Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 21
Fðstudagur 20. maí 1960 ftfORGUlVBLAÐIÐ 21 Nýr læknir að Kirkjubæjar- klaustri KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 18. maí: — Nýr læknir er kominn hingað að Kirkjubæ, Kristján Jónasson úr Flatey á Skjálfanda. Mun hann verða hér að minnsta kosti næstu 4 mánuði í stað hér- aðslæknisins, Braga Níelssonar, sem hefur ráðið sig til starfa á sjúkrahús í Kaupmannahöfn um óákveðinn tíma. Bragi hefur gegnt embætti hér um eins og hálfs árs skeið við vaxandi álit og vinsældir. Hann og fjölskylda hans mun taka sér far með Gull- fossi til Kaupmannahafnar næst komandi laugardag. —Fréttaritari. — Erlent yfirlit Framh. af bls. 10 inu. En Krúsjeff hefur nú ger- breytt því, svo að Rauði herinn hefur aldrei verið háðari kom- múnistaflokknum og Krúsjeff, en einmitt nú. Þó styrkir það stöðu Krúsjeffs kannski allra mest, að hann er ákaflega vinsæli meðal rússneskr ar alþýðu. Að vísu þarf „einræð- isherra“ ekki að leita eftir vin- sældum alþýðunnar, hann getur haldið völdum án þeirra. En ef hann öðlast vinsældirnar, þá geta þær mjög styrkt valdastöðu hans og það held ég að gildi einmitt um Krúsjeff. Vinsældir hans meðal rúss- neskrar alþýðu byggjast á því, að hann hefur verulega bætt kjör hennar og stuðlað að fráhvarfi frá lögregiuríki og ofsóknum Stalins-tímanna. Fordæmingar- ræðan á Stalin á sinn þátt í vin- sældum hans í Rússlandi, þó all- ir séu ekki á einu máli um hana. Auk þess er litið á hann sem skemmtilegan og kátan persónu leika, sem fólk hetur yndi af að segja grínsögur af. Allt þetta held ég að styrki Krúsjeff í sessi. Hvar sem hann kemur fram, er hann sá sem valdið hefur og mér finnst líklegast að hann ráði nú orðið einn stefnu Russlands, þó' hann hafi að sjálfsögðu í kring um sig hóp ráðunauta. Ég ef- ast um að nokkur breyting hafi orðið innan landamæra Rúss- lands, áem hafi þröngvað hon- um til að breyta um stefnu. Hefur vanmetið VesturveJdin Þvert á móti virðist mér að stefnubrigðin eigi eingöngu ræt- ur.í huga og skapferii Krúsjeffs. Líklegast er að hann hafi talið það heppilegast til að veikja mót spyrnumátt Vesturveldanna eða sundra þeim, að þjarma nú vel að þeim. Hann beitir hinum al- gildu aðferðum stjórnmálamanns ins, sem einskis svífst og notfær- ir sér allt miskunnarlaust til áróðurs. Kannski hefur hann líka vanmetið samstöðu Vesturveld- anna og saman við allt blandazt, að hann virðist eiga erfitt með að hafa hemil á skapi sínu. Krúsjeff hefur vissulega niður lægt Bandaríkin og Eisenhower forseta þeirra. Að vissu leyti hefir hann þannig haft betur en Vesturveldin.Óvíst er samt hvort hann verður talinn sigurvegari á þessari ráðstefnu. Margir telja að spilin hafi snúizt í hönd- um Krúsjeffs og það sé þvert á móti Eisenhower forseti, sem hlýtur samúð manna og aðdáun fyrir stillilega framkomu sína undir sífelldum móðgunum Rússa. Þorsteinn Thorarensen. EINAR ASMUNDSSON hæstaréttarlögmaður HAFSTEINN SIGURBSSON héraðsdómslögmaður Skrifstofa Hafnarstr. 8. II. hæð. Sími loáð1?, 19113. . “ “ Vestur-þýzkar iðnaðarsaumavélar til sölu. — Sími 35-3-35. Dömur Tökum upp í dag Sumarpils einlit og rósótt Nælonsloppa Vatteraða sloppa Hjá BÁRU Packard einkabifreið ‘47 keyrð innan við 100 þús. km. Bifreiðin er í úrvals lagi og selst með góðum skilmálum. Uppl. gefur VÖRU OG BIFREIÐASALAN Snorrabraut 36 — Sími 23865. Til sölu Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir við Stóragerði. Eitt herbergi i kjallara fylgir hverri ibúð. Ibúðimar seljast fullgerðar að utan en tilbúnar undir múr- húðun að innan. — Nánari upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar Guðmundar Péturssonar. Áðalstræti 6, Símar: 1-2002, 1-3202 og 1-3602 Nám og atvinna Stúlkur, sem vilja læra gæzlu og umönnun vangef- inna geta komist að við slíkt nám á Kópavogshæli nú í vor. Námstimann verða greidd laun sambærileg við laun starfsstúlkna. Upplýsingar gefnar á hælinu og í síma 19785, 14885, og 19084. SKRIFSTOFA RlKISSPlTALANNA. Athugið vörugæðin Ungbarnafatnaður Soðin ull — litekta Austurstræti 12. Tilkynning um lóðabreinsun í Kópavogi Samkvæmt 2. kafla heilbrigðissamþykktar fyrir Kópa vogskaupstað er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Eigendur og umráðamenn lóða eru hér með áminnt- ir um að flytja burt af lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því fyrir 15. júní næstkomandi. Hreinsun verður þá að öðrum kosti framkvæmd á kostnað lóðareiganda. Rusl, sem hreinsað verður af lóðum, má.láta 1 gamlar malargryfjur við Hraðfrystihúsið "við Fífu- hvammsveg, en annars staðar ekki. t. ■t Kópavogi, 16. maí 1960. HEILBRIGÐISNÉFND KOPAVOGS. I :UI ..-1 f í-:. I' .. ■ . ", •' íj >■' '*J. u~--‘■ I• ■ v • 'i '.1' ' - ' *V‘v • Olíukyndingartæki Miðstöðvarketill 4,5 ferm. og brennari ásamt öðru tilheyrandi, lítið notað. Einnig hitavatnsdunkur 250 lítra. Til sýnis og sölu á Kirkjuteigi 18. Sími 33911. Áfgreiðslustúlkur Stúlka óska.st til afgreiðslustarfa í kjötbúð hálfan daginn og önnur til afgreiðslustarfa í nýlenduvöru- búð allan daginn. Upplýsingar á Grundarstíg 2A. Peningalán Get lánað 50—100 þús. kr. til 5 ára gegn öruggu fasteignaveði. Þeir sem hafa áhuga á þessu leggi nöfn, heimilisfang og nánari upplýsingar um veð inn á afgr. Mbl. merkt: „Peningalán — 3376“ fyrir n.k. má.nudagskvöld. Halló - Halló Enn er hægt að gera góð kaup á Laufásveginum. Bleyjuefni tvíbreitt á 10 krónur -meterinn eða 3,50 í bleyjuna. Gardínu-Voual 10 krónur meterinn. Drengjapeysur 85 krónur og m. m. fl. Lítið inn, það borgar sig. SKYNDISALAN, Laufásvegi 58. Útboð Tilboð óskast í að reisa viðbyggingu við Hrafnistu Dvalarheimili alraðra sjómanna. Uppdrátta og lýsinga má vitja til Harðar Björnssonar á Teikni- stofu A.B.F. Borgartúni 7. Skilatrygging 500 kr. Húsgögn til sölu VEGNA FLUTNINGS Svefnherbergishúsgögn (dýnulaus), Borðstofuborð, stólar og buffet (eldri gerð), B.T.H.-þvottavél o. fl. Uppl. í kvöld frá kl. 8—10 í Bröttugötu 6 I. hæð. Fró barnuskóíum Reykjavikur Börn, sem fædd eru á árinu 1953 og verða því skóla- skyld frá 1. september n.k. skulu koma í skólana til innritunar mánudag 23. maí kl. 2 e. h. ATH. Innritun barna úr HHðahverfi fer fram í Hlíða- skóla við Hamrahlíð en ekki í Eskihlíðarskóla. SKÓLASTJÖRAR. Skrifstofustúlka Dugleg skrifstofustúlka óskast strax. Góð íslenzkukunnátta nauðsynleg. Verzlunar- skóla eða önnur hliðstæð menntun æski- leg. Tilboð er greini menntun, aldur og fyrri störf, ásamt mynd og meðmælum ef fyrir hendi eru sendist Mbl. strax merkt: „Framtíð — 4292“. > ' ■ ' • ‘ s" ' ’ ;• - •■ ' /-• .'■■• :■'!* •r.V-Ol ..... . ... 'v , ... • . -Stó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.