Morgunblaðið - 20.05.1960, Qupperneq 8
ð
MORGVTSHr 4 fílÐ
Pðstudagur 20. mal 1960
Nauðsynlegt er, að sem
flestir œsku-
menn finni starf
við sitt hœfi
Í* Starfsfræðsla verði tekin upp
i skólum landsins
— Úr framsöguræðu Sigurðar
Bjarnasonar i Sameinuðu jpingi
Á FUNDI Sameinaðs þings í
fyrradag fylgdi Sigurður
Bjarnason úr hlaði þings-
ályktunartillögu um starfs-
fræðslu, sem hann flytur
ásamt Magnúsi Jónssyni.
Tillagan hljóðar svo orð-
rétt:
„Alþingi ályktar að
skora á r íkisstjórnina að
beita sér fyrir því, að
starfsfræðsla verði tekin
upp í skólum landsins.“
í framsöguræðu sinni
komst Sigurður Bjarnason
m. a. svo að orði:
Vaxandi þörf
Tillaga sú, er hér liggur fyrir
til umræðu byggist á vaxandi
þörf æskunnar á aukinni fræðslu
um störfin, sem hennar bíða i'
þjóðfélaginu.
Þessi þörf er tiltölulega ný
en engu að síður aðkallandi. Ekki
er ýkjalangt síðan að störfin
voru svo fábreytt hérlendis, að
lítill vandi var að afla sér þekk-
ingar á þeim. Þau voru mest-
megnis tengd landbúnaði og sjó-
sókn og að hvorugum atvinnu-
veginum var þá unnið með marg
brotnum tækjum. Á þeim tíma
skorti þjóðina ekki fyrst og
fremst verklega heldur bóklega
þekkingu.
Starfsfræðsla ryður sér
til rúms
Með fræðslulögunum frá 1907
og 1946 var gert mikið átak til
þess að auka bóklega þekkingu
þjóðarinnar. En
ekki var mönn-
um þá nægilega
ljóst hversu auk
in þekking á
fjölþættari störf
um yrði bráð-
lega aðkallandi.
— Jafnvel árið
1946 var starfs-
fræðsla ekki
orðin almenn meðal nágranna-
þjóða okkar. Fyrsta skipulega
starfsfræðslan sem mér er
kunnugt um, var veitt í Boston
árið 1908. Árið 1949 var gerð
samþykkt um það á alþjóðaráð-
stefnu í Genf, að Sameinuðu
þjóðirnar beindu tilmælum til
meðlima sinna um að þær beittu
sér fyrir starfsfræðslu og haía
þær yfirleitt brugðizt mjög vel
við þessari áskorun. T. d. er nú
svo komið að starfsfræðsla er
skyldunámsgrein í unglinga- og
framhaldsskólum allra Norður-
landanna nema Islands. Fræðsl-
an er fyrst og fremst veitt af
kennurum en skipulögð af sér-
stökum starfsfræðslustjórum,
sem auk skipulagningarstarfs-
ins annast hina einstaklings-
bundnu starfsfræðslu.
Mismunandi eftir aldri
og þroska
Fræðslan í skólunum er mis-
munandi mikil eftir aldri og
þroska unglinganna og því,
hversu nærri endanlegt val ævi-
starfs væntanlega er. Yfirleitt
er starfsfræðslan veitt 1—3 síð-
ustu skólaárin og þá jafnan mest
síðasta árið, eru þá dæmi þess
að helmingur námstímans sé
helgaður starfsfræðslu, ýmist
innan veggja skólanna eða úti
á vinnustöðum. Annars er er-
indaflutningur ,samtöl, fræðslu-
kvikmyndir, heimsóknir á vinnu-
staði og störf á vinustöðum al-
gengustu og eðlilegustu starfs-
fræðsluleiðirnar.
Fyrst í Reykjavík árið 1951
Hér á landi hófst vísir að
starfsfræðslu þegar Reykjavík-
. urbær réði Ólaf Gunnarsson,
^ sálfræðing, til þess að vinna að
) þeim málum haustið 1951. Hann
1 hefur á þeim árum, sem liðin eru
i síðan safnað miklum fróðleik
\ um atvinnulífið. Hann hefur
skrifað leiðbeiningakverið „Hvað
viltu verða?“ þar sem í stuttu
máli er sagt frá helztu starfs-
greinum hérlendis, hvaða mennt-
unar er krafizt til þess að geta
unnið hin ýmsu störf, hvaða
hæfileika þau útheimti o. s. frv.
Þá hafa verið haldin erindi um
starfsfræðslu í öllum unglinga-
og framhaldsskólum Reykjavík-
ur og svarað fyrirspurnum ungl-
inga varðandi framhaldsnám og
störf. Síðustu fimm árin hafa
verið skipulagðir sérstakir
starfsfræðsludagar hér í Reykja-
vík, tveir starfsfræðsludagar á
Akureyri og nú alveg nýlega á
Akranesi.
Sívaxandi aðsókn að þess-
um starfsfræðsludögum sýn-
ir að hér er verið á réttri
leið. Æskan vill fræðast um
atvinnulífið enda er val ævi-
starfs í samræmi við áhuga-
efni og hæfileika hyrningar-
steinn að lífshamingju manna
og þá um leið að velfarnaði
þjóða.
Starfsfræðsla er þjóðar-
nauðsyn
Það sem nú þarf að gera er
að gera kennurum kleift að veita
unglingum starfsfræðslu. Þetta
er m. a. hægt að gera með kenn-
aranámskeiðum, starfsfræðslu-
kennslu í Kennaraskóla íslands
og í B. A. deild Háskóla íslands.
Starfsfræðslan á að veita ungl-
ingunum glöggt yfirlit yfir hina
ýmsu þætti atvinnulífsins, at-
vinnumöguleika og atvinnuör-
yggi. Þótt hún sé í eðli sínu
hlutlaus, jafnar hún samt met-
in milli þeirra greina sem mest
aðsókn er að og hinna sem út-
undan verða. Því veldur hlutlaus
fræðsla um atvinnumöguleikana.
Starfsfræðslan er þannig bæði
frá mannúðarsjónarmiði og hag-
nýtu sjónarmiði þjóðarnauðsyn.
Við íslendingar erum fámenn
þjóð og okkur er því meira virði
en flestum öðrum þjóðum að
enginn einstaklingur glatist
heldur komist á sem réttasta
hillu í lífinu. Að því stuðlar vel
skipulögð og samvizkusamlega
framkvæmd starfsfræðsla. Þess
vegna er þessi tillaga flutt. Um-
fram allt þurfum við að hagnýta
vinnuafl okkar sem bezt og
tryggja þróttmikinn rekstur
framleiðslutækja okkar, sagði
Sigurður Bjarnason að lokum.
Tillögunni var vísað til alls-
herjamefndar.
Tva*r fyrirspurnir
Á ALÞINGI var í gær útbýtt 2
fyrirspurnum. Sú fyrri er til fé-
lagsmálaráðherra frá Benedikt
Gröndal og hljóðar svo: „Hvað
líður störfum nefndar, sem fé-
lagsmálaráðherra skipaði 20. des.
1958 til að endurskoða lög nr. 36
frá 1952, um opinbera aðstoð við
byggingar íbúðarhúsa í kaupstöð
um og kauptúnum?“ Hin síðari
er til fjármálarúðherra frá Þór-
arni Þórarinssyni og er hún á
þessa leið: „Er það stefna ríkis-
stjórnarinnar að láta gerðardóm
fella úrskurði um skaðabótakröf-
ur,-sem gerðar eru á hendur rík-
issjóði, í stað þess að dómstólarn-
ir fjalli um þær?“. f
í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
Siglfirðingar
minnast afmælis Siglufjarðar í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld kl. 8,30.
Ávarp: Gunnar Jóhannsson, alþm.
Sýning: Revían „EITT LAUF“
Aðgöngumiðar í Sjálfstæðishúsinu kl. 2,30. Simi
12339. — Pantanir sækist fyrir kl. 4.
NEFNDIN.
2 skrifstofuherbergi
til leigu strax vestan til í miðbænum.
Tilboð sendist í pólsthólf 147.
Ávaxta sparifé með hæðstu innlánsvöxtum.
^iiarisjóðurinn P U N DIÐ
Klapparstíg 25.
Opið kl. 10,30—12 f. h. og 5—6,3G e. h.
Bæklaðir og sjúkir fá
150 bifreiðir í stað 50
Umræður um viðskiptamdlin a lokastigi
FRUMVARP ríkisstjórnar-
innar um innflutnings- og
gjaldeyrismál kom til einnar
umræðu á fundi Neðri deild-
ar Alþingis í gær.
Eins og skýrt hefur verið frá
samþykkti E. d. einróma smá-
vægilega breytingu á frumvarp-
inu við 3. umræðu þess. Var sú
breyting um það, að fjármála-
ráðuneyti skyldi vera heimilt
að lækka aðflutningsgjöld af efni
vörum til skógerðar, þar til lokið
er endurskoðun tollskrárinnar,
sem nú stendur yfir.
Margar bifreiðaumsókmr
bæklaðra
Þegar frumvarpið kom á dag-
skrá Neðri deildar aftur i gær,
kvaddi viðskiptamálaráðherra
Gylfi Þ. Gíslason, sér hljðs og
gerði í stuttu
máli grein fyrir
ástæðunum til
ofangreindrar
breytingar. Síð-
an skýrði hann
Erá því, að nú
lægju fyrir sér-
fræðinganefnd,
er með hefðimeð
ið gera umsókn
ir bæklaðra og sjúkra um niður
fellingu aðflutningsgjalda af bif
reiðum, umsóknir í hundraðatali
og teldi nefndin mjög erfitt að
kveða upp úr með það, hverjir
af umsækjendum ættu mest til-
kall til þeirra 50 bifreiða, sem
lög heimiluðu að gefin væru eftir
aðflutningsgjöld á. Af þessari
ástæðu teldi ríkisstjórnin sann-
gjarnt að fjölga þeim bifreiðum,
sem hér væri um að ræða, og
hefði í samræmi við það ákveðið
að leggja fram breytingatillögu
við bráðabirgðaákvæði frum-
varpsins um innflutnings- og
gjaldeyrismál þess efnis, að
fjöldi umræddra bifreiða mætti
árin 1960 og 1961 vera 150 hvort
ár. Lagði G.Þ.G. síðan fram skrif-
lega breytingatillögu um þetta
efni, og kvaðst vonast til að mál-
íð fengi fljóta afgreiðslu.
Einar talar um
Einar Olgeirsson notaði þetta
tækifæri til alllangra ræðuhalda
um viðskiptamálin almennt og
óskaði að lokum eftir því að
málinu yrði vísað til nefndar í
deildinni aftur, vegna tillöguflutn
ings G.Þ.G., sem hann kvað bera
vott um að allt væri kák, sem
stjórnin gerði. Nokkrar umræður
urðu í framhaldi af þessu um þing
sköp, hvort skylt væri að senda
málið til nefndar, en í því efni
stönguðust að nokkru leyti á bók
stafur þingskapa og þær venjur,
sem þróast rafa í þinginu. Varð
sú niðurstaðan, að tillaga E. Olg.
um að vísa málinu til fjárhags-
nefndar var í samræmi við hans
vilja borin undir atkvæði — en
ieiid með 19:15. Þá varð deildar
forseti, Jóhann Hafstein, við
óskum E. Olg. um að fresta fundi.
Þegar fundurinn var settur að
nýju stundarfjórðungi síðar,
skýrði E. Olg. frá því að hann
mundi ekki skila
nýju nefndar-
áliti eða flytja
breytingartillög
ur, við hinar
ý m s u greinar
frumvarpsins,
eins og hann
hefði ætlað sér,
enda ekki gefizt
tími til. A hinn
bóginn vildi hann flytja breyt-
ingatillögu við hina skriflegu
breytingatillögu G.Þ.G. um fjölg-
un bifreiða til fatlaðra og sjúkra.
Væri það tillaga sín, að heimildin
yrði aukin upp í 250 bíla. Astæð-
an til þessarar breytingartillögu
aí sinni hálfu sagði E. Olg. að
væri sú, að ef hún yrði samþykkt,
væru meiri líkindi til þess að við
gætum staðið við gerða samninga
um bílakaup frá Sovétríkjunum.
Atkvæði féllu svo, að breytingar
tillaga E. Olg. var felld með 19
gegn 9, en tillaga G.Þ.G. sam
þykkt með samhljóða atkvæðum.
Var frumvarpið í heild þannig
breytt samþykkt með 22 atkvæð-
um gegn 11 og fer þá aftur til
einnar umræðu í Efri leild. —
Þess má að lokum geta, að fyrir
hugað mun vera, að hin nýju
ákvæði um innflutnings og gjald
eyrismál komi til framkvæmda
1. júní n.k.
Frimerki
Flóttamannamerki frá allri
Evrópu. —
FRÍMERKJASALAN
Lækjargata 6-A.
IÐNÓ IÐNÓ
nýjumg
E R O N
ásamt
ÞÓR NILSEN
skemmta
DANSAÐ
í kvöld
kl. 9—11,30