Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 17
Þriðjuagur 22. des. 1959
MORCVlSTtLAniÐ
17
— Fallegt og
Framh. aí bls. 13.
ul ábreiða, Askur, Gamalt altaris-
klæði, Trafaaskja, Þórshamar,
Keldur á Rangárvöllum (gamli
bærinn), Höfðaletur á rúmfjöl,
Silfurspenna, Kistill, Brauðmót
og loks Kirkjan á Hofi í Öræfum.
Myndirnar eru allar mjög skýr-
ar og vel teknar, og prentunin,
sem Lithoprent hefir annazt, er
með ágætum. Yfirleitt má segja,
að frágangur þessa sérstæða daga
tals sé allur hinn bezti. — Á með-
fylgjandi blaði, þar sem félagið
óskar viðtakendum gleðilegs árs
og þakkar viðskiptin á gengnu
ári, segir: „fslendingar eru fá-
tækir að þjóðlegum minjum, en
fáar þjóðir hafa hlotið dýrmæt-
ari arf. fslenzk tunga, sem varð-
veitzt hefur óskert um aldaraðir,
og ódauðlegar bókmenntir for-
feðranna eru meginstoðir menn-
ingar vorrar og þjóðernis. Megi
það verða oss áminning og hvöt
til aðhlynningar og varðveizlu
þjóðlegra verðmæta.
Félagslíf
Skíðafólk — athugið!
Dvalið verður í skíðaskála Ár-
manns í Jósefsdal milli jóla og
nýárs. Kennsla fyrir alla. — Til-
kynnið þátttöku í síma 12765 eða
23292 og verða þar gefnar nán-
ari upplýsingar. — Stjórnin.
0 .0 # t> 0 0 * * »*■ + ■++.#+****■»*
Það er þegar sýnilegt, að metsolubókin
Lögmdl Parkinsons
í þýðingu Vilmundar Jónssonar landlæknis
ætlar að hljóta sömu viðtökur hér á landi og hvarvetna'annars staðar.
Allir þeir, sem lesið hafa, ljúka upp einum munni:
BÓKIN ER EINSTÖK í SINNI RÖÐ OG AFBURÐA HNYTTIN.
Vissulega kemur þetta ekki á óvart. — Lögmál Parkinsons missir hvergi
marks og á hvarvetna jafnvel heima, án tillits til landmæra og þjóðernis og
stjórnarhátta. Hver skyldi t. d. geta lesið kaflann. ÆÐRI FJÁRMÁL mörk
dvínandi áhuga, án þess að honum komi í hug umræðurnar um rjúpuna á al-
þingi? Og þannig mætti lengi telja. Nálega allt það, sem Parkinson tekur til
meðferðar í bók sinni, á sér svo margar hliðstæður í íslenzku þjóðfélagi og
þjóðlífi, að bókin gæti beinlínis verið skrifuð um íslenzk málefni. Bókin er
svo alþjóðleg og sígild, að hún á hvarvetna jafn vel heima. Og þar er að
finna skýringuna á því, að Lögmál Parkinsons hefur verið þýtt á fleiri tungumál
og selzt meira en nokkur önnur bók í veröldinni um margra ára skeið.
Innan tveggja ára frá útgáfudegi var bókin komin út í fimmtán út-
gáfum í Bandaríkjunum. í Bretlandi komu út níu útgáfur á tæpu ári,
Danir keyptu upp fimm útgáfur á fjórum mánuðum.
IÐUNN Skeggjagötu 1 — Sími 12923
Arnesingar
Spillið ekki helgi jólanna með neyzlu áfengis.
Gleðileg jól!
Félag áfengisvarnarnefndar í Árnessýslu.
JÓLABOK
NORÐRA:
Vilhelm Moberg:
Vesturfararnir
Þessi skáldsaga Mobergs hefur selst
í 450 þús. eintökum í Svíþjóð einni og
verið metsölubók i Bandaríkjunum.
Þetta cr talin ein skemmtilegasta bók
höfundar og hefur fengið frábæra dóma.
496 bls. kr. 220,00 ib.
ELEKTROUIX
N ý k o m i ð :
Hrærivélar
Bónvélar
Ryksugur
Lottbónarar
Þeir sem hafa hug á að tryggja sér
þessar óviðjafnanlegu heimilisvélar til
jólagjafa í ár, eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við oss sem fyrst.
Þetta eru einustu heimilisvélarnar af
slíku tagi sem hafa 2M> árs ábyrgð.
Einkaumboðsmenn:
Hannes Þorsteinsson & Co.
Njdsnarinn
Sorge
Dr. Richard Sorge er langfrægasti njósnari,
sem kom við sögu í síðustu heimsstyrjöld,
enda óumdeilanleg staðreynd, að hann olli
straumhvörfum i styrjöldinni. Þáttur hans
í gangi styrjaldarinnar var afdrifaríkari en
nokkurs annars einstaklings, enda sagði Mac
Arthur hershöfðingi um starf hans, að það
væri „örlögþrungið dæmi um snilldarlega
árangursrika njósnastarfsemi“.
Richad Sorge var djarfur, gáfaður og óvenju
lega slunginn njósnari, enda er frásögnin af
njósnum hans og ævintýralegum ferli svo
spennandi, að enginn skáldskapur kemst í
hálfkvist við hsuia.
Njósnarinn Sorge segir frá staðreyndum, en eigi að síður er leitun á jafnspenn-
andi skeinnitibók og henni.
Þetta er hin ákjósanlegasta jólabók karlmanna. — Bókin er stór og vel út-
gefin, en kostar þó aðeins kr. 158,00 ib.
IÐUNN Skeggjagötu 1 — Sími 12923