Morgunblaðið - 23.02.1960, Qupperneq 19
Þriðjudagur 23. febrúar 1960
MORCVNBLAÐtÐ
19
Skúli Ágústsson Björn Baldursson
Hækkun ú flugfargjöldum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS skýrir
svo frá, að verulegar hækkanir
verði á fargjöldum og farmgjöld-
um í millilandaflugferðum fé-
lagsins. Stafar þetta af því að
fargjöldin eru ákvörðuð með milli
ríkjasamningum og eru þau
ákveðin í sterlingspundum á
flugleiðum til Evrópu en dollur-
um á flugleiðum til Ameríku.
Hljóta fargjöldin því að breytast
samstundis við gengislækkun.
Nokkuð dregur þó úr hækkun-
inni við það, að 10% farseðla-
skattur sem á hefur verið er
felldur niður.
Fargjaldabreytingin kemur til
framkvæmda á miðvikudag öft
verður sem hér segir á helztu
flugleiðum:
Kaupmannahöfn: 3734 kr., áðui
2728 kr. Báðar leiðir 6722 kr.,
áður 4910 kr.
Hamborg: 4214 k_-., áður 3078.
Báðir leiðir 7586 kr., áður 5541
kr.
London: 3366 kr., áður 2459 kr.
Báðar leiðir 6059 kr., áður 4426
kr.
Oslo: 3430 kr., áður 2506 kr.
Báðar leiðir 6174 kr., áður 4512
kr.
Engar breytingar verða fyrst
um sinn á fluggjöldum innan-
lanas.
Innilega þakka ég öllum, sem glöddu mig á áttræðis
afmæli mínu hinn 17. febrúar sl. með heimsóknum, gjöf-
um, blómum og skeytum og gerðu mér daginn ógleyman-
legan. — Guð blessi ykkur öll.
Björn Baldursson skauta-
meistari íslands *
UM helgina fór fram Skautamót
Islands á Tjörninni í Reykjavík.
Keppendur voru 8 og allir frá
Akureyri. Má segja að það sé
nokkuð dýrt spaug að láta 8 Akur
eyringa keppna innbyrðis í
Reykjavík. En þeir veittu bæjar
búum mikla ánægju og sýndu
skemmtilega íþrótt. Sigurgeir
Guðmannsson framkvstj. ÍBR
sett> móti en síðan var keppt í
4 greinum og urðu úrsfit þessi:
500 m hlaup:
Björn Baldusson, Ak. 50,1 sek.
Sigfús Erlingsson, Ak 51.0 —
Skúli Agústsson, Ak 52.5 —
Agúst Karlsson, Ak 53.2 —
3.000 m hlaup:
Skúli Ágústsson, 5:54.2 mín.
Björn Baldursson, 6:05.2 —
Örn Indriðason, 6:19.0 —
Sigfús Erlingsson, 6:22.4 —
1.500 m hlaup:
Björn Baldursson, 2:38.7 mín.
Sigús Erlingsson, 2:40.3 —
Skúli Ágústsson,
Örn Indriðason,
2:44.2 —
2:44.9 —
5.000 m hlaup:
Skúli Agústsson, 9:47.2 mín.
Björn Baldursson, 10:00.4 —
Örn Indriðason, 10:06.3 —
Sigfús Erlingsson, 10:12.2 —
Samanlagður árangur:
stig
Björn Baldursson hlaut 223,927
Skúli Agústsson — 225,003
Sigfús Erlingsson — 229,386
Örn Indriðason — 232,264
Jón D. Armannsson — 247,096
Þórhallur Karlsson — 247,413
Agúst Karlsson — 248,376
Birgir Agústsson — 249,984
Vann Björn Baldursson Skauta
bikar Islands í annað sinn í röð.
Verðlaunaafhending fór fram þeg
ar að loknu móti í Framsóknar-
húsinu og afhenti Axel Jónsson,
ritari Í.S.I. verðlaunin. Iþrótta-
bandalag Reykjavíkur sá um
framkvæmd mótsins, sem fór hið
bezta fram.
DAGSKRÁ i
V etrarolimpíuleikanna
í dag, þriðjudag:
15 km skíðaganga karla
Stórsvig kvenna
3000 metra skautahlaup
kvenna
Listskautahlaupi kvenna
lýkur
íshokkikeppni heldur áfram
Dómaranámskeið
í Handknattleik
ÞEIR handknattleiksmenn, sem
þátt vilja taka í dómaranám-
skeiði, sendi þátttökutilkynn-
ingar til HKDR, Hólatorgi 2,
fyrir næstu helgi.
ÞjóBverjinn „stal" norrænu
tvíkeppninni frá Norbmönnum
22 ÁKA gamall Þjóðverji
Georg Thoma kom öllum á
óvart í dag er hann sigraði
í norrænni tvíkeppni, stökki
og 15 km göngu, sem er ein
elzta og mest metna grein
hverra vetrarleika. Og sáu
keppnina nú (stökkið) 30—
40 þús. manns. Norðmaður-
inn Tormod Knutsen vann
silfrið — fyrstu verðlaun
Norðmanna á þessum leikj-
um. Eftir stökkkeppnina á
sunnudag, stóð keppnin
þannig, að Knutsen varð að
sigra Thom með 1 mín. 12
sek. En Þjóðverjinn var á
Æfingar landsliðs
ins hafnar
í KVÖLD kl. 7,45 hefjast æfingar
hjá landsliði karla í handknatt-
leik. Æft verður hjá Benedikt
Jakobssyni í íþróttahúsi Háskól-
ans.
í síðustu viku voru hafin svo
kölluð þolpróf á leikmönnum,
en þeim verður haldið áfram
nk. fimmtudag kl. 8 fyrir þá,
sem eftir er að prófa.
öðru máli. Hann sigraði
Knutsen með 8 sekúndum.
• Útkeyrður
Ég var gersamlega útkeyrð-
ur undir lok göngunnar og
millitím. mínir og Thoma sem
ég heyrði í hátalaranum drógu
úr mér máttinn. Ég sá fram á
að keppnin um gullið var töp-
uð. Hann var svo miklu sterk-
ari en ég hafði reiknað með.
Úrslit stökkkeppninnar á sunnu
dag urðu næstum áfall fyrir Norð
menn. Þeir urðu að sjá Þjóðverja,
Rússa og Japana á undan sínum
mönnum. Thoma bar nokkuð af,
átti lengsta stökkið í „litla-stökk-
pallinum“ 69 m og stíll hans var
góður. Annar varð Koltsjin Rúss-
landi, sem stökk 67 m og þriðji
var Japaninn Ydsule sem stökk
68 metra. Norðmennirnir Knut-
sen og Arne Larsen voru i 4. og
5. sæti.
• Úrslitastund
Göngukeppnin gat þó ráðið úr-
slitum, svo jafnir voru 5 fyrstu
menn í stökkinu. Knutsen þurfti
t.d. 1 mín. 12 sek. betri tima en
Thoma til að sigra hann, og 35
sek. til að sigra Koltsjin.
Gönguveður fengu þeir gott og
færi var ákjósanlegt. En eftir 5
km göngu kom vísbending um
það hvert gullið mundi fara.
Thoma var þá 7. í röðinni aðeins
15 sek. á eftir.Knutsen. Knútsen
var þá í 4. sæti en Rússinn Guza-
kov (mesti göngugarpurinn) _ —
hafði örugga forystu.
Spenningurinn óx. Eftir 10 km
var Thoma kominn í 5. sæti og
hafði dregið á alla sem framar
voru. Knutsen var í 4. sæti 9 sek.
á undan Thoma.
Og Guzakov kom fyrstur í
mark í göngunni. Það var í
sama mund og kona hans var
að vinna önnur gullverðlaun
sín, nú í 1000 m skautahlaupi.
En hann varð að láta sér
nægja bronz í tvíkeppninni,
eftir að hafa verið nr. 10 eftir
stökkið.
Úrslít:
1. Georg Thoma, Þýzkal.... 451,00 stig
2. Tormod Knutsen, Noregi 453.00 —
3. Nikolai Gusakov, Rússl. . . 452,00 —
4. Pekka Ristola, Finnl.... 449,80 —
5. Dimitri Kotsjkin, Rússl. . 447,60 —
6. Arne Larsen, Noregi .... 444,60 —
7. Sverre Stenersen, Noregi 438,08 —
8. I.ars Dahlqvist, Svíþjóð . . 436,53 —
9. Paavo Korhonen, Svíþjóð 434,98 —
10. Bengt Erikson, Svíþjóð .. 433.71 —
11. Gunder Gundersen Norg. 433,04 —
12. Mikhail Priakhin, Rússi.. 432.74 —
af göngu kvenna, skotfimi á skíð-
um og skautahlaupi kvenna bíð-
ur til morguus.
Kristján Markússon, Nýlendugötu 19 B.
H árgreiÖslustofurnar
í Reykjavík
verða lokaðar vegna jarðarfarar
eftir kl. 1 í dag.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar
Skósalan, Laugaveg 1
SIGUBJÓN STEFÁNSSON
Kirkjuteig 13, andaðist 20. febrúar
Dætur hins látna
Móðir okkar
GUÐRlÐUR ÓUAFSDÓTTIR
prestsekkja frá Húsavík er látin.
Börnin
Móðir okkar
BJARNVEIG MAGNÚSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Barónsstíg 19 þann 21. febrúar.
Þórsteina Árnadóttir, Sigríður Árnadóttir
Hrólfur Benediktsson, Sigurbjörn Benediktsson
ANNA STEFÁNSDÓTTIR
í Síðumúla
sem lézt 17. febrúar sl. verður jarðsungin þar fimmtudag
25. febrúar kl. 14.
Vandamenn
Elskuleg eiginkona mín og dóttir okkar,
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR
Leifsgötu 27
sem lézt sunnudaginn 14. febrúar, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni, í dag, þriðjudaginn 23. febrúar kl.
1,30 e.h.
Sveinn Björnsson,
Margrét Jónsdóttir, Gísli Jónasson.
Innilegt þakklæti færum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
eiginmanns og bróður,
FINNBOGA THEÓDÓRS.
Sérstaklega þökkum við Fóstbræðrum og félögum úr
Oddfellówreglunni, er veittu okkur ómetanlega aðstoð.
Einnig þökkum við hjartanlega læknum og hjúkrunar-
liði Landspítalans, sem af frábærri alúð önnuðust hann í
legunni.
Ingiríður Theódórs, I.ára Theódórs.