið miklu stærri. En skot
hæfni Búlgariumanna var ábóta
vant og baráttuvilji Dananna var
slíkur að þeirra sögn, að engin
dæmi eru til slíks áður. Fyrir
þennan baráttuvilja fengu þeir
lof hjá 50 þúsundum áhorfenda
og unnu sér það álit í Búlgaríu
að þeim hefur verið boðið til
gagnkvæmra landsieikja árið
1961. Forystuménn danskrar
knattspyrnu telja og að úrslit
þessa leiks geri það að verkum
að Danir standi betur að vígi er
að þvi kemur að raða (það er
hætt við að draga eins og ákveð-
ið hafði verið) í riðla úrslita-
keppni Olympíuleikanna. For-
ystumennirnir telja að þessi leik
ur skipi Dönum í flokk „sterku“
liðanna í úrslitakeppninni í
stað þess að þeir hefðu áður ver-
ið taldir í hópi hinna veikari.
Baráttuvilji Dana
Svo hart lögðu dönsku lands-
liðsmennirnir að sér við hlaup á
milli búlgörsku leikmannanna,
sem sýndu góðan samleik, falleg-
ar leikfléttur og virkan leik, að
tveir þeirra skriðu út af vellin-
um, annar með sinadrátt, hinn
með magakrampa. Menn þessir
meðfram stöng. Níu mín. síðar
jöfnuðu Búlgarar og um miðjan
síðari hálfleik skoruðu þeir sig-
urmarkið.
og fólkið hlær
Sl. sunnudag keppti Guffmundur Gíslason á sundmóti í Hafnar-
firffi, sem ÍR og SH stóffu aff. Setti Guðmundur þá íslenzkt met
i 400 m baksundi á 5:26.4 mín., en gamla metið hans var 5:39.8
mín. Þetta er 10. íslandsmet Guffmundar á þessu ári. Er þaff
þriðja árið í röff sem Guðmundur setur 10 met á ári og vinnur
til gullmerkis ÍSÍ fyrir. Er það frábært afrek og einstætt í
íþróttasögu fslands. —
ÍÞRÓTTAMENN gera sig oft
hlægilega út á við fyrir rex sitt
og pex, kærumál og gagnkærur.
Ein „furðukæran" liggur nú fyr-
ir einum hinna mörgu dómstóla
íþróttahreyfingarinnar, en það
er sú kæra er fram er komin
vegna úrslitaleiks í 2. flokki karla
á nýloknu Reykjavíkurmóti í
handknattleik.
★
Úrslitaleikinn léku ÍR og
Þróttur og sigraði ÍR með 10—8
eftir tvíframlengdan leik. Þeim
úrslitum vildi Þróttur ekki una
og kærði — vegna þess að einn
liðsmaður þeirra hafði farið heim
áður en leikur hófst vegna þess
að honum var tjáð á Hálogalandi,
er leikurinn fór fram, að leikn-
um yrði frestað. Leikurinn var þó
skráður í leikjabók HKRR sem
lítið eða ekkert hefur verið vikið
frá.
★
Flestum finnst kæran furðuleg,
þar sem hún er ekki gegn nein-
um liðsmanna ÍR, mótherja Þrótt
ar þetta kvöld. Og gárungarnir
spyrja í gamni, þegar uppskátt
varð að HKRR hafði ekki vísað
kærunni þegar frá, kvað HKRR
mundi hafa gert, ef ÍR-liðið hefði
kært (hefði það tapað leiknum)
og byggt kæruna á sama grunni
og Þróttur — að einn Þróttarinn
sem átti að vera í liðinu, hafi
farið heim áður en leikur hófst!!
Það er von að hlegið sé að
dómstólum íþróttahreyfingarinn-
ar, þegar þeir eyða orku sinni í
svona mál.
Framh. af bls. 15.
ur og aftur á minni, sem auð-
sjáanlega á sér djúpar rætur í
þessum sögum og í huga As-
gríms, flóttann undan tröllunum.
Okkur kemur í hug flóttinn und-
an eldgosinu á öðrum myndum
.... Stundum kemur líka fram
í þessum myndum seiður trölla-
heimsins, magnaður og ferleg-
ur, sem dregur manninn til sín.
.... Einkennileg er myndin
„Margt býr í þokunni". 1 raun-
inni er þar að ræða um álfa-
eða draugasögu, en listamaður-
inn hefur ekki munað þá stund-
ina, sem hann gerði myndina,
annað en upphaf vísunnar, og
koma þá hjá honum út úr þok-
unni ferlegir tröllahausar".
Það væri freistandi að draga
fram fleira af því sem Einar Ól.
Sveinsson segir um Ásgrím og
þjóðsagnamyndir hans.
Útgáfa þessara fögru þjóð-
sagnamynda Ásgríms eru góð tíð-
indi, og ættu að víkka og dýpka
enn betur mynd, eins af beztu
listamönnum þjóðaxinnar. Hér
er einmitt dregin fram sú hlið
í list Ásgríms ,sem fáum er kunn
til hlýtar, og munu vera til í
safni hans teikningar frá ýms-
um tímabilum ævi hans. Væri
mikill fengur að ýmsar þeirra
yrðu prentaðar í bókarformi, og
má vera, að þessi einstæða fagra
bók, sem nú er útkomin, ýti undir
þá hugmynd.
Jón Þorleifsson.
Kvikmyndasýning
með Krúsjeff og
Eisenhower
ÍSLENZK-AMERÍSKA félagið
4».....
€»•••••
Þrjár nýjar bókaforlagsbækur
PílagrímsfÖr
og íerðaþættir
eftir
Þorbjörgu Árnadóttur.
Þorbjörg hefur ferðazt víða og
segir skemmtilega frá því, sem
fyrir augun ber. Tólf sérprent-
iðar myndasíður prýða bókina
auk þess sem listakonan Toni
Patten teiknar vignettur við
avern kafla. Bókin skiptist í 20
rafla.
172 bls. Verð kr. 130.00.
Systir
læknisins
eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttus.
Hér er íslenzk ástarsaga, sem
gerist í sveit og í sjávarporpi,
eftir hinn vinsæla framhalds-
söguhöfund tímaritsins HEIMA
ER BEZT. Þessi saga er líkleg
til að ná miklum vinsældum.
137 bls. Verð kr. 68,00.
Fóm
snillingsins
eftir
Dr. A. J. Gronin.
Þetta er ein af nýjustu skáld-
sögum hins heimskunna læknis
og rithöfundar. Þróttmikil og
hrífandi saga um ást og listir.
Bó.kin er talin með skemmtileg-
ustu skáldsögum höfundar.
294 bls. Verð kr. 140,00.
i “
ILlilliiiE
Bókaforlag Odds Björnssonar
iaiiHiiiiiiiaiiiíiiiiBiiiiiiiiiii
hafði kvikmyndasýningu í Gamla
Bíó sl. laugardag, kl. 3 síðdegis.
Sýndar voru þrjár kvikmyndir,
för Nixons til Sovétríkjanna og
Póllands, ferð Eisenhowers til
Evrópu í september sl. og ferða-
lag Krústjovs um Bandaríkin.
Þar eð aðsókn að sýningu þessari
var svo mikil, að fjöldi manns
varð frá að hverfa, hefur félagið
ákveðið að endurtaka kvikmynda
sýningu þessa í Gamla Bíói í dag,
þriðjudaginn, 8. des. kl. 7 síðdeg-
is. Sú breyting verður þó á nú, að
í stað myndarinnar um för Eisen-
howers til Evrópu, verður sýnd
fréttamynd af því, ér Eisenhower
ávarpaði bandarísku þjóðina í
sjónvarpi, áður en hann lagði af
stað í ferðalag sitt til Evrópu,
Asíu og Afríku hinn 3. desember
sl. og brottför hans af flugvellin-
um við Washington. Aðgangur að
þessari sýningu eins og hinni er
ókeypis og öllum heimill.
ÓLAFUR J. ÓLAFSSON
löggiltur endurskoffandi.
Endurskoffunarskrifstofa.
Mjóstræti 6. — Sími 38915.
Sigurður Olason
Hœstaréttarlbgmaður
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa
áusturstræti 14. Simi 1-55-35