Morgunblaðið - 11.12.1959, Side 8

Morgunblaðið - 11.12.1959, Side 8
8 MORCUWnr 4fílÐ Föstudagur 11. dts. 1959 Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen KOMIÐ er út annað og þriðja bindi af Ferðabók Þorvalds Thor oddsens. Hið fyrsta kom út fyrir jól í fyrra, og ef að líkum lætur kemur hið fjórða og síðasta inn- an skamms. í>að er út af fyrir sig til fyrirmyndar, að slíkt ritverk skuli koma út 4 skömmum tíma. í>ví miður er það alsiða hér, að útgáfur ritverka dragast um of á langinn. Bækurnar eru prentaðar á ágætan pappír, frágangur allur mjög til fyrirmyndar af hálfu prentverks og bókbands. Ástæðan til þess, að ég hripa þessar línur, er fyrst og fremst sú, að þetta er bók handa ungu fólki, sem á eftir að kynnast landi sínu og dásemdum þess. Jafnframt er þetta bók handa öllum, sem hafa yndi af ferðalög- um, hvort heldur er í byggð eða óbyggð. Þó að Ferðabókin taki einkum til jarðfræði landsins eru ferðalýsingarnar venjulega á þann veg að margt grípur inn í frásögnina, bæði um atvinnu- hætti og annað, svo að á stund- um stendur líf þjóðarinnar og at- vinnuhættir hennar ljóslifandi fyrir sjónum lesandans. Hin síðari ár hafa Árbækur Ferðafélags íslands verið helzta leiðsögubók ferðamanna um land ið. Þær eru margar hverjar ágæt- ar, en af því að þær eru samdar af mörgum höfundum koma fram mismunandi sjónarmið við land- lýsingar, en þær eru allt frá nákvæmu bæjatali og upp í greinagóðar héraðslýsingar. Ferðabókin er hins vegar öll sam in af þeim manni, sem mest og bezt yfirlit hefur haft um allt landið, og fyrir því eru lýsingar í innbyrðis samræmi hver við aðra. Og það er næsta ótrúlegt, hve miklu Þorvaldur getur komið saman af þeim atriðum, sem máli skipta, í stuttu en skýru máli. En slíkt er þeim einum fært, sem hafa fullkomið vald á efni því, sem um er rætt. Ferðabókin er því hvorttveggja í senn góð ferðalýsing og leið- sögubók ásamt því að vera ágæt landlýsing. Ýmsir hafa fundið það Ferðabókinni til foráttu, að stíll höfundar væri þurr og mál- far á stundum með dönskum blæ. En því er til að svara, að stíll höfundar er laus við alla skrúðmælgi en er skýr og ljós. Og þó að einstöku sinnum bregði fyrir danskri orðaröð í til- vísunarsetningum ætti slíkt ekki að gera neinum mein, sízt þegar orðskipun í íslenzku er ört að sveigjast inn á enskar brautir. Ég tel að ferðabókin sé ein hver hollasti lestur fyrir ungt fólk, því að lestur hennar verður til þess að leiða huga þess að hollum ferðalögum um landið. Þorvaldur Thoroddsen Og því er þessi bók einhver hin heppilegasta jólagjöf handa ungl ingum. Þetta er verk, sem verð- ur mönnum æ kærara því oftar, sem þeir lesa það. Og allir, sem unna náttúru landsins geta ekki án þessarar bókar verið. Ágætar skýringar fylgja hverju bindi, og eru þær samdar af Jóni Eyþórssyni. Maður saknar þess, að þær skuli ekki vera fleiri. En fyrir skýringarnar hef- ur þessi útgáfa miklu meira gildi en fyrri útgáfan. Nokkrar teikn- ingar og eitt kort fylgja þessari útgáfu. , Þeir, sem hafa gefið út Ferða- bókina hafa unnið þarft verk og eiga þakkir skildar fyrir. Hákon Bjarnason. GRA B án suitar Ær ERIK OLAÍ-HANiFN Alvarlegur hjartasjúkdómur er meira en lítið hættulegur lífi manna. En hitt vita kannske ekki allir jafnvel, að offita, sem komin er á allhátt stig, er fólki á miðjum aldri jafnhættuleg og alvarlegur hjarta- sjúkdómur. Sú staðreynd er þó kunn sérhverjum lækni og raunar mörgum öðrum. Nýjar vísindalegar tilraunir hafa varpað algerlega nýju ljósi á orsakir offitu og afsannað ýmsar eldri kenningar. Meginatriði hinna nýuppgötvuðu sanninda eru þessi: Enginn þarf lengur að svelta sig til að grennast. Það er ekki fæðumagnið, sem máli skiptir, heldur eru það kol- vetnin, sem fyrst og fremst ber að vara sig á. -—- Út er komin í íslenzkri þýðingu Kristínar Ólafsdóttur læknis bókin. CRANNUR án sultar Þar er mikinn fróðleik að finna um eðli, orsakir og afleiðingar offitu og gerð ræki- leg grein hinum nýju megrunaraðferðum, sem vakið hafa mikla athygli um allan heim. Þá eru í bókinni ýtarlegar töflur um magn kolvetna, hvítu og fitu í öllum algengum mat, og er það til stórmikils hagræðis fyrir alla þá, sem þurfa að grenna sig. — Allur er sá fróðleikur, sem bókin geymir, settur fram á svo ljósan og auðskilinn hátt að hverjum og einum má að fullu gagni koma. Ýmsir fremstu menn danskrar læknastéttar hafa lokið miklu lofsorffi á þessa bók, og er sýnishorn af ummælum þeirra prentað á kápu bókarinnar. — Verð kr. 55.00. IÐIJIMIM Skeggjagötu 1 Sími 12923 Bezt að auglýsa í MORCUNBl \ÐINU Dr. Björn Sigurðsson frá Veðramóti — minning „Dáinn horfinn, harmafregn. Hvílíkt orff mig dynur yfir .. “ ★ ÞAÐ má víst teljast koma með scinni skipunum, þetta, en verk- efni vefjast löngum mörg að hönd um okkar sveitafólks, svo blek- iðja situr á haka. Hitt er einnig víst að góðs manns ber að geta, síðar sem fyrr. Svo mun víst, að mörgum fleiri en sifjaliði hans hefir stigið harmur djúpt í brjóst, við hel- fregn þessa ágætismanns, — og furðulega harðleikin og tillits- laust virðist hönd þess máttar, er brá sigð dauðans á lífsþráð hins tiltölulega unga, sístarfandi, sí- leitandi manns, dr. Björns, er á stuttri starfsævi hafði tekizt að ráða torskildar rúnir og áður óræðar gátur vísinda, gátur, sem öðrum, er við höfðu glímt höfðu reynst óviðráðanlegar. Við vonuðum og raunar viss- um, að framundan hlutu að bíða hans úrlausnir stórra verkefna, til bætts hags og blessunar þjóð okkar. Við spyrjum gjarnan: Er nokk ur snefill vits eða réttlætis í því að svipta nútíð og framtíð starfi og hæfileikum slíkra manna, sem Björns, á blómaskeiði lífs og and- legs þroska? Hver getur svarað slíkum spurningum, svo öruggt sé og tii fulls við hlitandi. Það bregður fyrir í hug mér ljóð línum saknaðaróðs, er fegurðar- og bjartsýnisskáld fyrri tíðar orkti um ungan, horfinn vin sinn. Skáldið segir: Krjúptu að fótum friðarboðans fljúgðu á vængjum morgun- roðans, meira aff starfa guffs um geim. Er nú ekki þessi fullyrðing skálds ins, um að hinn ungi afburða- hæfileikamaður, sé burtkallaður af starfssviði þessa jarðlífs, til enn stærra og víðtækara starfs á vettvangi nýs lífs í nýjum heimi. Líklegasta svarið við þess- ari spurningu okkar: Hví var hann kallaður frá okkur. En það svar raskar þó ekki þeirri full- yrðingu: Við máttum ekki missa hann. Samstarfsmenn og vinir Björns hafa þegar minnzt hans með virð- ingu og aðdáun, í ræðum og skrif- um. Þeir hafa brugðið upp mynd af lífsstarfi hans og ómetanlegum vísindaafrekum, einkum í þarfir íslenzks landbúnaðar. Það eru einkum tvær ástæður er til þess bera, að ég bregð penna að blaði og minnist með virð- ingu, þakklæti og hlýhug, þessa afbragðsmanns og vinar — vinar, sem ætíð gjörði mig ögn betri og bjartari í geði, við samfundi okkar og samtöl. Hin síðari er þakklætishugur er bændur þessa lands hljóta að bera í brjóstum til- hans vegna hinna stórþörfu afreka, sem hann vann öllum fjárbændum landsins, er hann réði niðurlögum garnaveikiplág- unnar. Það var stundum þungbúið skýjafar á himni lífsbaráttu og Nýr Bísam-pels til sölu. Nýtízku snið. Uppl. hjá Guffmundi Guftmundssyni, dömuklæðskera, Kirkjuhvoli. Nýjar 5 tonna vélsturtur til sölu. Uppl. í búðinni. H. Jónsson & Co. Brautarholti 22 — Sími 22255. Sparisjóðurinn Pundið Klappaistíg 25 Ávaxtar sparifé gegn hæstu vöxtum. Annast öll venjuleg sparisjóðsstörf. Bæfarsjóður Hafnarfjarðar óskar eftir að kaupa 20 tonna aftanívagn (Prailer) Upp.l á skrifstofu bæjarverkfræðings Hafnarfjarðar. lífsafkomu íslenzkra bænda, með- an hinar skæðu fjárpestir geis- uðu og lítil von til úrbóta. Svo rofar til, er fram stígur úr fylkingum rannsókna- og vís- indamanna, ungur maður, með ljós í höndum, er brá birtu á veg hinan vonlitlu. Nú hefur þessi ötuli, síleitandi, sístarfandi vís- indamaður fundið ráð eða meðal, er eyddi að kalla dauðavaldi þeim, er ógnaði allri hagsæld fjár bænda. Það má teljast til sannrar gæfu mennsku, að fá dreift skuggura dapurleiks og vonleysis af götu eins þjakaðs maruis, en því meiri hamingja, sem fleiri fá notið birtu og styrks, frá hug og hönd- um hins vökula, sjáandi hjálpar- manns. Þessi stóra lífsgæfa hlotnaðist hinum nýlátna afreksmanm, Birni Sigurðssyni. Þótt minnzt sé hinnar þraut- seigu, sigursælu baráttu hans sem vísindamanns, þá er ekki þar með fulltalið ágæti hans, né mannkostir. Ég og aðrir, er hann hafa þekkt frá bernsku, til síð- ustu stundar, reyndum hvílíkur öðlingsmaður hann var að allri gerð. Hve vel honum tókst að varðveita birtu og hreinleik sinn ar barnslundar. Hve létt honum var og ljúft að leysa vandræði allra þeirra er til hans leiuðu leiðsagnar og ráða. Hann virtist aldrei skorta úr- ræði á ýmsum vanda annarra manna. Alltaf skein birta bjart- sýninnar frá honum. Það vill oft henda suma þá, er hlotnazt hefur hugfesta bók- vits og lærðra fræða, að þeir líta smátt til hinna minna vit- andi. En engan hef ég vitað lausari við hroka yfirlætisins ea Björn Sigurðsson. Sá töggur vita og mannkosta, er með honura bjó, áttu rætur sínar raktar til vitiborins foreldris og þróttugs vel gefins bændafólks, langt 1 ættir fram. Þaðan var honum í merg runnin, gjörhyglin og þrautseigjan í vísindastarfi. Mörg er sú raun erfiðleika, er mönnum mætir á lífsgöngu, í dag anna baráttu og lífsþarfanna striti, en það held ég, að fáir hefji erfiðari glímu en hinn sí- leitandi vísinda- og uppfinninga- maður. Honum hljóta oft að skap ast vonbrigði. Honum bjóðast oft friðlausar andvökunætur, áður en sigur vinnst. Dr. Bjöm naut þess, sem og margir heilladrjúgir afreksmerua á ýmsum sviðum, að eiga ágæta konu. Kona Björns, Una Jóhannes- dóttir, var honum styrkur og afl gjafi í erfiðu vísindastarfi, og hlýhuga vemdari í allri lífsbar- áttu og lífsraun. Svo að síðustu þetta: Ég þakka mannkostamanninum Birni Sig- urðssyni, ég þakka hans ómetan- elga farsældarstarf, til hags og heilla fyrir íslenzka bændastétt, í nútíð og framtíð. „Hver verður til að taka við af honum, hver treystir sér af landsins vösku sonum?“. Þorbjöm Bjömsson. Geitaskarði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.