Morgunblaðið - 11.12.1959, Qupperneq 24
13
dagar
til jola
dagar
til jdla
277. tbL — Föstudagur fl. desember 1959
Aflamet síldar-
vertíbannnar
AKRANESl, 10. des.
HRINGNÓTABÁTURINN
Höfrungur setti í dag aflamet
síldarbátanna á Faxaflóasvæð
inu og við Suðurland, þegar
undan er skilin síldargangan
í Hvalfirði hér' á árunum. —
Renndi Höfrungur að garðin-
um í morgun svo dekkhlað-
inn að flaut yfir skammdekk-
Ekkert
> ........
saltað
Kvenfólkið i verk-
falli
KEFLAVÍK, 10. des.
HINGAÐ komu í dag 25 bátar
með 2935 tunnur síldar. Voru
snurpubátarnir hæstir: Vonin
569 tunnur og Jón Finnsson
513. Fór öll síldin í bræðslu
fyrir það að hún var smá og
að hér er nú ekkert saltað. —
Guðfinnur var hæstur rek-
netabáta með 153 tunnur,
Andri og Vísir með 142 tunn-
ur hver.
Fundur var haldinn í
Verkakvennafélaginu kl. 2 í
dag og var rætt um miðlunar-
tillögu síldarsaltenda, og var
hún felld af fundarkonum. Er
því algjör óvissa um síldar-
söltun hér í Keflavík og eng-
ar nýjar viðræður hafa verið
ákveðnar til lausnar deilunni.
Hringurinn
leggur fram
4. milljónina
HINN 8. þ. m. afhentu frú
Soffía Haraldsdóttir og frú
Eggrún Arnórsdóttir fyrir
hönd stjórnar Kvenfélags-
ins Hringsins ráðherra heil-
brigðismála, Bjarna Bene-
diktssyni, dómsmálaráð-
herra, ávísun fyrir einni
milljón króna, sem er fram-
lag frá félaginu til barna-
spítala í nýbyggingu Lands-
spítalans, sem nú er í smíð-
um. Hefur félagið þá lagt
fram fjórar milljónir króna
til barnaspítalans, auk bún-
aðar í sjúkrastofur barna-
deildar þeirrar, sem starfað
hefur í Landsspítalanum nú
um skeið.
Ráðherrann veitti fjár-
hæð þessari viðtöku og
þakkaði rausnarleg framlög
Kvenfélagsins Hringsins til
þessara mála, fyrr og síðar.
(Frá dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu).
ið og landaði hann 1128 tunn-
um. Fékk hann síldina í 2
köstum. Annar hringnótabát-
ur fékk 783 tunnur, en alls
komu hér á land í dag 3200
tunnur af síld. Aflahæstu rek-
netabátanna voru: Sveinn
Guðmundsson 193 tunnur,
Fylkir 175, Fram 128 og Ás-
björn 119 tunnur.
Skipstjóri á Höfrungi er
Garðar Finnsson, Skagabraut
4 hér á Akranesi.
Siglufjarðar-
skarð rutt
Siglufirði, 10. des. —
UNDANFARIÐ hefur verið hér
eindæma veðurblíða á þessum
tima árs. Er sem vorið sé á næstu
grösum, því nú ertu snjóýtur
komnar upp í Siglufjarðarskarð
og gær verið að opna það fyrir
bílaumferð. Hefur það aldrei áð-
ur borið við í sjálfum desember,
að Siglufjarðarskarð hafi verið
rutt. — Stefán.
Jólasvipur
á Sigluf irði
SIGLUFIRÐI, 10. des. — Jóla-
svipur færist nú yfir Siglufjörð.
Ljósaskraut prýðir aðalgötu bæj-
arins og jólastjarna hefur verið
sett upp hjá kirkjunni. Á Ráðhús
toginu hefur verið reist 10 m hátt
jólatré, kveðja frá vinabænum
Herning í Danmörku. Þá hafa
félagar í Lionsklúbb í hyggju að
setja upp jólastjörnu eina mikla
við sjúkrahúsið. — Stefán.
Sýslunefnd Vestur-Skaftafellssýslu ber kistu Gísla Sveinssonar úr kirkju. í kirkjudyrum sjást frú
Guðrún Einarsdóttir og Sveinn Gíslason, sonur hins látna alþingisforseta.
Löghald í „Bæjar-
húsinu" á Akranesi
Dr. Helgi Pjeturss
f GÆR gerðist sá atburður uppi
á Akranesi, að gert var löghald í
Bæjarhúsinu, sem er eins konar
ráðhúss Akraness. Var löghaldið
gert fyrir 12 þúsund króna skaða-
bótakröfu á hendur bæjarsjóði.
Á Lekt hús selt
Mál þetta stafar af hússölu
bæjarins. Fyrir ári seldi það
manni nokrum, Eðvari Árna-
syni, hið gamla skólastjóra-
hús á Akranesi, en það kom
í Ijós, að húsið lak og krafðist
kaupandinn skaðabóta fyrir það,
en hefur mætt hinu mesta þver-
lyndi hjá bæjárstjóranum í
því að fá mál sitt leiðrétt. Hefur
það gengið svo langt, að bæjar-
stjórinn sendi ekki einu sinni
umboðsmann til þess að vera
viðstaddur mat á gallanum.
Þetta mál hefur dregizt á lang-
inn í heilt ár, vegna allskyns mót-
bára bæjarstjórans og hefur bæj-
arstjórinn á Akranesi m. a. lýst
því yfir, að hann vilji ekkert með
mál þetta hafa að gera.
1 gær. fór lögfræðingur hús-
kaupandans, Guðlaugur Einars-
son, upp á Akranes og krafðist
hann þess að gert yrði löghald
í eignum bæjarins til tryggingar
12 þúsund króna skaðabótakröfu.
Er ekki venjulegt að gera slíkt
löghald í eignum bæjarfélaga, en
Ferðabók dr. Helga
Pjeturss kemur út í dag
í DAG kemur út „ferðabók dr.
Helga Pjeturss“. En þar safnað
saman á einn stað hinum fjöl-
mörgu ferðaþáttum hans bæði af
ferðum innanlands og erlendis.
Bókin skiptist í þrjá megin-
kafla. Sá fyrsti er ritgerð sú,
sem dr. Helgi skrifaði um Græn-
landsferð sína 1897, í leiðangri
Frode Petersen. Kom hún fyrst
út 1899 í ritinu „Um Grænland
að fornu og nýju“.
Nokkrum árum seinna (1905)
skrifaði hann doktorsritgerð um
jarðfræði íslands. Annar þáttur
bókarinnar eru íslenzkar frá-
sagnir, sem hann skrifaði af ferð-
um sínum og rannsóknum hér
heima, en í þeim þriðja eru frá-
sagnir af utanferðum hans, eink-
um á árunum 1908—1912, en þá
fór hann suður í lönd til þess að
kynnast nýjungum í jarðfræði,
flytja fyrirlestra og hitta merka
jarðfræðinga og sjá sig um.
Vilhjálmur Þ. Gíslason sá um
útgáfuna, en Halldór Pétursson
teiknaði titilblað, myndir og
kápu. Útgefandi er Bókfellsút-
gáfan, og er frágangur bókarinn
ar allur hin bezti.
lögfræðingurinn kveðst hafa ósk-
að þess, eingöngu vegna þess að
hann hefði oftsinnis orðið fyrir
greiðslutregðu og vanskilum
bæjarsjóðs.
Söguleg löghaldsaðgerð
Fulltrúi bæjarfógetans á Akra-
nesi, Valgarður Kristjánsson,
framkvæmdi löghaldið. Bæjar-
stjóri Akraness, Daníél Ágústínus
son, var ekki viðlátinn þegar fó-
getaaðgerðin var framkvæmd, en
settur bæjarstjóri í fjarveru
hans, Sigurður Haraldsson, gjald-
keri bæjarsjóðs, neitaði að koma
fram fyrir hönd bæjarfélagsins.
Þá var þar nærstaddur einn bæj-
arfulltrúanna, Sigurður Guð-
mundsson, lögregluþjónn. Var
hann beðinn um að benda á eitt-
hvað til löghalds, en hann neit-
aði að gera það. Skoraði fógeti þá
á lögfræðinginn að benda á ein-
hverjar eigur bæjarins, sem gera
mætti löghald í. Benti hann á
Bæjarhúsið og var löghald gert
í því, og fógetagerðinni þinglýst.
Áminning fógeta
Að lokum brýndi fógeti fyrir
gerðarþola að óheimilt væri að
ráðstafa hinni kyrrsettu eign á
nokkurn hátt, er í bága færi við
gjörð þessa að viðlagðri refsi-
ábyrgð.
Jólaglaðningur happdrœttisins ;
Beykvíkingor og Hafnfirðingnr
skiptu með sér Vz milj. í gær
í GÆRDAG kom jólaglaðningur
Háskólahappdrættisins á 2573
vinninga, en þeir skiptu með sér
vinningsupphæð að krónutölu til
3.645.000,00. Kom hæsti vinning-
urinn hálf milljón króna á fjórð-
ungsmiða.
Það er seinlegt verk að draga
út svo marga vinninga, enda var
klukkan farin að halla í sjö þeg-
ar drætti var lokið, en hann byrj-
aði klukkan 1 eftir hádegi. Hæsti
vinningurinn 500.000 kr. komu
á fjórðungsmiða nr. 4108. Voru
það Reykvíkingar og Hafnfirðing
ar sem skiptu með sér þessum
veglega jólaglaðningi kr. 125.000
í hlut. Þegar vinningurinn kom
upp hafði útdráttur staðið í um
það bil eina klst. Nokkru síðar
kom næst hæsti vinningurinn
100.000 krónur á heilmiða nr
29520, einnig í umboði hér í
Reykjavík. Undir lokin komu
svo báðir 50.000 kr. vinningarn-
ir, sá fyrri á fjórðungsmiða nr.
2951 og síðari vinningurinn á
heilmiða í Vífilstaðaumboðir.u
nr. 37154.
Þessi númer hlutu 10.000 kr.
hvert: 4038 — 4128 — 4584 — 7360
_ 8000 — 9661 — 13316 — 13572
— 14127 — 21374 — 26119 —
26386 — 30040 — 35569 — 35714
— 39793 — 40237 — 42310 —
43930 — 49461.
Þessi númer hlutu 5.000 kr.
hvert: 317 — 2747 — 2950 — 2952
— 3013 — 3459 — 4107 — 4109 —
4294 — 8050 — 11595 — 12231 —
12855 — 14018 — 14125 — 15218
— 15372 — 16489 — 17461 —
18101 — 18986 — 19913 — 22626
— 23269 — 24022 — 24528 —
24928 — 25851 — 27074 — 27261
— 29519 —29521 — 29570 — 29804
— 30613 — 33044 — 33874 —
36203 — 37153 — 37155 — 37808
— 38097 — 40176 — 42023 —
44420 — 45493 — 47497 — 47940
— 49550. — (Birt án ábyrgðar).
Lá við
slysi
SANDGERÐI, 10. des: — Skips-
höfnin á vélbátnum Mumma
hafði þá sögu að segja, er hún
kom úr róðri, að við borð hafi
legið, að báturinn færi á hvolf er
hann fékk svo stórt kast í herpi-
nótina. Urðu skipverjar að skera
nótina frá, til þess að takast
mætti að rétta bátinn aftur.
—Axel.