Morgunblaðið - 23.02.1960, Síða 9

Morgunblaðið - 23.02.1960, Síða 9
í ? • | f , H\ t > i 'f >' , i ,* ■ Þriðjudagur 23. febrúar 1960 Jll O tt G l’ JV fí L A Ð I Ð Verður að hafa stöðugar gæt ur á jökulánum Þorsteínn hreppstjóri i Suðursveit segir fréttir úr A-Skaft. ÞORSTEINN Guðmundsson, hreppstjóri í Suðursveit, leit inn á ritstjórnarskrifstofur Mbl. á dögunum. Notuðum við tækifærið og spurðum hann frétta af högum manna Þorsteinn Guðmundsson í Austur-Skaftafellssýslu, en Þorsteinn gaf við öllu greið svör. Fyrst spurðum við um tíðarfarið. Hrakin hey. — Það var ákaflega votviðra- samt um sláttinn, erfitt að ná inn heyjum og þau hröktust tölu vert. Þó held ég að heyfengur hafi verið með drýgra móti að vöxtum, en verri að gæðum og ekki eins að treysta. Má því gera ráð fyrir mikilli fóðurbætisgjöf þegar líður fram á vorið og lamb þunginn fer að síga á ærnar. Haustið var einnig votviðra- samt og fram eftir vetri. Snjó hefur aftur á móti varla fest, en jörð aðeins hvítnað tvisvar. Vant nokkurs fjár. Garðávextir brugðust sums- staðar, en voru annars staðar í tæpu meðallagi. Fjárheimtur munu yfirleitt hafa verið góðar, nema á vestustu bæjunum í Suð- ursveit, en þar vantaði undar- lega margt fé. Til dæmis milli 20—30 kindur frá Breiðabólstaða bæjunum þremur. — Liggja einhverjar sérstakar orsakir til þess? — Ekki vita menn að svo sé. Mín tilgáta er sú, að vel hefði það getað skeð að fjárhópur hefði innilokazt milli fjalls og jökuls. Það er undarlegt, hvað gróður kemur snemma á það land, sem kemur undan jöklin- um, en ég held aldrei hafi verið gengið meira en í haust og grennslazt eftir þessu fé, sem vantar. Ekki hefir orðið vart við neina veiki í fé og tófa hefur heldur ekki gert usla í því nú á síðustu árum, því henni hefur tekizt að útrýma að mestu leyti. Aukin mjólkurframleiðsla. — Þið leggið einkum fyrir ykkur sauðfjárræktina? — Hingað til hafa bændur aðallega búið við sauðfénað, en nú hefur kaupfélagið sett upp mjólkurstöð á Höfn og eru bænd- ur því að fjölga kúnum. Eru tvær ferðir í viku með mjólkina úr Suðursveit, en stendur til að þær verði fleiri, a. m. k. þegar Hornafjarðarfljót hefur verið brúað. Brúargerð var hafin á sl. sumri og er þess. að vænta að henni verði lokið næsta sumar. Finnst manni mál til komið að komast í sæmilegt vegarsam- band við kauptúnið. Góð skilyrði til jarðræktar. — Hvað um jarðræktarfram- kvæmdir? — Það hefur verið unnið mikið að jarðabótum og jarðræktarskil yrði eru allsstaðar góð, því landið er ógrýtt. Skurðgrafa hef- ur verið staðsett í héraðinu, nú um nokkur ár, og hefur haft mikil verkefni. Má segja, að allir taki sinn heyskap af ræktuðu landi, en þó þarf að stækka rækt. uðu löndin enn til þess að vel verði fyrir öllu séð í framtíð- ini. Er hægt að rækta upp mikið af sandinum, bæði á Mýrunum og í Suðursveit, en það verður að hafa stöðugar gætur á jökul- ánum og varna því með fyrir- hleðslugörðum, að þær brjóti upp graslendið. Skógrækt. Skógræktarfélag er starfandi í héraðinu. Þó starfsemi þess sé á byrjunarstigi, lofar það sem gert hefur verið öllu góðu um ár- angur. Sl. ár voru gróðursettar 10 þúsund barrtrjáplöntur. Elztu grenitrén, sem gróðursett hafa verið, eru ekki nema 6 ára, en þau eru að verða 2 m há. Hafa það ágætt. — Hvað viltu segja mér um atvinnulífið í kauptúninu? — Það byggist að mestu á út- gerð og eru gerðir út 5 bátar, sem eiga heima á Höfn. Fiskirí hefur verið ágætt síðan vertíð hófst upp úr áramótum. Voru góðar gæftir til 20. janúar, en þá tók fyrir þær í nokkra daga, en nú hefur verið mjög gott í rúma viku. Er af þessu mikil at- vinna í kauptúninu, því allur afl- inn er nýttur þar. Þar er hrað- frystihús með fiskflökun og fiski mjölsverksmiðja. Fólkið í Höfn virðist hafa það ágætt og hefur byggt mjög vel yfir sig á síðustu árum. Þar eru rekin tvö trésmíða- verkstæði og 3 vélaverkstæði. Góðar flugsamgöngur — Samgöngur? — Við höfum góðar flugsam- göngur. Yfir vetrarmánuðina eru tvær flugferðir í viku og þrjár í viku yfir sumarmánuðina. — Samgöngur á sjó annast Herðu- breið og Herjólfur nú í seinni tíð, en okkur þykir hann lítið hafa sýnt sig enn sem komið er. Þá annast sambandsskipin, eink- um Dísarfell og Jökulfell, flutn- inga fyrir kaupfélagið. Við þökkum Þorsteini hrepp- stjóra greinargóðar upplýsingar, og óskum honum góðrar ferðar heim í sína fögru sveit. Tjarnargötu 5. Sími 11144. Chevrolet ’57, ’58, Taxar uppgerðir Ford ’58, ’59, Taxar uppgerðir og óuppgerðir Ford ’57, 6 cyl. sjálfskiptur Opel Kapitan ’54, ’55, ’57 Skoda 440 ’56, ’57 Renó ’47 Allur ný yfirfarinn Volkswagen ’55, ’56, ’58, ’59 Opel Caravan ’55, ’59, ’60 Dodge ’53 sendiferðabifreið í mjög góðu ásigkomulagi. Tjarnargötu 5. — Simi 11144. BÍimilNN við Vitatorg. Sími 12500. Ford Zodiac ’60 ókeyrður Ford Zodiac 1958 Ford Zephyr 1958 Ford Times 1955 Fiat 1100 fólksbíll 1954 Reno 1946 Austin 8 1946 í skiptum fyrir jeppa. Volkswagen 1958 Volkswagen 1959 Taunus Station 1955 Chevrolet Station 1955 Ford 1959 Taxi, uppgerður Chevrolet 1954 sjálfskiptur Chevrolet 1955 sjálfskiptur Chevrolet 1955 ný kominn til landsins Buick 1955 mjög góð einkabifreið Ford ’58 Fairlane 500 í skiptum fyrir Ford eða Chevrolet 1955 Buick 1947 í skiptum fyrir Chevrolet 1954. Kaiser 1954 Opel Capitan 1955 lítið ekinn, einkabifreið. Chevrolet 1953 BÍU8UINN við Vitatorg. Simi 12-500 15*0*14 Zodiac 1960, nýr Fiat 1800 station ’60, nýr Taunus station 1960, nýr Fiat 1100 1960, nýr Fiat 600 1960, nýr Opel Kapitan 1959 Volkswagen 1959 Morris Minor 1959 Zephyr 1958 Consul 1958 Mal BÍUSALAN Aðalstræti. Sími 15014. J.H.A. Pússningarsand ur frá Þorlákshöfn til sölu á 16 kr. pr. tunnan. Til á lager. — Pantanir í síma 22577. Til sölu Hálf húseign á hitaveitusvæði (2 íbúðir, efri hæð og rishæð) ásamt bílskúr er til sölu. Upplýsingar i síma 16773 kl. 6—8 s.d. Úfgerðarmenn Höfum til sölu nokkra liði af ein tommu stokkakeðju. Upplýsingar í síma 33255 og 34536. Laus sfaða Staða fulltrúa hér við embættið er laus frá 14. marz næst komandi. — Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir sendist fyrir 1. marz n.k. Bæjarfógetinn á Isafirði 16. febr. 1960. Tilboð óskast í brotajám, kopar, eir, aluminium, blý og rafgeyma, sem verða í birgðastöðvum vorum í Reykjavík og Keflavíkurflugvelli. — Tilboðin séu miðuð við að framantaldir málmar verði teknir í því ástandi, sem þeir eru. — Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri fimmtudaginn 25. þ.m. kl. 11 f.h. Sölunefnd Vamarliðseigna 9 (iamla bílasalan Kalkofnsvegi. — Sími 15812. Bilar til sölu Moskwitch ’59 o^ 60 nýir vagnar Volkswagen ’57, ’58, ’59, ’60. Taunus 1960 nýr vagn Fiat 1960, 1800 gerð nýr vogn Opel Record nýr vagn Morris 1947 góður bíll selst á góðu verði Höfum kaupendur að flestum tegundum bif- reiða. Talið við okkur sem fyrst. Gamla bílasalan. Kalkofnsvegi Sími 15812. Frá Vöru- og bifreiðasölunni Pobeta 1954 útborgun 20 þúsund Ford 1953 útborgun 35 þúsund Buick 1955 útborgun 20 þúsund Pontiac 1947 útborgun 5 þúsund Packard 1947 útborgun 5 þúsund Buick 1947 útborgun 5 þúsund Willy’s jeppi útborgun 15 þúsund Ford vörubifreið útborgun 20 þúsund Höfum kaupendur aB flestum tegundum bif- reiða. Vnru og bifreiðasalan Snorrabraut 36. — Sími 23865. Bifreiðasalan Baronsstíg 3, sími 13038 Moskwitch 1960 ókeyrður Ford Taunus 1960 ókeyrður Volkswagen 1960 — ’59 — ’5t Renault ’55 ýmis skipti Ford Prefect ’55 Ford Zephyr ’55 Moskwitch ’58, ’55 Skipti á yngri bílum. Ford Ve detta ’51 skipti á yngri bíl Dodge ’55, ’54, ’53 Plymouth ’54, ’53, ’52 Chevrolet ’55, einkabíll ýmis skipti hugsanleg. Willy’s jeppi ’55 Rússajeppi ’56 Volkswagen ’54 sendiferðabif- reið. Látið okkur annast viðskiptin. Bifreiðasalan Barónsstig 3. — Simi 13038.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.