Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjuagur 22. des. 1959 Miðsföðvardœlur Væntanlegar. Tökum á móti pöntunum. \ Helgi Hiagnússon & <Co. Hafnarstræti 19. Aluminiumpappír Steikið jólamatinn í aluminíumpappír. Geymið jólamatinn í aluminíumpappír. Helgi IHagnússon & Co. Hafnarstræti 19 — Símar 13184 og 17227. Ekta Skozkur kristall Frábært dæmi um skozkan listiðnað ðlæsileg og sérstæð gjafavara. Aðeins eitt st. af gerð. Minnisstæð jólagjöf. Fæst hvergi í bænum nema hjá okkur. Ennfremur allskonar skrautvörur, tlr, Klukkur og Silfurvörur, sem eru öllum kærkomnar jólagjafir. Kaupið kjörgripi þá minnast móttakendur jóla- gjafanna þeirra lengi og ljúft. Magnús Sigurjónsson Skartgripaverzlun — Laugaveg 45. Vinsœlasta jólagjöfin er peysa irá VERZLUNIN Skólavörðustíg 13 — Sími 17710. íslenzk útgáfa á Jack London Jólatré á Austurvelii ÍSAFOLD á þakkir skilið fyrir að hafa hrundið af stokkunum smekklegri útgáfu á verkum Jack Londons, sem í nærfellt hálfa öld hefur verið einhver víðlesn- asti höfundur heims. Allt frá því að þessi furðulegi ameríski ævin- týramaður hóf að skrifa sögur sínar rúmlega tvítugur (hann var fæddur 1876), hafa sögur hans verið alþýðu manna á Vestur- löndum staðfesting þess, að til- veran sé ævintýraleg og stór- brotin og hættuleg. Saga höfund- arins sjálfs, sem er ekki síður kunn en bækur hans, hefur gefið ævintýrum hans um gullgrafara, sjóhetjur, veiðimenn og stór- brotna flækinga æskilegan sann- sögublæ í hugum manna: hann var sjálfur gullleitarmaður í Alaska, bíræfinn veiðiþjófur á San Fransiskóflóa um fermingu, krónískur laumufarþegi á eim- lestum í æsku, þrælkaður sjó- maður á örgustu fleytum Kyrrahafsins, ofdrykkjumaður 12 ára að eigin sögn, veiðimaður í Klettafjöllum, tukthúslimur í þrælkunarvinnu við Erievatn. Þar á ofan gerist hann víðkunn- ur í einu af þeim fáu hetjugerf- um, sem nútíminn á einkarétt á. Hann var árum saman róman- tískur farandblaðamaður fyrir ýmis helztu blöð og tímarit Bandaríkjanna. Sagt er, að hann hafi verið hæstlaunaði blaðamað- ur heims á sínum tíma. Enginn rithöfundur á þessari öld hefur getið sér jafnmikla frægð sem ævintýramaður nema Ernest Hemingway. Hetjudáðir á afskekktum stöð- um eins og í Alaska eða afkim- um Kyrrahafsins, tvísýnt föru- mannalíf, yfirmennsk barátta við höf og veður og óargadýr eru vitanlega alltaf vinsæl söguefni, eins og metsölubókaskrár hvers árs bera með sér. Samt falla flestar metsölubækur í gleymsku eftir fáeina mánuði og höfund- anna sér hvergi stað í neinni bókmenntasögu. En Jack London virðist ætla að lifa af sér breyt- ingar tímans og þolleysi þeirra, sem bækur lesa. Vitaskuld er hann langt hafinn yfir venjulega dægurhöfunda: hann hefur stíl, sem að vísu er stundum öfga- fenginn, en aldrei meiningarlaus, hann hefur brennandi sannfær- ingu, þjóðfélagsskoðun og trú á viss lífsgildi, sem eru ekki, eins og verða vill í reyfurum, upp- tuggin almenningssjónarmið. Og persónur hans eiga við raunveru- leg vandamál að etja, sem eiga rætur sínar í skapferli þeirra, og fyrir þá sök fær hin reyfaralega atburðarás sagnanna einatt raun- sanna og fullgilda merkingu. Heimspeki hans og þjóðfélags- skoðanir kunna stundum að virð- ast gamaldags, en það eru engu að síður heimspeki og þjóðfélags- skoðanir. Á þessum dögum, þeg- ar bilið milli bókmennta og skemmtilesturs virðist vera að gerast æ breiðara, er það holl reynsla að líta í Jack London. Hann sannar með sínum hætti að þetta bil er hægt að brúa enn sem fyrr. Og á hinn bóginn, ef til vill, að almennur lesandi firtist ekki af bókmenntum, ef þær eru skemmtilegar. Út hafa þegar komið þrjár sög- ur eftir London hjá ísafold: Óbyggðir kalla (þýð. Ólafur við Faxafen), Spennitreyjan (Sverrir Kristjánsson) og Ævintýri Jack London (Ingólfur Kristjánsson). Kristján Karlsson. Geir Hallgrímsson borgarstjóri þakkar fyrir tréð 1 FYRRADAG var jólatréð, sem Óslóarbúar hafa að venju sent Reykvíkingum, afhent við hátíð- lega athöfn á Austurvelli. Athöfn in hófst klukkan 16 með því að Dómkórinn söng tvo sálma undir stjórn dr. Páls ísólfssonar. Því næst flutti sendiherra Norð- manna liér á landi, Bjarne W. Börde, ræðu og mælti á íslenzku. Hann kvað þessa gjöf Óslóarbúa vera til merkis um það hvern vinarhug Norðmenn bæru til frændþjóðar sinnar hér á landi og hann óskaði að gagnkvæm kynni og skilningur milli þjóð- anna mætti enn aukast. — Því næst bað hann dóttur sína, frú Unni Kröyer, að tendra ljósin á trénu og flutti sendiherrann ís- Framh. á bls. 10. skrifar ur dagleqa lífínu * Stórhættulegar sprengjur Piltur um tvítugt leit inn til Velvakanda á dögunum. Hann var með annan hand- legginn í fatla og gipsumbúðir um hendina. Erindi hans var að segja okkur frá slysinu, sem hann hafði orðið fyrir, eí það mætti verða öðrum til við- vörunar. Hann hafði ásamt öðrum pilti útbúið sér sprengju með því að fylla koparhólk púðri og festa kveikjuráð í. Vildu þeir nú vita hve mikill hvell- ur yrði af þessu og sögumaður I okkar hélt á hólknum meðan hinn kveikti í. Hólkurinn sprekk í hendi hans og stór- skaddaði hann. Fór framan af þumalfingri og litli fingur handarinnar verður ónýtur. Aðgerð á hendinni tók tvo tíma á slysavarðstofu og pilt- urinn verður frá vinnu í tvo til þrjá mánuði án þess að fá nokkuð bætt úr tryggingum, þar sem slysið er talið orsakað af vítaverðu gáleysi. Velvakandi innti piltinn eft- ir því, hvar hann hefði kom- izt yfir efnið í sprengjuna og skýrði hann svo frá, að hann hefði fengið það á verkstæð- inu, sem hann vinnur á, en hann er bifvélavirkjalærling- ur. Þessi staðreynd hlýtur að vekja þá hugsun, hvort ekki sé alltof auðvelt fyrir unglinga að komast yfir efni, sem þeir síðan geta gert sér stórhættu- legar sprengjur úr. Er full ástæða fyrir alla, sem slíkt efni hafa undir höndum, að vera vel á verði, svo unglingar komizt ekki yfir það og geri sér úr því sprengjur sér og öðrum ef til vill til stórskaða. Velvakandi þakkar piltinum fyrir þá skynsemi og þann þroska, sem hann sýndi með því að koma sögunni á fram- færi. Vonandi verður hún ein hverjum til viðvörunar. # Of mörg merki Bílstjóri kom að máli við Velvakanda og minntist á nýju umferðarmerkin, sem nú hafa verið sett upp við fjölda- margar götur. Eru þau merkt Stanz og ber bílum skilyrðis- laust að stanza áður en þeir aka inn á þá götu, sem merkin eru við. Bílstjórinn kvað merki þessi mjög gagnleg og sums staðar bráðnauðsynleg eins og t. d. þar sem ekki sér götu fyrr en út á hana er komið. Hins veg- ar sagði hann, að sér fyndist þessi merki stundum óþörf eins og t. d. þar sem sér vítt til beggja handa löngu áður en að komið er að götu þeirri, sem skylt er að staðnæmast við. „Það er viss hætta í því fólg in, ef slík merki eru sett upp víðar en brýn nauðsyn kre'- ur“, sagði bílstjórinn. „Þá telja menn þau óþörf og til trafala og hirða ekki um að fara eftir þeim. Einnntt í þvi er hin mesta hætta fólgin. — Reglur eiga að vera til að fara eftir, en mega ekki vera þannig, að þær stuðli að því að menn virði þær að vettugi".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.