Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 14
14 MORGVNnr 4mn Fðstudagur 20. maí 1960 ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐLSMANNA RITSTJÖRI: BJARNI BEINTEINSSON Félag ungra Sjálfstœöis- manna á Siglufirði 30 ára Á ÁRUNUM kringum 1930 var mikill vorhugur í íslenzkum stjómmálum. Árin áður hafði verið við völd hér í landi stjórn, skipuð þremur Framsóknar- mönnum, ein sú mesta aftur- haldsstjórn ,sem við völd hefur verið á fslandi. Árið 1929 var Sjálfstæðisflokkurinn stofnað- ur og á næstu þremur árum fór Árið 1930 hpfðu félög ungra Sjálfstæðismanna verið stofnuð á 13 stöðum víðsvegar um land- ið og mynduðu þau með sér Samband ungra Sjálfstæðis- manna. Meðal þeirra félaga, sem um þessar mundir minnast 30 ára starfs er Félag ungra Sjálfstæð- ismanna á Siglufirði. Félagið og öllu kosningastarfi flokksins þennan tíma. Á þessum árum hefur margt breyzt í stjórnmál- um á Siglufirði. í upphafi drottn uðu vinstri öflin í bænum, en nú hafa þau orðið að þoka fyrir frjálslyndri og víðsýnni stefnu Sjálfstæðisflokksins. Hvern þátt 'Félag ungra Sjálfstæðismanna á Siglufirði á í þessari þróun verður ekki mælt í tölum, en sá þáttur er ekki hvað minnstur. um landið voldug hreyfing ungra manna, sem boðaði aukn ar íramfarir á grundvelli ein- staklingsfrelsisv atvinnufreisis og séreignar. Ungir Sjálfstæðis- menn bundust skipulögðum sam tökum hvarvetna um landið und ir merki sjálfstæðisstefnunnar. var stofnað 11. maí 1930 og voru stofnendur rúmlega 20. Alla tíð síðan hefur félagið verið virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðis- flokksins á Siglufirði, átt aðild að fulltrúaráði Sjálfstæðisfélag- anna, blaðnefnd „SiglfiriHngs“ Enda þótt ungir Sjálfstæðis- menn á Siglufirði geti litið yfir farinn veg, ánægðir yfir því, sem áunnizt hefur, gera þeir sér grein fyrir því, að baráttunni fyrir Sjálfstæðisstefnunni, fyr- ir frjálsara og betra þjóðfélagi, mun haldið áfram. Ungir Sjálf- stæðismen n hljóta að verða í fylK ingarbrjósti þeirrar baráttu. Ungir Sjálfstæðismenn á Siglufirði minnast þessara tíma móta með útgáfu sérstaks blaðs af „Siglfirðingi“. í blaðið rita m. a. Ólafur Thors, forsætisráð- herra, formaður Sjálfstæðis- flokksins, kveðju frá miðstjórn flokksins og Þór Vilhjálmsson, formaður S.U.S. ritar afmælis- kveðju. Mðivikudaginn 25. maí verður afmælisins svo minnzt með hófi í Sjálfstæðishúsinu á Siglufirði, sem jafnframt verður árshátíð allra Sjálfstæðisfélaganna á staðnum. Stjórn Sambands ungra Sjálf stæðismanna sendir samherjum sínum á Siglufirði beztu afmæl- iskveðjur, þakkar þeim ánægju legt samstarf á liðnum árum og vill bera þeim þá afmælisósk, að hin sameiginlega barátta sam takanna megi skila sem beztum árangri á ókomnum tímum. Núverandi stjóm FUS á Siglufirði. Frá vinstrí, sitjandi: Knút- nr Jónsson, Stefán Friðbjarnarson (formaður). Standandi: Haukur Magnússon, Birgir Schiöth og Gústav Nielsson. — Á myndina vantar: Heigu Bachmann og Eddu Snorradóttur. Ritgerðarsamkeppni Heimdallar. Gunnar Gunnarsson mennta skólanemi verðlaunahafi Á S.L. VETRI auglýsti Heim- dallur, F. U. S. ritgerðarsam- keppni meðal ungs fólks á aldr- inum 15—25 ára. Ritgerðarefnið var: Samrýmist þjóðnýting lýð- ræðis(þjóðfélagi. Skilafrestur var til 15. apríl og verðlaun voru ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar og heim aft- ur. Úrslit eru nú kunn í ritgerð- arsamkeppninni og ritgerð sú, sem verðlaun hefur hlotið er eftir Gunnar Gunnarsson, 19 ára gamlan, sem stundar nám í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann er sontur hjónanna Gunn- ars Péturssonar lofskeytamanns og Kristbjargar Jónsdóttur. Ritgerðin í heild mun birtast í næsta hefti tímaritsins STEFN IR, sem kemur út innan skamms. Tíðfndamaður síðunnar hitti Gunnar að máli, til að óska hon- um til hamingju með verðlaun- in og fræðast svolítið um hann sjálfan. — Hvað kom þér tii að skrifa ritgerð þessa. — Þegar ég sá auglýsinguna ntm ritgerðarsamkeppmina datt mér strax í hug að spreyta mig Bæði freistuðu verðlaunin og svo hafði ég töluverðan áhuga á efninu. En ég hef aldrei tekið þátt í slíkri keppni áður. — Hvaðan hefur þú einkum þá þekkingu, sem fram kemur í ritgerðinni? — Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmálum, og lesið töluvert af ritum um það efni, aðallega um kommúnismann. Ég hef t.d. lesið nokkuð af ritum eftir for- sprakka stefnunnar, eins og „Kommúnistaávarpið“, „Ríki og bylting" eftir Lenin, „Develop- ment of capitalism in Russia" eftir Lenin og fleiri slíkar bæk- ur. Ennfremur allt það, sem ég hef náð í eftir íslenzka menn um þetta efni, t.d. hef ég pælt í gegnum flesta árganga af tíma- ritinu „Réttur". Lestur þessara rita gerði mér að sjálfsögðu auð veldara að grípa á ritgerðarefn inu, enda þótt efnið gerði ekki kröfur til þekkingu á öllum þessum bókum. — Tefur þessi stjórnmálalest- ur þig ekki frá lestri skólabók- anna. — Reyndin hefur nú orðið sú, en ég held ég sjái samt ekkert eftir þeim tíma sem farið hefur til þess. — Telur þú æskilegt að auka kennslu í þjóðfélagsfræðum í menntaskólanum? Gunnar Gunnarsson — Já, það held ég. f félags- fræði er t.d. aðeins lesin ein lítii bók, sem kennd er í þriðja bekk. Sú bók er mjög ófullkomin og satt að segja finnst mér margir stúdentar hafa furðulitla þekk- ingu á uppbyggingu þjóðfélags- ins og þeim helztu grundvallar- lögmálum, sem þar gilda. Mér finnst ennfremur að auka mætti kennslu í sögu síðari alda. — Ertu búinn að ákveð hvenær þú notfærir þér ven. launin? —Ekki ennþá, en víst er, að ég ætla mér að nota þetta tæki- færi til að komast út fyrir lands steinana. Ég hef aldrei út fyrir pollinn komið og útlandið freist ar jú alltaf, segir Gunnar að lokum. Við kveðjum nú Gunnar, ósk- um honum góðrar ferðar, hve- nær sem hann fer og erum viss- ir um að hann er vel að þessum verðlaunum kominn. Jón E. Ragnarsson. stud. juris: Vínarmótið IV. Andstaða og falsauglýsingar ÞEGAR það varð opinbert, að austurríska ríkisstjórnin hafði lát ið undan ásókn Rússa og leyft festivalhald í Vínarborg, reis þeg- ar mikil mótmælaalda í Austur- ríki. Hvert einasta æskulýðssam- band landsins mótmælti, utan ungkommúnistar, en þeir eru sam tals aðeins nokkur hundruð. Stúd entar landsins gerðu sólarhrings verkfall í mótmælaskyni og próf- essorarnir studdu mótmælin með því að aflýsa fyrirlestrum. 20.000 æskumenn og konur fóru í þögla mótmælagöngu um götur Vínar- borgar og báru kröfuspjöld með áletrunum, eins og: Fyrst frelsi, svo festivöl eða Varist úlfinn í sauðargærunni. Raab forseti lands ins neyddist til þess að flytja út- varpsávarp, þar sem hann hvatti landsmenn til þess að sína still- ingu og komast m.a. svo að orði: „Æska Austurríkis er sem betur þroskaðri en svo, að hún geti ekki leitt hjá sér (ignoriert) ógeðfellda atburði'*. Austurrísku æskulýðssamtökin sendu áskoranir um heim allan, þar sem þeir skoruðu á félög og samtök að senda ekki fulltrúa á áróðurssamkomu manna, sem væru boðflennur í landi þeirra. Flest meiriháttar æskulýðs- og stúdentasamtök hins frjálsa heims lýstu yfir samstöðu með Austur- ríkismönnum, m. a. Stúdentaráð Háskóla íslands. Hinsvegar lét kommúnistastjórn Iðnnemasam- bands íslands sig hafa það, að rita austurrískum iðnnemum bréf, þar sem þeir grátbæna þá að taka þátt í festivalinu. Beiðni þessarri neit uðu austurrískir iðnnemar með mikilli fyrirlitningu. (Bréf ís- lenzkra iðnnema er birt I „Festi- val“ nr. 6, 1959). hessar undirtektir austurrískrar æsku urðu til þess, að þeir festival- menn urðu mjög skelkaðir og ugg- andi um framgang mála sinna. Slík mótmæli höfðu ekki verið hugsan- leg I kommúnistaríki, þar sem fyrri festivöl höfðu verið undirbúin. Þátttakendafjöldi var nú skorinn niður um tæpan helming, og ráð- stafanir gerðar til þess að geta flutt festivalið til Prag á síðustu stundu, ef allt færi í vaskinn á Dónarbökkum. V. Semichastny, ritari rússn- esku æskulýðsfylkingarinnar gleymdi allri ópólítík, friði og hlutleysi er hann lýsti yfir á kommúnistaþingi í Prag 13. des. 1958: „Óvinir okkar, fyrst og fremst amerískir heimsveldissinnar eru að reyná að rjúfa einingu sósíal- istisku landanna og vinátta æsku- lýðssambanda okkar (sic). Farið ekki á festivalið, ráðleggja þeir æskunni, vegna þess að þeir ótt- ast hinn sigursæla sannleik vorn. Það er nú öllum ljóst, að í bar- áttunni um hug og hjarta æsk- unar hefur kommúnisminn sífellt verið að viiína nýja sigra yfir kapitalismanum“. (CTK frétta- stofan í Prag 13. des. 1958). Nepszabadsag, málgagn ung- verzka kommúnistaflokksins, rit- ar 8. marz 1958: „ ... þessir riddarar kalda stríðsins hafa því miður nægt frelsi til þess að skipuleggja and- spyrnu gegn Vínarmótinu“. Sunday Times I London skýrir frá því 8. marz 1959, að: „Hr. Lap- in, rússneski sendiherrann í Vín- arborg hafl óformlega viðurkennt að hafa hótað refsiaðgerðum, ef austurríska stjórnin bæli ekki gar í stað niður með harðri : di alla andspyrnustarfsemi . Vínarmótinu. Rússar muni greiða atkvæði gegn því að ^íuleikarnir 1964 verði haldn . Austurríki og þeir muni enn- . .jiíiur hætta stuðningi við Suð- ur-Tyrólmálið. Hinsvegar geti austurríska stjórnin fengið 150 MIG-15 flugvélar við tækifæris- verði, ef þeir bregðist skjótt við og brjóti andspyrnuna á bak aftur“. Austurrísku dagblöðin gerðu með sér samkomulag um að minnast ekki á mótið. Kommúnistablaðið tók vitaskuld ekki þátt í þessu sam komulagi. Stærsta blaðið í Vín, Kurier, birti 25. júlí sl., daginn, sem mótið var sett, ávarp til mótsgesta á fjórum tungnmálum og er það mjög gott dæmi um undirtektir Vín arbúa. Þar segir m.a.: „Þið eruð gestir þessa lands, jafnvel þótt þeir at- burðir, sem færa yður hingað, séu oss ekki að skapi. Það verður ekki tekið á móti ykkur með fagnaðar- látum, en heldur ekki grjótkasti. Við erum á móti hinni tröllauknu áróðurssýningu Vínarmótsins og til gangi þess“. Vínarbúar sýndu manni fyrirlitn ingu, ef ekki opinberan fjandskap, yrðu þeir þess vísari, að maður væri á vegum festivalsins og það er sjálfsagt þessvegna, sem ritað er í Þjóðviljanum 20. ágúst sl.: „Vín- armótið vel heppnað, vegna vinar- hugs borgarbúa“. Falsauglýsingar og skrum Mjög ríkjandi þáttur i undirbún- ingi festivala eru allskyns falsaug- lýsingar og skrum. Reynt er að gylla dýrðina fyrir væntanlegum þátttakendum og auglýst að hinir og þessir heimsfrægir menn lýsi yfir stuðningi við mótið. T.d. var því mjög haldið á loft, að Averell Harrimann stæði með mótinu, en það reyndist slíkur festivalsannleik ur, að Harriman varð að lýsa yfir opinberri andstöðu við mótið til þess að stöðva þessa misnotkun á nafni sínu. Blað undirbúningsnefndarinnar, Festival, sem gefið er út á fjölda tungumála, hafði tvær mismunandi útgáfur á þýzku, eina fyrir Þýzka- land, en hina fyrir Austurríki, því að það var margt, sem þeir reyndu að telja Þjóðverjum trú um, sem ekki hefði þýtt að bera á borð fyrir Vínarbúa. T.d. var þess getið í þýzku útgáfunni, að forseti Austur- ríkis hefði veitt austur-þýzkri séndi nefnd áheyrn. Sannleikurinn var hinsvegar sá, að sendinefndin komst lengst á biðstofu forsetans, en var þá fleygt á dyr. Þessa sögu var of hættulegt að segja í Austur- ríki. Reynt er á allan handa máta að laða að þátttakendur með * há- stemmdum lýsingum á því, sem þeirra biði. Flest eru þessi áheit stórum ýkt eða með öllu login. T. d. það sem auglýst var sem Moskvu sinfóníuhljómsveit, reyndist vera æskulýðshljómsveit Moskvu og ann að eftir því. Gott dæmi um auglýsingarskrum- ið, sem undir venjulegum kringum stæðum mundi varða við lög, er kvöldið í Pratergarðinum í Vínar- borg, sem leigt var festivalinu. Danska ungkommúnistablaðið Fremad sagði í 5. tbl. 1959, að allt yrði frítt í skemmtigarðinum þetta kvöld og að auki „tvser pylsur með sinnepi og brauði, öl, kaffi og kök- ur“. Okkur íslendingum var talið trú um hið sama, nema okkur voru seldir miðar fyrir tíu schillinga og sagt að þeir giltu að skemmtitækj- um. Þegar á reyndi voru þetta að- göngumiðar í allskonar barnahring ekjur, en festivalnefndin var tíu schillingum ríkari pr. mann. Það þarf ekki að geta þess, að auðvitað varð að greiða allt fullu verði í skemmtigarðinum þetta kvöld, sem svo mikið hafði verið auglýst í for- hönd. Barnalegir verða kommúnistar oft, þegar þeir eru að gylla festival- þátttöku fyrir alþýðu. T.d. var þess getið í Þjóðviljanum í viðtali við pilt einn, sem hafði náð sér I rússneska konu á Moskvumótinu, að festivölin væru rakin hjóna- bandsmarkaður og lét blaðamaður- inn að því liggja að hann hyggðist sjálfur ganga á lagið. Þannig er nú þessi áróður fullkominn. Danskra er freistað með pylsum og sinnepi, íslenzkra með kvenseminni. Sennilega er hlutfallið milli orða og efnda fólgið í eftirfarandi sögu. Að lokinni opnunarhátíð mótsins höfðum við íslendingar verið mat- arlausir með öllu í næstum tólf tíma. Þá var okkur heitið „köldu borði“, þegar við kæmum í nætur- stað. Var þá lustið upp fagnaðar- ópi og óánægjuraddir þögnuðu strax. Þegar á hólminn kom reynd- ist „kalda borðið“ vera rúnstykki þurrt með smá ostbita, en á þessum fjölskrúðuga rétti urðum við að nærast næstum eingöngu meðan við ferðuðumst yfir þvera Evrópu. Já, mikið er á Sig lagt. — J. R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.