Morgunblaðið - 11.02.1960, Page 17

Morgunblaðið - 11.02.1960, Page 17
Ffmmtudagur 11. febrúar 1960 MOKClJiyntA ÐIÐ 17 VILJUM RÁÐA stúlku til vélritunar og annarra skrifstofustarfa. Allgóð íslenzku- og enskukunnátta nauðsynleg. Kunnátta í einhverju Norðurlandamálanna æskileg Upplýsingar í síma 35322. Hilmir H.f. Ritgeroarsamkeppni Heimdallar IIKIIVfDAI.IjIJR hefur ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni um efnið „Sainrýmist þjóðnýting lýðræðisþjóðfélagi?“ Eftirfarandi reglur gilda um samkeppnina: Ritgerðirnar skulu vera 1500—6000 orð. Rétt til þátttöku hefur allt ungt fólk í Reykjavik á aldrinum 16—25 ára. Ritgerðirnar mega ekki hafa birzt áður opinberlega. Stjórn Heimdallar áskilur sér rétt til birtingar innsendra ritgerða. Ritgerðirnar skulu hafa borizt til skrifstofu félagsins í ValhöII við Suðurgötu eigi síðar en 15. apríl n.k. Ritgerð- unum skal skilað í handriti undirrituðu dulnefni, en nafn höfundar og heimilis- fang fylgi með í lokuðu umslagi merktu dulnefninu Fimm manna dómnefnd dæm ir ritgerðirnar. Verðlaun fyrir beztu ritgerð að áliti dómnefndar er ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim aftur. Dómnefndinni er heimilt að veita fleiri ritgerðum verðlaun eða viðurkenningu. Kinnig er heimilt að verð- lauua sérstaklega ritgerðir eftir höfunda á aldrinunt 16—20 ára. STJÓRN HEIMDALLAR Skíðabuxur kvenna úr nælonteygju. Svartar og dökkgrænar. — Verð kr. 1291,40 — VERZL. B. LAXDAL, Kjörgarði Hæð i IMorðurmýri Til sölu er mjög skemmtileg hæð í Norðurmýri. Hæð- in er 117 ferm., 4 herbergi, eldhús, bað, skáli o. fl. Hæðin er í ágætu standi. Getur verið laus um miðj- an febrúar. Góður bifreiðaskúr fylgir. Ræktuð og girt lóð. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. — Símar: 13294 og 14314. íbuðir til sölu Til sölu eru góðar 3ja herb. íbúðir á hæðum í fjðl- býlishúsi við Stóragerði í Háaleitishverfi. Hverri íbúð fylgir auk þess sér herbergi í kjallara hússins auk venjulegrar sameignar í kjallara. íbúðirnar eru seldar fokheldar, með fullgerðri miðstöð, húsið múr- húðað og málað að utan, öll sameign inni í húsinu múrhúðuð, allar útidyrahurðir fylgja. Bílskúrsrétt- ur fylgir. Mjög fagurt útsýni. Hagstætt verð. Lán kr. 50 þúsund á 2. veðrétti fylgir. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN, (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314. 4 LESBÓK BARNANNA JVfálsbrenna og hefnd Kára 107. Kári stóðst þetta eigi. Hljóp hann þá með brugðnu sverðinu innan eftir höllinni og hjó á hálsinn Gunnari Lambasyni og svo snart, að höfuðuð fauk upp á borðið fyrir konunginn og jarlana. Urðu borðin I blóði einu og svo klæðin jarlanna. Sigurður jarl kenndi mann- inn, þann er vegið hafði vig- ið, og mælti: „Takið þér Kára og drepið hann“. Kári hafði verið hirðmaður Sigurðar jarls og var alira manna vinsælastur, og stóð engi upp að heldur, þó að jarl ræddi um. 108. Kári mælti: ,,l»að munu margir mæla, herra, að ég hafi þetta verk fyrir yður unnið, að hefna hirðmanns yðar“. Flosi mælti: Ekki gerðl Kári þetta fyrir sakleysi, þvi að hann er í engum sættum ið oss. Gerði hann það að, sem hann átti. Kári gekk í braut og varð ekki eftir honum gengið Fór Kári til skips síns og þeir félagar. Var þá veður gott og sigldu suður til Kataness og fóru upp í Þrasvík til göfugs manns, er Skeggi hét, og voru með honum mjög lengi. 109. Skeggi bóndi gaf Kára skip alskipað. Stigu þeir þar á Kári og Dáviður hviti og Kolbeinn svarti. Sigldu þeir Kári nú suður fyrir Skotlands fjörðu. Þá fundu þeir menn úr Suðureyjum. Þeir sögðu Kára, að Flosi var farinn til Bretlands og menn hans. En er Kári spurði þetta, sagði hann félögum sinum, að hann vildi halda suður tii Bretlands til móts við þá Flosa. Allir vildu honum fylgja. Siglir hann þá suður til Bretlands og lögðu þar í leynivog einn. 110. Þennan morgun gekk Kolur Þorsteinsson í borg að kaupa silfur. Hann hafði mest hæðiyrði um brennuna. Þennan hinn sama morgun gekk Kári í borgina. Hann kom þar að, er Kolur taldft silfrið. Kári kenndi hann og hljóp að honum með sverð brugðið og hjó á hálsinn, e«» hann taldi silfrið, og nefndft tíu höfuðið, er það fauk af oolnum. Kári mælti: Seg það Flosa, að Kári Sölmundarson hefftr vegið Kol Þorsteinsson. Lýsi eg vlgi þessu mér á hendur“. 4. árg. ★ Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson ★ 11. febr. 1960

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.