Morgunblaðið - 11.12.1959, Blaðsíða 23
Fðstudagur 11. des. 1959
MORCIJTSBLAÐÍÐ 1
23
Ðinn nýi sendiherra Breta, Ch. Stewart, kom til Reykjavíkur
síðdegis í gær flugleiðis frá Bretlandi. Hér er hann kynntur
fyrir ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, Hendrik Sv.
Björnssyni, sem er maðurinn í ljósa frakkanum.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Ástin endurvakin
— Útgerbm
Framhald af bls. 1.
hagsráðstafanir tækju gildi, héld
ur en hann var samkvæmt því
samkomulagi, sem gert var við
fyrrverandi ríkisstjórn hinn 5.
janúar 1959.
1 sambandi við umræðurnar
hafði Verðlagsráð Landssam-
bandssins lagt fram áætlanir um
rekstur 60 rúmlesta vélbáts á
komandi vertíð, og samþykkti
aðalfundurinn að vísa þeim áætl-
unum til stjórnar og Verðlags-
ráðs Landssambandsins, og að
þær yrðu hafðar til hliðsjónar í
væntanlegum umræðum, sem
fram færu milli fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og fulltrúa Lands-
sambandsins um hinar fyrirhug-
uðu ráðstafanir í sambandi við
efnahagsmálin.
Stjórnarkjör
Jafnframt samþykkti fundur-
inn, að í umræðum þeim, sem
fram færu, yrði athugað um leið-
réttingu á þeim ágreiningi, sem
orðið hefir milli útvegsmanna og
fiskkaupenda um fiskverð í sam
bandi við úrskurð sjávarútvegs-
málaráðuneytisins frá 14. apríl
1959.
Að lokinni afgreiðslu mála,
hófst stjórnarkjör, og var Sverrir
Júlíusson endurkjörinn formaður
L.Í.Ú. Aðrir í stjórn voru kjörnir:
varaformaður, Loftur Bjarnason,
Aðalstjórn: Jón Axel Pétursson,
Ólafur Tryggvi Einarsson, Ás-
geir G. Stefánsson, Kjartan Thors
Finnbogi Guðmundsson, Sveinn
Benediktsson, Björn Guðmunds-
son, Jón Árnason. Varastjórn:
Jónas Jónsson, Ólafur H. Jónsson,
Hafsteinn Bergþórsson, Andrés
Pétursson, Jón Halldórsson,
Ingvar Vilhjálmsson, Margeir
Jónsson, Baldur Guðmundsson.
Að lokinni stjórnarkosningu
fór fram kosning Verðlagsráðs
Landssambandsins fyrir komandi
ár. Formaður Verðlagsráðs var
kjörinn Sverrir Júlíusson, en
varaformaður Jón Halldórsson.
Aðrir í aðalráð: Baldur Guð-
mundsson, Valtýr Þorsteinsson,
Ólafur Tryggvi Einarsson, Haf-
steinn Bergþórsson. í vararáð:
Björn Guðmundsson, Guðfinnur
Einarsson, Ólafur H. Jónsson,
Ragnar Thorsteinsson.
Endurskoðandi var kjörinn
Beinteinn Bjarnason.
k
Að lokinni kosningu stjórnar
og Verðlagsráðs, tók formaður til
máls, og kvaðst vona, að stjórn
sú, sem nú hefði verið kjörin,
reyndist þeim vanda vaxin að
standa í þeim viðræðum, sem
fi'amundan væru, í sambandi við
þær breytingar, sem fyrirhugaðar
væru í efnahagsmálum, og að
þau verkefni, sem fyrir lægju, til
hagsbóta fyrir sjávarútveginn og
þjóðina í heild.
Að lokum óskaði hann fulltrú-
um gleðilegra jóla og hagsældar
á hinu komandi ári, og óskaði
mönnum, sem til fundarins höfðu
komið um langan veg, góðrar
heimferðar.
MlLANÓ.
HIN blóðheita óperu-
stjarna María C a 11 a s
vakti um síðustu helgi
meiri eftirtekt en nokk-
urn tíma áður. Hún gekk
hönd í hönd með eigin-
manni sínum um götur
Mílanó. Auk þess sendi
hann henni afmælisblóm
vönd, 24 rauðar rósir, og
að því búnu fóru þau
saman að kaupa nýja
sportbifreið.
Þetta kemur mönnum á
óvart eftir sögurnar sem
gengið hafa um skilnaðar-
mál Maríu Callas og eigin-
manns hennar, milljóna-
„Drang66 gef nar
gjafir
SIGLUFIRÐI, 10. des. — Bæjar-
stjórn Siglufjarðar hefur sam-
þykkt að veita hinum nýja flóa-
báti, Drang, sérstaka viðurkenn-
ingu. Verður skjaldamerki bæjar
ins skorið í tré, en það síðan gef-
ið bátnum og það sett upp í reyk-
sal skipsins.
Áður en að þessi gjöf barst
Drang, hafði kvennadeild SVFÍ
hér gefið til skipsins ljósmynd
af Siglufirði. — Stefán.
Málflutningsskrifstofa
Jón N. Sigurðsson
hæstaréttarlögmaður.
Laugavegi 10. — Sími: 14934.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.
mæringsins Giovanni Batt-
ista Meneghini, en upplausn
tíu ára hjónabands þeirra
var í heimsfréttum fyrir
skömmu. Nú er hins vegar
talað um sættir.
Orsök skilnaðarmálsins
virtist mega rekja til vin-
áttu söngkonunnar við
griska stórútgerðarmanninn
Aristoteles Onassis, sem ný-
lega er hlaupinn frá konu
sinni. Skilnaðarmál Callas
og Meneghinis gekk allt
þannig, að ekki lofaði góðu
um sættir. Söngkonan lét
svo ofsalega, að allir þóttust
vissir um að vinátta þeirra
yrði aldrei tekin upp að
nýju.
En nú ganga þau sem sé
um, hönd í hönd.
— Varnarlidið
Framh. af bls. 1.
Tilfærsla hersveitarinnar
úr landhernum hefur verið í
athugun nokkurn tíma og
þýðir ekki að Bandaríkin
dragi neitt úr heildarstyrk-
leika sínum. Þegar hersveitin
snýr aftur til Bandaríkjanna,
verður hún sameinuð öðrum
virkum hersveitum.
1 Reutersskeyti í gærkvöldi seg
ir að skömmu eftir að landvarna-
ráðuneytið bandaríska gaf út of-
anritaða tilkynningu hafi það
gefið út aðra tilkynningu um að
allt „landherlið“ Bandaríkjanna
á íslandi, eða um 1200 hermenn,
verði flutt á brott þaðan, en eftir
verði flugliðar og sjóliðar, sam-
tals um 4000 manns, sem ekki
verða fluttir brott.
Talsmaður ráðuneytisins lagði
áherzlu á það, þegar hann svar-
aði spurningum, að Bandaríkjun-
um hefði ekki borið skylda til
þess samkvæmt skuldbindingum
sínum við NATO að hafa um-
rætt landherlið á íslandi.
Þó talsmaðurinn neitaði að
ræða nánar um það atriði í til-
kynningunni, að hugsanlegt væri
að auka aðrar varnarráðstafanir
á íslandi, fékkst örugglega upp-
lýst, að í athugun væri aukning
á liði flotans þar.
Enn bætti talsmaðurinn því
við, að minnkun landhersins á
íslandi hefði verið í athugun í
2 Ví ár og stæði þetta í engu sam-
bandi við nýlega árekstra á ís-
landi.
Enn hefur enginn verið skipað
ur til að taka við yfirstjórn varn-
arliðsins á íslandi. Embættis-
menn í utanríkisráðuneytinu,
segja, að Bandaríkjastjóm hafi
tekið þessar ákvarðanir einhliða,
en málið hafi verið rætt við ís-
lendinga. Þeir sögðu einnig að
Atlantshafsráðinu hefði verið
tilkynnt um þetta fyrirfram.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
aðildarríkja. Uppi á þakinu
starfslið og sendinefndir hinna 15
verður „veitingastofa" undir ber-
um himni, en í kjallaranum er
stöðupláss fyrir 500 bifreiðir.
O Undir sama þak
NATO-byggingin hefir þegar
kostað sem svarar um 200 millj-
ónum íslenzkra króna. — Vel
kann að vera, að á henni séu
byggingarfræðilegir vankantar
•— og þá ekki síður fagurfræði-
legir. En hvað, sem um það má
segja, er það þó stór framför, að
allir embættismenn bandalagsins
og allar skrifstofur þess skuli nú
komast undir sama þak, í stað
þess að vera á víð og dreif um
alla Parísarborg, svo sem verið
hefir til þessa. ,
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamri við Templarasund.
MÁLFLCTNINGSSKRIFSTOFA
Páll S. Pálsson
Bankastræti 7. — Sími 24 200.
Ibúð oiskast
Ung barnlaus og reglusöm hjón óska eftir 2—3 her-
bergja íbúð, helzt á góðum stað 1 austurbænum.
Fyrirframgreiðsla getur komið til greina. Tilboðum
sé skilað á afgreiðslu blaðsins fyrir hádegi á laugar-
dag merkt: „Reglusemi — 4370“.
Stúlka eða kona sem getur starfað sjálfstætt að
enskum bréfaskriftum óskast til starfa hjá stóru
einkafyrirtæki hér í bæ. Þær sem hafa áhuga á starf-
inu leggi nafn, heimilisfang og síma á afgreiðslu
blaðsins merkt: „Einkaritari — 4372“.
Innilegar þakkir færi ég öllum sem veittu mér ánægju
með heimsóknum, gjöfum, skeytum og hlýjum árnaðar-
óskum á áttræðis afmæli mínu 1. desember. Sérstaklega
þakka ég forstjóra og starfsfólki Ölgerðar Egils Skalla-
grímssonar fyrir þeirra rausnarlegu gjcifir.
Guð blessi ykkur öll.
-Jargrét Jóhannsdóttir.
Þakka af hjarta öllum, sem glöddu mig með gjöfum,
heimsóknum og sendu mér hlýjar kveðjur á áttræðis
afmæli mínu 8. nóv. s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Jónsdóttir, Hofi, Vestmannaeyjum.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON
prentari, Lokastíg 5
andaðist í Landspítalanum fimmtudaginn 10. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson
Faðir minn
PÁLL ÞORSTEINSSON
frá Tungu í Fáskrúðsfirði,
andaðist að heimili mínu 9. desember.
Stefán Pálsson.
Bróðir okkar
EINAR GUÐMUNDSSON
bókbindari,
lézt í Kaupmannahöfn 3. desember síðastliðinn.
F.h. konu hans og barna.
Steingrímur Guðmundsson, Þorgils Guðmundsson.
Móðir okkar
JÓNlNA JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Eyrabakkakirkju laugardaginn
12. desember kl. 1,30.
Fyrir mína hönd og systkina minna.
Sveinn Pálsson.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför systur okkar
INGIBJARGAR GRÍMSDÓTTUR
Eyrún Grímsdóttir, Ágústína Grímsdóttár
Herdís Grímsdóttir.
Hjartanlega þökkum við öllum sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GlSLA SÆMUNDSSONAR
Einnig þökkum við samstarfsmönnum hans á Reykja-
víkurflugvelli og flugmálastjóra mikilsverða aðstoð.
Ragnheiður Ólafsdóttir og Nína Björk
Öllum þeim er auðsýndu mér og mínum samúð við frá,-
fall
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR
færi ég hjartans þakkir. Sérstaklega vil ég þakka Út-
gerðarfélaginu Venus h.f. fyrir alla þess aðstoð.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir mína hönd og barnanna.
Hulda Pétursdóttir