Morgunblaðið - 23.02.1960, Qupperneq 13
Þriðjudagur 23. febrúar 1960
MORCVISBLAÐIÐ
13
Ólofur Jónsson frn Elliðoey
Orkt d 7 5 ára afmælisdegi hans
Sjöt.u og fimm árin sérðu í dag.
Sæll komdu, Ólafur minn.
Þökk fyrir allt hið gamla og
góða,
gleðina og vinskapinn.
Hjá mér þú varst hinn góði
gestur
glaðværðin um þig skein
Fjörið snilldin og
frásagnargleðin
falslaus lundin og hrein.
Þú áttir jafnan þrotlausan
fróðleik
þess verður lengi minnzt.
Hreinskilni þín og hispursleysi
við hvern sem fékk þér kynnzt.
Minnist ég lengi fyrstu funda
— ferðina upp um sveit —
Frá þeirri stund hefur vináttan
vaxið
og vinátta þín er heit.
Oft var kveðið á skemmtunum
Skjaldar
og sköruglegt flutt þar mál.
Þú lagðir alltaf í efnið, vinur,
allan huga og sál.
Marga stökuna suðum við saman,
og sveitunum fluttum brag.
Hugurinn mýkist og manni
hlýnar
að minnast þess nú í dag.
En það er eins og eitthvað vanti
og amakennd grípi mig,
Hólmurinn finnst mér ekki eins
og áður
eftir að missa þig.
Heimili þitt var öðlings yndi.
— Minning
Framh. al bls. 11
er hann horfinn af leiksviði lífs-
ins. Við sjáum hann ekki lengur
með Morgunblaðið undir hend-
inni, eftir 40 ára þjónustu við
blaðið. Hann var greindur vel,
athugull og minnugur, las mikið
og fygldist vel með öllu til síð-
ustu stundar. Hann var traustur
Sjálfstæðismaður alla tíð.
Við hjónin þökkum fyrir langa
vináttu og ógleymanlegar ánægju
stundir. Minningarnar lifa. Megi
Guð lífsins og ljóssins blessa þig
og ástvini þína, sem nú harma
fráfall þitt.
Sigmundur Jónsson.
Unað var margan dag
við að rifja upp fornan fróðleik
og fá sér einn spilaslag.
Ykkar Dóru ég minnast má
og mun það tæpast kvitt
hvernig þið með einlægri ástúð
umvöfðuð heimili mitt.
Héðan streyma því afmælisóskir
í alltof fátækum brag.
Blessun drottins brautina hvíli.
Hann blessi ykkur þennan dag.
Árni Helgason
Húsbyggjendur —
Húseigendur
Upplýsingar og sýnishorn frá 47 af helztu
fyirirtækjum landsins.
Opið alla virka daga kl. 1—6 e. h.
nema laugardaga kl. 10—12 f.h.
einnig miðvikudagskvöld kl. 8—10 e.h.
Byggingaþjónusta A.f.
Laugavegi 18 A
Sími 24344
Frá I. H. S. 1. NÁMSKEIÐ
Skipulagning
verksmiðja
Námskeiðið hefst: Mánudaginn 29. febrúar og stend-
ur til 4. marz 1960.
Tími: Kl. 15,30 — 19,00 daglega.
Staður: Fundarsalur Iðnarmálastofnunnar íslands
Fyrirlesari: Próf. W. G. Ireson, Iðnaðarv.fr. European
Productivity Agency. Fyrirlestrarnir verða fluttir
á ensku.
Þátttakendur: Verkfr., iðnfr., arkitektar og aðrir,
sem fást við skipulagningu verksmiðja og verkstæða.
Þátttaka: Tilkynnist fyrir 25. febrúar í síma 1-98-33
og 1-98-34.
Þátttökugjald: Kr. 250.—
Iðnaðarmálastofnun fslands
Au kat e kj u r
Hafið þér áhuga fyrir að auka núverandi tekjur yðar um 3—5 þúsund krónur
á mánuði. — Við mjög létt aukastarf. — Ef þér eruð á aldrinum 20—50 ára og
liafið góða framkomu, ættuð þér að tala við okkur sem fyrst.
HILMIR H.F.
SKIPHOLTI 33
Millilandaflugg jöld
frá og með 24. febrúar 1960.
Það tilkynnis heiðruðum viðskiptavinum okkar, að frá og
með 24. febrúar verða fluggjöld milli Reykjavíkur og
neðangreindra staða sem hér segir:
Aðra leið: Báðar leiðir:
AMSTERDAM kr. 4.124.00 kr. 7.586.00
BJÖRGVIN — 3.430.00 — 6.174.00
GAUTABORG — 3.734.00 — 6.722.00
GLASGOW — 2.667.00 — 4.801.00
HAMBORG — 4.214.00 — 7.586.00
HELSIN GFORS — 5.446.00 — 9.803.00
KAUPMANNAHÖFN .. — 3.734.00 — 6.722.00
LONDON — 3.366.00 — 6.059.00
OSLÓ — 3.430.00 — 6.174.00
STAFANGUR — 3.430.00 — 6.174.00
STOKKHÓLMUR .... _ 4.476.00 _ 8.057.00
Fargjöld á öðrum flugleiðum breytast til samræmis
við ofangreint. Frá og með 24. febrúar verður öllum far-
þegum flugfélaganna gert að greiða sömu gjöld, enda
þótt farseðlar hafi áður verið keyptir.
Farmgjöld í millilandaflugi breytast einnig frá sama
tíma til samræmis við hina nýju gengisskráningu.
LOFTLEIÐIR H.F.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F.
PAN AMERICAN WORLD AIRWAYS.
Framtíðarafvinna
Reglusamur, helzt vanur verzlunarmaður getur
fengið framtiðaratvinnu í fataverzlun. Þarf að geta
unnið sjálfstætt. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir
1. marz, merkt: „Framtíð — 9841".
Atvinna - Kópavogur
Stúlkur vantar til að sauma frakka. Upplýsingar
í síma 18777.