Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 20
20 MORGTJISBLAÐIÐ Þriðjuagur 22. des. 1959 irar aftur send heim, þar eð eng- in batamerki höfðu orðið sýni- leg á heilsu hennar, var búið að fcoma fyrir stórri lyftu í hinum endurbyggða turni, svo að nú gat hún, hvenær, sem hún vildi, komizt í sjúkrastólnum sínum upp í útsýnisturninn, sem var henni svo kær. Þannig opnaðist henni óvænt aftur heimur bernskuáranna. Húsameistarinn, sem hafði orð ið að flýta sér með framkvæmd- Irnar, hafði raunverulega hugsað meira um tæknileg þægindi en hreinan byggingarstíl. — Hið teningsmyndaða form, sem hann hafði sett á hinn hrjúfa, ferkant aða turn, hefði með hinum beinu, geometrisku línum sínum betur hæft skipakví eða rafveitu, en barok-stíl litlu hallarinnar, sem hlaut að vera allt frá dögum Maríu Theresíu. En engu að síð- ur höfðu óskir föðursins rætzt. Edith varð mjög hrifin af útsýnis svölunum, sem leystu hana á svo óvæntan hátt úr tilbreytingar- lausu varðhaldi sjúkrastofunnar. Úr þessum útsýnisturni gat hún skoðað í gegnum sjónauka allt hið víðáttu mikla hérað, fylgzt með öllu, sem fram fór í nágrenn inu, hvort heldur var sáning eða uppskera, starf eða leikir. Eftir hina löngu einangrun komst hún aftur í tengsl við heiminn og sjálft lífið. Hún gat setið klukku stundum saman uppi í turninum og horft á járnbrautarlest, sem hlykkjaðist reykspúandi eftir brautarteinunum fyrir neðan. — Ekki svo mikið sem einn einasti vagn fór eftir þjóðveginum, án þess að hún veitti honum ekki athygli og — eins og ég fékk að vita síðar — hún hafði fylgzt með mörgum ferðum okkar, her æfingum og liðskönnunum. Af einhverjum undarlegum, eigingjörnum ástæðum hélt hún samt þessu afskekkta varðbergi sínu leyndu fyrir öllum heimilis gestum, eins og einkaheimi sín- um og ég skildi það á hinum auðmjúka ákafa Jósefs, að hann áleit það merki um alveg sér- staka hylli mína, að mér skyldi vera boðið að heimsækja þenn- an stað, sem annars var flest- um lokaður með öllu. Hann bauðst til að flytja mig upp í lyftunni og ég sá, hversu hreykinn hann var af því, að honum skyldi vera treyst til þess að stjórna einn þessu dýra farar tæki, en þegar hann sagði mér, að auk þess lægi hringstigi alveg upp á svalirnar, afþakkaði ég boðið. Ég gerði mér í hugarlund, hversu dásamlegt það hlyti að vera, að sjá stöðugt ný og ný landsvæði breiðast út fyrir fót- um manns, eftir því sem hærra kæmi í turninum. Og vissulega hafði hver þessi glerlausa rifa, sem kallaðar voru gluggar, nýtt og heillandi útsýni að bjóða aug anu. Lognvær, gegnsæ hitamóða hvíldi eins og gullvefur yfir hinu fagra héraði. Reykurinn sveif yf ir reykháfum hinna dreifðu húsa, í hreyfingarlausum hringj um. Ég gat séð — hver útlína virtist sem skorin út úr hinum heiðbláa himni með flugbeittum hnífi — stráþökt bændabýlin með hinum venjulegu storka- hreiðrum á þakbrúnunum og andapollana fyrir framan hlöð- urnar, sem glitruðu eins og fægð ur málmur. Og úti á vaxlitum ökrunum sá ég dvergsmáar mann verur, mislita nautgripi á beit, konur við þvott og illgresis reitingu, þunglamalegar uxa- kerrur og litla vagna. Þegar ég var kominn upp þessi níutíu þrep og stóð alveg uppi í turn- inum, gátu augu mín hvarflað eftir vild yfir alla ungversku sléttuna og þangað sem mjótt strik, að öllum líkindum Karpata fjöllinn, sást með bláleitu bliki fjærst úti í fjarlægri móðu sjón- deildarhringsins. Og til vinstri sást litla borgin okkar, snotur og samanþjöppuð, með hvolfmynd- aða kirkjuturninum sínum. Með berum augum gat ég greint her- skálana okkar, ráðhúsið, skóla- bygginguna, æfingarsvæðið. Og í fyrsta skipti, síðan við komum hingáð, sá ég nú hina látlausu fegurð þessa afskekta landshluta. En ég gat ekki helgað mig þessu friðsamlega og kyrrláta útsýni, því að jafnskjótt og ég kom upp á hinar flötu þaksvalir, varð ég að búa mig undir að heilsa sjúku stúlkunni. í fyrstu sá ég engin merki um návist hennar. Tágastóllinn, sem hún sat í, sneri breiðu bakinu að mér og huldi gersamlega hinn granna líkama hennar, eins og ljós skjöld ur. Borð með heilum hlaða af bókum og opnum grammofóni, var það eina sem benti til návist ar hennar. Ég hikaði við að koma svona aftan að henni. Kannske var hún sofandi eða niðursokk- in í vökudrauma sína og þá gat hin skyndilega koma mín gert henni hverft við. Ég gekk því í stóran sveig framlhjá henni á svölunum, til þess að koma beint framan að henni. En þeg- ar ég var að læðast umhverfis hana, uppgötvaði ég að hún svaf. Granni líkaminn var vandlega vafinn tepputn og á hvítum kodda hvíldi hið barnslega and- lit í umgjörð hins ljósjarpa hárs, sem hnígandi sólin sveipaði rauðleitum gljáa. Ég nam ósjálfrátt staðar og virti sofandi stúlkuna fyrir mér, eins og fallega mynd. All- an þann tírna, sem við höfðum verið saman, hafði ég raunveru- lega aldrei fengið tækifæri til að horfa á hana, því að hún barðist ósjálfrátt á móti því, að láta at- huga sig, eins og allar tilfinn- inganæmar og viðkvæmar mann- eskjur. Jafnvel ef augu manns hvíldu af tilviljun eitt andar- tak á henni, kom litla geðvonsku hrukkan þegar í ljós milli augn- anna, augnalokin depluðu óeðli- lega hratt og varirnar herptust saman. Ekki var mögulegt að virða fyrir sér vangasvip henn- ar eitt augnablik, án þess að hún yrði þess vör. En nú, þegar hún lá þarna með lokuð augun, gat ég virt fyrir mér eftir vildi (og mér fannst næstum ég vera að fremja einhverja óhæfu, þjófn- aðj nauðgtm) andlitsfall hennar, þar sem hið barnslega blandað- ist á dásamlegan hátt hinu kven- lega og veika. Varirnar urðu ör- lítið aðskildar, eins og á þyrstri manneskju og hún andaði hægt og rólega, en jafnvel við þá litlu hófst brjóst hennar og hné. Ég læddist með ýtrustu varkárni nær henni. Skuggarnir fyrir neð an augun, bláu æðarnar á gagn- augum og hið rauðleita gagnsæi nasavængjanna, allt sýndi þetta hversu þunn o’g litlaust ytri húð in var, sem skyldi hinu alastur jólacjjö^ — ☆ — \Jer(). Lr. 595 Jfekla Austurstræti 14 Sími 11687 Jólatrésseríur - 17 Ijós - NORMA amerískar SERÍUPERUR Ver« kr. 3.50 stk. Jó.latrésseríurnar sem fást hjá okkur eru með 17 ljósum. Það hef- ir komið í ljós að vegna misjafnrar spennu sem venjulega er um jólin, endast 17 ljósa-seríur margfalt lengur errvenju legar 16 Ijósa. mAusturstræti 14 ^fTciVllí Simi 11687 a r L a Baldur, þú ert í minnihluta ... Við munum halda áfram ferðinni í fyrramálið án þess að snúa við. Allt í lagi Markús, allt í lagi. Og nú. ætla ég að fara að sofa í minu þægilega trjágreina-rúmi. Við ætlum öll að reyna að sofa. . . Eg skal athuga bátana og ann- an farangur áður en ég legg mig. Nokkrum minútum seinna. Markús, Markús! Hvað er að Súsanna. f bleika holdi fyrir ytri áhrifum. Hversu tilfinninganæmur hlýt- ur maður að vera, hugsaði ég með mér, þegar æðarnar slá svona óvarðar og skammt undir yfirborðinu. Hversu óbærilega myndi maður þjást, ef maður hefði svona dúnléttan álfalíkama sem virtist skapaður til að svífa, dansa, líða áfram, en væri svo hlekkjaður við hina þungu, þéttu jörð. Aumingja, fjötraða stúlkan. — Aftur fann ég hina ofsalegu ólgu æstra tilfinningu brjótast fram í hugskoti minu, þessa sáru, örmagna en jafn- framt æsandi meðaumkunar- kennd, sem greip mig ávallt helj artökum, þegar mér varð hugsað til ógæfu hennar. Hendur mínar titruðu af löngun, til að strjúka henni blíðlega um vangann. Mig langaði að lúta niður að henni og sjá brosið fæðast á vörum 'hennar, jafnskjótt og hún vakn- aði og þekkti mig. Þörfin fyrir að sýna blíðu og viðkvæmni, til- finning sem óhjákvæmilega var blandin meðaumkun, í hvert skipti sem ég hugsaði um hana, eða horfði á hana, rak mig nær henni. En ég mátti ekki raska þessum svefni, sem losaði hana við hina hræðilegu staðreynd til- veru hennar — í svipinn. Það er undursamlegt að vera nálægt hinum sjúka, þegar hann er sof- andi, þegar allar áhyggjur og ótti gleymast, þegar sjúkleiki hans er svo gersamlega úr sög- xmni, að hann brosir jafnvel í svefninum, brosi sem er honum framandi, brosi sem tilheyrir honum ekki og sem hverfur um leið og hann vaknar. Hvílík náð, hugsaði ég með mér, að hinir ör- kumluðu, hinir særðu og lemstr- uðu, þeir sem forlögin hafa svik ið, skuli a. m. k. í svefninum ekki vita um skapnað sinn eða vanskapnað líkama síns, að draumurinn, hinn miskunsami svikari, skuli a. m. k. sýna þeim þeirra eigin mynd, fallega og ......gparið yður hiaup á milli margm vcrzlama ■ OOtWOi fl OílUM tfWl! Ausfcurstræti ailltvarpiö Þriðjudagur 22. desember 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón« leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 VeSurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.15—13.15 Hádegisútvarp — (12.2f Fréttir og tilkynningar). 15.00—16.00 Miðdegisútvrap. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 18.25 Veðurfregnir. 18.50 Tónleikar. — Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson kand. mag.). 20.35 Utvarpssagan: „Sólarhringur** eft ir Stefán Júlíusson; VIII. (Höf- undur les). 21.00 Einleikur á píanó: Claudio Arrau leikur lög eftir Chopin. 21.25 Upplestur: a) Baldvin Halldórsson leikari les ljóð eftir Sigfús Daðason, úr bókinni „Hendur og orð“. b) Halldór Stefánsson rithöfund- ur les úr bók sinni „Fjögra manna póker“. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 A bókamarkaðnum. 22.40 Lög unga fólksins (Kristrún Ey- mundsdóttir og Guðrún Svafars- dóttir). 23.35 Dagskrárlok. Miðvikudagur 23. desember (Þorláksmessa) 8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón- leikar. — 9.10 Veðurfregnir. — 9.20 Tónleikar). 12.00 Hádegisútvarp. —- (12.25 Fréttir og tilkynningar). 12.50—14.00 „Við vinnuna“: Tónleikar af plötum. 15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir og veðurfregnir). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Utvarpssaga barnanna: „Siskó á flækingi“ eftir Estrid Ott; XVI. lestur (Pétur Sumarliðason kenn- ari).' 18.55 Tónleikar. — Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Jólakveðjur. — Tónleikar. 22.00 Fréttir óg veðurfregnir. 22.10 Framhald jólakveðja og tónleik- ar. — Síðast danslög. 01.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.