Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.12.1959, Blaðsíða 13
Þriðjuagur 22. des. 1959 MORGUNBLAÐIÐ 13 \* : Sunnanhólmar ur, en miðkaflinn síztur. Ingi- mar er heimspekilega sinnaður og veltir fyrir sér ýmsum kosmísk- um vandamálum, en það getur verið skáldum áhættusamt að leika sér með afstrakt hugtök og segja óræða hluti eins og hann gerir til dæmis í einkunnarorð- um- fyrsta kaflans: Hér stórskemmir samt síðasta línan ljóðið, því þar fer samlík- ingin viS líkkistuna út um þúfur. Svipuðu máli gegnir um ljóðið „Vor“. Þar er jörðinni líkt við konu sem legið hefur vetrarlangt á sæng til að ala vorið, og að fæð ingu lokinni hjalar grænn svörð- urinn í vöggu. Þetta er frumleg samlíking (þó henni svipi lítið eitt til líkingar Bjarna Thoraren- sens í „Veturinn"), en mér finnst skáldið ekki vinna nógu vel úr henni: hann hefði átt að gera Ijóðið þéttara í sér og heilsteypt- ara með því að sleppa hlývind- unum og sólinni sem græða sár- in, því mér vitanlega hljótast ekki | að jafnaði sár af barnsburði, þó ýmis önnur óþægindi kunni að vera honum samfara. Megin gallinn á ljóðum Ingimars er sá að tákn hans eru ekki nægi lega áþreifanleg, og svo hitt að hann einbeitir sér ekki sem skyldi að úrvinnslu þeirra lík- inga sem hann notar. Mér finnst honum vera alltof tamt að nota almenn eða óhlut- kennd orð sem fela ekki í sér neina beina skírskotun, heldur dreifa miklu fremur athygli les- andans, orð eins og nótt, myrk- ur, jörð, tungl, stjörnur, draum- ur, hjarta, sál, ást, hatur, gleði, sorg, vindur, sól, tár, ósk, þrá, rós, blóm, óendanleiki og önnur slík. Mörg þessara orða koma fyrir í hverju ljóðinu eftir annað, og týna af þeim sökum ferskleikan- um sem þau á annað borð hafa, auk þess sem slík orð eru svo al- menns eðlis og svo útþvæld orðin í skáldskap, að þau vekja naum- ast nýja skynjun, nema þá í ný- stárlegum samböndum. Að sjálf- sögðu eiga öll orð tungunnar jafn an rétt í skáldskap, en Ijóð krefj- ast þess að hvert orð sé vegið á hárnákvæmum vogarskálum, þannig að ekkert orð komi til greina annað en það sem notað er. Þá kann ég og mjög illa við Ingimar Erlendur Sigurðs- son: Sunnanhólmar. LjóS. 72 bls. Bókaverzlun Sigfús- ar Eymundssonar, Reykja- vík 1959. HEÐ sérkennilega nafn, sem Ingi- mar Erlendur Sigurðsson hefur valið fyrstu ljóðabók sinni, vefst sennilega fyrir ýmsum, því það mun hvergi skráð á orðabækur enn sem komið er. Að sögn gam- alla og fróðra Vestfirðinga er orðið notað um litla skýhnoðra af sérstakri gerð sem stundum sjást á heiðum himni í vetrarlok og sagðir eru boða komu vorsins þar vestra. Nafnið á bókinni er þann- ig í senn fallegt og táknrænt — eða svo lít ég að minnsta kosti á nafngiftina. Það er nefnilega svo um þetta frumverk hins unga Ijóðskálds, sem löngu er orðinn kunnur fyr- ir snjallar smásögur, að það get- ur tæplega talizt annað en vor- boði. Ljóðin minna flest á þessa litlu fallegu skýhnoðra sem reika um háloftin og hverfa út í geim- inn. Þau eru með öðrum orðum mjög huglæg og óhlutkennd. Skáldið gefur kenndum sínum og fantasíu lausan tauminn, en reyn ir sjaldan að finna hin áþreifan- legu tákn sem geri ljóðin mynd- ræn eða hlutstæð. Þó er því ekki að neita að stundum bregður fyr- ir snjöllum myndum í ljóðunum, til dæmis í „Feigð": Sólin mjakast eftir himninum eins og kista skreytt gulum og rauðum blómum; og brátt mun hún sökkva með lík dagsins í djúpið. Rísa svo aftur að morgni og sækja meira. Eins og blindur maður finnur regnið falla á hendur sínar í myrkrinu og sér ekki himininn eins og blindur maður finnur ilminn berast að vitum sínum í myrkrinu og sér ekki blómið sjáum við ásýnd þína Guð. brauð • ••• Á NORÐURLANDI, einkum um austanvert Norðurland, er laufabrauðsdagurinn svokall- aður ennþá fyrsti hátíðisdag- ur barnanna í sambandi við jólin. Hafa börnin ekki minna gaman af því að skera út laufa brauðið en að borða það. í sambandi við jólahátíðina verða fullorðnir gjarnan, sem börn á ný og taka af heilum hug þátt í gleði þeirra sem yngri eru. Á það ekki sízt við um laufabrauðsbaksturinn. — Hjá sumum fjölskyldum er það siður að allir komi saman nokkrum dögum fyrir jól, full- orðnir jafnt sem börnin, og stundum bætast jafnvel vinir og kunningjar úr öðrum hús- um í hópinn. Eftir að búið er að fletja kökurnar þunnt út, er tekið til við að skera og keppast allir um að hafa fall- egustu mynstrin eða myndirn- ar á kökunum sínum. Þetta er mikið vandaverk og oft setið yfir því langt fram á nótt. Eftir að búið er að steikja kök urnar í feiti, hafa sumir sam- eiginlega kaffidrykkju og smakka á góðgætinu, en aðrir geyma það til jólanna, þegar það er borið á borð með hangi- kjötinu. Meðfylgjandi myndir tók Sig. P. Björnsson af börnum á Húsavík við að skera laufa- brauðið og af fallegu kökun- lun þeirra fullbökuðum. þokukennd orðasambönd eins og „vagn sumarsins“, „hófatak hjart ans“, „jóreykur tregans”, auga mannkyns", „auga hatursins" og „augu eldsins1. Orðfæri Ingimars er ekki nógu hnitmiðað; honum hættir til mælgi. í Ijóðinu „Bylting" eru til dæmis mjög góðir sprettir, eins og þessi: Ingimar Erlendur Sigurð'sson spyrjið ekki um sannleikann: hinir dánu rísa úr gröfum sínum og kasta beinum í vegfarendur og réttlætið leitar afdreps í fangelsum: En upphaf þessa ijóðs er óþétt og myndlaust. Þar £r talað um hlutina, en ekki dregnar upp táknrænar myndir af þeim. Hugs- unin og tilfinningin í ljóðinu eru vafalaust einlægar, en ég sakna klárari líkinga og þéttara forms. Ingimar er greinilega róman- Bókinni er skipt í þrjá kafla, og er fyrsti kaflinn þeirra bezt- Heilsteyptustu ljóðin í bókinni eru „Kyndlar", „Kínverski múr- inn“, „Til prédikarans“, „Fangi“, „Morgunljóð“, „Bréf án utaná- skriftar“ og „Guð“. Það síðast- nefnda er þannig: Eins og sandkorn í alheiminum er sálin og eins og sandkorn í sálinni er alheimurinn. ,,Það á að gefa börnum tískt skáld og hefur gaman af að leika sér með andstæður og þversagnir: „Sorgin er hjarta gleðinnar". En mér virðist róman tíkin stundum villa honum sýn og gefa ljóðum hans falskan tón, til dæmis í „Skýjakljúfar" sem hefst á nokkrum góðum samlík- ingum, en dettur svo niður í lokin og verður glært. Þetta er spakmæli sem ég kann ekki að meta og finnst lítill skáld skapur rúmast í því, þó það kunni að vera stórbrotinn sannleikur, hvað veit ég? En alhæfingar af þessu tagi eru sjaldan til prýði í skáldskap. Ljóð eiga ekki fyrst og fremst að segja einhvern sann- leik, heldur sýna hann. Annars er þessi fyrsta Ijóða- bók Ingimars einkar geðþekk, tungutak hans einfalt og „hrein- legt“, og það er ákveðin heið- ríkja yfir bókinni í heild, falleg- ur tónn í ljóðunum. Maður ósk- ar þess aðeins að hann gæti gert tilfinningar sínar áþreifanlegri, sýnt manni hug sinn. „Janúarsíða“ dagatalsins Fallegt og sérstœtt almanak Frágangurinn er látlaus, en kápumynd Hafsteins Austmanns hálfklúðursleg. Prentvillur sá ég engar, en að minnsta kosti eina hugsunarvillu, þegar skáldið tal- ar um „þyrst eitur“ (kannski er það bara ein af þverstæðunum hans). Og ekki er gott að gera sér grein fyrir hvernig blóð storknar „eins og kaldur eldur“. Bókin gæti sem sagt verið vor- boði, ef skáldinu tækist að þétta skýhnoðrana sína, svo af hlytist regnskúr sem félli á jörðina og hendur lesandans (sbr. ljóðið ,,Guð“). Sigurffiur A. Magnússon. OLÍUFÉLAGIÐ Skeljungur hefir gefið út dagaskrá fyrir árið 1960, sem sérstæð má teljast. — f stað landslags- og sjávarmynda, sem löngum hafa prýtt íslenzk daga- töl, eru þarna myndir af ýmsum þjóðlegum minjum, einkum mun- um, sem geymdir eru í Þjóðminja safninu. Með dagatali janúarmánaðar fylgir mynd af síðu úr Svalbarðs- bók Jónsbókar — Kristinréttur (ljósm. Lithoprent — og fylgja henni einkunnarorðin „Handritin heim“. — Með dagatali hinna ell- efu mánaðana fylgja eftirtaldar myndir, sem allar eru teknar af Gísla Gestssyni, safnverði: Göm- Framh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.