Morgunblaðið - 20.05.1960, Qupperneq 5
Föstudasnir 2ft maí 1ft6Ö
MORCVNLLAÐ1Ð
5
íbúða&kipti Stór 2ja herb. kjallaraibúð í Hlíðunum, fyrir 3 herb. hæð í Kleppsholti eða ná- grenni. Sími 23347 eftir kl. 19,00. —
Þvottapottur Óska eftir kolakyntum þvottapotti, í góðu lagi. — Upplýsingar í síma 23831 eftir kl. 7.
Járnsmíðanemar Getum tekið nema nú þegar. — K E I L I R h.f. Símar 34981 og 34550.
Stúlka með stúdents- og kennarapróf óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar í sirna 1; 34801, milli kl. 6—8 eh.
Keflavík 1 herb. og eldhús til leigu 1. júní. Uppl. Greniteig 16 eftir kl. 8 á kvöldin.
Keflavík — Málaravinna Nokkrir menn óskast í sumar. Uppl. í síma 1618, kl. 12—1 og eftir kl. 7 á
Stúlka óskast í sælgætisgerð. — Uppl. í Suðurgötu 15, 1. hæð. — Sími 17694.
Gróðurmold Keyrum gróðurmold í garða og lóðir. — Sími 35462. —
Óskum að taka 2—3 herb. íbúð á leigu. — 5 Ýmisk. aðstoð kemur til greina. Uppl. í síma 32410.
12 ára telpa óskar eftir vist i Hafnar- firði. — Upplýsingar í síma 50657. —
Rennismiður óskar eftir vinnu nú þegar. Tilboð sendist afgr. Mbl., ! merkt: „3925“.
Logsuðutæki ■til sölu ný Harris logsuðu- tæki. — Upplýsingar í síma 32902. —
Stúlka óskast í vist ekki yngri en 14 ára. Upplýsingar í síma 16257.
N-S.U. skellinaðra til sölu. Upplýsingar í síma 33662.
Grá Pedigree barnakerra með skermi til sölu. Lokastig 4, 2. hæð.
fJO ■
Okkar á milli sagt er ég nauða-
sköllóttur
Leopold Meyer, læknir og pró-
fessor í fæðingarhjálp var ekki
gefinn fyrir að deyfa konur við
barnsburð. Eitt sinn spurði yngri
læknir hann hver ástæðan væri.
Jú, svaraði Meyer, það stendur í
Biblíunni að með þjáningum
skuli konan ala. — Hvernig getið
þér þá verið skurðlæknir, spurði
þá hinn yngri, þér vitið að í
Biblíunni stendur að það sem guð
hafi saman tengt, skuli mennirn-
ir ekki sundur skilja.
★
Látum vera þó menn ljúgi,
sagði prófessorinn í lögfræði en
þegar þeir í þokkabót eru óheið-
arlegir, lízt mér ekki á þá —
maður veit þá aldrei hvort þeir
ljúga eða ekki.
★
Maður nokkur Olsen að nafni
þurfti mjög að taka þátt í sam-
kvæmislífi, en hundleiddist það.
Hann hafði þann sið, ef hjá hon-
um voru gestir, að stilla sér fyrir
Mynd þessi er tekin er
Sigriður Þorvaldsdóttir
heimsótti 20th Century Fox
kvikmyndaverið, er þar var
verið að vinna að kvikmynd
inni: Úr iðrum jarðar, er
Pétur Rögnvaldsson leikur
í.
Með Sigríði er á mynd-
inni Arlene I)ahl, aðalleik-
konan í myndinni. — Á leið
frá kvikmyndaverinu hitti
Sigríður James Mason og
sagðist hafa orðið alveg
undrandi er hann kallaði til
hennar og — sagði: Má ég
hafa þann heiður að taka í
hönd yðar.
framan Borgundarholms klukk-
una sína, þegar hún sló 11 að
kvöldi og segja: — Svei, svei,
klukka klukka, hvað meinaðru
með því að reka gestina mína út.
Leiðrétting: I frétt frá Sandgerði í
miðvikudagsblaðinu misritaðist nafnið
á 3. aflahæsta bátnum. Það var Mun-
inn, ekki Mummi. Leiðréttist það hér
með.
P .,15 lilir Jpj ff | '|
jp I :::: .1
m í HHi i 1 * J ffiifi L
I GÆRMORGCN kom hing
að til lands, eftir nær árs
fjarveru, ungfru Sigríður
Þorvaldsdóttir, sem tók þátt
í fegurðarsamkeppninni á
Long Beach í Kaliforníu í
fyrrasumar. Kom hún með
flugvél Loftleiða og rómaði
mjög þá aðhlynningu sem
hún hefði fengið á leiðinni.
Sigríður hefur dvalizt í Kali
forníu við leiklistarnám, í
skóla sem nefnist Estell Har
man Actors workshop.
— Eg er alveg í sjöunda
himni, sagði Sigríður í við-
tali við fréttamann blaðsins
í gær, því að ég var tckin í
fjórða bekk skólans fyrir
skömmu, en þangað komast
venjulega ekkl aðrir en þeir
sem eru farnir að standa á
eigin fótum eða hafa samn-
ing um kvikmyndaleik.
— Hvenær ferðu þá aftur
út?
— Um mánaðamótin næstu
og verð þar áfram fyrst um
sinn. Mig langar til að nota
timann og læra meðan ég er
ung og óbundin.
— Þú hefur kunnað vel
dvölinni þarna?
— Já, alveg sérstaklega,
þetta er allt eins og einn
dranmur. Ég bjóst nú við
því, að það yrði ævintýri
likast að fara tii keppninn-
ar, en mig hefði aldrei
... Wftm*. , !
-
' , J| ■
P
dreymt um að það yrði
svona dásamlegt.
Afabróðir minn, Gunnar
Matthíasson, á heima í Eng-
lewood og á ég þar gott at-
hvarf. Einnig hafa Swanson
hjónin ,sem tóku á móti mér
fyrst, verið mér sérstaklega
hjálpleg og elskuleg. Þá
Iangar mig líka til að taka
fram, að Vestur-íslending-
ar eru upp til hópa alveg dá
samlegt fólk.
— Þú fórst til Sqaw Vall-
ey?
— Já, ég fór þangað sem
tízkusýningarstúlka með
Ester Williams, Idath Head,
sem fengið hefur sex sinn-
um Oscarsverðlaun fyrir
kjólateikningar fyrir kvik-
myndir, og fleirum. Við
sýndum þar kjóla úr kvik-
myndum, t.d. var ég í kjól
um af Sophiu Loren, Grace
Kelly og Mae West, frá því
hún var ung. Þessum kjól-
um mátti ekkert breyta og
varð ég alveg undrandi, er
ég reyndist hafa sama mál
og þær Loren og Kelly.
I Sqaw Valley hitti ég
íslendingana og við vorum
þar eins og ein fjölskylda.
Þeir tóku fyrir mig kvik-
mynd af tízkusýningunni.
Annar aðalatburðurinn í
vetur var flekaferðin á nýj-
ársdag, Rose Parade. Þar
vorum við sex saman frá
íslandi, Kóreu, Ameríku,
Brasilíu, Grikklandi og Hol-
landi og okkar fleki vann.
Flekarnir í keppninni voru
frá öllum fylkjum Banda-
ríkjanna og svo okkar fleki,
Venus de Milo, sem átti að
tákna frið í heiminum. Long
Beach útbjó hann.
Ferðin tók 2 kls. í hörku
kulda. Blómin á flekunum
sem öll voru Iifandi, voru
hvert um sig látið í glas
með vatni í. Um nóttina fyr
ir keppnina fraus í glösun-
um. Við vorum látnar fara
í röndóttar síðbuxur innan
undir kjólana, til þess að
okkur yrði ekki kalt. Eg
var svo heppin að vera sól
armegin á flekanum og í
svarta íslenzka skautbún-
ingnum, svo að mér var
ekki meint af, en hinar
stúlkurnar voru að sálast
úr kulda og urðu sumar
lasnar eftir þetta.
Eg hef aldrei á ævi minni
séð annað eins mannhaf.
♦
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
EITT LAIJF
revía
í tveimur „geimum"
18. sýning
í kvöld kl. 8,30.
Aðgöngumiðasala og
borðpantanir kl. 2,30.
Sími 12339.
Pantanir sækist f. kl. 4.
Húsið opnað kl. 8.
Dansað til kl. 1.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIO
Nýtt leikhús:
Gamanleikurinn: \
Astir í sóttkví
Sýning í kvöld kl. 20.
! Dansað eftir sýningu til kl. '
; Aðgöngumiðasala frá kí. 2
I dag. — Sími 22643.
í
\
NYTT LEIKHUSl
sí
RöLM
Colin Porter
og
Sigríður Geirs
skemmta í kvöld
Matur framreiddur
frá kl. 7*
DANSAÐ til kl. I. $
| Borðpantanir í síma 15327 í
1 RöLU i