Morgunblaðið - 22.12.1959, Qupperneq 23
Þriðjuagur 22. des. 1959
MORCUNBLAÐIÐ
23
— Stærsta flugvél
Framh. af bls. 1.
leiftur með stuttu millibili.
Þar kom Leifur Eiríksson,
stærsta millilandaflugvél ís
lendinga.
Flugvélin lækkaði stöðugt
flugið og renndi lágt yfir flug-
völlinn og miðbæinn, flaug einn
hring út yfir Flóann og lenti
síðan, kl. 22,14. Þá hafði hún
verið 5 klst. 42 mín. á leiðinni
frá Goose Bay á Labrador. Að
vísu var hún seinna á ferð en
búizt hafði verið við. Hún átti
samkvæmt áætlun að koma um
hádegisbilið í gser, en vegna tafa
á Goose Bay seinkaði förinni. —
Loftleiðir höfðu boðið til síð-
degisdrykkju í gær til að fagna
komu flugvélarinnar, en að sjálf-
sögðu féll fagnaðurinn ekki nið-
ur enda þótt flugvélin væri þá
ókomin.
Er flugvélin hafði staðnæmzt
við afgreiðslu Loftleiða var land-
göngubrúnni ekið að vélinni.
Fyrstir stigu út erlendir farþeg-
ar og gengu í veitingásal félags-
ins. Þeir héldu síðan áfram með
vélinni eftir miðnættið áleiðis til
meginlandsins.
Siðan steig áhöfnin á land svo
og nokkrir flugliðar og þeirra
konur, sem notið höfðu sólar-
innar suður á Florida, meðan á
þjálfun í meðferð nýju vélarinn-
ar hefur staðið. Fólkið raðaði
sér upp framan við vélina og
Kristján Guðlaugsson, stjórnar-
formaður Loftleiða, bauð nýju
vélina ,sem hlotið hefur nafnið
Leifur Eiríksson, velkomna svo
og áhöfn hennar.
Flugmálastjórinn, Agnar Kofoed
Hansen, sagði líka nokkur orð.
Sagði hann að áhöfnin hefði
komið færandi hendi þar sem
þetta nýja og glæsilega flugfar
væri, óskaði Loftleiðum og fslend
ingum til hamingju með farkost-
inn og bað heill fylgja Leifi
Eiríkssyni.
Frú Kristjana Thorsteinsson,
eiginkona Alfreðs Elíassonar,
framkvstj. Loftleiða, færði flug-
stjóranum, Kristni Olsen, sem
stýrði vélinni heim, fagran blóm-
vönd og hamingjuóskir. Ahöfn
Leifs var alíslenzk. Aðstoðarflug-
maður var Magnús Guðmundsson
siglingafræðingur Ólafur Jóns-
son, vélamaður, Gerhard Olsen
— og flugfreyjurnar: Ásdís
Alexandersdóttir og Erna Hjalta-
lín.
Leifur Eiríksson, er glæsilegur
farkostur, af Douglasgerð og lík
Skymaster að öllu útliti, en þó
34-3-33
^ungavinnuvélar
Utvarpsborð
með innbyggðum plötuspil-
ara kr. 3000,00. — Án plötu-
spilara kr. 1900.
Radiostofa
VILBERGS og ÞORSTEINS
Laugavegi 72. — Sími 10259.
Císli Einarsson
héraðsdómslögmaður.
Málfiutningsstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstarctlarlögmaður.
Má'flutningsskrifstofa.
Aðalstræti 8. — Sími 13043.
einum 12 metrum lengri. Flug-
vélin flytur 80 manns með venju-
legri ferðamanna “innréttingu",
en getur flutt yfir 100. í þessari
ferð voru farþegar 79 og töluvert
að varningi að auki.
Með komu þessarar nýju flug-
vélar eykst sætatala flugvéla
Loftleiða upp í 200, því fyrir eru
tvær Skymaster-vélar, sem hvor
um sig bera 60 farþega. Þegar
síðari vélin af þessari gerð verð-
ur afhent félaginu í marz kemst
sætatala flugvéla Loftleiða því
upp í 280.
Flugþol Leifs Eiríkssonar er
mikið. Getur hann flogið 6.650
km í áfanga, eða sem svarar milli
Reykjavíkur og Los Angeles. Með
al flughraðinn er 455 km því Leif
ur er knúinn fjóruiri 2.500 hesc-
afla hreyflum. Hann getur tekið
20.864 lítra af benzíni og fu'.i-
hlaðinn vegur hann um 50 tonn.
Reykjavíkurflugvöllur er þess-
ari flugvél því heldur lítill futl-
hlaðinni, enda sagði Kristján Guð
laugsson í ræðu í síðdegisdrykkj-
unni í gær, að nýju vélarnar yrðu
reknar á Reykjavíkurvelli, þegar
kostur væri, en ef þær yrðu fuli-
hlaðnar á vesturleið mundi Kefla'"
víkurflugvöllur notaður.
Ýmis þægindi hefur nýja flug-
vélin fram yfir eldri flugvélar
svo sem Skymaster. Hún er búin
loftþrýstiútbúnaði sem gerir
kleift að fljúga hátt í lofti án
þess að vart verði breytinga á
loftþrýstingi innanborðs sem taii
tekur. Þannig getur flugvélin
flogið ofar algengustu óveðurs-
skýjahæð og jafnframt er hún út-
búin ratsjá.
Leifur Eiríksson hafði stutta
viðstöðu hér í gærkvöldi. Ferð-
inni var heitið til Oslo, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Norsk áhöfn, undir forystu Ring
dal, flugstjóra, flaug vélinni utan.
Frá Hamborg mun henni haldið
til Noregs, en þar fer fram breyt-
ing á loftskeytatækjum flugvél-
arinnar.
Ein norsk áhöfn, sem Loftleiðir
hafa á sínum snærum, hefur verið
við þjálfun í Miami á Florida
að undanförnu ásamt fjórum ís-
lenzkum áhöfnum. Margir þess-
ara flugliða komu með nýju vél
inni í gær, en þeir, sem eftir eru
ytra, koma með Skymasterflug-
vél á Þorláksmessu.
Vélstjórar athugið
Vélstjórafélag íslands, Mótorvélstjórafélag Islands
Jólatrésskemnitun verður haldin fyrir börn félags-
manna í Tjarnarcafé sunnud. 3. jan. 1960 kl. 15.
Skemmtinefndin.
Lögtaksúrskurður
samkvæmt heimild í 14. gr. reglugerðar fyrir vatns-
veitu Hafnarfjarðar frá 12. des. 1958 úrskurðast hér
með lögtak fyrir ógreiddum aukavatnsskatti álögð-
um árið 1959 samkvæmt sérmælum. Lögtakið má
framkvæma að 8 dögum liðnum frá dagsetningu úr-
skurðar þessa er ekki verða gerð skil fyrir þann
tíma.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði 17. des. 1959
Björn Sveinbjörnsson settur.
Símaborð
nýkomin. — Góð jólagjöf
Helgi IVIagnusson & Co.
Hafnarstræti 19 — Símar 13184 og 17237.
Tilvalin jólagjöf
Seljum hina vönduðu
tékknesku sjónauka (8x30) 950.00 kr.
Notið þetta sérstaka tækifærisverð.
Verzlu O. Er/ingsen h.f.
Hugheilar þakkir færi ég börnum mínum, tengda-
börnum og öllum þeim, sem glöddu mig með gjöfum,
heillaskeytum, heimsóknum og ógleymanlegum
ánægjustundum á sjötugs afmæli mínu þann 23. okt.
síðastliðinn.
Jón Árnason.
Ennfremur þökkum við öllum nær og fjær, sem
réttu okkur hjálparhönd á einn og annan hátt er bær-
inn okkar brann þann 28. júni síðastliðinn. Guð gefi
ykkur öllum gleðileg jól og gott og farsælt kom-
andi ár.
Gunnarxna Gestsdóttir, Jón Árnason,
Holti, Álftaveri, V-Skaftafellssýslu.
Hjartans þakkir færi ég vinum, kunningjum, syst-
kinum og börnum, sem gerðu mér daginn ógleyman-
legan með heimsóknum, gjöfum, skeytum og blómum
á fimmtugs afmæli mínu, 16. desember.
Gleðileg jól!
Lilja Vilhjálmsdóttir,
Sólvöllum, Garði.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sendu mér hlýj-
ar kveðjur og góðar gjafir á 80 ára afmæli mínu
15. þessa mánaðar.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár. —
Kristinn Þorsteinsson,
Eyrargötu 30, Siglufirði.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim mörgu, sem
á einn og annan hátt glöddu mig á sjötugsafmli mínu
bæði með gjöfum, heimsóknum og heillaskeytum.
Gísli Sigjónsson.
Hjartanlegar þakkir færi ég börnum mínum,
venzla- og fpændfólki, kvenfplaginu „Eining“, sveit-
ungum og öðrum vinum, er veittu mér ánægju með
heimsóknum, góðum gjöfum og heillaóskum á 70 ára
afmæli mínu.
Guð blessi ykkur og launi samfylgdina á liðnum
árum. —
Guðrún Kristjánsdóttir,
Marteinstungu.
Sigurður ölason
HæstaréttarlögmaSur
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdömslögniaður
Málflutníngsskrifstofa
Austurstræli 14. Síuii 1-55-35
Maðurinn minn,
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
andaðist 20. desember.
Guðný G. Jónsdóttir
og börn.
MARGRÉT STEFÁNSDÓTTIR,
Bakkakoti, Meðallandi,
andaðist 18. þ. m. Kveðjuathöfn fer fram frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 22. þ. m. kl. 10,30. Athöfninni
verður útvarpað. Jarðsett verður að Langholti. Jarð-
arförin auglýst síðar.
Vandamenn.
Útför
HARÐAR ÞÓRHALLSSONAR
viðskiptafræðings,
fer fram frá Kristkonungskirkju, Landakoti, miðvikudag-
inn 23. desember kl. 10 árdegis.
Guðrún Þðr.
Móðir okkar og tengdamóðir
GUÐBJÖRG HELGADÖTTIR
sem andaðist að heimili sínu Vesturvallagötu 1, 20. þ.m.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjud. 29. þ.m.
kl. 1,30 e.h.
Rannveig Jónsdóttir, Ari V. Jónsson,
Ottó Jónsson.
Þökkum af alhug okkur sýnda virðingu og samúð
við andlát og jarðarför
PÁLS ÞORSTEINSSONAR
frá Tungu.
Börn og tengdabörn.