Morgunblaðið - 11.02.1960, Qupperneq 20
VEÐRIÐ
Sjá veðurkort á bls. 2.
JMóffigttnlilaftlfr
34. tbl. — Fimratudagur 11. febrúar 1960
Fjárlagarœðan
Sjá bls. 11.
Bátur
brann
i roðri
IHannbjörg
I G Æ R D A G brann vél-
skipið Hafdís frá ísafirði,
í róðri suður á Selvogs-
banka. Mannbjörg varð. —
I gærkvöldi kl. 10, er sím-
stöðin í Grindavík lokaði,
voru skipbrotsmenn enn
ókomnir að landi. Þeir
höfðu bjargað sér á
gúmmíbjörgunarbáti og
vélskipið Fróðaklettur frá
Hafnarfirði, skipstjóri
Björgvin Gunnarsson frá
Grindavík, bjargaði áhöfn-
inni, sex mönnum. Var
Fróðaklettur væntanlegur
milli kl. 10—10,30 í gær-
kvöldi til Grindavíkur.
Ekki var vitað með hverj-
um hætti eldur kom upp í
bátnum. Hann hafði farið í
róður frá Grindavík um kl.
eitt í fyrrinótt. Mun eldurinn
hafa komið upp í bátnum um
hádegisbilið í gær. Lengi vel
munu skipverjar hafa reynt
að slökkva eldinn. Um kl. 3
höfðu þeir þó orðið að yfir-
gefa bátinn, svo magnaður
var eldurinn þá orðinn.
í gærkvöldi um kl. 5,30
höfðu Grindavikurbátar séð
Hafdísi. Var báturinn þá enn
á floti, lítið brunninn framan
til, en mikill eldur virtist aft-
an til í bátnum. Skipsmönnum
á Grindavíkurbátum virtist
vél skipsins enn vera í gangi,
því kælivatnið hafði spýtzt
frá honum reglulega. Spreng-
ingar heyrðust frá bátnum.
Skipstjóri á Hafdísi er
Stefán Þorbjörnsson úr Hafn-
arfirði, en útgerðarmaður
bátsins er Jón Kr. Gunnars-
son, einnig frá Hafnarfirði. —
Var hann kominn til Grinda-
víkur um kl. 10 í gærkvöldi,
en honum höfðu ekki borizt
nánari fregnir en öðrum aí
því sem gerzt hafði um borð
í Hafdísi um hádegisbilið í
gær. —
Hafdís var 79 tonna bátur
og eigandinn h.f. Vesturhús á
Þingeyri. Byggður var bátur-
inn árið 1946 í Sviþjóð.
Yfirlýsing efnahagsmálasérfræðings kommúnista:
Þjóðin
,,Krónan
sem heild
er ofmetin
lifir um efni fram"
Ummæli Haralds Jóhannssonar hag-
fræðings, formanns Utflutningssjóðs
„UM tvennt er ég sammála þess-
um starfsbræðrum mínum: Þjóð
in sem heild lifir um efni fram.
Krónan er otmetin“.
Þessa yfirlýsingu getur að líta
í nýútkominni bók um efnahags-
mál eftir Harald Jóhannsson, hag
fræðing, sem er einn aðal efna-
hagsmálasérfræðingur kommún-
ista hér á landi, og einkaráðgjafi
Lúðvíks Jósefssonar, meðan hann
var sjávarútvegsmálaráðherra.
Var hann þá skipaður formaður
stjórnar útflutningssjóðs og hluta
tryggingarsjóðs bátaútvegsins. —
Gegnir hann báðum þessum störf
um ennþá.
Tvær staðreyndir
viðurkenndar
Með fyrrgreindri yfirlýsingu
efnahagsmálasérfræðings komm-
únista eru viðurkenndar tvær
þær megin-staðreyndir, sem við
reisnarráðstafanir núverandi rík-
isstjórnar eru byggðar á. — í
fyrsta lagi, að þjóðin hefir lifað
um efni fram á undanförnum
árum. í öðru lagi, að verðgildi
íslenzkrar krónu er ekki í neinu
samræmi við hið skráða gengi
hennar. Er nú vandséð, hvernig
konunúnistar geta hér eftir hald-
ið því fram, að viðreisnartillögur
ríkisstjómarinnar séu fluttar á
fölskum forsendum.
Engin samræmd stefna
í efnahagsmálum
Fyrrgreind ummæli Haralds
Jóhannssonar, efnahagsmálasér-
fræðings kommúnista, viðhafði
hann í grein, sem hann ritaði
30. júní 1958. — Ræddi hann þar
umræður hagfræðinga, sem tóku
til máls á fundi Stúdentafélags
Reykjavikur um efnahagsmál.
í framhaldi af umælunum, sem
vitnað var til hér að ofan, komst
efnahagsmálasérfræðingur komm
únista að orði á þessa leið:
„En fleiri og jafnvel meiri efna
hagsvandamál þarfnast úrlausn-
ar en þau, sem af þessu tvennu
stafa. Undanfarin ár hefir mynd-
azt í landinu efnahagskerfi,
sem meira á skylt við merkantil-
isma en kapitalisma eða sósiali-
isma. Aðstaða til gróðamyndun-
ar er ekki lengur viðmiðun at-
vinnulegra framkvæmda. Við hef
ir ekki tekið nein samræmd stefna
í efnahagsmálum. Ef forða á efna
hagslegu öngþveiti, verður ríkið
annað hvort að t?.*ia upp vel
grundvallaða stefnu í atvinnumál
um, sem miðast við nokkur ár,
eða gefa kapitalismanum að öðr-
um kosti lausan tauminn“.
Þetta var ritað fimm mánuðum
áður en vinstri stjórnin gafst
upp, eftir að hafa sleppt
verðbólgunni lausbeizlaðri eins
og óargadýri á almenning.
„Allir sammála“ um
g j aldey ris var as j óð
I þessari sömu ritgerð komst
efnahagsmálasérfræðingur komm
únista einnig að orði á þessa
leið:
„í framsöguræðu sinni gat
Jónas H. Haralz þess, að hann
teldi æskilegt, að Iandið kæmi
sér upp gjaldeyrisforða, sem
næmi 30—40% af árlegri gjald-
eyrisnotkun þess, eða um 500
milljónum króna. Um þetta hljóta
allir að vera sammála“, segir
efnahagsmálasérfræðingur komm
únista.
Á skammri stundu skipast
veður í lofti. — Nú ætlar Þjóð-
viljinn að rifna af vandlætingu
út af því, að núverandi ríkis-
stjórn stefnir að myndun slíks
gjaldeyrisvarasjóðs!
Hratt af stað skriðu
nýrrair verðbólgu
Bók Haralds Jóhannssonar,
efnahagsmálasérfræðings komm-
únista, hefst á formála, sem dag-
settur er 31. jan. sl. — Hann er
því aðeins 11 daga gamall. — í
honum er m.a. komizt að orði á
þessa Ieið:
„Um stefnu vinstri stjórnar
Hermanns Jónassonar í efnahags
málum er tíðrætt. Nokkrum orð-
um er farið um ástæður þess, að
setning síðari laganna „um út-
flutningssjóð o. fl.“ í lok maí
1958 varð fyrir gýg“. — Síðan
heldur efnahagsmálasérfræðing-
urinn áfram formála sínum —
innan sviga — og kemst þá að
orði á þessa leið:
„Álagning yfirfærslugjalds á
rekstrarvörur sjávarútvegs og
landbúnaðar með lögum þessum
var ef til vill sú vala, sem hratt
af stað skriðu nýrrar verðbólgu“.
Efnahagsmálasérfræðingur v-
stjórnarinnar hefir þannig gert
allt í senn:
Hann hefir lýst því yfir sem
sinni skoðun. að þjóðin hafi lif-
að um efni fram á undanförnum
árum, að islenzka krónan hafi
verið skráð á fölsku gengi, og að
efnahagsmáiastefna vinstri stjórn
arinnar hafi „hrundið af stað
skriðu nýrrar verðbólgu“.
Viðurkenning
kommúnista
Þessi maður hefur vissulega
mælt af mikilli hreinskilni. En
illa samræmast orð hans og yfir-
lýsingar málflutningi Þjóðviljans
nú á degi hverjum. En mikilvæg-
ast er að þær sýna, að inn á sér
viðurkenna kommúnistar, að við
reisnarráðstafanir núverandi
rikisstjórnar fela í sér raunhæfar
ráðstafanir, sem geta leyst þau
vandræði, sem þjóðin á nú við
að etja.
Ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd niður við höfn í gær, er verið var að skipa upp bilum úr
Reykjafossi — alls 20 bílum. — Standa nú á þriðja hundrað bílar í portinu fyrir framan
pakkhús Eimskipafélagsins við Borgartún.
Hörmulegt slys
í bœnum í gœr
Drengur ferst við sprengingu
í GÆRKVÖLDI var á byrj-
unarstigi rannsókn á hörmu-
legu slysi, sem varð í útjaðri
bæjarins í gær. Tíu ára
drengur að nafni Jón Gunnar
Gunnarsson, Langagerði 44,
Varðskip send á móti Vatnajökli
EFTIR því sem Mbl. hefur frétt,
munu tollyfirvöldin hér hafa feng
Ið vitneskju um það utanlands
lrá að um borð í Vatnajökli væri
nokkurt magn af áfengi, sem
smygla ætti hér inn. — Einn
þáttur þess að koma í veg fyrir
að þetta tækist, var að varðskip
voru send ,,geng“ Vatnajökli.
Vatnajökull var staddur út af
Portlandi, er eitt varðskipanna
kom til móts við skipið og sneri
það þegar við og fylgdist með
yatr.ajökli. Þegar dimmt var orð-
ið var kveikt á ljóskastara á brú
varðskipsms og honum beint á
skipið, þannig að úr brú varð-
skipsins var fylgst með öllum
monnaferðum og athöfnum
manna á þiljum uppi.
Þetta varðskip fylgdist með
Vatnajökli allt að Garðskaga og
stöðugt var hinum sterka ljós-
kastara beint á Vatnajökul. Við
Garðskaga tók annað varðskip
við og fylgdi það Vatnajökli inn
á Reykjavíkurhöfn.
þess að koma í veg fyrir hugsan-
lega smygltilraun á áfenginu frá
skipinu, áður en það kæmi inn
til Reykjavíkur.
Talið er að tollyfirvöldin hér
hafi fengið upplýsingar um
áfengið, sem tollverðirnir fundu
loks, frá deild INTERPOOL-lög-
reglunnar í hafnarborginni Bol-
ogne í Frakklandi, en þar hafði
hið franska áfengi verið keypt.
Síðdegis í gær hafði sakadóm-
araembættinu ekki borizt kæra
Mun þetta hafa verið gert til út af þessu smygli.
beið bana af völdum spreng-
ingar.
Þessi hörmulegi atburður átti
sér stað í porti við húsið Mela-
velli við Sogaveg. Á þessum stað,
eða öllu heldur í portinu hefur
bílasala sölunefndar varnarliðs-
eigna farið fram. Nú er sú starf-
semi þaðan flutt og hefur nú tek-
ið við portinu fyrirtæki eitt sem
Faxaver heitir. Portið mun hafa
átt að vera lokað.
Eftir því sem fyrir lá um þenn-
an hörmulega atburð í gærkvöldi,
mun Jón Gunnar hafa verið í
portinu ásamt tveim drengjum
yngri og einum jafnaldra sínum.
Ekki er fyllilega ljóst hver að
dragandi slyssins var. Talið er
að í portinu hafi drengurinn
fundið allstóran brúsa. Honum
hafi verið kastað á bál sem þeir
höfðu kveikt þar í portinu. Mun
Jón Gunnar hafa fleygt brúsan-
um á bálið. Mikil sprenging
varð 1 brúsanum, botninn rifn-
aði úr hornun og við spronging-
una mun eldur hafa læst sig í föt
Jóns Gunnars. Drengirnir höfðu
hlaupið sem fætur toguðu út úr
portinu er sprengingin varð. Er
að var komið nokkru síðar, var
drengurinn mikið brunninn og
lítt með lífsmarki. Lézt hann fá-
einum mínútum eftir að komið
var með hann í sjúkrahús.
Eins og fyrr greinir var rann-
sókn þessa hörmulega slyss á
byrjunarstigi í gærkvöldi. Var þá
t.d. ekki vitað hvernig stóð á
þessum brúsa í portinu, en víst
er talið að á honum hafi verið
benzínslatti.
Jón litli Gunnar, sem var 10
ára, var sonur Gunnars Krist-
jánssonar teiknara Langagerði 44
og konu hans Guðlaugar Klemenz
dóttur. Var Jón Gunnar næst elzt
ur fjögurra sona.
2. umræða
■ dag
EFNAHAGSMÁLAFRV. rikis-
stjórnarinnar verður tekið til
2. umr. í neðri deild á morg-
un, væntanlega með afbrigð-
um, því nefndarálitum hafði
ekki verið útbýtt í gær.
ÚTVARPSUMRÆÐUR
Þriðja umræða í neðri deild
verður útvarpsumræða, og fer
fram n.k. mánudagskvöld.