Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐ1Ð Fðsfudagur 11. des. 1959 Eisenhower ræðir / indverska Jbinginu um: 5 eða 50 ára áætlun um að sigrast á tortryggni NÝJU DELHl, 10. des. — (Reuter) — í D A G flutti Eisenhower Bandaríkjaforseti ræðu á sameinuðu þingi Indlands. — Þar lýsti hann því m. a. yfir, að herstyrkur Bandaríkjanna gegndi mikilvægu hlutverki til verndar vinum og banda- mönnum Bandaríkjanna gegn árásarhættu, sem þeim stafar frá annarlegri lífsskoðun, er væri studd af geysilegu her- veldi. — Hátíðablær var yfir indverska þjóðþinginu, pegar Eisenhower Noel-Baker aihent Friðar- verðlounin ÓSLÓ, 10. desember. — (Reuter) —• PHILIP Noel-Baker, sjötugur þingmaður brezka Verka- mannaflokksins, veitti í dag móttöku friðarverðlaunum Nóbels 1959. — Afhendingar- athöfnin fór fram í aðalsal há- skólans hér. Það var Gunnar Jahn, for- maður fimm manna Nóbels- verðlaunanefndar Stórþings- ins, sem afhenti verðlaunin, en þau eru gullpeningur, verð launaskjal og rúmlega 300 þúsund norskar krónur. Mikill mannfjöldi var saman kominn kringum stórt jólatré á snæviþöktu torginu framan við háskólann til að fylgjast með komu Ólafs Noregskonungs frá konungshöllinni, sem er í nokkur hundruð metra fjarlægð. Var þetta í fyrsta skipti síðan Nóbelsverðlaunum var fyrst út- hlutað 10. desember 1901, að sjónvarpsáhorfendur um gjör- valla Evrópu gátu fylgzt með athöfninni. Gunnar Jahn kvað Noel-Baker hafa síðustu 45 ár „tileinkað nauðstöddum störf sín, hvort heldur væri á stríðstímum, eða milli styrjalda. En umfram allt hefur hann sífellt og óþreytandi unnið að því að fyrirbyggja að styrjöld brytist út“. I>á minntist Gunnar Jahn á störf Noel-Bakers við Þjóða- bandalagið, en þar var hann í framkvæmdastjórn 1919-—22, og störf hans að stofnun Sameinuðu þjóðanna. Hann hefði verið ráð- herra í ríkisstjórn þeirri, er samdi um sjálfstæði Indlands og verið mikill áhrifamaður Verka- mannaflokksins í stjórnarand- stöðu. gekk í salinn. Varaforseti Ind- lands, R. S. Radhakrishnan, kynnti forsetann fyrir þingheimi og sagði áð milljónir manna litu á hann sem tákn lýðræðis og frelsis. Radhakrishnan vék að hinum stórkostlegu móttökuih, sem for- setinn hlaut njá almenningi við komuna til borgarinnar, er sýndi bezt hvernig indverska þjóðin liti á þennan vestræna forustumann. Forsetinn hóf ræðu siná með því að befa Indverjum kveðju bandarísku þjóðarinnár,; sem teldi að vélferð sín vaeri tengd velferð indversku þjóðarinnar. Bandaríkjamenn eiga þá ósk sameiginlega ásamt Indverjum að mega lifa í frelsi, virðingu fyr- Elzti oiaðoi landsins lótinn ELZTI maður landsins Kristján Jóhann Jónsson bóndi í Lamba- nesi í Fljótum er látinn, en hann varð 104 ára gamall 9. ágúst sl. Hann hafði látizt að heimili sínu. Þegar Kristján varð 100 ára, lýsti blaðamaður frá Mbl. hon- um sem „gáskafullu gamal- menni“. Hann var fæddur í Fljótunum og þar ól hann allan sinn aldur, en á Lambastöðum hóf hann búskap á jólaföstunni árið 1899. Hann hafði byrjað sjó- róðra 12—13 ára og var þá ráð- lagt að tyggja skro við sjóveik- inni og í afmælissamtalinu segir hann æ síðan hafa tuggið skro. Innan við tvítugt fór hann að róa í hákarl og var hann í há- karlalegum í 10—12 ár. ir manngildinu og friði með rétt- læíi. Þá vék Eisenhower að því að nútímavísindi bpnúðu leiðir til bættra lífskjara, en að heimur- inn væri því miður alltof sundr- aður og fullur af tortryggni. Hann kvaðst koma sem vinur Indlands. Það hefði lengi verið ósk hans að korha í heimsókn til Indlands og votta indversku þjóð inni virðingu sína vegna menn- ingar hennar, framfara hennar og styrkleika hennar meðal sjálf stæðra þjóða. Mannkynið allt er í mikilli þakkarskuld við Ind- land, en við Bandarikjamenn eig- um einnig sameiginlega hags- muni með indversku þjóðinni. Þið og við höfum frá byrjun leitað eftir þjóðlegri stefnu um eflingu lýðræðisins, hélt Eisen- hower áfram. Báðar eru þjóðirn- ar af mörgum rótum runnar, fólkið talar mörg tungumál, en úr þessum margbreytileik höfum við skapað styrkleika. Hvorki þið né við höldum því fram, að við höfum alltaf á réttu að standa. Við leitum báðir framfara og umbóta fyrir alla borgara okk- ar og tryggjum það, að ríkið verði þjónn en ekki herra eigin þjóðar. Þá sagði Eisenhower, að Banda ríkin hefðu ætíð hafnað þeirri skoðun, að alþjóðavandamál ætti að leysa með valdbeitingu. Hinsvegar minntist hann ekki beinum orðum á landamæradeilu Indverja og Kínverja. Að lokum lagði forsetinn til að þjóðirnar sameinuðust í fimm ára eða fimmtíu ára áætlun um baráttu gegn tortryggni. Þjóðirn ar ættu að beita sér að því að afnema orsakir spennu og á- rekstra. Ef þær gerðu það, þá gætu þeir útrýmt því, vegna þess að allt slíkt væri sköpunarverk ríkisstjórna, sem ættu að þjóna hagsmunum þjóðanna. VeÖurfregnir Z' NA /5 hnútar SV 50 hnútar X Snjókoma » ÚÍi V Skúrir II Þrumur Vsvali KuUaskH Hifaski/ H Hai L Lotqi Grunn lægð er yfir Græn- landshafi. — Veðurhorfur næsta sólarhring: Suðvestur- land, Faxaflói og miðin: SA- kaldi smá skúrir. Breiðafjörð- ur til Norðurlands og miðin: S-goía, víðast léttskýjað. Nýr bátur til Sigluf jarðar SIGLUFIRÐI, 10. des: — Út- gerðarmaður hér í bænum, Þrá- inn Sigurðsson, hefur nú fengið gjaldeyris- og innflutningsleyfi til kaupa á 110 tonna stálbát, sem byggður verður í Hollandi. Svo sem skýrt hefur verið áður frá hér í blaðinu, hefur fyrir stuttu lokið myndarlegri stækk- un hraðfrystihússins ísafoldar og aukið afkastagetu þess verulega, en ekki kemur hún að fullum not um vegna hráefnaskorts. Hinn nýi stálbátur Þráins, verður m. a. gerður út til þess að afla hráefna fyrir frystihúsið. — Stefán. ibBbi fi r.ftt/truilf.fflr.trít rS^SrSirSUttíns. *y. (f ’SthtstM Finnska skipið Anna strandaði við austurströnd Skotlands í fárviðrinu. Bjarglínu var skotið út í skipið og 18 manna áhöfn þess bjargað. Sýnir myndin þann atburð. — 100 fórust Framh. af bls. 1. izt. Skipið var með þrjá björg- unarbáta — og er einn ófundinn. Mannlaust skip Áhafnarinnar á þýzka skipinu Mercur er saknað. Skipverjar sex hafa sennilega farið frá borði í björgunarbát, en veður hefur ver ið með afbrigðum slæmt og mjög er tekið að óttast um mennina. Merciu- var á siglingu á Norður- sjó, þegar neyðarkall barst frá skipinu. Sænskt skip var þá í námunda við Mercur og sigldi upp að hinu nauðstadda skipi. Skipverji kastaði sér fyrir borð með línu og komst yfir í sænska skipið, en skömmu síðar sloknuðu ljósin á Mercur og skipið hvarf út í myrkrið. I dag fannst skipið svo aftur marandi í kafi. Brezkur togari var þar nærstaddur og komst maður frá honum um borð í Mercur. Fann hann þar engan lif- andi sálu og er því ætlað að skipverjar hafi yfirgefið skipið. Langur og sorglegur listi Undan Portlandi fórst togbát- ur með tvö smáskip í togi. Ekki er vitað hve margir voru með skipunum. Tugir skipa hafa í dag leitað aðstoðar vegna ýmissa erfiðleika, áhöfnum hefur verið bjargað af nokkrum skipum, sem komin hafa verið að því að sökkva eða verið að »eka upp að klettóttri strönd. Fyrir Katanesi í Skotlandi fórst togarinn George Robb með 12 manna áhöfn. 17 sjómenn drukkn uðu þegar portúgalska skipið Marialva fórst út af höfninni í Leixoes. f Grikklandi hvolfdi um helgina ferjubát- með 10 manns innanborðs og drukknuðu þeir allir. Áður hefur verið sagt frá því að björgunarskip með átta mönn- um fórst við Dundee í Skotlandi og pólskt fiskiskip fórst í Eystra- salti með fimm manns. Hér hefur þá verið talið upp að 89 manns hafi farizt á sjó í fárviðrinu í Evrópu. Auk þess berst fjöldi frétta af því að einstökum mönn- um hafi skolað út af bátum og skipum, svo að sízt er of mælt að ætla að yfir 100 manns hafi farizt í veðrahamnum. Austfirðir og Suðausturland og miðin: SA-gola, sumstaðar skúrir. Horfur á laugardag: All- hvöss austan og SA átt þíð- viðri, rigning sunnanlands, en bjart á Norðurlandi, einkum vestan til. 2000 tunnnr til Sandgerðis SANDGERÐI, 10. des.: — í dag komu 18 síldarbátar að, með alls 2000 tunnur. Voru hringnótabát- arnir aflahæstir, sem fyrr. Var Rafnkell með 472 tunnur, Jón Gunnlaugsson og Víðir H. með 300 tunnur hvor. Hæstur rekneta bátanna var Ásgeir RE með 125 tunnur og Hamar með 121. Nokkuð er saltað hér sem fyrr, en svo smá hafði nótasíldin ver- ið að hún fór í bræðslu. Kvikmyndasýning Alliance Francaise Á MORGUN, laugardaginn 12. des. efnir Alliance Francaise til kvikmyndasýningar í Nýja Bíói. Hefst hún kl. 2 síðdegis. Sýnd verður franska kvikmyndin „La Symphonie Phantastique“ sem fjallar um ævisögu franska tón- skáldsins Berlioz. Jean-Loui* Barrault fer með hlutverk tón- skáldsins í myndinni. Aukamynd fjallar um franska listmálarann Bernard Buffet. Allir félagsmenn Alliance Fran- caise og gestir þeirra eru vel- komnir á sýninguna. Vináttutengsl Islands og Rúmeníu EINS og kunnugt er gaf rúm- enska stjórnin Þjóðminjaisafninu foriáta þjóðbúning rúmenskan. Félagið Vináttutengsl íslands og Rúmeníu hyggst nú endurgjalda gjöfina með því að senda íslenzk an faldbúning til Rúmeníu. f þeim tilgangi heldur félagið baz- ar með ýmsum rúmenskum mun- um, útsaumi, tréskurði og öðrum skrautmunum, bókum og tímarit- um. Um leið verður haldin ljós- myndasýning, sem fjallar einkum um 500 ára afmæll Búkarestborg ar, en auk þess með myndum úr menningar- og framkvæmdalífi þjóðarinnar. Jafnframt þessu verða sýndar rúmenskar kvik- myndir. Bazarinn verður í MÍR- salnum, Þingholtsstræti 27, laug- ardaginn 13. þ.m. kl. 2—9 og sunnud. 14. kl. 7—9 e.h. Kvik- myndasýningar verða bæði kvöid in kl. 9. Þess er vaenzt að félagsmenn fjölmenni, en aðgangur er ókeyp- is og allir vélkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.