Morgunblaðið - 11.02.1960, Page 11

Morgunblaðið - 11.02.1960, Page 11
Fimmtudapur 11. febrúar 1960 MORCTJlSTtLAÐlÐ 11 Lagður grunnur að heilbrigðara og réttlátara Gagngerðar endurbætur gerðar á fjármálakerfi landsins IJr framsöguræðu Gunnars Thoroddsens, fjármálaráÖherra, við 1. umr. fjárlagafrv. 1 HINNI ítarlegu fjárlagaræðu á mánudagskvöldið, gerði Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, glögga grein fyrir þeim gagngerðu endurbótum, sem gerðar verða á fjármála- kerfi ríkisins og ýmsum umbótum í fjármálum landsins, sem ríkisstjórnin beitir sér fyrir. Einnig rakti hann lið fyrir lið einstakar greinar fjárlaganna, og drap að lokum á fyrir- hugaðar lagabreytingar, sem mikil áhrif hafa á ríkisbúskap- inn. Gagnrýni stjórnarandstöðunnar var mjög neikvæð og í svarræðu sinni hrakti fjármálaráðherra helztu ádeilur stjórnarandstæðinga mjög rækilega. Hér fer á eftir útdráttur úr framsöguræðu f jármálaráðherra: í upphafi máls síns gat ráð- herrann þess, að þar sem horfið yrði frá uppbóta- og styrkja- kerfinu og nýtt efnahagskerfi tekið upp, hefði nýtt fjárlaga- frumvarp verið samið, en fjár- lagafrumvarp það, er lagt hefði verið fyrir á haustþinginu hefði byggzt á eldra kerfinu. Afkoma ríkissjóðs 1959 Þá vék ræðumaður að afkomu ríkissjóðs á árinu 1959. Gat hann þess, að sá ósiður hefði ríkt um langt skeið, að ganga ekki endan- lega frá reikningum ríkis og rík- isstofnana fyrr en 2—3 ár væru liðin frá lokum reikningsársins, og ekki lægi enn fyrir frum- varp um samþykkt á ríkisreikn- ingi fyrir árið 1957 í byrjun þessa árs. Á þessu yrði nú gagngerð breyting og hefðu ráðstafanir verið gerðar til þess að ríkis- reikningar fyrir árin 1957, 1958 og 1959 yrðu lagðir fyrir Alþingi á bessu ári. Samkvæmt bráðabirgðayfirliti var afkoma ríkissjóðs 1959 þann- ig: Tekjur: Skattar og tollar kr. 769,134,000,00. Tekjur af rekstri ríkisstofnana kr. 352,099,000,00. Tekjur af fasteignum 10 þús. Vaxtatekjur 2 millj. Óvissar tekjur 14 milljónir. Tekjur því samtals kr. 1037,2 millj. Gjöld: Vaxtagjöld 3,1 millj., forsetaembættið 1,4, Alþingis- kostnaður 8,7, Stjórnarráðið 17, utanríkismál 14,6, dómsmál 65,8, innheimta tolla og skatta 26, sameiginlegur embættiskostnað- ur 1,5, heilbrigðismál 41,1, vega- mál 87,5, samgöngur á sjó 14,9, vitamál 24,6, flugmál 11,3, veður þjónusta 4,6, ýmis mál, 4,7, kennslumál 142, opinber söfn, bókaútgáfa o.fl. 11,2, kirkjumál 13.1, landbúnaðarmál 75,6, sjávar útvegsmál 17,9, iðnaðarmál 3,5, raforkumál 22,3, rannsóknir í þágu atvinnuvega 8,6, félagsmál 152, eftirlaun og tillag til lífeyris sjóðs 25,8, til útflutningssjóðs 152.1, óviss útgjöld 9 milljónir. Greiðslur samkvæmt heimild- um og sérstökum lögum 5,1 millj. og væntanleg fjáraukalög 17 þús. Útgjöld á rekstrarreikningi verða þannig 965 milij. og rekstr arhagnaður 72,2 millj. Eignahreyfingar: Innborganir á eignahreyfingum 71,5 millj. Út- borganir á eignahreyfingarreikn- ingi 178,9 millj. Kekstrartekjur fjárlaga 1959 voru áætlaðar 1005,6 millj. en urðu 1032 millj. eða 31,7 millj. umfram áætlun. Rekstrargjöldin voru áætluð í fjárlögum 947,1 millj. en urðu 17,9 millj. umfram. Helztu umframgreiðslur voru 2 millj vegna landhelgisgæzlu, 4 millj. vegna fyrirhleðslu á Mýr- dalssandi, eftirlaun og tillag til lífeyrissjóða 2 millj., óviss út- gjöld 4 millj. og greiðslur sam- kvæmt sérstökum lögum 5 millj. Reksturshagnaður varð 72,2 millj., þar við bætast fyrningar 4 millj., innborganir skv. 20 gr. 9,3 millj., greiðsluafgangur 43,5 millj., samtals 129,06 millj. Til frádráttar kemur svo samkvæmt 20. gr. fjárlagaliðir og veitt lán samtals 121,04 millj. Þannig verða eftir 8,02 millj. af greiðslu- afgangi, þegar búið er að jafna milli áranna 1957, 1958 og 1959. Sparnaður í ríkis- rekstrinum Um leið og efnahagskerfi þjóð- arinnar í heild er endurskoðað og endurbætt, þarf einnig að endur- skoða og endurbæta allt starfs- kerfi og starfshætti ríkisins sjálfs, stjórnarráð, skrifstofur þess og ríkisstofnanir, hélt fjár- málaráðherra áfram máli sínu. Með hyggilegri vinnubrögðum, meiri vélakosti og rösklegri verk stjórn er oft hægt að fá miklu meiri vinnu og betri fyrir minna fé. Til eru vissulega þær skrif- stofur og stofnanir ríkisins, sem eru til algerrar fyrirmyndar um stjórnsemi, stundvísi og vinnu- afköst en víða eru þverbrestir í innviðum ,og mikið skortir á að árvekni, stundvísi, vinnusemi og afköst séu með þeim hætti, sem vera bæri. Hér þarf að verða breyting á. Ráðherrann skýrði frá því, að þremur starfsmönnum stjójnar- ráðsins hefði fyrir nokkru verið falið að gera tillögur um strang- ara eftirlit með stundvísi og vinnu ríkisstarfsmanna. Hefðu þeir nú skilað tillögum sínum um aukið aðhald, stimpilklukk- ur og fastara eftiriit, og yrði þéssi nýja skipan bráðlega upp tekin. Við allsherjar endurskoðun rikisrekstrarins, kvað fjármála- ráðherra einkum tvær leiðir koma til greina. Gömlu aðferðina að skipa sparnaðarnefndir með brauki og bramli, eins og oft hefði verið gert, með undralitl- Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra um árangri. Margt skynsamlegt hefðu þær nefndir lagt til, er skipaðar hefðu verið undanfar- inn IV2 áratug, en fátt af þeim tillögum hefði komizt í fram- kvæmd. Hin leiðin, sem margar aðrar þjóðir færu, væri þessi: Til þess að ná raunhæfum ár- angri um sparnað í opinberum rekstri, aukna hagkvæmni og betra skipulag, þarf að vinna að þessu að staðaldri af hinum fær- ustu kunnáttumönnum. Yfir- stjórn sliks starfs er þá oftast í höndum einhvers starfsmanna ríkisins. Hann hefur sér til að- stoðar verkfræðinga, reksturs- fræðinga, hagfræðinga og aðra, sem gert hafa slík störf að sér- grein sinni ,enda er nú svo kom- ið við ýmsa háskóla að sérstök kennsla og námskeið eru höfð í þessum fræðum. Þá er ýmist að slikir sérfræðingar eru fastir starfsmenn ríkisins eða sjálfstæð ir ráðunautar, sem fá sérstaka greiðslu fyrir hvert verk sem þeim er falið og eru margar slík- ar ráðunautaskrifstofur til í ná- grannalöndunum. Þessi starf- semi, sem kölluð er á norrænum tungum „rationalizering“, hefur verið kölluð hagsýsla á íslenzku. Reykjavíkurborg setti slíka skrif stofu á stofn hjá sér fyrir 2 ár- um og hefur hún þegar gefið góða raun. Og enda þótt einhverj ir kunni að kalla þetta undarleg- an sparnað, að byrja á því að setja á stofn skrifstofu eða skrif- stofudeild, þá er reynslan sú alls staðar, að þessi kostnaður borg- ar sig upp í beinhörðum pening um á stuttum tíma og það marg- faldlega. Kostnaður við strangara eftirlit og umbætur í vinnubrögð um er vanur að skila hagnaði fljótlega. Hagsýsla í þágu ríkisins Þá skýrði ráðherrann frá þeim undirbúningi, að skipulegri hag sýslu í þágu ríkisins, sem hafinn er og komst þannig að orði. „Á vegum fjármálaráðuneyt isins er hafinn undirbúning- ur að skipulegri hagsýslu í þágu ríkisrekstursins. Eftir því, sem ég hef kynnt mér slíka starfsemi, tel ég að for- dæmi Norðmanna henti okk- ur íslendingum einna bezt. í 12 ár hefur sérstök deild í fjármálaráðuneytinu norska unnið að þessum málum að staðaldri. Ég hefi ritað fjár- málaráðherra Norðmanna um þessi mál, og hefur hann heitið allri aðstoð og upplýsingum til þess að koma slíkri starf- semi á fót hér, og m.a. boðizt til að senda hingað, okkur til ráðuneytis, hagsýslustjóra norska ríkisins, ef við óskum þess, til leiðbeiningar við að byggja upp starfið hér“. Þá sagði hann, að enn hefði ekki unnizt tími til að koma fram sparnaði í einstökum grein um og fjárlagafrumvarpið því að verulegu leyti reiknað út með kostnaði og útgjöldum við ríkisreksturinn, eins og hann er nú. Marga útgjaldaliði í þessu frumvarpi teldi ríkisstjórnin sjálfsagt að reyna að lækka, en slíkt krefðist undirbúnings- vinnu og ekki þýddi að áætla þá lægri í fjárlögum fyrr en niður- staða væri fengin um hvert ein- stakt atriði varðandi nýtt og hvern sparnað það leiddi af sér. Þá nefndi fjármálaráðherra eftir talin atriði, sem hann kvað verða að endurskoða á .rinu og ætti að vera hægt að lækka í fjárlögum næsta árs. 1) Utanríkisþjónustan. Kvað hann að undanförnu hafa ver- ið til sérstakrar athugunar í utanrikisráðuneytinu með hvaða hætti mætti koma þar fram sparnaði. 2) Framkvæmd skattamála og fyrirkomulag við álagningu og skattheimtu. Nú væru 219 undirskattanefndir, 3 menn í hverri, og svo „ rskattanefnd og rikisskattanefnd og kostn- aðurinn við þær samtals 3 millj. á ári. Væri til athugun- ar hjá tekjuskattanefndinni, hvort ekki væri rétt að leggja niður þetta skipulag og taka í staðinn nokkrar skattstofur með færustu mönnum, lög- giltum endurskoðendum og öðrum. 3) Rekstrarhalli Skipaút- gerðar ríkisins væri áætlaður 15 millj. í þessu frv. Til t- hugunar væri, hvort ekki mætti draga að verulegu eða öllu leyti úr þessum miklu út- gjöldum ríkissjóðs, án þess að draga úr þjónustu Skipaút- gerðarinnar. 4) Innflutningsskrifstofan, sem nú yrði Iögö niður. 5) Kostnaður við skyldu- sparnað og skriffinnsku í sam bandi við hann, er hefði verið 2 millj. 150 þús. 6) Kostnaður við fram- kvæmd orlofslaga væri áætl- aður 625 þús. 7) Kostnaður við eyðingu refa og minnka, er nú væri áætlaður 3 millj. 8) Halli hefði verið á rekstri póstsjóðs árum saman, en nú væri fyrirhugað að láta hann bera sig. 9) Endurskoða þyrfti bíl;.- kostnað ríkisins og starfs- manna þess og setja um það fastari reglur. 10) Ueggja mætti niður ýms ar 1. unaðar nefndir. 11) Gengið yrði fastar og betur eftir innheimtu rikis- tekna og útistandandi skulda. Bætt vinnubrögð í vegamálum I sambandi vð bætt skipuldg og vinnubrögð vil ég strax hreyfa á þessu stigi einu máli, sagði fjármálaráðherra, og það er varðandi framkvæmdir í vega- málum. Það er venja í frumvarpi til fjárlaga, að áætla eina heild- ardpphæð til nýrra þjóð- vega, en Alþingi skiptir svo þessu fé í einstakar fjárveitingar til einstakra vega að tillögu fjár- veitinganefndar. Þessar fjárveit- ingar hafa undafarin ár verið 220—230 að tölu. Um helmingur fjárveitinganna, þ. e. meira en til 100 vega, er að upphæð milli 10—15 þús. kr. í hvern stað. Eins og nú er háttað vegagerð hér á landi með stórvirkum vélum og tækjum, er Ijóst og óumdeilan- legt að við bessar smáu fjárveit- ingar fer a. m. k. önnur hver króna til ónýtis, er beinlínis fleygt í kostnað við flutning á vélum og mannskap til og frá. Það væri augljóslega til hagræð- is og hagsbóta yfrir alla aðila, fyrir ríkissjóð og fyrir það fólk í byggðum landsins, sem á að njóta þessara vega, að upphæð- irnar yrðu stærri og færri, þann- ig að hver króna nýtist betur. Ég veit að það er viðkvæmt mál I hverri sýslu og hverri sveit að þeirra vegur fái eitthvað á hverju ári, en er ekki hugsanlegt að leysa málið með því t. d. að gera 4ra ára áætlun um vegagerð og um alla þá vegi, sem nú eru og hafa verið í fjárlögum eða fjárveitinganefnd vill taka inn, að gerð væri um þá áætlun og í stað þess að tiltekinn vegur fengi t. d. 25 þús. kr. á hverju ári í fjögur ár, þá fengi hann 100 þús. kr. fjárveitmgu í ár eða á næsta ári, eða einhvern tímana á þessu fjögra ára tímabili. Fjár- málaráðherra kvað þetta hafa veriC ræ.. í ríki-„ijórninni og beindi eir. ijegið til fjárveitinga- nefndar að hafa þetta sjó: ar.-lð í huga, er hún færi að skipta vega fénu. Niðurstöðutölur Þá gaf fjármálaráðherra yfirlit yfir breytingar á tekju- og gjaldaliðum í þessu frv. frá fjár- lögum 1959. Hækkun á tekjulið- um frá fjárlögui-i 1959 var 431,8 millj., en hækkun gjalda frá síð- ustu fjárlögum 429,9 millj. Einstakir útgjaldaliðir Þá vék ráðherrann að einstök- um greinum frumvarpsins, fyrst gjaldadálkunum. Kvað hann það hafa verið reiknað út sérstaklega með aðstoð Hagstofu íslands, hver 'hrif gengisbreytingin hefðí á útgjcld rikisins, en við þennan útreikning heft i ekki verið hægt að hafa samráð við forystumenn einstakra ríkisstofnana og þvl mætti búast við að einhverra lag- færinga kynni að vera þörf. Vaxtagreiðslur af lánum ríkis- sjóðs er áætlaðar millj. og hækka um 4Vá millj. Þessari hækkun valda í fyrsta lagi vext- ir af láni hjá Landsbanka ís- lands, sem er fast lán vegna kaupa á 10 togurum í Bretlandi. í öðru lagi hækkun vaxta af iáni vegna framlags - óðabanka og gjaldeyrissjóðs og loks hækka vaxtagreiðslur ríkissjóðs af við- skiptareikningi Seðlabankans. A1 þingiskostnaður hækkar um 1V4 millj., sem stafar bæði af fjölg- un þingmanna og „j. lágri áætiun 1959. Dómgæzla og lögreglustjórn hækkar um 6,3 millj. Veidur mestu rekstur hins nýja varð- skips, sem áætlað er að kosti 4V4 milljj.. Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.