Morgunblaðið - 23.02.1960, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.02.1960, Blaðsíða 20
ítttMu. Ballett Sjá bls. 11. 44. tbl. — Þriðjudagur 23. febrúar 1960 Nauðsynleg til í efnahagslífinu Á ekki að standa til frambúðar Úr útvarpsávarpi Jónasar Haralz Vaxtahœkkunin: að ná jafnvœgi Fall fyrir keppni 1 FRETTAAUKA í gær- kveldi flutti Jónas H. Har- alz ráðuneytisstjóri, skýrslu um vaxtahækkunina. Gat hann þess í upphafi máls síns, hver hún væri og' gerði síðan grein fyrir nauðsyn hennar. Sagði, að því væru ákveðin takmörk sett, hve mikið bankar mættu auka útlán sín án alvarlegra af- leiðinga. Ef útlán ykjust meira en sparifé, leiddi það til greiðsluhalla við útlönd og verðbólgu innanlands eins og hefði gerzt hér á landi. Þá drap ráffuneytisstjórinn á rýmun sparifjár á undanförnum áram, er verðbólguþróunin hefði hennt fólki að það borgaði sig ekki aff eiga sparifé en verið gróðavegur að vera skuldunaut- ur. Sagði síðan: Örvar til sparifjármyndunar — Jafnmikil vaxtahækkun og nú hefur verið ákveðin hefur mikil áhrif til breytinga á þessu. Hún örvar til aukinnar spari- tjármyndunar og hún dregur úr eftirspurn eftir lánsfé. Það er óhætt að fullyrða, aff eins og nú er komið hér á Iandi sé ekki hægt án slíkrar vaxtahækkunar að ná jafnvægi milli sparifjár- myndunar annars vegar og aukn- Ingar útlána hins vegar. Þessari vaxtahækkun er ekki ætlað að standa til frambúðar. Engin breyting á „vígstöðunni" hér MBL. spurði Pétur Sigurðs- son, forstöðumann Landhelg- isgæzlunnar að þvi í gær- kvoldi, hvort nokkurt farar- snið væri komið á brezku her- skipin á lögbrotasvæðunum hér við land. Var spumingin borin fram i sambandi við blaðafregnir um að herskipin og lögbrotaflotinn, sem þau vemda, mundi draga sig út fyriir 12 mílna mörkin. Pétur kvað ekkert fararsnið vera á neinu herskipanna, og frá þeim hefði ekkert heyrzt um að breyting væri í vænd- um. Sem fyrr eru lögbrotasvæð- in tvö við landið. Nú sem stendur eru þau út af Ingólfs- höfða og útaf Vestrahorni. — Hafa margix togarar verið á þessum svæðum báðum við ólöglegar veiðar. Hún er hins vegar nauðsynleg í bráð meðan ráðstafanir þær, sem felast í hinum nýju lögum AI- þingis um efnahagsmál eru að hafa áhrif og skapa nauðsynlegt jafnvægi í efnahagslífi þjóðar- innar. Þeim mun skjótari og betri árangur, sem af þessum ráðstöfunum hlýzt, þeim mun skemur munu hinir háu vextir haldast. ÍÍ&Bfl Hefur ekki áhrif á TJT. m Það er augljóst, að vaxta- hækkunin skapar atvinnufyrir- tækjum og öðrum þeim, sem skulda fé í bönkum, kostnað og örðugleika. Slíkt er óhjákvæmi- legt þann tíma, sem hinir háu vextir haldast. Iðnaði og verzl- unarfyrirtækjum verður ekki leyft að hækka útsöluverð vegna hækkunar vaxta. Ekki var held- ur tekið tillit til hinnar væntan- legu vaxtahækkunar, þegar það var áætlað hvaða gengi útflutn- ingsatvinnuvegirnir þyrftu á að halda. Vaxtahækkunin hefur því engin áhrif á verðlagið. Atvinnu- fyrirtækin verða að bæta sér upp með öðru móti þann kostn- aðarauka, sem í bráð leiðir af vaxtahækkuninni. Þau geta gert það meff því að minnka birgðir sínar og draga úr fjárfestingu, og þar með minnka lánsfjárnotk- unina og þau geta gert þaff með því að draga inn í fyrirtækið nýtt fjármagn og minnka þann- ig einnig þörf sína fyrir láns- fé. Við það bætist, að afnám bóta kerfisins gerir það að verkum, að útflytjendur fá nú fulla greiðslu fyrir útflutninginn fyrr en áður og þýðir það verulegan sparnað í vöxtum. Eg vil svo að lokum draga saman í örfáum orðum, það sem ég tel aðalatriði þessa máls. 1. Vaxtahækkunin er nauð- synleg til að koma á jafnvægi í efnahagslífi þjóðarinnar. 2. Hún er ekki til frambúðar og mun ekki hafa áhrif á verð- lagið. 3. Því skjótari og betri, sem árangurinn verður af þeim efna- hagsráðstöfunum, sem nú er ver- ið að gera, því fyrr er hægt að lækka vextina á nýjan Ieik. Færeyingar daufir í dálkinn en vongóðir samt PATREKSFIRÐI, 22. febr.: — Togarinn Gylfi er nú kominn bingað heim eftir langa útivist, en gír við vél skipsins bilaði í lok nóvembermánaðar. Var skip- ið til viðgerðar í Bremerhaven. Vegna þess hversu dróst að senda í gírinn nauðsynleg vara- stykki frá Bretlandi, er togar .in núra íyrst að koma úr þessari viðgerð. Skipstjórinn á Gylfa, Ingvar Guðmundsson, sagði mér í gær, þeir höfðu einhverjar vonir um að málið myndi leysast, þegar Líkur á samkomu- lagi LÍKLEGT þykir nú, að sam- komulag náist um búvöru- verðið, þótt það hafi ekki enn verið birt opinberlega. Málið er nú í athugun hjá hagstofu- stjóra um sambandið við nið urgreiðslurnar. Mun 6-manna nefndin síðan taka málið aft- ur til athugunar. Listi lýðræðissinnu í Trésmiðn iélnginu LISTI lýðræðissinna í Trésmiða- félagi Reykjavíkur er þannig skipaður: Stjórn: Magnús Jóhannesson, form., Kári I. Ingvarsson, vara- form., Guðm. Sigfússon, ritari, Þorvaldur Ó. Karlsson, vararit- ari, Reynir Þórðarson, gjaldkeri. — Varastjórn: 1. Magnús V. Stefánsson, Ránarg. 33a, 2. Sveinn M. Guðmundsson, Rauða- læk 10, 3. Eggert Ólafsson, Heið- argerði 52. — Endurskoðendur: Sigurgeir Albertsson, Einar Ein- arsson. — Vara-endurskoðendur: Einar Þorsteinsson, Þorkell Ás- mundsson. — Trúnaðarmanna- ráð: — Guðni H. Árnason, Aðils Kemp, Jóel Jónsson, Karl Þor- valdsson, Ragnar Bjarnason, Sigmundur Sigurgeirsson, Mar- geir Ingólfsson, Ásmundur Þor- kelsson, Þorleifur Sigurðsson, Þórir Thorlacius, Kjartan Tóm- ásson, Sigurður Guðmundsson. — Varamenn í Trúnaðarmanna- ráð: Júlíus Jónsson, Erlingur Guðmundsson, Geir Guðjónsson, Guðni Ingimundarson, Þórður Guðjónsson, Guðmundur Gunn- arsson. nokkuð frá skiptum sínum við Xæreyzka sjómenn í Trangisvogi í Færeyjum. Þar búa nokkrir fyrrum skipsmanna á Gylfa sem hann hitti að máli. Lætur Ingvar vel yfir kynnum sínum af fær- eyskum sjómönnum. Var það hug mynd hans, að fá á skipið 14—16 Færeyinga. 1 Trangisvogi voru menn held- ur daufir í dálkinn og ekki að undra því atvinnuleysi er þar ríkjandi og mun verða fram í apríl, nema takist að brúa bilið milli útgerðarmanna hér og tals- manna færeyzkra sjómanna. Fær eyingarnir fóru ekki dult með óánægju sína yfir ástandinu. Þeir töldu sig vera að öllu leyti bundna ákvörðunum stjórnar Fiskimannafélagsins, og því gætu þeir ekki komið til starfa á Gylfa eða nokkru öðru ísl. skipi. — En Islendingar væru búnir að gera sínar efnahagsráðstafanir. Þetta var bersýnilega einlæg ósk þtirra, en ekki ræddu þeir um hvernig þá myndi takast að leysa hnútinn. Ingvar skipstjóri kvaðst vonast til að hann gæti nú alveg næstu daga farið á veiðar. Nú vantar 3—4 menn á fulla tölu skipverja. Hefur Ingvari tekizt að hafa sam band við nokkra togaramenn og hann gerir sér vonir um að er Gylfi kemst á veiðar, verði á hon- um full tala skipverja. Sendiherra Dana afhenti trúnaðar- bréf sitt HINN nýi sendiherra Dana á ís- landi, herra Bjarne W. Paulson, afhenti sl. laugard. forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega at höfn á Bessastöðum. Viðstaddur athöfr ina var utanríkisráðherra. Vegna andláts H. C. Hansens forsætisráðherra Danmerkur, var bádtgisverðarboði fyrir hinn nýja sendiherra og frú hans af- lýst. Þessi mynd birtist fjögurra dálka í einu af stórblöðum San Francisco. Hún sýnir einn Olympíukeppenda sem var á æfingu dagana fyrir Vetrarleikina. Maðurinn féll en meiddi sig ekkert — stóð upp litlu síðar og hélt áfram. Maðurinn er að sögn blaðsins Jóhann Vilbergsson frá Siglufirði einn þriggja keppenda íslands í alpa- greinum leikanna. Hann er vel búinn með væna húfu og góð gleraugu sem hver skíffamaffur hefur í hættu- legum fjallagreinum, en sem gerir þá einna likasta köfurum. Eysteinn Þórðarson stóð sig með prýði í stórsviginu. Hann varð 27. í röðinni af 66 keppendum. Kristinn Benediktsson varð 34. í mark, en var síðar dæmdur úr leik fyrir að sleppa hliði. — Frásögn af spennandi Olympíukeppni um heigina er á bls. 18 og 19. Lýðrœðis- sinnar sigruðu UM sl. helgi fór fram stjórnar- kjör í Múrarafélagi Reykjavíkur. Tveir listar voru í kjöri. A-listi stjórnar og trúnaðarráðs, sem studdur var af lýðræðissinnum og B-listi, er kommúnistar stóðu að. Úrslit kosninganna urðu þau, að A-listi hlaut 98 atkvæði og alla menn kjörna í stjórn og trúnaðarráð — B-listi hlaut 79 atkvæði. Stjórn Múrarafélagsins er nú þannig skipuð: Einar Jónsson, form. Jón G. S. Jónsson, varaform. Stefán B. Ein arsson, ritari. Hilmar Guðlaugs- son, gjaldkeri félagssjóðs, Pétur Þorgeirsson, gjaldkeri styrktar- sjóðs. Varastjórn: Baldvin Haralds- son, Jón V. Tryggvason og Einar Guðmundsson. Trúnaðarmannaráð: Hreinn Þoorvaldsson, Jón R. Guðjónsson, Guðmundur Gíslason, Jóhannes Ögmundsson, Þórir Guðnason, Ólafur Bjarnason. Varamenn: Snæbjörn Þ. Snæ- björnsson, Þorsteinn Einarsson, Sigurður G. Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.